Vísir - 31.07.1963, Blaðsíða 5

Vísir - 31.07.1963, Blaðsíða 5
5 VjSIR. Miðvikudagur 31. júlí 1963. Sjálfsfæðisbarátfa Færeyinga: Vilja ekki setu leng- ur í danska binginu Við setningu Lögþings- ins í Færeyjum í fyrradag boðaði Hakon Djuurhus lögmaður í stefnuskráryf- irlýsingu, að landsstjórn Færeyja setti sér sem mark á því þingi, sem nú væri að byrja, að leggja niður, að hafðir yrðu Fær- e; jafulltrúar á þingi Dana. I'ulltrúar Færeyja í fólksþinginu eru nú Johan Poulsen yfirkennari frá Sambandsflokknum (og Vinstri- fl.) og séra Johan Nielsen frá Jafn- a§arma,nnaflokknum. Politiken skýrir frá því, að fær- eyska landstjórnin hafi annars boð- að endurskoðun „heimastjórnarlag- anna frá 1948“ með aukna sjálf- stjórn að marki. Politiken segir einnig, að ákveðið sé í stjórnarskránni, að Færeyjar eigi fulltrúa á þjóðþingi Danmerk- ur, og verði því ekki breytt f einni svipan, þótt það kunni að vera þyrnir í augum Stjálfstjórnarflokks ins, að þeir flokkarnir, sem hóf- samari eru í kröfum (de modarate partier) skipi bæði sætin. En hvað sem líður skoðunum danskra blaða er litið á þetta sem nýtt skref í sjálfstæðisbaráttunni. í heimsfréttunum er nú farið að gæta þeirrar skoð- unar, að liðssafnaður kín- verskra kommúnista og á- rásir norður-kóreskra her- manna á bandaríska her- ^menn sunnan afvopnaða beltisins, séu liðir í áætl- un Mao tse-Tung og þeirra sem honum fylgja, til þess að sýna þeim, er aðhyllast stefnu Krúsévs um friðsam Ieg samskipti þjóða, í tvo heimana. DÓMUR ÍMÁLl WARD'S LÆKNIS FELLUR ÍDAG Úrskurðu. í máli Wards læknis fellur í dag. Réttarhöldunum í máli Stephens Wards læknis lauk í gær með því að Marshall dómari rakti helztu málsatriði og leiðbeindi kviðdóm- inum, en í honum sitja 12 manns, þar af ein kona. Dómarinn Ieiddi athygli að þvf, að verjendur Wards hefðu ekki leitt vitni, sem hefðu getað upp- Iýst málið. og styddi þetta ekki mál hans, en það væri ekki kvið- dómsins að sjá um að náð yrði til þessara manna. Hann taldi aug- ljóst að áhrifa gætti frá öðrum í vitnisburði hinna ungu stúlkna. Þá benti hann á, að kviðdómurinn yrði að taka afstöðu til þess hvort Iagalega skoðað væru þær vændis- konur Christine Keeler og Mandy Rice-Davies, hvort Ward hafi þá vitað um það, og hvort hann hafi tekið við fé kvenna á hans snær- um sem stunduðu vændi. SÍÐUSTU FRÉTTIR: Ward Iæknir fannst meðvit- undarlaus í íbúð sinni f London í morgun. Var hann þegar flutt- ur I sjúkrahús. Réttarhöldunum yfir Ward hefur verið frestað. Það má næstum segja, að Mao hafi kastað hanzkanum framan í Krúsév með harkalegri yfirlýsingu, sem birt hefur verið í Peking, þar sem hann er sakaður um að vera handbendi Bandaríkjamanna, fyrir að hafa snúizt gegn Kína, og gert svika- og prettasamkomulag „gagn- vart hundrað þjóðum heims“ með Bretum og Bandaríkjamönnum. Samtímis berast fréttir um að Kína hafi 2000 herflugvélar reiðubúnar í Tíbet og flytji stöðugt lið og vist ir til norðurlandamæra Indlands. | Nehru hafði fund með landvarna- ráðunautum sínum í gær og stóð sá fundur í lJ/2 klst., en þar næst boðaði hann stjórnarfund og gerði grein fyrir ákvörðunum fundarins. Nehru ávarpaði einnig í gær ind- versku þjóðina og bað hana gæta árvekni vegna hættunnar. Hann sagði að kínverskir kommúnistar væru búnir að taka sér yfirráð aft- ur á 20 km. breiðri spildu, sem sam komulag var um að hvorugur að- ila færi inn á. í fréttum frá Bandaríkjunum seg ir, að þegar verði tekið fyrir hvað gera skuli ef til nýrrar innrásar Brauð hækkar Frá og með deginum í dag hækk- ar verð á ýmsum brauðvörum. Heil- hveitibrauð munu nú kosta kr. 6.30 (áður kr. 5.80), franskbrauð kr. 6.30 (áður kr. 5.80), stykkið af vínar- brauði kr. 1.75 (áður kr. 1.55), kringlur kr. 20.30 ktlóið (áður kr. 18.00) og tvíbökur kr. 28.50 kílóið (áður kr. 26.00). Stofublóm ekki til mannedis Stofublómið Dieffenbachia er fjarska vinsælt hér á Iandi. 