Vísir - 31.07.1963, Síða 11
VÍSIR . Miðvikudagur 31. júlí 1963.
n
ANP I SHALL
CAKRY OUR
PRECIOUS-
POLL. WE U)
WOULCTN'T V
WANT HER )
TO SET J
LOST, W
WOULO |í
WE? /f ,
' WE'LL <SET THE
P/AMONPS WROUSH,
LURE YOUR HIJACKER
INTO THE OFEN, OR
EOTH,MlNS.ANY/WAY
~\V YOU CAN'T LOSE.
PRECISELY
THE SORT OF
SAME I LIKE
TO PLAY,
KIRBY...
Þjóðskjalasafnið er opið al’.a
virka daga kl. 10—12 og 14—19.
Landsbókasafnið. Lestrarsalur
opin alla virka daga ki. 10—12,
13—19 og 20—22 nema laugar-
daga kl. 10—12 og 13—19. Út-
lán alla virka daga kl. 13—15..
Árbæjarsafnið er opið á hverjum
degi frá kl. 2—6 nema á mánu-
dögum. Á sunnudögum er opið
frá kl. 2—7. Veitingar í Dillons-
húsi á sama tíma.
Þjóðminjasafnið og Listasafn
ríkisins er opið daglega frá kl.
1,30 til 16.
Minningars pjöld
Minningarspjöld Blómasveiga-
sjóð Þorbjargar Sveinsdóttur eru
seid hjá Ásiaugu Ágústsdóttur,
Lækjargötu 12., Emelíu Sighvats-
dóttur Teigagerðj 17, Guðfinnu
Jónsdóttur Mýrarholti við Bakka-
stíg, Guðrúnu Benediktsdóttur,
Laufásvegi 49, Guðrúnu Jóhann-
esdóttur Ásvailagötu 24, Skóverzl
un Lárusar Lúðvíkssonar Banka-
stræti 5 og Bókaverzlun Sigfúsar
Eymundssonar.
Minningarspjöld styrktarsjóðs
starfsmannafélags Reykjavíkur-
Við komum gimsteinunum á-
reiðanlega í gegn, segir Rip við
Ming, við leikum á þennan þorp-
ara sem hefur rænt þig að undan-
förnu. Það einmitt eins og ég vil
hafa það, segir Ming ánægjulega.
Þú ferð með ungfrú Fan, segir
Rip við þjónustustúlkuna, Og ég
ætla að halda á hinni dýrmætu
dúkku, segir Fan hlæjandi, við
viljum ekki að hún týnist ekki
satt?
Nýlega hófs í Mokka, sýning
á 11 olíumálverkum eftir imga
fslenzka húsmóður, frú Ástu
Gunnlaugsdóttur. Frú Ásta er
aðeins í stuttri heimsókn hér á
landi, ásamt manni sínum Bimi
I. Gunnlaugssyni og tveim böm
um, sem heita Þór Bjöm og
Ingrid Margrét. Þau em búsett
f Fort Laverdale f Florida. Þetta
er fyrsta sjálfstæða sýningin
sem frú Ásta heldur, en áður
hefur hún átt myndir á nokkr-
um sýningum erlendis.
Myndir þær sem hún sýnir
hér eru allar málaðar f Banda-
ríkjunum, og allar hlutlægar.
Þegar á fyrsta degi seldust
4 af myndum frú Ástu.
YOU’LLTRAVEL WITH MIISS
’LE. I'LL BB A
ON THE PLANE
WHO MAKES YOUR
A/'W1 AIMTAMA’C
borgar fást á eftirtöldum stöðum:
Borgarskrifstofum Austurstræti
16, Borgarverkfræðingaskrifstof-
um Skúlatúni 2 (bókhald) Skúla-
tún 1 (búðin), Rafmagnsveitan
Hafnarhúsinu á tveim stöðum, Á-
haldahúsinu við Barónstíg, Hafnar
skrifstofunni, Bæjarútgerðinni
skrifstofunni, Hitaveitan Drápu-
hlíð 14, Strætisvagnar Reykjavík-
ur Hverfisgötu 115 og Slökkvi-
stöðin Tjarnargötu 12.
Tilkynning
Verð fjarverandi til 12. ágúst.
Séra Gunnar Árnason.
Áskrifendaþjónusta VÍSIS.
Ef Vísir berst ekkj með skilum
til áskrifenda eru þeir beðnir að
hafa samband við áskrifendaþjón-
ustu Vísis, síma 1-16-60. Þar er
tekið á móti beiðnum um blaðið
til-kl. 20 á hverju kvöldi, og það
sent strax til allra þeirra, sem
gera viðvart fyrir þann tíma.
Syndið 200
metrana
% % STJÖRNUSPÁ #
Fimmtudagurinn 1. ágúst.
