Vísir - 23.10.1963, Blaðsíða 9

Vísir - 23.10.1963, Blaðsíða 9
V1SIR . MIBvjkudagur 23. oktðber 1968. ___________ Verklegar framkvæmdir mjög aukaar Frh. af bls. 7: flokkun þeirra í 28 launaflokka, en Kjaradómur ákvað laun í hverj um flokki, setti reglur um yfir- vinnu o. fl. og ákvaS greiðslur fyrir hana. Hin nýju ákvæði um launaflokkun og launagreiðslur gengu I gildi 1. júlí s.l. En þótt samkomulag yrði um flokkun starfsmanna í fyrrgreinda 28 launaflokka, var eftir að skipa etinstökum rfkisstarfsmönnum í þá flokka og kveða nánar á um framkvæmd ýmissa ákvæða Kjaradóms, aldurshækkanir o. m. fl. Samningar um þetta hafa stað- ið yfir milli samninganefndar rik- isins og kjararáðs Bandalagsins undanfama mánuði. Það er mikið verk og tafsamt, og á það enn langt í Iand að endanleg skipan sé komin á um þetta efni. Þvi var ákveðið, að útborgun Iauna færi fram eftir bráðabirgðatillög- um, sem samninganefnd rikisins um launamál hafði gert og síðan skyldi unnið áfram að lausn á- greiningsatriða. Ef ekki gengur saman, fellir kjaranefnd Iokaúr- skurð í þeim málum, en hún er einnig að meiri hluta skipuð af hæstarétti. Þessar miklu breytingar á launakerfinu torvelduðu að sjálf- sögðu undirbúning fjárlagafrum- varpsins, þar sem óvist var þá um fjðlmarga starfsmenn, hvar þeim yrði að lokum skipað I launa flokk. Var horfið að því ráði, enda ekki annars kostur, að á- ætla launaliði í frumvarpinu i samræm; við þessa bráðabirgða- flokkun. Ef í ljós kemur, að þar skeikar einhverju, sem umtals- vert er, mætti lagfæra þá liði i meðförum þingsins. En þar eð svO er ástatt, sem nú var rakið, þótti rétt í þetta sinn að fella niður þá starfsmannaskrá, sem undanfarið hefur fylgt fjárlaga- frumvarpi, vegna þess að ekki eru nú fyrir hendi lokaniðurstöð- ur um launaflokkun starfsfólks hjá einstökum stofnunum. Vaxtagreiðslur Vil ég nú vfkja að nokkrum liðum fjárlagafrumvarpsins, en visa að öðru leyti til greinar- gerðar þess um einstaka liði. 7. gr. fjallar um vaxtagreiðslur rikissjóðs. í fjárlögum yfirstandandi árs er gert ráð fyrir, að þær nemi 10.6 milljónum. En í frumvarpinu fyrir 1964 eru þær áætlaðar helm- ingi lægri, eða 5.3 milljðnir. Þessi lækkun stafar m. a. af þvi, að nú er lokið vaxtagreiðsl- um vegna happdrættislána rikis- sjóðs og nemur það 1.5 milljón, að vaxtagreiðslur rikissjóðs af lán; vegna kaupa á Borgartúni 7, 1.2 milljónir falla niður, vegna þess að húseignin á sjálf að standa undir þeirri greiðslu, og að vextir, 2.7 milljónir, af togara- láni hjá Seðlabankanum, frá 1949, falla niður, en það lán var, eins og fyrr er getið, greitt upp í byrjun þessa árs af greiðsluaf- gangi síðasta árs. Til þess að fá rétta mynd af vaxtabyrði ríkissjóðs á hverjum tima, er gleggst að athuga sam- an 4. gr. fjárlaga, sem fjallar um vaxtatekjur, og 7. gr., sem fjallar um vaxtaútgjöld ríkissjóðs. Við þennan samanburð sleppi ég þó einum lið 4. gr., sem er arður af hlutabréfaeign. ^ Þegar reiknaður er út mismun- ur á vaxtatekjum og vaxtagjöld- um rikissjóðs frá og með árinu 1950 kemur í ljós; að flest árin hafa útgjöldin numið meiru en tekjurnar, allt upp I 4 milljónir á ári. Tvö ár, 1955 og 1960, urðu þó vaxtatekjurnar nokkru hærri en gjöldin, fyrra árið tæp 85 þúsund, siðara árið rúmar 3 millj- ónir. Á árinu 1962 varð hins veg- ar mismunurinn rúmar 5 milljónir króna rikissjóði í hag, urðu vaxta tekjur þessari upphæð hærri en vaxtagreiðslur. Tekjur og gjöld ríkissjóðs eru árstiðabundin og sveiflun háð. Yfirleitt koma tekjumar inn síð- ar en útgjöldin falla til. Verður því á vissum árstimum að gera ráð fyrir skuld