Vísir - 21.01.1964, Blaðsíða 1

Vísir - 21.01.1964, Blaðsíða 1
Magnús Jakobsson Þorlákur GuOmundsson Karl Laxdal ÞRÍR LÁTNIR EFTIR SL YSINISÍÐUSTU VIKU Lítill drengur varð fyrir því ó- happi i morgun um kl. 10.30 að idetta út um afturdyr skólabíls, sem •hann var í ásamt skólasystkinum sfnum úr Austurbæjarskóla, en börnin eru öll úr Álfheimahverfi. Meiðsli drengsins munu ekki vera alvarlegs eðlis. Þetta gerðist fyrir utan verzlun- jarstórhýsið Laugaveg 178. Bílstjór- •tnn mun hafa hægt ferð bílsins, þegar hann nálgaðist húsið, en þar er vaninn að lftil stúlka komi í bfl- inn. Þegar hún var ekki sjáanleg, ætlaði bílstjórinn að halda ferðinni áfram, en þá hafa börnin verið bú- in að fikta í læsingunni að aftan og þegar bíllinn hélt áfram, datt dreng urinn út. Lögregluþjónn á bifhjóli varð á- horfandi að þessu og sagði hann að sér hefði virzt sem drengurinn hefði farið undir ytri hjólbarða bíls- ins, en verið svo heppinn að lenda í alldjúpri holu, þannig að hann Framh. á bls 6. Þriðji maðurinn, sem varð fyrir bifreið í vik- unni sem leið, er nú lát- inn af völdum meiðsla sinna, en það var Þor- lákur Guðmundsson á Njálsgötu 80. Þoriákur varð fyrir bifreið á Njáisgötunni, rétt austan við gatnamót Barónsstígs s.l. fimmtudag. Þorlákur virtist f fyrstu vera hress en við athug- un kom f ljós, að hann hafði hlotið mikil innvortis meiðsli. Hann var fluttur í sjúkrahús Hvftabandsins og skorinn sam- stundis upp. Þar iá hann síðan þar til hann lézt um hálffimm- leytið sfðdegis í gær. Þorlákur var 68 ára gamall. Hafa þá látizt þrfr af þeim 15, sem slösuðust f lok síðustu viku. Hinir tveir voru Magnús Jak- obsson, Sóleyjargötu 7, sem lézt aðfaranótt laugardagsins, og Karl Laxdal, Mávahlíð 2, sem Iézt í fyrrinótt. Þrír aðrir, tvær konur og einn karlmaður, voru einnig lögð inn f sjúkrahús, en ekki lífshættulega slösuð. Að meiðslum hinna allra var gert f slysavarðstofunni, og þeim að því búnu leyft að fara heim. í gærkvöldi' slasaðist kvenmað ur — þó ekki alvarlega — f hörðum árekstri milli tveggja bifreiða á mótum Nóatúns og Laugavegar. Það var um 91eytið f gærkvöldi að Mercedes-Benz bifreið var ekið aftan á Volks- wagen-bifreið á gatnamótunum. Afleiðingin varð sú, að kona, sem var farþegi í annarri bif- reiðinni slasaðist. Hafði sætið látið undan og konan klemmzt með fæturna milli sætis og mælaborðs. Gert var að meiðsl- um hennar f slysavarðstofunni og hún að þvf búnu fiutt heim. Bílarnir stórskemmdust, Mer- cedes-Benz-bíllinn þó öllu meir. Þeir voru báðir óökufærir á eftir. Myndin er tekin á slysstað f morgun, eftir að litli drengurinn hafði dottið út úr skólavagninum. YFIRNíFND ÚRSKURÐAR FISKVŒDIÐ OBREYTT Bieíðið í dog Bls. 2 íþróttir — 3 Litið inn í tóbaks- verzlanir. — 4 Skákþáttur. — 7 Brezku söngvararnir „The Beatles“. — 9 Viðtal við próf. Níels Dungal. Yfirnefnd kvað í gær upp úrskurð um verð ferskfisks á vetrarvertíð- inni. Samkvæmt þeim úrskurði skal fiskverðið haldast óbreytt eða kr. 3,24 pr. kg. á skegðum þorski og ýsu með haus. Það var