Hrúturinn, 21. marz til 20.
apríl: Það væri hyggilegt af þér
að koma þeim bréfaskriftum frá,
sem að undanförnu hafa beðið
afgreiðsiu hjá þér, sérstaklega,
ef þau eru viðvíkjandi útlöndum
Nautið, 21. apríl til 21. maí:
Það eru horfur á jákvæðum ár-
angri, ef þú knýrð dyra hjá
gömium og skuldunautum, eink
um ef fleiri en þú standa að
baki reikningnum.
Tvíburarnir, 22. maí til 211
júní: Leitaðu ráðlegginga náinna
vina þinna og kunningja gagn-
vart þeim vandamálum, sem
krefjast úrlausar í dag. Kvöld-
stundirnar hentugar til skemmt
ana.
Krabbinn, 22. júni til 23. jfclí:
Vinnuféíagar þínir ættu að
verða þér venju fremur sam-
starfsfúsir í dag við þau verk-
efni, sem kunna að reynast of-
viða einum. Leitaðu til þeirra
með vandræði þín.
Ljónið, 24. júll til 23. ágúst:
Dagurinn ætti að reynast þér
skemmtilegri en venjulega, og
góður tími er til að bollaleggja
ýmsa framtíðardrauma. Kvöld-
stundirnar hentugar til að fara á
bíó eða dans.
Meyjan, 24. ágúst til 23. sept.:
Athygli þín mun nú beinast
meir að heimiiinu, sakir vanda-
mála, sem kunna að rísa þar.
Hyggilegt væri að taka útgjöldin
til umræðu og samræma þau
tekjunum.
Vogin, 24. sept. til 23. okt.:
Lausn aðsteðjandi vandamála
dagsins gæti krafizt smáferðar
til náins ættingja. Ýmis kynn-
ingarstarfsemi í sambandi við
störf þín gæti reynst þér vel
nú.
Drekinn, 24. okt. til 22. nóv.:
Persónuleg fjármál þín koma
nú mikið við sögu, og þér ber
að hafa vakandi auga með fjár-
aflatækifærum, sem kunna að
bjóðast.
Bogamaðurinn, 23. nóv. til 22.
des.: Þú átt nú mjög auðvelt
með að vekja athygli annarra
á þörfum þínum og sjónarmið-
um, einkum varðandi persónu-
leg málefn; þín. Gerðu því grein
fyrit>málLþínu. JL i.
Steingeitin, 22. des. til 20.
jan.: Plánetustraumarnir styðja
þig lítið í dag, og því ætturðu
að láta sem minnst á þér og
þínum sjónarmiðum bera. Leit-
aðu þér góðrar hvíldar í kvöld.
Vatnsberinn, 21. jan. til 19.
febr.: Ef þú heldur vel á mál-
unum, þá gæti gamall draumur
þinn rætzt í dag fyrir tilstilli
eins vinar þíns. Þátttaka í félags
lífinu heppileg í kvöld.
Fiskarnir, 20. febr. til 20.
marz: Ráðleggingar eldri pers-
ónu gjætu komið sér betur fyrir
þig en í fyrstu á horfðist. Að-
ilar I ábyrgðarstöðum munu
reynast þér vel. ef þú leitar til
þeirra.
FRÆGT FÚLK
Kvikmyndin um hetjudáðir
Kennedy forseta hefur nú ver-
ið frumsýnd í London og eftir
frumsýninguna skrifaði kvik-
myndagagnrýnandi Daily Ex-
Kennedy
press: — Kennedy forseti á við
mörg vandamál að etja, en ég
held að þessi kvikmynd sé það
versta sem hann hefur fengið
á árinu.
Nú er hafin taka á tveggja
stunda langri kvikmynd um
feril Sir Winstons Churchills
frá upphafi fyrri heimsstyrjald
arinnar til ársins 1945 er hann
dró sig í hlé sem forsætisráð-
herra. Reiknað er með að kvik
myndin verði tilbúin til sýn-
inga á komandi hausti.
Kvikmyndatökunni stjórnar
bandariski kvikmynda- og sjón
varpsmyndamaðurinn Jack le
Viem, sem áður hefur gert sjón
varpsmynd um Churchill.
Hollywood-kynbomban Jáyne
Mansfield er nú alveg óð í að
fá að leika Kleópötru. „Ég vil
sýna heiminum að ég get gert
það betur en Liz Taylor“, skrif
ar hún í bréfi til ítalska kvik-
myndaframleiðandans Enrico
Mansfield
Bomba sem er að undirbúa
Kleópötru-Antoníusarkvik-
mynd. Ætlunin er að Antoníus
verði leikinn af Nelson Sard-
elli, sem er bezti vinur Jayne
um þessar mundir. Ef til vill
nýtt Liz Burton ævintýri?
Nancy Sinatra, dóttir kvik-
myndaleikarans Frank Sinatra
fær nú loksins að spreyta sig
á aðalhlutverki í kvikmynd.
Hún á að leika ásamt James
Darren og Pamelu Tiffin 1
„Hugmyndaflug ungs manns“,
sem kostuð er af Frank Sinatra
sjálfum.