Vísir - 28.09.1963, Side 15
V í SIR . Laugardagur 28. sept. 1963.
15
snúa hingað, þegar hann hefði
sparað nægilega mikið fé — eða
í síðasta lagi þegar hann yrði
sextugur. En því miður lézt
hann áður en af þessu gæti orð-
ið. Philip fékk sér vænan sopa
af víni og horfði hugsandi niður
í glasið.
— En mamma þín? spurði Bar
bara.
— Hún var amerísk. Ég man
mjög óljóst eftir henni, því að
ég var aðeins fjögurra ára þegar
hún lézt. Ég held að henni hafi
ekki geðjazt að flökkulífinu.
— Þetta er undarlegt, sagði
Barbara. — Að hugsa sér, að
við skulum bæði hafa orðið mun
aðarlaus sem börn. Ég á næst-
um því enga fjölskyldu. Aðeins
nokkrar frænkur í ætt mömmu,
Ég á víst líka nokkrar frænkur
sagði Philip. Þær eru í Conne-
eticut. — Við erum vön að
skiptast á jólakortum.
Þau sátu fyrir framan arininn
í litlu stofunni hennar Barböru.
Hann hafði lagt handlegginn
yfir axlir hennar og Barböru
fannst allt vera fullkomið, hún
var svo örugg og róleg — og
hún var ástfangin: — Ó, Philip,
þetta er svo dásamlegt, andvarp
aði hún. — Nú skil ég fyrst hve
einmana ég hef verið ...
Barböru hafði dreymt um við-
hafnarmikið kirkjubrúðkaup,
brúðarkjól og brúðarmeyjar, en
hún lét undan Philip, sem vildi
hafa allt eins einfalt og auðið
var.
— Ef þú endilega villt, getum
við að sjálfsögðu haft' það svo-
leiðis, sagði hann brosandi, en
satt að segja hef ég alltaf óttazt
þessi stóru brúðkaup. En ef þér
stendur á sama ættum við að
hafa það eins einfalt ög við
getum. Það getur engu að síður
verið hátíðlegt.
Og Barbara lét undan.
Vígslan fór fram hjá fógetan-
um og Joan og David voru svara
menn. Á eftir snæddu Philip og
Barbara með 10 af beztu vinum
Barböru.
— Ég vona að þið verðið eins
hamingjusöm og við, sagði Joan
hálf snöktandi, svo hrærð var
hún.
Það hafði í upphafi verið á-
kveðið að Philip og Barbara
færu í brúðkaupsferð strax að
lokinni hjónavígslunni, en sú á-
kvörðun fór út um þúfur. Philip
varð fyrir töfum — það var eitt-
hvað viðskiptalegs eðlis, sagði
hann Barböru. — Mér þykir
þetta afsakanlega leitt, sagði
hann og yppti öxlum: — En það
er svona að vera upp á aðra
kominn . . .
— En þeir geta ekki neitað
þér um frí á síðustu stundu,
sagði Barbara sár og reið.
— Ja — a — eins og þú
veizt er ég bara ósköp venjuleg
undirtylla. » . - i
Það vissi hún, en hafði aldrei
gert sér grein fyrir hVað það
þýddi. Þau höfðu aldrei rætt um
stöðu Philips, en nú var það
Barbara, sem lagði fram tillögu:
— Philip minn, auðvitað er
hægt að gera eitthvað. Ég á við
eitthvað, sem getur breytt stöðu
þinni innan fyrirtækisins. Ef um
er að ræða peninga, þá veiztu . .
— Elsku Barbara mín, við
skulum ekki ræða um peninga,
sagði Philip særður.
— Við verðum einhvern tíma
að gera það, Philip. Þú verður
að gera þér ljóst að það særir
mig mjög að þú skulir alls ekki
vilja ræða þesi mál.
— Það er alls ekki ætlunin.
Ég get bara ekki tekið við neinu
af þér handa sjálfum mér. Þú
verður að skilja það og virða
það.
— Auðvitað Philip — en brúð-
kaupsferðin — hún varðar einn-
ig mig — ekki satt. Getum við
ekki keypt þig inn í fyrirtækið?
Ég vil ekki særa þig en pening-
arnir mínir geta alveg eins legið
í fyrirtæki þínu eins og í hverju
öðru. Bara þrjátíu eða fjörutíu
þúsund pund. Og svo myndi ég
fá tvöfaldan hagnað af þeim —
bæði vextina og svo ef til vill
dálítið meira hjá þér.