við Seðlabankann. Sú skuld hefur orðið allhá á stundum, þegar tekjur hafa brugð izt eða komið seint inn af sér- stökum ástæðum, t. d. vegna vinnustöðvana og bar með stöðv- unar á tollafgreiðslu vara. Meginreglan átti að vera sú, að ríkissjóður sé skuldlaus um áramót á aðalviðskiptareikningi sfnum við Seðlabankann. það er eðl; þessara viðskipta. Þessu markmiði hefur þó ekki verið náð fyrr en á síðustu árum. Tókst það fyrst í árslok 1961 að hafa ríkissjóð skuldlausan. Á yfirstandandi ári hefur af- staða ríkissjóðs gagnvart Seðla- bankanum verið óvenju hagstæð. Undanfarin ár hefur ríkissjóður verið 1 „yfirdrætti", sem kallað er milli 250 og 270 daga ársins, en átt inneign aðeins 30—50 daga. Það, sem af er þessu ári hefur „yfirdráttur" hins vegar verið 83 daga en inneign I 160 daga. Mun þetta að sjálfsögðu segja til sfn við vaxtaútreikning og vaxtajöfnuð, þegar upp verður gert fyrir þetta ár, en væntanlega einnig hafa hagstæð áhrif fyrir rlkissjóð fram á næsta ár. / UNESCO í 10. gr. vil ég sérstaklega nefna 3 liði, sem snerta Samein- uðu þjóðimar. Hið fasta tillag til Sameinuðu þjóðanna hækkar urh 205 þús. kr. og verður nú 1 *4 millj. Þá er nýr liður, framlag til starfsemi Sameinuðu þjóðanna I Kongó 1 millj. 32 þús., og loks er gert ráð fyrir þvl, að tillögu utanrík- isráðuneytisins, að ísland gangi I Menningarmálastofnun Samein- uðu þjóðanna, UNESCO. Eru teknar í því skyni 393 þús. kr. Ég efa ekki, að allri fslenzku þjóðinni virðist það sjálfsagt og rétt, að ísland leggi til Samein- uðu þjóðanna og starfsemi þeirra það, sem með eðlilegum hætti má ætlast til af okkar þjóð, og telji því ekki eftir þau framlög, sem hér voru rakin. Á síðasta þingj voru samþykkt ný lög um lögreglumenn. Með þeim lögum er gengið mjög til móts við gamlar og nýjar óskir sveitarfélaganna um að rlkissjóð- ur tæki' meiri þátt I lögreglu- kostnaði en ádur var. Hækkun ríkisútgjalda vegna þessara laga er áætluð I frumvarpinu fyrir 1964 nærri 7 millj. kr. f lok síðasta árs var sett ný löggjöf um almannavarnir, og hækkar fjárveiting til þeirra úr 1 millj. I 4 millj. kr. Kostnaður við landhelgisgæzlu hækkar um 4j4 millj. kr. Stuðningur við bindindisfitarf- semi er aukinn. Styrkurinn til áfengisvarnarráðs hækkar um 100 þús. upp 1 950 þús. og til Stór- stúku íslands um 100 þús. upp I 390 þús. Kostnaður við skattamál hækk- ar um 7 millj. kr. Stafar það bæði af launahækkunum, ýmiss konar stofnkostnaði o. fl. Undan- farið hefur verið unnið að endur- skipulagningu á framkvæmd skattamála I samræmi við ákvæði nýju skattalaganna frá 1962. Margt er það I hinu nýja fyrir- komulagi, sem horfir mjög til bóta og er þegar farið að bera árangur. Nú er unnið að- þvl að koma á fót sérstakri eftirlits- og rannsóknadeild við embætti rlk- isskattstjóra, til þess að hafa strangt og vlðtækt eftirllt með framtölum og framkvæmd laga um tekju- og eignarskatt. 12. gr. fjallar um heilbrigðis- mál. Reksturshalli Rlkisspltal- anna hækkar um rúmar 42 millj. Stafar sú hækkun sumpart af launahækkunum og auknum kostnaði við aukavlnnu, en enn fremur af þörf fyrir aukið starfs- mannahald við spltalana. 13. gr. A fjallar um vegamál. Fjárveltingar til þjóðvega hækka um 16mlllj. upp I 107 millj. auk 7.1 millj., sem er vegagjald af benzlni til millibyggðavega. Vegaviðhaldið hækkar um 7 millj. og er nú áætlað að það kosti 70 millj. á næsta ári. Auk þess er ætlað til greiðslu af vegalán- um 10.4 millj. Hér er um að ræða greiðslur af föstum lánum vegna Reykjanesbrautar, Siglu- fjarðarvegar ytri (Strákavegar), Múlavegar og Hellissandsvegar um Ólafsvíkurenni. Lán voru tek- in á þessu ári til þess að hraða þessum vegaframkvæmdum. Lán- in eru yfirleitt til 15 ára og vextir 8!