Vísir - 28.09.1963, Blaðsíða 3
V í SIR . LaugaHagur 28. sept. 1963,
-K
Þegar prentun á Vísir lýkur,
flesta virka daga milii klukkan
þrjú og fjögur, tekur við hlut-
verk afgreiðslu- og dreifingar-
kerfis blaðsms að sjá um að
koma því út til þúsunda Ies-
enda í Reykjavík og út um allt
land.
Vísir hefur sérstöðu meðal
blaðanna, þar sem hann er síð-
degisblað og er allt unnið sam-
dægurs. Þess vegna er ásókn
lesenda, hvort sem þeir kaupa
hann í lausasölu eða eru áskrif-
endur meiri eftir því að fá blað-
ið sent sem fyrst. Til þess að
svo geti orðið þarf mikið skipu-
lag til að dreifa blaðinu cg við
það nýtur það góðra starfa fjöl-
margra, sem bera blaðið út til
kaupendanna.
Nú er Reykjavík skipt niður
í 70 útburðarhverfi og um það
leyti sem prentun er að Ijúka
aka þrjár sendiferðabifreiðir af
stað til þess að skipta blaða-
pökkunum niður á blaðberana
út um allt svæðið.
Flestir blaðberarnir eru ung-
lingar á aldrinum 10—13 ára.
Þeir eru nú orðnir margir, sem
hafa gengið í lið með Vísi og
sýnir Myndsjáin í dag einn
þeirra. Var þar valinn af handa-
hófi blaðberinn sem hefur Þórs-
götuhverfið. Hann heitir Ágúst
Einarsson og ber blaðið út á
Þórsgötu, Lokastíg, Freyjugötu
og Sjafnargötu. Hann þekkir vel
hverfið sitt, enda á hann sjálf-
ur heima í því. Bróðir hans,
sem heitir Gunnar, ber blaðið
einnig út. Þeir eru í hópi hinna
mörgu hjálparmanna Vísis.
Um mánaðamótin september
og október eru að jafnaði mikl-
ar breytingar á blaðberaliðinu.
Börnin eru þá að fara í skóla
og oft er skólatímanum þá hag-
........................................................................■■ ■■■ ■■ - ■............................ '■■ ■:.■ ■: -.:.■: .........................................................
að svo, að þó þau hafi unnið
þetta starf yfir sumarmánuðina,
þá verða sum að Iáta af því,
vegna þess að kennslustundum
er þannig hagað. Nú vantar t. d.
blaðbera í þessi hverfi: Lauga-
veg efri og neðri, Vesturgötu,
Sóleyjargötu, Tjamargötu, Leifs
götu, Hverfisgötu, Grímstaðar-
holt, Austurstræti og Seltjam-
ames. Um mánaðamótin em
nokkrir erfiðleikar á að koma
blaðinu út vegna þéssara breyt-
inga, en afgreiðslan mun gera
allt sem unnt er til að koma
blaðinu á réttum tíma til kaup-
endanna.
Ágúst litli á Lokastígnum, sem er fyrsta gatan f ferðinni.
UNGU HJÁLPAR-
MENNIRNIR
Afgreiðslumaðurinn afhendir Ágústi litla blöðin til útburðar.
Ein frúin við Lokastíginn tekur á móti sínu blaði.
Árnbjörn í Setbergi fær Vísi um kaffileytið.
. -'.iaiavjMaaafflas