1 bandarfska vikuritinu TIME (19. júlí) er fólk emdregið varað við því að leggja sér til munns stofublóm sín, og er plantan Dieffenbachia nefnd sem dæmi um eitraðar jurtir, en hún er mjög vinsælt stofublóm hér á landi. Kona nokkur, sem nagaði í hugsunarleysi stilk af þeirri plöntu, varð að fara á spítala samdægurs með stokkbólgna tungu og önnur einkcnni eitr- unar, og var hún meira en viku að jafna sig eftir brunasár í munni og hálsi. Bandaríska blað ið varar lesendur sína við að naga stilka eða blöð þessarar jurtar og brýnir þó einkum fyr- ir fólki að láta börn ekki gera það, því að afleiðingarnar gætu orðið afdrifaríkar. í tilefni af þessari frétt sneri Vísir sér til Aage Foged, eig- anda blómabúðarinnar Hraun, og sagði hann, að Dieffenbachia væri meðal vinsælustu stofu- blóma hérlendis. En hann tók skýrt fram, að hann teldi hana alls ekkert hættulegri en fjöl- margar aðrar jurtategundir,: enda væru stofublóm ekki ætl- uð til manneldis. Sagði hann, að margar plöntur væru miklu eitraðri en Dieffenbachia og nefndi sem dæmi blöðin af Monsteru og Kallablóm. Auð- vitað mætti ekki naga af þeim stilka, blöð eða blóm fremur en öðrum plöntum, því að þær hefðu flestar inni að halda ein- hver eiturefni. kemur í Indland. Flogið hefur fyrir, að Sovétríkin muni nú láta Indlandi mikinn vopnabúnaði £ té, m. a. eldflaugar, en áður hefir verið sagt frá sam- komulagi um sameiginlegar æfing- ar indverskra, bandarískra og brezkra flughersveita á Indlandi. MEÐAN KÍNVERJAR HAMAST En meðan Kínverjar hamast geng ur allt sinn gang varðandi sam- komulagið, sem gert var í Moskvu, — það verður formlega undirritað f Moskvu á mánudag næstkomandi af utanríkisráðherrum Þríveldanna, að viðstöddum framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna U Thant. Og í Genf er 17 þjóða afvopnun- arráðstefnan hafin á ný og töluðu allir fulltrúar Þrlveldanna í mikl- um samstarfsanda. Fulltrúi Sovét- ríkjanna ítrekaði, að sovétstjórnin teldi að næsta skrefið ætti að vera að griðasáttmáli, lækkun útgjalda til vígbúnaðar og eftirlit. Viðbánaður — Framtiald -.1 bls l. ar á landinu um að veita bílum þjónustu yfir helgina. Meðal þessara verkstæða sem opin verða eru stór og fullkomin verkstæði við fjölförnustu veg- ina. Verkstæði verða opin á Selfossi, Hellu og Hvolsvelli, einnig verður viðgerðarbíll stað settur við Vík í Mýrdal. Þá verður maður á vegum F.l.B. við Botnsskála í Hvalfirði, sem gera mun við hjólbarða og er það algjör nýjung í starfsemi fé lagsins. Fullkomin bifreiða- verkstæði verða opin í Borgar- nesi, Laugarbakka, Blönduósi og á Akureyri, auk fjölmargra smærri verkstæða. Bifreiðir Vegaþjónustunnar verða á öllum helztu umferðar- vegum á Suð-Vestunlandi og verður hægt að koma skilaboð- um til bílanna í gegnum Gufu- nesradíó, sími 22384, og einnig er hægt að biðja Selfossradíó um að koma skilaboðum áleiðis til viðgerðabílanna. Meðlimir hjálparsveitar skáta í Reykjavík verða í bílunum með hjúkrunargögn frá Slysa- varnarfélaginu og munu skát- arnir veita svokallaða fyrstu hjálp á slysstað og einnig geta vegfarendur leitað til þeirra þó þeir hafi ekki lent í umferðar- slysi. ALLTAF FJÖLGAR VOLKSWAGEN FERÐIZT í VOLKSWAGEN /

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.