Vísir - 17.09.1963, Síða 9

Vísir - 17.09.1963, Síða 9
V I SIK . PrtOjudagur 17. september i»e3. 9 -x 4 Búizt er við að sala á sementi frá Sements- verksmiðju r í k i s i n s verði meiri í ár en nokkru sinni áður. Þá má og geta þess að af- k ö s t verksmiðjunnar hafa verið aukin, þannig að úr 75 þúsund lesta árlegri framleiðslu, sem upphaflega var gert ráð fyrir að hún afkastaði, mun hún nú framleiða 110—120 þúsund lestir sements á ári. Frá þessu skýrði fram- kvæmdastjóri verksmiðjunnar, dr. Jón E. Vestdal, í viðtali við Vfsi fyrir skemmstu. Dr. Jón sagði að útlit væri fyrir að innanlandsnotkun á sementi myndi á árinu 1963 komast upp í 105.000 lestir, sem er algert hámark á sem- entsnotkun fram til þessa. Áð- ingin á innanlandssölunni hefur í heild aukizt um nær 40%. — Eitthvað hefur líka verið flutt út af sementi. — t>að sem af er þessu ári hafa samtals verið fluttar út 11704 lestir af sementi, en síð- asti skipsfarmurinn til útlanda var afgreiddur í júlímánuði. t>á var innanlandssalan orðin svo mikil að hætta varð útflutningi á sementi, a. m. k. um sinn. —- En hvemig getur verk- smiðjan, sem gerð er fyrir 75 þúsund lesta framleiðslu, selt á 2. hundrað þúsund lestir sements, eins og aliar líkur benda til að verði á þessu ári? Gaf hetri raun en búizt var við — Þegar Sementsverksmiðj- an var byggð var áætlað og á- byrgzt að hún framleiddi 250 lestir á sólarhring eða um 75 þúsund lestir á ári. Að vísu var þar varlega farið í sakirnar vegna þess að sum hráefnin, sem hér hafa verið notuð, hafa hvergi annars staðar verið not- uð í sement, en þar á ég við móbergið og líparftið. Þessi hrá- efni hafa gefið betri raun við framleiðslu sementsins en búizt var við að óreyndu máli. Er það fyrst og fremst því að þakka að hægt er að framleiða í verksmiðjunni miklu meira magn en gert var ráð fyrir í Stemming frá Sementsverksmiðjunni á Akranesi. Myndin er tekin af baðströnd Akumesinga Langasandi. nemur á ári um 75.000 kr. 1 öðru lagi sparast stálkúlur sem til mölunarinnar eru notaðar, þannig að það eitt nemur veru- legri fjárhæð ár hvert. f þriðja lagi, og það sem skiptir í raun- inni mestu máíi, má lækka vatnsinnihald framleiðslunnar úr 36% í 29%, en með þvf sparast olía stórlega. Stórfelldur olíuspamaður. — Nemur olíuspamaðurinn verulegum fjárhæðum? — Já, það gerir hann. Fyrstu árinu var olíunotkunin'um 136— 137 kg. á hverja lest af gjalli. Má telja það fremur lága olíu- notkun miðað við sambærilegar verksmiðjur erlendis. Nú er olíunotkunin hins vegar komin niður f 115 kg. á hverja gjall- lest og sparast því um 21—22 kg. af olfu á hverja lest. Gjall- framleiðslan f Sementsverk- smiðjunni er um 105 þúsund lestir á ári og nemur olíu- sparnaðurinn einn því um 2 millj. kr. á ári. Þetta var m. a. ein ástæðan fyrir þvf að hægt var að lækka verð á sementi snemma á þessu ári. Með spamaðinum, sem af þessum tilraunum leiddi er þó ekki allt sagt. Afkastageta verksmiðjunnar takmarkast fyrst og fremst af því hversu Meiri sementsala en nokkru sinni áður ur komst hún hæst í 94 þúsund lestir. Það var árið 1958. Á 8 fyrstu mánuðum ársins nam innanlandssala á sementi 69.674 lestum, og til saman- burðar má geta þess að á sama tíma í fyrra nam salan 47.813 lestum, eða 21861 lest minna heldur en nú. Aukin sementsnotkun I Keflavíkurvegi. 