Vísir - 05.12.1963, Síða 11
VÍSIR
Fimmtudagur 5. desember 1963.
leikari á píanó: Jón Nordal.
22.10 Kvöldsagan: „Kaldur á
köfium" úr æviminningum
Eyjólfs frá Dröngum.
22.30 Harmonikuþáttur (Ásgeir
Sverrisson).
23.00 Skákþáttur (Ingi R. Jó-
hannsson).
23.35 Dagskrárlok.
Sjónvarpið
Fimmtudagur 5. desember.
17.00 To téll the truth
17.30 The Bob Cummings show
18.00 Afrts news.
18.15 The telenews weekly
18.30 The Ted Mack show
19.00 Walt Disney presents
19.55 Afrts news extra
20.00 Biography
20.30 Miss Universe Contest
22.00 The Untouchables
22.55 Afrts final Edition news.
23.10 The tonight show
Fundahöld
Æskulýðsfélag Laugarnessóknar:
Fundur í kirkjukjallaranum í
kvöld kl. 8.30. Fjölbreytt fundar-
efni. Séra Garðar Svavarsson.
Spáin gildir fyrir föstudaginn 6.
desember.
Hrúturinn, 21. marz til 20.
ipríl: Það eru heppilegar afstöð-
ur fyri-r hendi til að stunda tóm-
stundaiðju sína eða annað
skemmtiefni, þar eð frístundir
virðast vera í meira lagi.
Nautið, 21. apríl til 21. maí:
Málefni varðandi heimilið eru enn
talsvert á döfinni og hagstætt fyr-
i-r þig að bjóða kunningjum þín-
um heim til skrafs og ráðagerða.
Tvíburarnir, 22. maí til 21.
júní: Þú ættir að hafa sem mest
samband við ættingja og vini í
dag t. d. með því að nota símann,
því það er ýmislegt, sem þessir
iðilar gætu nú ráðlagt þér.
Krabbinn, 22. júnl til 23. júlí:
Stundum er full þörf að hlynna
að þeim eignum, sem manni hafa
áskotnazt á undangenginni ævi
og nú eru einmitt heppilegir
straumar til að svo geti orðið.
Ljónið, 24. júlí til 23. ágúst:
Framfylgdu ýmsum af persónu-
legum skoðunum þínum í dag, því
það eru allar líkur fyrir því að
aðrir láti að vilja þfnum og ósk-
um.
Meyjan, 24. ág_st til 23. sept.:
Deginum væri vel varið til þess
að hnýta endahnútinn á þau verk-
efni, sem beðið hafa afgreiðslu
að undanförnu. Haltu þig sem
mest utan sviðsljóssins.
Vogin, 24. sept. til 23. okt.:
Dagurinn er vel til þess fallinn
að eyða honum meðal ættingja
eða kunningja, því góð skemmtun
gæti vel hlotizt áf. Straumarnir
breytast með kvöldinu.
Drekinn, 24. okt. til 22. nóv.:
Þú gerðir vel I því að helga ein-
hverri eldri persónu eða foreldr-
um þínum eitthvað af starfskröft-
um þínum í dag. Það borgar sig
upp á síðari tíma.
Bogmaðurinn, 23. nóv. til 21
des.: Það er oft hyggilegt að taka
lífinu með ró og leggja drög að
framtíðaráætlunum og fram-
kvæmdum. T.úarlegar og heim-
spekilegar hugleiðingar lyfta and-
anum.
Steingeitin, 22. des. til 20.
jan.: Sameiginleg fjármál eru enn
á döfinni og hagstætt að knýja
dyra hjá einhverjum gömlum
skuldunautum, því ekki er að vita
nema þeir geti innt greiðslur sín-
ar af hendi undir núverandi plá-
netuafstöðum.
Vatnsberinn, 21. jan. til 19.
febr.: Það er oft hagstætt að leita
til annarra eftir ráðleggingum, þvf
enginn er alvitur enda mun vera
full ástæða til slíks eins og nú
stendur á.
Fiskarnir, 20. febr. til 20.
marz: Nokkur hætta er fyrir hendi
sakir vetrarkvillanna og því
hyggilegt að leita læknis undir
aúverandi afstöðum. Ofneyzla
matar og drykkjar ekki hyggileg.
