Vísir - 25.10.1963, Blaðsíða 6
VlSIR . Föstudagur 25. október 1963.
útlönd í morgun ' útlönd í morgun. . útlönd í morgun útlönd í morgun
Takmörkuð norræn ein■
ing varðandiS-Afríku?
Berlingske Tidende flytur f
morgun ritstjórnargrein þar sem
þvi er haldið fram, að takmörkuð
eining sé meðal Norðurlandaþjóð-
anna um frumkvæði Dana varð-
andi Suður-Afríku-málið og vitnar
í ræðu Halvard Lange utanrikis-
ráðherra Noregs sem hann flutti í
fyrradag.
Politiken birti í gær viðtal við
Hermod Lannung, sem á sæti i
nefnd Danmerkur hjá Sameinuðu
12 milljóna
tap hjó
BOAC
Brezka flugfélagið BOAC, sem
hefir flugvélar i utanlandsflugi,
var rekið með 12.8 milljón
stpd. tapi samkvæmt skýrslu
um seinasta fjárhagsár.
Tapið hjá flugfélaginu er þá
komið upp í 80 milljónir stpd.,
sem forseti þess Sir Gerald
Fitzmaurice, segir tap stöðugt
fara minnkandi, og vonandi
verði ekki um taprekstur að
ræða á þessu fjárhagsári.
þjóðunum, og neitar hann að óein
ing sé innbyrðis I dönsku nefnd-
inni um Suður-Áfríkumálið.
Kvað hann miða í rétta átt fyr
ir þá Suður-Afríku-pólitík, sem
grundvallast á dönskum hugsun-
um, og sem norræn eining sé um,
að því er varðar það sem mestu
máli skiptir. Segir hann fram-
haldsumræður hafa farið fram í
hinni sérlegu stjórnmálanefnd, en
upphaflega var málið rætt af Per
Hækkerup utanríkisráðherra í
ræðu hans á Allsherjarþinginu.
Lannung segir það gleðiefni, að
í um það bil helroingi þeirra 36 —
37 álita, sem borizt hafa, hafi
helmingurinn tekið jákvæða af-
stöðu til tillagnanna.
Hann minnist á blaðafréttir um
að hinar Norðurlandaþjóðirnar
hafi reynt að „beita hemlunum"
til að stöðva Dani, einkum Norð-
menn — „en ég veit ekki til þess“,
segir Lannung, „að reynt hafi ver
ið að beita hemlunum gegn einum
eða neinum“.
Komið hefir fram, þar sem rætt
hefir verið um að allsherjarþingið
skipi rannsóknarnefnd, er kanni
hvað gera mætti til áhrifa á
stefnu Suður-Afríku o. s. frv., að
helztu viðskiptaþjóðir Suð-
ur-Afríku, Bandaríkin og Bret-
land, séu mótfallnar athugunum á
viðskiptalegum refsiaðgerðum.
-jc Fréttir í stottu ntóli
^ Reginald Butler utanríkisráð-
herra Bretiands situr fundi Evr-
ópubandalagsins i Haag, og
kynntist þar í gær í fyrsta sinn
Couvé de Murviile forsætisráð-
herra Frakklands.
► Tito forseti er farinn frá New
York sjóleiðis að afíokinni heim
sókn til Bandaríkjanna. Tito var
iasinn af inflúensu mestan hluta
heimsóknartfmans.
► Lokið er svonefndri kókó-ráð-
stefnu framleiðenda og neyt-
enda sem haldin var að tilhlut-
an Sameinuðu þjóðanna um verð
lag á kókói. Samkomulagsum-
leitanlr fóru út um þúfur.
► Ben Bella hefir tilkynnt, að
Berbar í Kabiliu ætli að berjast
með stjóminni gegn Aröbum.
Það voru Berbar sem gerðu upp-
reisn gegn stjórn Ben Bella.
Wennerström ofursti ásamt konu srnni.
rði tUraun til
sjálfsir.orðs
Sænski njósnarinn Stig Wenn
erström gerði tilraun til að
fremja sjálfsmorð, að því er
fréttir í morgun herma.
