Vísir


Vísir - 30.08.1963, Qupperneq 9

Vísir - 30.08.1963, Qupperneq 9
V1 SIR . Föstudagur 30. ágúst 1963. 9 Húsinu lokað kl. 11. - Svefnherbergi lokuð kl. 9-18.30. — Bannað að fara með mat inn í svefnherbergin. Þetta er meðal þess sem stendur á spjöldum þeim, sem hanga á veggj um forstofu eins hótels- ins í Reykjavík. Þótt hó- ann, því næst. 1 Austurbæjar- skólanum þangað til í ár að það flutti hingað. Það er mikill munur að vera hér, þótt þetta sé engan veginn fullnægjandi. Við urðum að flytja fólk hing- að inn sama daginn og við fengum húsið, svo að þótt við hefðum viljað gera eitthvað var enginn tími til þess“. „Eiga farfuglar þetta hús?“ „Nei, borgin hefur lánað okk- ur það og sömuleiðis skrifstofu- húsnæði i húsi Æskulýðsráðs við Lindargötu. Þetta hús er gamalt fbúðarhús og því er margt öðruvísi en æskilegt væri. T. d. eru aðeins tvö snyrtiher- bergi í húsinu og eru þau alger- lega ófullnægjandi. En farfugl- ar kunna að nota sér Laugarn- ar, sem eru hér hinum megin við götuna og segja má að þær bjargi alveg hreinlætinu hérna“. Farfuglaheimilið er allstórt timburhús, kjallari, hæð og ris. Á öllum hæðum er gistiher- bergi með kojum og á aðalhæð- inni eru auk þess stórt eldhús í setustofunni er oft glatt á hjalla þegar farfuglar frá ýmsum löndum eru þar saman komnir. Eru þá mörg mál á dagskrá og verða fjörugustu umræðumar yfirleitt um stjórnmál. Tveir piltarma á myndinni eru Engiendigar sá þriðji er Þjóðverji. ________________________ Þar gista ferðalangar frá öllum heimsálfum tel þetta sé oftast nær fullsetið er það ekki mjög þekkt meðal borg- arbúa, og sumir vita alls ekki að það er til. Hótelið, sem ef til vill er ekki rétt að kalla hótel, er Far- fuglaheimilið, sem nú er í fyrsta skipti til húsa að Víðivöllum við Sundlaugaveg. Hvað er farfuglaheimili og hvað er farfugl, spyr nú vafa- laust einhver, og til þess að fá svör við þvf höldum við inn að Víðivöllum og hittum þar að máli Ragnar Guðmundsson for- mann Bandalags íslenzkra far- fugla og Jón Alfonsson, sem er eftirlitsmaður Farfuglaheimilis- ins. „Farfuglahreyfingin er upp- runnin f Þýzkalandi og er fé- lagsskapur karla og kvenna sem nefna sig farfugla og vilja á ódýran hátt ferðast um, bæði um Iand sitt og önnur lönd. Félagsskapurinn stendur fyrir ferðalögum og rekur vfða hin svo nefndu farfuglaheimili þar sem farfuglar hvaðanæva að geta gist á ferðum sínum. Far fuglahreyfingin nær nú til margra landa í öllum heimsálf- um og hafa farfuglar um allan heim myndað bandalag, sem nefnist Alþjóðabandalag far- fugla. Ársþing þess var nú ný- lega haldið á írlandi. — Þjóðverjar voru fyrstir til að koma upp farfuglaheimilum og eiga þeir nú langflest, enda kunna þeir þjóða bezt að nota sér þau“. „Hvenær var Bandalag ís- lenzkra farfugla stofnað?" Það var stofnað árið 1939, en f stríðinu var lítið hægt að að- hafast og fyrst árið 1952 gerð- umst við meðlimir i Alþjóða- bandalagi farfugla. Árið 1951 var fyrsti vísirinn að farfugla- heimili í Melaskólanum, síðan í litlu húsi við Lindargötuskól- og setustofa. Farfuglar verða annaðhvort að koma með svefn- poka með sér eða léreftspoka, sem vefja má inn í teppi, sem hægt er að fá lánuð". „Hvað geta margir gist hér í einu?“ „Það eru rúm fyrir 50, en þegar á þarf að halda er hægt að bæta við. Það er verst þegar Drottningin eða Gullfoss eru f höfn, því að þá koma hingað bæði þeir, sem eru á leið út og hinir, sem eru að koma til landsins. Nú liggur t. d. Gull- foss inni og því erum við báð- ir hér því að mikið er að snú- ast“. „Eru eftirlitsmenn hér allan sólarhringinn?" „Já, við erum tveir, sem höf- um eftirlitið aðallega með hönd um“, segir Jón, „ég og Svan Haraldsson Trampe og skipt- umst við á að vera hér. Ef við getum ekki verið fáum við fyr- ir okkur einhvem farfugl til að líta eftir. Svefnherbergjum er Iokað yfir daginn og hafa þá gestirnir aðeins aðgang að eld- húsinu og setustofunni. Þannig er það yfirleitt á farfuglaheim- ilum, þau eru ætluð sem gisti- hús en ekki sem dvalarheimili. — KI. 11 á kvöldin er svo öllu lokað og á þá kyrrð að vera komin á. Hafi fólk gert boð á undan sér og seinki síðan af óviðráðanlegum ástæðum hleyp- um við því inn þótt seint sé“. „Eru þá engin ólætj eftir þann tíma?