1 þessu sambandi skal tekið fram að miklu meira sement fer í ár til Keflavíkurvegar heldur en í fyrra. Til ágústloka í fyrra höfðu verið afgreiddar 2777 lestir sements, en til sama tíma f ár 7045 lestir. Til ann- arra framkvæmda heidur en til vegagerðar hafa verið afgreidd- ar 62.629 lestir sements til s.I. ágústmánaðarloka í stað 45.036 lesta á sama tfma f fyrra. Aukn upphafi. Enn hefur ekki verið á það reynt til hlitar hversu mikið magn unnt er að fram- leiða f verksmiðjunni á ári, en örugglega þó um eða yfir 110 þúsund lestir og mér er nær að halda 120 þúsund, í stað 75 þús. lestir sem verksmiðjan var upphaflega talin geta frámleitt. — Hinar fslenzku bergteg- undir sem til sementsgerðar eru notaðar hafa eftir þessu reynzt vel. — Já, bæði basaltið og lípar- ítið hafa reynzt hagkvæmari til framleiðslu sements en reiknað var með f upphafi. Fyrst er það magn en gert var ráð fyrir í að nefna að hráefnaleðjan, sem búin er til úr hráefnunum í byrjun framleiðslunnar, er lftið eitt plastisk og skiptir það verulegu máli fyrir brennslu f ofninum. En fyrst í stað var reiknað með að þessi efni myndu reynast gersamlega ó- plastisk. Þá ber í öðru lagi að geta þess að annað aðalefnið f sem- enti er kísilsýra, og er sementið reyndar að meginstofni sam- band kalks og kísilsýru. Er- lendis fæst kísilsýran f sem- entið nær ævinlega sem leir og er kísilsýran í honum óbundin öðrum efnum. Til að fá nauð- synleg tengsl milli kalksins og kísilsýrunnar við brennsluna þarf hvort tveggja að vera mjög smágert, svo mala verður hráefnin í upphafi í mjög fínt duft eða leðju. Gert var ráð fyrir að hið sama yrði upp á teningnum með framleiðsluna hér á landi, enda var þessi að- ferð viðhöfð fyrstu árin sem Sementsverksmiðjan starfaði. Þá var leðjan sem til framleiðsl- unnar var notuð svo ffngerð að afgangur á 0.09 mm sáld var Hvort sem komið er úr lofti eða á sjó inn yfir Akraneshöfn eru það fyrst og fremst byggingar Sem- entsverksmiðju rfkisins sem setja svip á þennan mikla athafnabæ Borgfirðinga. aðeins 5% og vatnsinnihald leðjunnar um 36%. Heklugosið gaf auga leið. — Þið hafið breytt um að- ferð. — Já, við fikruðum okkur á- fram með tilraunir. Og það má f rauninni rekja upphaf þeirra aftur til Heklugossins sfðasta. Hitinn í hraunstraumnum var mældur og reyndist 800—900 stiga heitur. En það einmitt gaf auga leið að prófa hvort ekki mætti hafa hráefnaagnirn- ar miklu grófari en annars staðar hefur verið gert, úr því að þær bráðnuðu í ofninum hvort eð væri. Með öðrum orðum, það er vitað mál að kísilsýran í basalt- inu og líparftinu er f fyrsta lagi bundin öðrum efnum og í öðru lagi að þessi efni bráðna eða eru hálfbráðnuð innanvið 1000 stiga hita á Celsius. Nú er hitinn f brennsluofninum, þar sem brennslan fer aðallega fram, hins vegar 1200—1300 stif C. Af þessum ástæðum þótti athugunárvert hvort þörf væri á jafnfínni mölun hrá- efnanna hér á landi sem er- lendis. Fara eigin leiðir. — Hvenær hófuzt þið handa um rannsóknir í þessu efni? — Fyrstu tilraunir hófust fyrir um það bil 2 árum. Og þær hafa borið þann árangur að ástæðulaust þykir með öllu að fara að í þessu efni eins og annars staðar. Nú eru hráefnin möluð miklu grófar en áður var, svo að af- gangurinn af 0.09 mm sáld er venjulega um 35% f stað 5% áður. í fyrsta lagi sparast við þetta verulega rafmagn, er Dr. Jón E. Vestdal. mikið magn er unnt að brenna f ofni hennar. En það er að sjálfsögðu takmörkunum háð hversu miklu magni af olfu hægt er að brenna f honum með fullkominni brennslu olí- unnar. 1 ofninum er hægt að brenna um 38 lestum af olfu á dag, en því minni olía, sem notuð er til gjallbrennslunnar, þeim mun meira magni má brenna f ofninum. Með framangreindri spar- neytni í olíunotkun hafa afköst ofnsins aukizt verulega. Og bæði af þessari ástæðu og eins með fjölgun rekstursdaga vegna betri endingar á fóðursteini ofnsins, hefur framleiðslugeta Sementsverksmiðjunnar aukizt stórlega, þannig að f henni má árlega framleiða 110—120 þús. lestir sements í stað 75 þús., svo sem gert var ráð fyrir í upphafi. Að lokum má geta þess, að Sementsverksmiðjan á Akranesi á aðeins eina hliðstæðu f heim- inum — að því er ég bezt veit — hvaS spameytni f olfunotkun snertir. Sú verksmiðja er finnsk.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.