Ekki var nánara tilgreint f
fyrstu fréttum um þetta á hvern
hátt hann hefði reynt að stytta
sér aldur, en það var farið með
hann í skyndi í sjúkrahús og líf
hans talið í hættu. Síðar var til
kynnt að svo virtist, sem hann
vær; úr mestu hættu.
Wennerström ofursti var sem
kunnugt er ákærður fyrir njósn
ir í þágu Rússa og vakti mál
hans feikna athygli. Til skamms
tfma hefir hann verið hinn boru
brattasti f réttinum og engrar
iðrunar orðið vart hjá honum
yfir að hafa brugðizt föðurlandi
sínu.
Cegja má, að aðalumræðurnar á
Alþingi þessa dagana gerist
utan dagskrár, þegar frá eru tald-
ar umræðurnar um fjárlögin.
í gær kvaddi nýbakaður þing-
maður, Ragnar Arnalds (Alþbai.)
sér hljóðs í neðri deild með jóm-
frúrræðu utan dagskrár. Vitnaði
hann í ræðu Guðmundar í. Guð-
mundssonar utanríkisráðherra frá
þvf f umræðunum utan dagskrár
á dögunum, um framkvæmdir
varnarliðsins f Hvaifirði, svo og
f Tfmann fyrir skömmu og benti
á að fullyrðing stæði gegn full-
yrðingu. Dr. Kristinn Guðmunds-
son, fyrrum utanríkisráðherra og
núverandi ambassador í Moskvu,
hefði þvertekið fyrir að hafa sam
þykkt stórfelldar framkvæmdir á
vegum varnarliðsins í Hvalfirði
1955 eða 1956, eins og utanríkis-
ráðherra í fyrrgreindum umræð-
um taldi hann hafa gert. Kvað
ræðumaður tvennt til: Annað-
hvort væri ambassadorinn að
segja ósatt um yfirmann sinn eða
utanríkisráðherra hefði sagt ósatt
í þinginu. Minnti jómfrúrræðumað
urinn á mál Profumos, hins kven-
holla fyrrum hermálaráðherra
Breta, og kvað hann hafa orðið
að yfirgefa vegtyllur sínar af
minna tilefni en þvi, ef íslenzki
utanrfkisráðherrann hefði nú sagt
Alþingi ósatt um svo mikilvægt
mál. Heimtaði ræðumaður spilin
á borðið, skjalfest gögn um hið
sanna.
Guðmundur í. Guömundsson,
utanrfkisráðherra, steig þá í ræðu
stólinn. Henti hann gaman að fyr-
irspurninni, sem hann sagði bera
vott um megnustu vantrú flutn-
ingsmanns á Þjóðviljanum. Skýrði
ráðherrann ummæli sfn svo að
Þjóðviljinn hefði undanfarin ár
þrástagazt á því að Bandaríkja-
menn eða Atlanzhafsbandalagið
hefði óskað eftir aðstöðu til hern-
aðarmannvirkja f Hvalfirði, m. a.
á þeim tíma, sem dr. Kristinn
Guðmundsson var utanrfkisráð-
herra og að íslenzk stjórnarvöld
hefði kitlað í lófana eftir að verða
við þeim tilmælum. Nú væri þing
maður í nánum tengslum við Þjóð
viljann að krefjast skjalfestra
sannana á þessum fullyrðingum.
Sagði ráðherrann það raunar lengi
vitað, að þeir, sem þekktu Þjóð-
viljann bezt, legðu minnstan trún
að á orð hans.
Síðan sneri ráðherrann sér að
aðalefni málsins. Hann kvaðst ef-
ast um að dr. Kristinn Guðmunds
son hefði gefið yfirlýsinguna til
Tímans ef hann hefði lesið þing-
ræðu sína orðrétt. Taldi hann að
dr. Kristinn hefði ekki fengið tæki
færi til þess. Það sem mestu máli
skiptir í þessu sambandi, sam-
þykki dr. Kristins við stórfelldum
framkvæmdum í Hvalfirði er sann
að mál, sagði ráðherrann. Þessar
framkvæmdir hefðu ekki verið
teknar upp í áætlanir NATO að
öðrum kosti. Allt annað sem ég
sagði stendur ómótmælt eða stað-
fest. Því er ómótmælt að tilmælin
hafi borizt. Ekki er mótmælt því
sem ég sagði, að framkvæmdir í
Hvalfirði hafi verið teknar upp i
áætlanir NATO. Loks sagði ég um
þetta atriði að slíkar áætlanir
væru ekki gerðar nema með sam-
þykki viðkomandi ríkisstjórna. —
Þessu er einnig ómótmælt.