“ „Nei, farfuglar vita að ef þeir gerast á einhvern hátt brotlegir við lög hússins eiga þeir á hættu að við höldum eftir far- fuglaskírteini þeirra og sendum heim til viðkomandi Iands“. „Eru farfuglaheimili víðar en í Reykjavík?" „Nei, það er ekki hægt að segja að það séu farfuglaheim- ili úti á landi núna, en við höf- um leyfi til að vísa á pokapláss t. d. á Hreðavatni og á Hall- ormsstað og einnig á gistihús þau er Ferðaskrifstofan rekur á Akureyri ,og Laugarvatni. Þar er hægt að fá rúmstæði fyrir svipað eða litlu hærra verð en hér, en hér er það 25 krónur“. „Það þyrfti nauðsynlega að koma upp farfuglaheimilum með stuttu millibili úti um landið. Ef það gæti orðið yrði vonandi komizt hjá kvabbi þvl á sveita- bæjum, sem oft er kvartað und- an, en það er einungis vegna þess að fólk þetta fær hvergi unarferðir. Flest lönd reyna nú ;að, jú.trýpt^ þess.u fyrirbæri, t. d. ’ K \£,.31%§ ' 'kt l 'eru T Bfetrandi"sámtölr' ifarfugla ifcgbffösgís 1 blfreiðaeigéhda; að taka ekki upp puttaferða- langa og í USA varðar það hreint og beint við lög. Margir útlendingar sem koma hingað hafa undarlegar hug- myndir um landið og reynum við því oft að spyrja þá hvað þeir ætli sér hér. T. d. kom einn Þjóðverji, sem stóð í þeirri trú að hann gæti gengið umhverfis Farfugiaheimilið við Sundlaugaveg. „Er þarna ekki um að ræða puttaferðalangana, sem mörgum finnst vera að leggja undir sig Iandið?“ „Það er ekki svo gott fyrir okkur að fylgjast með því. Við höfum eftir megni reynt að hamla á móti puttaferðalögum og ef við erum spurðir hvort ekki sé hægt að ferðast þannig hérlendis gefum við yfirleitt neit andi svör en reynum þess í stað að benda fólki á hentugar áætl- landið á einum degi. Einnig er mjög algengt að menn ætli sér að ganga úr Þjórsárdal yfir að Heklu og reikna ekki með þvi að litla strikið á kortinu — Þjórsá — geti orðið "nokkur far- artálmi“. „Hvers konar fólk er það að- allega seni gistir hérna?“ „Það er rnikið skólafólk, svona um og yfir tvítugt, sem reynir að ferðast um á ódýran hátt í . sumarleyfunum. Það koma bæði einstaklingar og hóp pr, aðallega hópar Þjóðverja, í sumar hefúr verið mikið um -stúlkur hérna og það sem hef- ur furðað okkur mest er að þó nokkrar hafa verið einar sfns liðs. Herbergin hér sem ætluð eru stúlkum hafa stundum ver- ið full, þótt laus rúm hafi ver- ið I herbergjum piltanna, sem að sjálfsögðu eru fleiri". „Hvaða þjóðir hafa verið fjöl- mennastar hér?“ „í fyrra voru Bretar fjölmenn astir, gistu um 900 nætur. Mik ið er einnig um Þjóðverja og talsvert frá Norðurlöndunum, þó með minna móti f sumar. Annars kemur fólk alls staðar að, frá öllum heimsálfum. 1 fyrra voru útlendingar sem gistu hér í fyrsta skipti fleiri en ís- lendingar sem gistu á farfugla- heimilum erlendis". „En hvernig er með Islend- inga utan af landi. Gista þeir aldrei hérna?" „Jú, það hefur komið fyrir, en þó ekki í sumar. Þelr átta sig Ifklega ekki á þvf að það er hægt — en annars eiga flestir einhverja að f Reykjavík, sem þeir búa hjá“. „Hvað eru margir félagar í Bandalagi íslenzkra farfugla og hvernig er starfsemin hér innan lands?“ „Félagar eru nú tæplega 800. Á sumrin stöndum við fyrir ferðalögum bæði helgarferðum og sumarleyfisferðum. Á vet- urna eru haldnar kvöldvökur við og við en því miður er vetrarstarfsemin ekki sem skyldi því að við eigum ekkert hús- næði og verðum að vera hér og þar. Okkar draumur er að eignast húsnæði hér í Reykja- vík, þar sem hægt er að hafa allt undir sama þaki, farfugla- heimili, skrifstofu og aðra fé- lagsstarfsemi. Nú er verið að vinna að því að kaupa, þótt fjárhagurinn sé ekki sterkur, og við vonum að það takist innan skamms“.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.