Hún varð að telja hann á að
kynna sér möguleika á að leggja
peninga í fyrirtækið. Hún varð
að telja hann á það — það var
var undarlegt að hugsa til þess
eftir á.
Nokkrum dögum síðar (Bar-
bara furðaði sig ekkert á hve
skamman tíma það tók) hafði
verið gengið svo frá öllu, að
Philip gat lagt þrjátíu þúsund
pund í fyrirtækið Person Well-
ers. Philip lét þetta líta út sem
mikinn greiða og sagðist myndi
vera mjög þakklátur, ef hann
mætti sjálfur ganga frá málun-
um. Strax daginn eftir fór Bar-
bara til lögfræðings síns, Lind-
ley Treadgold, og bað hann um
að leggja þrjátíu þúsund pund
inn á sérstakan reikning á nafni
Philips.
— Hvers vegna það?, spurði
Lindley undrandi.
-— Við ætlum að leggja þá í
fyrirtækið, sem Philip vinnur
hjá, Person Wellers.
— Þetta er nú býsna þá fjár-
upphæð, sagði Lindley hikandi.
— Heldurðu að það sé einhver
áhætta að gera þetta?
— Nei, það held ég ekki. Fyrir
tækið er að vísu nýlega stofnað,
en að baki þess standa traustir
menn og traust fjármagn, svo að
ég held, að það sé engin hætta
á ferðum.
— Þakka þé rfyrir, sagði Bar-
bara. Ég veit alls ekkprt um
fyrirtækið, eða livað Phiiip gerir
þ*ár. ... *.
— Ég ekki heldur, sagði Lind-
ley. — Ég held að Philip sé að-
stoðarforstjóri eða eitthvað þess
háttar. Á ég að ltynna mér málin
nánar, áður en þú leggur pen-
inga í fyrirtækið?
— Nei, það er alveg óþarfi.
Ég treysti því að Philip viti hvað
hann talar um. Og í öllu falli á
að leggja peningana inn á reikn-
ing hans. En auðvitað gæti verið
gott að vita dálítið nánar . . .
— 'Já, þá er víst bezt að ég
athugi þetta. Var það þá ekkert
annað? Máttu vera að því að
borða hádegisverð með mér?
— Nei, ég verð að ganga frá
málunum í sambandi við bifreiða
fyrirtækið. — Jú annars, erfða
skráin. Það er víst bezt að við
göngum frá henni strax. Ég ætla
að biðja þig um að breyta erfða
skránni þannig að Philip verði
einkaerfingi minn. Sendu mér
hana til'undirskriftar eins fljótt
og hægt er. Það getur allt mögu
legt komið fyrir. Hlutur Danny
verður að sjálfsögðu óbreyttur.
Barböru tókst einnig að fá
Philip til að taka við Dailmer-
bílnum, sem hún keypti nokkr-
um dögum eftir brúðkaupið. Bíll
inn hans Philips var mjög lítill
— allt of lítill fyrir brúðkaups-
ferðina.
— Þú hlýtur að skilja að þetta
er mér að kenna, sagði Barbara.
— Ef ég væri ekki svona hrædd
við að fljúga hefði þetta ekki
verið neitt vandamál. En eftir að
foreldrar mínir fórust . . . og
að fara í brúðkaupsferð í járn-
brautarlest er satt að segja ekki
sérlega skemmtilegt. Og eitt
enn, stóru ferðatöskurnar mínar
komast alls ekki í litla bílinn
þinn.
Philip lét undan, nauðugur.
Fjórtán dögum síðar en áætlað
hafði verið var lagt upp í brúð-
kaupsferðina.
Klukkan var aðeins hálf sex
— þau ætluðu að ná í fyrstu
lest yfir Ermasund til að koma
tímanlega til Parísar. Barbara
ætlaði að verja deginum til að
fá sér ný föt og hafði pantað
tíma hjá Balmain. Philip vissi
um góðan veitingastað, þar sem
þau snæddu kvöldverð á eftir.
Síðan var farið á næturklúbb og
að lokum heim á hótelið, þar
sem þau eyddu fyrstu raunveru
legu brúðkaupsnóttinni ....
Nokkrum dögum eftir að Bar-
bara og Philip lögðu upp hitti
Lindley Treadgold góðan vin,
sem hann vissi að átti viðskipti
við fyrirtæki Philips Person Well
ers. Lindley notaði tækifærið
og spurði vininn: — Heyrðu mig,
hvesnig er það æiginlega með
fýrifBeliið' Persdn WSléifS?