/2— 9í4 af hundraði á ári. 13. gr. B. fjallar um samgöng- ur á sjð. Reksturshalli Skipaút- gerðar ríkisins hækkar um 5 millj. kr. Auknar framkvæmdir 13. gr. C er um vitamál og hafn argerðir. Þar er nýr liður til greiðslu af hafnarlánum 9.9 millj. kr. Hér er um að ræða greiðslur af framkvæmdalánum, sem tekin hafa verið til lands- hafnar I Keflavík—Njarðvík, og I Rifi og til hafnargerðar I Þor- lákshöfn. 14. gr. fjallar um kennslumál. Þar er mesta hækkunin til bama- fræðslunnar, eða 58 millj. rúmar. MeginhlUti þess er vegha launa- hækkunar kennara og vegna fjölg unar kennara, til að fullnægja fræðsluskyldunní, Frámlag til byggingar bamaskóla, sem I smíð um eru, hækkar um 8.6 millj. upp I 36.2 millj. Auk þess ér ætluð 8*4 millj. kr. til byggingar nýrra skóla. Framlög til gagnfræðá- menntunar hæklca samtals um 35.3 millj. Meginhlutinn er þar einnig launahækkun og kennara- fjölgun. Þeim þarf að fjölga um 36. Framlag til byggingar gagn- fræðaskóla hækkar um 4.7 millj. upp I 22 millj. Á síðasta þingi voru sett ný lög um almenningsbókasöfn og hækka framlög til þeirra um 2 y2 milij. frá gildandi fjárlögum. 15. gr. fjallar um kirkjumál. Þar eru þrír liðir sém snerta Skál- holt. í fyrsta lagi kostnaður við Skálholtshátlðina 725 þús. kr. í öðru lagi eftirstöðvar af bygg- ingarkostnaði við Skálholtskirkju. Liðurinn hækkar um 700 þús. I 1*4 millj. Loks er I þriðja lagi einnar millj, kr. framlag til Skál- holtsstaðar samkv. ákvæðum laga um afhendingu Skálholts Þjóð- kirkjunni tll handa. Kostnaður við sauðfjársjúk- dómavarnir hækkar verulega vegna þess að fyrir dyrum standa fjárskiptl I Dölum. Eru áætlaðar bætur og styrkir I sambandi við fjárskiptin 8 millj. 650 þús. kr. Þarna er um að ræða 18 þús. fjár. Síðan fjárlagafrumvarpið var samið og prentað hafa fuiltrúar bænda I Dölum borið fram óskir I sambandi við fjárskiptin, sem þurfa sérstakrar athugunar við. Vil ég beina þvi til háttvirtrar fjárveitinganefndar, að hún taki það mál sérstaklega tií meðferð- ar 1 samráði við ríkisstjórnina. Með lögum frá í fyrra var breytt ákvæðum um framlög rlk- isins til útrýmingar heilsuspill- andi húsnæðis. Áður var hámarks upphæð I lögum um framlag rik- isins 4 millj. á ári. Þetta hámark var nú afnumið og hækkar fjár- veitingin til útrýmingar heilsu- spillandi húsnæðis um 14.4 millj. kr. Á 20. gr. eru nokkrar bréyting- ar, m. a. er framlag til byggingar Menntaskóla I Reykjavlk hækk- að um 1 millj. og til byggingar Kennaraskóla Islands um 1 millj. Þá er nýr liður til byggingar Handritahúss, að upphæð 3 millj. kr„ sem er byrjunarframlag, en auk þess eru I 14. gr. veittar 2 millj. kr. til starfsemi hinnar nýju handritastofnunar íslands. í febrúar 1960, réttum þrem mánuðum eftir að núverandi stjóm tók til starfa, voru lög- festar vlðtækar efnahagsaðgerðir. Þær miðuðu að því að koma þjóðfélaginu á réttan kjöl, eftir stórfelldan hallarekstur undanfar- inna ára, hafta og uppbótakerfi, og hvers konar skekkjur og aflög- un I athafna- og viðskiptalífi. Tilgangurinn var sá, að koma á jafnvægi I sem flestum þáttum efnahagsllfsins og tryggja ömgga og næga atvinnu til handa öllum Iandsins bðrnum. Arangur viðreisnarinnar Hvernig hefur þessi Viðreisn tekizt? Þegar litið er á þrjú fyrstu árin, árin 1960, ’61 og ’62, er það ljóst, að í öllum meginatrið- um tókst viðreisnin vel, þeim árangri var náð, sem að var stefnt. Skulu nefnd hér nokkur dæmi til sönnunar. Hallarekstur þjóðarbúsins gagn vart útlöndum var