Aldrei verður of varlega farið í hálku, eins og þessi myn.d ber
með sér. Ökumaður jeppans, sem var á leið í bæinn s.l. þriðjudag,
meiddist sem betur fór lítið, þegar jeppinn skoppaði eina 30
metra (ekki á hjólunum) út af veginum fyrlr neðan Lágafell i
Mosfellssveit.
8E«gg«t» ry^ur.nf.c.t;. v-
Kalli
°S
kón.'i-
urinn
Kalli flýtti sér að svara meist-
aranum. Nú er allt í lagi, sagði
hann, nú komum við Krák gamla
á flot, og siglum héðan. Libertín-
us er nú búinn að finna land, þar
sem hann þarf ekki að nota stjórn
arskrá, svo að við getum rólegir
skilið hann hér eftir. Vitleysa,
sagði Libertínus. Þið eruð gestir
mínir, og verðið hér jafnlengi og
ég vil. Skröltandi skrúflyklar,
hrópaði meistarinn örvinlaður, á
nú að fara að loka okkur hér
inni það sem eftir er. Hver á þá
að sigla höfðingjanum til Nome-
yco, spurði Kalli. Ég skal sjá um
það, svaraði Libertínus rólegur.
Og Kalli og vinir hans urðu að
horfa á höfðingjann snúa til
menningarinnar, meðan þeir voru
svo gott sem fangar á eynni.
s?
I
p
K
I
R
Potted Palm er lítill ,en þving-
andi, segir Julia ,sem er vön stór
um glæsilegum sölum. Já, svarar
FRÆfiT FÓLK
Þau voru í hanastélsveizlu
og frúin var mjög Ieið yfir þvf
hve oft eiginmaður hennar
skrapp á barinn til að fá sér
í glasið. Að lokum gat hún
ekki stillt sig:
— Þetta er sjötta hanastélið
sem þú færð þér. Hvað held-
urðu eiginlega að fólk hugsi
um þig?
— Ekkert, sagði hann hug-
hreystandi, því að f hvert
skipti segi ég að þetta sé
handa þér.
*
' *r^;' .........
Salvador Dali
Súrrelistinn SaIvador Dali
er satt að segja alveg óútréikn
anlegur.
í endurminningum sfnum,
sem koma munu út innan
skamms hefur hann látið stór
eyður vera í sumum köflunum:
— Þar sem ég er mikill snill
ingur, segir hann, vil ég ekki
kasta perlum fyrir svfn og
margt af því sem ég hugsa
munu aðeins mannverur fram-
tíðarinnar, sem að öllum lík-
indum verða komnar lengra á
þróunarbrautinni en við, skilja.
Þess vegna hef ég ekki skrifað
merkilegústu kaflana, heldur
talað þá inn á segulband og
þær segulbandsspólur má ekki
taka fram fyrr en mörgum ár-
um eftir dauða minn.
Rip, en staðurinn er nú samt dá-
lítið sérstæður, og maður sér
allskonar fólk hér. Smá, klingj-
andi högg draga að sér athygli
Kirbys. Ja, hérna, hugsar hann,
litla vinkona okkar morsar eins
og fagmaður.
1 Washington er starfandi
mjög merkilegur félagsskapur
sem nefnist „Klúbbur maura-
ætanna“. Einu sinni á ári
koma klúbbsmeðlimir saman
og snæða þá í hæsta máta ó-
venjulega rétti.
Félagarnir eru diplomatar,
æðri embættismenn og stjórn
málamenn og hafa þeir þegar
smakkað flóðhest, kengúru,
villinaut og skröltorm.
í ár var stefktur fíll á mat-
seðlinum og frá Rhodesiu voru
flutt hvorki meira né minna
en 700 kíló af hrámeti,
Fílakjötjð var steikt yfir
opnum eldi fyllt með svoköll-
uðum „spring onions“, púrrum
og fleiru. Með þessu var drukl:
ið búrgundavin. Forrétturi.-m
var hreindýrstunga.
Ekki eru fréttir uf öði’u -i
mauraætunum hafi orðlð
af matnum.