tillaga oddamanns yfir- nefndar, Hákonar Guðmundssonar, að fiskverðið skyldi haldast ó- breytt og byggist úrskurðurinn á henni. Fulltrúar fiskseljenda og fiskkaupenda skiluðu sératkvæði. Fiskseljendur mótmæltu verð- ákvörðuninni og kváðu hana mundu „leiða til verulegrar hnign- unar hjá sjávarútveginum og versn andi kjara allra þeirra, sem við hann starfa“. Var það krafa fisk- seljenda að fiskverðið hækkaði. I úrskurði yfirnefndar er í upp- hafi rakinn aðdragandi þess, að málinu var vísað til yfirnefndar. Síðan skýrir nefndin frá ,vinnu- brögðum sínum og athugunum þeim, er hún framkvæmdi. Síðan segir orðrétt: „Framangreindar athuganir leiddu til þeirrar reikningsl. niðurstöðu, að meðalverð það ,sem meðalfrysti húsið gæti greitt fyrir hvert kg. hráefnis (þorskur og ýsa) væri kr. 2.55, en hins vegar kom meðalbát ur sá, sem við var miðað, út með þörf fyrir kr. 4.00 til þess að rekst ur hans yrði hallalaus. Við ákvörðun meðalverðs. er.það Löghann sett viði starfí trésmiða í gær kvað borgarfógeti Þor- steinn Thorarensen upp úrskurð f lögbannsmáli, sem er I sam- bandi við þá stöðvun á vinnu trésmíðameistara, sem nú stend ur yfir. Það var meistarafélag tré- smiða, sem krafðist þess, að lög bann yrði sett við trésmíða- vinnu í húsinu nr. 37 við Skip- holt, en þar er Verzlanasam- bandið að láta innrétta skrif- stofupláss. Voru 6 trésmiðir að vinna þar, þeir Kristinn Magn- ússon, Goðheimum 4, Guðmund ur Sigurðsson, Bólstaðarhlíð 36, Ásbjöm Pálsson, Kambsvegi 54, Sturla H. Sœmundsson, Óðins- götu 17, Þórður Gíslason, Sól- heimum 30 og Kristinn Sigurðs son, Bólstaðarhlíð 37, þrátt fyr ir verkstöðvun þá, sem Meist- arafélagið hafði ákveðið meðan óleyst er deila þess við Tré- smiðafélagið. Verk þetta unnu þeir fyrst undir stjórn Guðbjam ar Guðmundssonar trésmíða- meistara, en þegar hann bann- aði þeim að vinna verkið gerðu trésmiðir þeir sem hér vom taldir upp sjálfir samning við Verzlanasambandið um að vinna verkið. Borgarfógeti komst að þeirri niðurstöðu að rétt væri að taka til greina kröfuna um lögbann við þessu verki. tillaga fulltrúa fiskkaupenda, að það verði af yfirnefndinni ákveðið kr. 2.87 fyrir kg. (þorsk og ýsu sl. m. haus), en af hálfu fulltrúa fisk seljenda er tillagan sú, að meðal- verðið verði ákveðið kr. 3.95 pr. kg. Oddamaður yfirnefndar telur, að þegar tekin er ákvörðun um verð á ferskfiski þeim, sem hér er um að tefla, beri að fylgja ákvæði 1. mgr. 7. gr. laga nr. 97/1961 um vérðlagsráð sjávarútvegSins, en þar segir, að ákvarðanir um lág- marksverð „skuli byggðar á mark- aðsverði sjávarafurða á erlendum mörkuðum". Fram er komið, að nokkur hækkun varð á útflutnings verði sjávarafla (freðfisks) árið 1963, sem telja má, að orkað geti sem svarar 4-5% hækkun á hrá- efnisverði. Þar á móti kemur hins vegar mikil hækkun á framleiðslu kostnaði og fastakostnaði hjá frystihúsunum vegna kaupgjalds- hækkana á árinu 1963, sem eru eigi lægri en 30% og orka beint Framhald á bls. 6. VÍSIR

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.