stöðvaður. Þeg ar á árinu 1961 tókst að jafna þann halla og ná hagstæðum greiðslujöfnuði við útlönd. Sami árangur náðlst á árinu 1962. í staðinn fyrir sífellt gjaldeyr- ishungur tókst á þessum árum að safna álitlegum gjaldeyris- forða.. í febrúarlok 1960 var gjaldeyrisskuld bankanna 216 millj. En um siðustu áramót, eft- ir tæplega þriggja ára viðreisn, var gjaldeyrisforði 1150 milljónir króna. Með honum var lagður grunnur að lánstrausti íslands erlendis, eins og verkin sýna, og skapaður varasjóður til þess að mæta örðugleikum af náttúmnn- ar völdum, markaðstrégðu, verð- falli, eða öðru óláni, sem við getum ekkj við ráðið. Sparifjár- söfnunin er undirstaða allra fram fara. Á henni byggist það, hversu bankar og lánsstófnanir geta lán- að mikið út til framkvæmda og fjárfestingar. Sparifjársöfnunin hefur aukizt frá febr. 1960 til síðustu áramóta úr 1825 millj. upp I 3531 millj. eða nærri tvö- faldazt. Full atvinna var yfirleitt um land allt allan þennan tíma. ÖIl árin vom afgreidd og fram- kvæmd hallalaus fjárlög. Greiðslu afgangur hefur orðið á hverju ári hjá ríkissjöði, sem var eitt af gmndvallarskilyrðum þess, að viðreisnin tækist. Viðskiptafrelsi var stóraukið í landinu, og hagur þeirra, sem verst eru settir I þjóðfélaginu bættur með meiri umbótum á al- mannatryggingum en dæmi em til áður I sögu landsins. í öllum þessum undirstöðuat- riðum héfur viðreisnin vel tekizt. En á þessu ári sem nú er að líða hefur margt gengið úr skorð- um og stefnir nú á annan veg en undanfarin þrjú ár. Um orsakir þess skal ég ekki ræða hér. En á þessu ári er orðinn Iskyggi- legur halli á viðskiptunum við útlönd. Innflutnlngur hefur auk- izt glfurlega. Gjaldeyrissjóðurinn hefur ekki vaxið frá áramótum. Sparifjáraukning er tregari en áð- ur. Eftirspum eftir vinnuafli er I mörgum greinum svo mikil að enginn vegur er að fullnægja henni og yfirborganir og undan- dráttur sigla I kjölfarið. Fisk- vinnslustöðvarnar telja sig trauð- lega geta risið undir þeirri hækk- un kaups og annars kostnaðar sem orðin er. Allir þessir örðugleikar eru heimatilbúnir og eins og Islenzku þjóðinni hefur tekizt að búa þá til, eins held ég að hún geti ráð- ið við þá. En til þess þarf rétt vinnubrögð og snör og djarfleg handtök. Verðbólgan má ekki gléypa hina álitlegu ávexti við- reisnarinnar. Ríkisstjórnin undirbýr nú lausn vandans. Tillögur sínar mun hún leggja fyrir þing og þjóð innan skamms. Þær munu hvorki fela I sér gengislækkun né uppbóta- kerfi, heldur heilbrigða lausn til framhalds og verndar viðreisn- inni. Ég Iegg til að frumv. verði vlsað til hv. fjárv. ------------------------------- Fræðslustnrfsemi Náttúrufr.félugsins Fræðslustarfsemi Hins fsl. nátt- úrufræðifélags veturinn 1963—1964 er ráðgerð með sama hætti og undanfarna vetur: Samkomur verða I 1. kennslu- stofu Háskólans síðasta mánudag hvers mánaðar — nema desember — og hefjast kl. 20.30. Á hverri samkomu verður yfir- leitt flutt eitt érindi náttúrufræði- legs efnis, venjulega með skugga- myndum, en frjálsar umræður um efni þess á eftir. Á fyrstu samkomu vetrarins, mánud. 28. október mun dr. Sigurð ur Þórarinsson flytja erindi með litskuggamyndum: Sitt af hverju úr Amerfkuferð. Meðal merkistaða ,sem dr. Sig- urður skoðaði I ferð sinni Víða um Norðut-Ameríku sl. vetur og bera mun á góma I erindi hftns, má nefna: Metéor Crater í Arizona, strandlínu fsaldarvatnsins mikla Bónnevllle Lake I Utah Og eldfjallið Katmai I Alaska, sem frægt varð 1912 af einhverju hinu stórkostleg- asta sprengigosi, sem sögur fara af. /

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.