Vísir - 31.07.1963, Side 4
4
VÍSIR . Miðvikudagur 31. júlí 1963.
Leikur okkar við heims-
meistarana. ITALI
Baden-Baden, 28. júlí 1963.
Tjað komu spil til þess að vinna
hina norrænu frændur okkar í
seinnl hálfleik, en því miður var
spilaguðinn á móti okkur. Strax
í fyrsta spilinu lenti ég í slemmu,
sem ég tapaði. Spilið var eftirfar-
andi:
Norður gefur, n-s á hættu.
Stefán
♦ 3
4 K-9-8-4-2
♦ Á-D-9-8-6-5
*6
Sörensen
4 10-9-8
5-4-2
¥5
4 10-2
* G-10
9-8
4 Á-K-G
4 Á-10-6
4 4-3
♦ Á-K-D-3-2
Lárus
Sagnirnar hjá
voru eftirfarandi:
okkur Lárusi
Norður Suður
p 1 *
1 V 2 4
3 4 3 4
4 4 5 4
6 4 P
Otspil vesturs var laufagosinn,
sem var drepinn i borði. Þá kom
tígull, drottningunni svínað,
hjarta og drepið upp á ásinn. Enn
kom tígull, austur lét kónginn og
ég drap með ásnum. Nú var ég
í vanda staddur. Ef ég spilaði tígli
og austur hefði átt aðeins tvo
tígla og hónor annan í trompi,
þá var slemman töpuð. Væru
trompin hins vegar tvö og þrjú
var slemman örugg, hvar sem tig-
ulgosinn var. Ég tók þvi á hjarta-
kónginn og allt var glatað.
Við hitt borðið reyndi litt á
úrspilagetu hinna norsku, því þeir
melduðu eftirfarandi á spilin:
Norður Suður
P 1 *
14 3 4!
6 4 6 G
P
Þriggja tígla sögn suðurs rak
hann í sex grönd, sem velta ein-
göngu á því að tígulkóngurinn
liggi rétt og sé ekki fjórði. Þetta
var fyrir hendi og Norðmenn
græddu því 17 stig á spilinu.
Símon og Þorgeir og við Lárus
spiluðum leikinn og lyktaði hálf-
leiknum 49:47 fyrir Noreg og tap-
aðist leikurinn því með 107:64.
Á móti Spáni spiluðum við Lár-
us og Ásmundur og Hjalti
fyrri hálfleik. Gekk hann frekar
skrykkjótt og vorum við 25 und-
ir í hálfleik, eða 50:25. 1 seinni
hálfleik komu Símon og Þorgeir
inn fyrir Ásmund og Hjalta og
tókst okkur að bjarga einu vinn-
ingsstigi.
urinn að lokast og næsti slagur
að vera byrjaður. Ég flýtti mér
því að láta út í næsta slag og
þar með var Spánverjinn klófest-
ur. Hann uppgötvar nú litarsvik-
in. Til allrar hamingju greip Guð-
laugur í taumana og náði í keppn-
isstjórann og var ég því laus allra
mála. Dómurinn var skjótur, fái
andstæðingarnir tvo slagi eftir lit-
arsvikin eru tveir sektarslagir,
annars einn. Ég vann því sjö
grönd á miður heiðarlegan máta.
Stefán Guðjohnsen
ritar frá Evrópumót-
inu í bridge
Reglur um litarsvik eru mjög
strangar hér á mótinu og getur
það sett mann í heldur leiðinleg-
ar kringumstæður. Á móti Spáni
var ég að spila þrjú grönd og
hafði ég átta slagi örugga. í
fimmta slag svíkur annar Spán-
verjanna lit. Þar eð hinn Spán-
verjinn var heldur ekki með í
litnum var mér fullkunnugt um
Iitarsvikin. Til þess að litarsvik
séu lagalega staðfest verður slag-
Til allrar hamingju fyrir Spánverj
ana stóðu alltaf þrjú grönd, svo
þeir töpuðu aðeins þremur punkt-
um á spilinu.
Seinni hálfleik lyktaði 54:41 fyr
ir okkur og allur leikurinn var í
tölum 91:79 eða 1 vinningsstig
gegn 5.