Ragnar Arnalds lét sér þetta
ekki nægja, og krafðist enn að fá
hinar skjalfestu sannanir. Taldi
hann annars nauðsynlegt að AI-
þingi setti upp sérstaka rannsókn-
arnefnd, samkv. 39. gr. stjórnar-
skrárinnar, til að komast að sann-
leikanum og birta hann Alþingi.
Eysteinn Jónsson endurtók það
sem hann sagði í umræðunum um
Hvalfjörð á dögunum, að hann
hefði verið náinn samstarfsmað-
ur dr. Kristins, og aldrei vitað til
að hann samþykkti það sem ut-
anríkisráðherra talaði um. Þetta
var heldur aldrei framkvæmt,
sagði ræðumaður, og það ætti að
vera gleggsti vitnisburðurinn um
afstöðu þáverandi utanríkisráð-
herra.
Einar Olgeirsson krafðist þess
kröftuglega að skjöl utanríkis-
ráðuneytisins yrðu lögð fram svo
Alþingi gæti sannfærzt um hið
rétta. Taldi hann þá rétt að utan-
r&ismálanefnd fengi að sjá plögg-
in. Hann sagði vera til undirnefnd
utanríkismálanefndar, eingöngu
skipaða fulltrúum svonefndra lýð-
ræðisflokka, með það ætlunar-
verk að skyggna allar ráðgerðir
Atlanzhafsbandalagsins á Islandi
og spurði hvort hún hefði ekki
haldið gerðabækur og hvort ekki
mætti leggja þær fram í málinu.
Kvaðst hann sjálfur telja eðlilegt
að það yrði gert.
Utanríkisráðherra sagði í um-
ræðunum að hann teldi óþarfa að
leggja fram skjöl utanríkisráðu-
neytisins þar sem hans fullyrð-
ingar væru þegar sannaðar. Með
því að leggja skjölin fyrir utan-
ríkismálanefnd væri og verið að
gefa þeim tækifæri til að glugga
í þau, sem ekki hefðu leyfi til
þess samkvæmt reglum um með-
ferð trúnaðarmála NATO. Þessi
skjöl, m. a. framkvæmdaáætlanir
NATO, snertu fleiri riki en Island
og væru algert trúnaðarmál.
Voru um þessi mál taisverðar
orðahnippingar, sem ekki eru þess
virði að verða raktar frekar. En
eftir yfirlýsingum Eysteins og
ræðumanna Alþýðubandal. að
dæma, munu þeir ekki láta sér
þessar umræður nægja, en taka
upp þráðinn þar sem frá var horf- '
ið í gær, þegar þingsályktunar-
tillaga þingmanna Alþýðubanda-
Iagsitís um framkvæmdir í Hval-
firði verður tekin á dagskrá.
Að þessu loknu var gengið til
dagskrár og flutti Þórarinn Þór-
arinsson framsöguræðu með frum-
varpi um að Alþingi fái aftur
heimild til að ákveða hvenær
gengisfelling skuli framkvæmd,
en Seðlabankinn verði sviptur
henni. Ákvörðun Seðlabankans er
í núgildandi lögum háð samþykki
ríkisstjórnar á hverjum tíma. Eft-
ir að Þórarinn hafði talað var mál
inu vísað til fjárhagsnefndar og
2. umræðu.
í efri deild gerði Alfreð Gísla-
son (Alþbl.) grein fyrir frumvarpi
um breytingar á lögum um al-
mannatryggingar.
Samgöngumálanefnd neðri deild
ar hefur kjörið Sigurð Bjamason
(S) formann og Benedikt Grön-
dal (Alþfl.) ritara. Landbúnaðar-
nefnd deildarinnar kaus Gunnar
Gíslason (S) formann og Bene-
dikt Gröndal fundarritara.
Fundir á Alþingi verða næst á
mánudag.
Jómfrúrræða - fullyrðing gegn fullyrðingu - Hvalfjörður - trúnaðarmál
i