— Ég held að það gangi ágæt-
lega. Hvers vegna spyrðu?
— Ég spyr vegna eins skjól-
stæðings míns. Ég spurðist fyrir
um fyrirtækið og fékk mjög svo
viðunandi svör. Ég hélt kannski
að þú, sem þekkir fyrirtækið .. .
— Vinurinn rankaði allt í einu
við sér:
— Segðu mér eitt. Þekkir þú
ekki ungu stúlkuna Barböru
Kent, sem nýlega erfði mikla
fjárupphæð? Hún giftist svo
Purvis — — Standa spurningar
þínar kannski í sambandi við
þetta mál? Hún er skjólstæðing-
ur þinn, er ekki svo? Nú, jæja,
það er ef til vill ekki svo und-
arlegt — ég hefði kannski gert
hið sama, hefði ég verið í spor-
um Purvis . . .
— Fyrirgefðu, en ég skil ekki
alveg------hvað er með Purvis?
spurði Lindley.
— Vissirðu það ekki? Hann
hætti að vinna hjá Pearson Wel-
lers þegar hann kvæntist.
WHICHEVEK. OP US yOUÍt
G07S AN7 7EVILS UK.E
BEST, NKKOvWlLLLlVE.
<THE OTHER WILL FtE! j
STOPWE7U,TARZAN!.
N0B07y CAN 7RINK.
^5^7 THAT ARROW
70IS0N AN7
Distr. by Úuited Fcnture S.vndlcnte, Iikl
Þessi töfrabrögð þín með stein
ana eru tóm svik, segir Medu við
Nikko, núna skulum við sjá hvor
okkar má sír\ meira. Ég er hér
með Dedo eitur, sem við skulum
báðir drekka. Sá sem lifir, er
meiri töframaður. Sá okkar sem
guðunum líkar vel við, mun lifa,
hinn mun deyja. Tarzan, í guð-
anna bænum reyndu að fá Medu
til að hætta við þetta, segir Joe
Wildcat, það getur enginn maður
druk’kið þetta eitur og lifað það
af. Taktu ofan grímuna Nikko,
svo að við getum horfzt í augu
meðan við drekkum. Og kjóstu
svo þá skál sem þú vilt drekka
úr.
ATRICK, NIK.K.O, WITH YOUR LITTLE
STOWES’. ASAIN I CHALLENGE YOU!
X H.AVE HEEE STRONS, NEW-MA7E
'P£PO'?0\S0\i. WE WILL 7KINK. IT,
TOSETHER—ÁN7 SEE WHO UVESf
&ILU
Euiott
JoHíJ
CsiARPO
‘44 10-16-630^
RAISE yOUK 'OS/A' MASK, NIKKO, SO
WE CAN LOOK EACH OTHER IN THE
EYES AS WE 7RINK—S£B WHO
LIVES AN7 WHO 7IES1. CHOOSE
YOUK G0UR7 OF 'PEPO' 70IS0N!
SSuc!
Ég ætla að sjá, hvernig svona
kjóll myndi klæða stúlkuna mína.
PQssningarsandur
,Heimkeyrður pússningarsandur
og vikursandur, sigtaöur aða
ósigtaður. við húsdyrnar eða
kominn upp á hvaða hæð sem
er, eftir óskum kaupenda.
SANDSALAN
við Elliðavog s.f.
Simj 32500.
SÆHGUR
Endurnýjum gömlu
sængurnar. Eigum
dún- og fiðurheld ver.
Dún- og gæsadún-
sængur og kodda fyrir
liggjandi.
Dún- og fiðurhreinsunin
Vatnsstíg 3 — Sími 14968
Taunus stadion ’59, ’60.
Ford Zodiack ‘57.
Volvo stadiori ‘55.
Skoda stadion ’58.
Skoda 440 ‘58.
Willys jeep ’55 og ‘52 með
Egilshúsi.
Austin Gipsy ‘63 benzínvél
nýklæddur.
Rússajeppi ‘59 ekinn 60 þ.
Sendiferðabílar með og án
stöðvarleyfa.
6 manna fólksbílar í úrvali.
Bifreiðar við hvers manns
hæfi. —
Ódýrcr þykkar
drengjapeysur
HAGKAUP
Miklatorgi