Við heimsmeistarana, ítali, spil-
uðum við Lárus og Ásmundur og
Hjalti allan leikinn. Við Lárus
spiluðum fyrri hálfleik í lokaða
salnum móti D’Alelio og Chiara-
dia. Gekk það heldur vel og vor-
um við ánægðir með hálfleikinn.
Á hinu borðinu áttu Ásmundur
og Hjalti líka góðan leik þar til
kom að spili nr. 18. Hófst þá
ringulreið, sem ekki á sinn líka
á Evrópumóti. Fyrsti þáttur hófst
með þvf, að borðvörðurinn lét
spil 19 á borðið í stað 18. Voru
stöður öðruvísi í þessum báðum
spilum, þannig að í fyrra spilinu
voru Ásmundur og Hjalti utan
hættu og hinir á, en í hinu spil-
inu öfugt. Þessi spilavíxl virðast
hafa farið fram hjá okkar mönn-
um, því áður en varði voru þeir
komnir í fjóra spaða við fjórum
hjörtum hjá Itölunum, sem voru
doblaðir. Ásmundur var 1100 nið-
ur. Ekki er sagan þar með öll.
í þessu umrædda spili sveik ann-
ar Italana lit í fimmta slag. Italsk-
ur vara-kapteinn, sem sat við hlið
hans, kunni þessu ílla og vakti
athygli hans á því áður en Ás-
mundur hafði spilað út í næsta
slag. Fór þetta heldur í taugar
Ásmundar, en lét hann þó þar við
sitja. Síðan reiknum við út hálf-
leikinn og hafa ítalimir unnið
hann, 41:27.
Við vorum heldur gramir yfir
umræddu spili og náðum í Her-
man Filarski og spurðum hann
ráða. Sagði hann að lítið væri að
gera yfir mistökum borðvarðar-
ins, þar eð allt sem máli skipti
stæði á sjálfum spilabökkunum.
Með hitt atriðið sagði hann mér
að skrifa kæru hið snarasta, því
kærufrestur væri aðeins hálftími
eftir að leik er lokið. Ég skrifaði
kæru og skýrði frá málavöxtum
og fór fram á það að spilið væri
spilað upp. Ég hafði spilað þrjú
grönd á umrætt spil og unnið
Framh. á 10. síðu.
JAPANSKIR
i.ósrt li’r.V
NITTO
HJÓLBARÐAR
SÖLUUMBOÐ:
BÚÐARDALUR — Jóhann Guðlaugsson.
BLÖNDUÓS — Zophónías Zophóníasson.
SAUÐÁRKRÓKUR — Bjarni Haraldsson.
AKUREYRI-DALVÍK — Gunnar Jónsson.
EGILSSTAÐIR - Bílabúðin.
BREIÐDALSVÍK - Elías Sigurðsson.
SELFOSS — Verzlunin Ölfusá.
ntv
ÚTSÖLUVERÐ MEÐ SÖLUSKATTI
900x16 8 NT-35 Nylon Kr. 3.400,00
750x20 10 NT-65 — — 2.975,00
750x20 10 NT-150 — — 3.010,00
825x20 12 NT-66 — — 3.815,00
825x20 12 NT-500 — — 3.850,00
825x20 14 NT-500 — — 4.115,00
825x20 14 NT-60 — — 4.185,00
825x20 14 NT-69 — — 4.250,00
900x20 12 NT-66 — — 4.140,00
900x20 12 NT-500 — — 4.140,00
900x20 12 NT-35 Rayon — 4.355,00
900x20 14 NT-500 Nylor. — 4.405,00
900x20 14 NT-60 — — 4.455,00
900x20 14 NT-69 — — 4.765,00
1000x20 14 NT-500 — — 5.775,00
1000x20 14 NT-63 — — 5.775,00
1000x20 14 NT-69 — — 5.975,00
1100x20 14 NT-63 — — 6.215,00
1100x20 16 NT-63 — — 6.770,00
EINKAUMBOÐ Á ÍSLANDI
GROTTAh/f
Þórsgötu 1, Reykjavík.
Símar: 23606 - 24365.