Vísir - 21.01.1964, Blaðsíða 5

Vísir - 21.01.1964, Blaðsíða 5
VlSIR . Þriðjudagur 21. janúar 1964. utlond °í nLorgiin 0 útlönd í morgun útlönd í morgun / útlönd í morgun BREZK HERSKIP SEND TIL STRANDA TANSANYIKA Brezkt flugvélaskip, CENT- AUR, er á leiðinni til stranda Tanganyika, og á því 600 land- gönguITðar,, og tundurspillir fylg ir flugvélaskipinu. Þar er fyrir brezk freigáta. Landganga liðs af herskipunum hefur ekki ver- ið fyrirskipuð enn, og er beðið átekta. Tekið er fram, að hér sé um öryggisráðstafanir að ræða til verndar Iffi og eignum brezkra manna. Haft er eftir samveldisráð- herra Bretlands, Duncan-Sand- ys, að rétt sé, og hyggilegast, að grípa ekki til þess ráðs að setja Iið á land, nema í ýtrustu nauðsyn. Auk þess sem herskip hafa verið send til landsins hefur 800 manna skozkt lið, sem var við heræfingar í Aden, verið sent í skyndi aftur til bækistöðva sinna í Kenya, og verður það haft þar viðbúið. Allt þetta sýnir, hve hættulegt ástandið er talið. HVAR ER JULIUS NYERERE? Óvissan stafar ekki sízt af því, að enginn virðist vita með vissu hvar höfuðleiðtogi þjóðar- innar er, Julius Nyerere forseti. Forsetahöllin var umkringd her- liði í gær, en sagt að hann væri í Arusha f norðurhluta landsins. Það hefur ekki verið staðfest. ORSÖK UPPREISNARINNAR sem var í annarri af tveimur deildum Tanganyikahers, virðist hafa verið óánægja hermanna og ágreiningur milli þeirra og brezkra liðsforingja og undir- foringja. Af þeim v.oru um 25—30 tekn- ir með valdi og settir upp £ flug- vél, sem var að fara til Nairobi, og sfðar sendu uppreisnarmenn konur þeirra og börn á eftir þeim. Uppreisninni virðist hafa ver- ið lokið að mestu eftir einn sól- arhring. VEL ÞJÁLFAÐIR BYLTINGARMENN Fréttaritari SUNDAY TIMES, sem slapp nauðulega frá Zansi- bar í flugvél af CESSNA-gerð, sem hann flaug sjálfur, segir raunverulega hafa verið herlög í gildi, og byltingarmenn Okello greinilega verið vel þjálfaðir. Á dagskrá efri deildar voru tvö mál. Fjármálaráðherra, Gunnar Thoroddsen, lagði fram frv. til fyrstu umræðu, um afnám s. n. verðlagsskrár. I athugasemd við frv. segir, að samkv. lögum frá 1962 hafi skattstjórum verið fal- in störf yfirskattanefnda, en þar sem talið er, að ákvæði laga um verðlagsskrár hafi ekki leng- ur hagnýtt gildi, er ástæðulaust að halda Utreikningi þeirra á- fram og er því lagt til, að hann verði felldur niður. Lögin voru send Búnaðarfél. lslands til um- sagnar og var hún þeim sam- þykk. Einnig var til 2. umræðu frv. um sölu tveggja jarða, Litla- gerðis í Grýtubakkahreppi og Miðhúsa i Egilsstaðahreppi. í neðri deild voru fjögur mál á dagskrá. Félagsmálaráðherra, Emil Jónsson, lagði fram til fyrstu umræðu frv. um hækkun almannabóta annarra en fjöl- skyldubóta. ffemur hún 15%, og er það í samræmi við hinar síðustu launahækkanir. Segir i frv. að bætur þessar skuli greidd ar með 32,25% álagi I stað 15%, sem ákveðið var með lög- um frá 9. des. s.l. Nemur hækk- un þessi um 74,4 millj. króna og skiptist þannig: Ellilífeyrir 47,3 millj., örorkulífeyrir og ör- orkustyrkur 12 millj., aðrar bæt- ur 13,6 millj. og tillag til vara- sjóðs 1,5 millj. Greiðsla þessara bóta verður í einu lagi í júnílok n.k. fyrir sex Menn spyrja hvaða erindi Ok- elio eigi f Tanganyika — telja margir líklegra að hann hafi þar fingur með í spilinu heldur en að hann hafi farið þangað til þess að hvíla sig. Okello er skrautgjarn sem blökkumenn margir, og hefur látið taka af sér myndir, þar sem hann er klæddur einkennisjakka með axlaskúfum, en á borði við hlið hans var biblían, og I henni kvaðst hann hafa lesið um allt það, sem hann þurfi að vita til þess að geta gert stjórnarbylt- ingu. Myndin er af hinum nýju valdhöfum í Zansibar — í miðjunni er John Okello, sem kallar sig aðal- byltingarmanninn og „marskálk“ — og segir SUNDAY TIMES, sem birtir myndina, að félagar hans á myndinni hafi allir verið þjálfaðir á Kúbu eða f löndunum innan járntjalds. Og nú hefur bylt- ingin breiðzt til Tanganyika — þar brauzt út uppreisn í hernum nærri samtfmis og Okeilo kom þangað „sér til hvíldar og hressingar eftir byltinguna á Zansibar“! fyrstu mánuði ársins vegna þess að tekjur verða ekki innheimtar fyrir þann tíma. Þessar hækkanir ná ekki til fjölskyldubóta vegna þess að þær eru tengdar persónufrá- drætti og álagningu útsvars. Sagði félagsmálaráðherra, að í efri deild lægi frammi svipað frv. borið fram af Alfreð Gisla- syni (Ab). Liti hann á það sem stuðning þessu frv. ríkisstjórn- arinnar. Var málinu sfðan vísað til annarrar umræðu og heil- brigðis- og félagsmálanefndar. Þá var, eftir 3ju umræðu, bor- ið undir atkvæði og samþykkt frv. um meðferð á ölvuðum og drykkjusjúkum mönnum. Var fundi síðan frestað. ATVINNA Röskur og áreiðanlegur maður óskast til starfa í afgreiðslu vorri. Þarf að geta svarað í síma. KIÖTVER HF. Dugguvogi 3. Sími 11451 og 34340. AÐALBÓKARI Starf aðalbókara er laust frá 1. marz n. k. Eiginhandar umsókn ásamt mynd og upplýs- iJlaUgaJjttlö.B J „ „ mgum um fyrn storf oskast send skrifstofu vorn. rfprtrr HOTEL SAGA REYKJARPÍPUR Reykjarpípur. Mikið úrval. Heimsþekkt merki. Hagstætt verð. Verzlunin Þöll, Veltusundi 3, gegnt Hótel ísland bifreiðastæðinu. TILKYNNING Verðlagsnefnd hefur ákveðið eftirfarandi há- marksverð á brauðum í smásölu. Tilkynning nr. 12/1963 heldur gildi sínu. Rúgbrauð, óseydd, 1500 gr. • ■ • • kr. 10,00 Normalbrauð, 1250 gr..— 10,00 Séu nefnd brauð bökuð með annarri þyngd en að ofan greinir, skulu þau verðlögð í hlutfalli við ofangreint verð. Á þeim stöðum, sem brauðgerðir eru ekki starf- andi, má bæta sannanlegum flutningskostnaði við hámarksverðið. Utan Reykjavíkur og Hafnarfjarðar má verðið vera kr. 0,20 hærra en að framan greinir. Söluskattur er innifalinn í verðinu. Reykjavík, 18. janúar 1964. Verðlagsstjórinn.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.