Vísir - 21.01.1964, Blaðsíða 6

Vísir - 21.01.1964, Blaðsíða 6
6 I 1 M Þessar 50 áfengisflöskur voru m. a. teknar af unglingum við inn- göngudyr Lidós á gamlárskvöld. Leitað á ungum stúlkum / Lídó Konráð Guðmundsson, forstjóri Lidós, hefir undanfarið beðið ýmis blöð fyrir það, sem hann kallar „leiðréttingu“ á frétt Vís- is 3. janúar um að leit hafi ver- ið gerð á unglingum við inn- göngudyr Lidós á gamlárskvöld og af þeim teknar um 50 flöskur af áfengi. Reynir forstjórinn að bera brigður á sannleiksgildi þeirra ummæla að leitað hafi verið á stúlkum við innganginn og áfengi þar tekið af þeim. Það er hins vegar staðreynd í þessu máli, sem fjöldi vitna getur bor- ið um, að vörzlumenn Lidós gerðu áfengisleit á ungum stúlk- um við innganginn á gamlárs- kvöld, skipuðu þeim að opna veski sín og leituðu í vösum klæða þeirra. Var nokkurt magn áfengis gert upptækt við þessa leit. Á stéttinni við anddyrið misstu m. a. tvær stúlkur á. fepgispela, sem þær höfðu duli$ á sér innanklæða. Á þessar staðreyndir fær for- stj. Lídós ekki dregið dul þrátt fyrir tilraunir slnar í þá átt með hártogunum 1 leiðréttingum sin- um í blöðunum, — meir en hálf- um mánuði eftir að atburðurinn átti sér stað. Er Vísir fús til þess að upplýsa ýmsa fleiri sér- stæða atburði sem áttu sér stað í Lidó þetta kvöld, ef tilefni gefst til. Vísir ritaði á sínum tíma um þetta mál til þess að varpa ljósi á það hve alvarlegt áfengis- vandamál æskunnar er orðið í Reykjavík og til þess að undir- strika hver nauðsyn er á þvi að grípa þar I taumana. Er vand- séð hver tilgangur forráða- manna Lidós er, þegar þeir nú nokkru seinna gera tilraunir til sm hér ,-rn ) NæBonsokkar — Framhald af bls. 7 Hume Carothers var löglega af- sakaður, því að vel heppnuð sjálfsmorðstilraun hafði bundið endi á frægðarferil hans hjá „du Pont“ tveim árum áður. Hann varð aðeins 42 ára. Allar tilraunirnar og öll heilabrotin I sambandi við uppfinningu þessa gerviefnis höfðu tekið svo á hann, að I geðveikikasti svipti hann sig llfi. Upphaflega kallaði Carothers efni sitt „Fiber 66“, en I auglýs- ingadeild „du Pont“ sáu menn fljótlega, að það nafn myndi ekki segja almenningi mikið og fundu út að „Norun" yrði betra nafn. „No run“ — engin lykkju- föll. Síðar varð það að Nyron, Nulon og Nilon, en þar sem öll þessi nöfn voru þegar notuð á aðra hluti eða að erfitt var að bera þau fram, var á endanum ákveðið að kalla efnið Nylon — jafnvel þótt skósverta með þessu nafni hefði verið fram- leidd I Bretlandi slðan árið 1850. Hinn 15. maí 1940 gátu banda rlskar konur I fyrsta skipti keypt nælonsokka I verzlunum. | Það gerðist um leið alls staðar | 1 Bandaríkjunum. Sokkarnir seldust upp á svipstundu og það tók mörg ár að fullnægja eftirspurninni, jafnvel þótt verð ið væri mjög hátt. Það er sagt, að eitt par af nælonsokkum hafi þótt fínasta brúðargjöf, jafnvel einnig eftir stríðslok. Árið 1947 má segja að nælon- sokkarnir hafi verið komnir al- mennilega á markaðinn I Banda- ríkjunum. Verðið var mjög hátt I ifyrstu, einnig víðar um heim, þar sem þessi vara var sjald- gæf, og munu vafalaust flestar íslenzkar konur minnast svarta- markaðssokkanna. Verðið á nælonþræðinum er nú orðið fimm sinnum lægra en það var, er fyrstu nælonsokk- arnir voru framleiddir hjá „du Pont“, og fer það hraðlækkandi enda þótt aðrar vörur fari sl- hækkandi. Garnþykktin, sem notuð var I fyrstu nælonsokkana, var 40 denier (denier — gramm á kíló- metra þráðarins), en nú er al- gengasta þykktin 15 — 20 deni- er og I þynnstu samkvæmis- sokkunum er aðeins 12 denier- þráður. Og er furða, þótt við segjum? Að hugsa sér að nælonsokk- arnir skuli ekki vera nema 25 ára gamlir. Hjartkær móðir mín, KRISTÍN GÍSLADÓTTIR, Öldugötu 2, andaðist í Borgarspítalanum þann 14. þ. m. Að ósk hennar hefur útförin farið fram í kyrrþey. Þakka auðsýnda hluttekningu. Huida Guðmundsson. Fiskverð — Framh. af bls. 1. eða óbeint á venjulegan hluta af framleiðslukostnaði frystihúsanna. í þessu sambandi er rétt að taka fram, að fiskseljendur hafa rétt- mætra hagsmuna að gæta um það, að eigi verði annað talið til fram- leiðslukostnaðar en þar á heima og á athugun sú, sem áður er get- ið, á fasta- og framleiðslukostnaði frystihúsanna, m.a. að gefa fisk- seljendum tækifæri til hagsmuna- gæzlu gagnvart fiskkaupendum að þessu leyti. Að því er varðar þá 15% kaup- hækkun ,er varð I desembermán- uði sl. ber sérstaklega að gæta þess, að miðað er við, að frystihús- eigendur muni af opinberri hálfu fá aðstoð til þess að mæta þeim kostnaðarauka, er nefnd kauphækk un leggur á framleiðslu þeirra. Er miðað við, að sú aðstoð geti num- ið allt að kr. 0.30 á hvert kg. hrá- efnis, þannig að hækka megi á- ætlað viðmiðunarverð úr kr. 2.55 1 kr. 2.85. Þegar þessi atriði eru virt, og litið er til gagna þeirra og upp- lýsinga, sem tiltæk hafa verið, tel- ur oddamaður eigi fyrir hendi grundvöll samkv. meginreglu 1. mgr. 7. gr. laga nr. 97/1961 til þess að hækka við þessa verðlagningu meðalverð það á ferskfiski, sem samþykkt va>r af yfirnefnd I janúar 1963 og gilti til loka þess árs. Er atkvæði oddamanns samkvæmt því það ,að meðalverðið kr. 3.24 á slægðum þorski og ýsu með haus standi óbreytt, enda er við þá á- kv. höfð I huga batn. framleiðni frystihúsanna, er gefa á möguleika til betri greiðslugetu, og svo llkur til þess, að verðlag á erlendum markaði á Islenzkum sjávarafurð- um hækki frekar en lækki. Með þvi að tillaga oddamanns um •jTieðalverð liggur þannig milli framangreindra,, tjjjágm frMrúa fiskkaupenda og fiskseljenda, verð ur samkvæmt venjulegum dómskap arreglum meðalverð það, er hún fel ur I sér, gr. 3.24, það verð, er gilda skal eigi skemur en verðlags tfmabilið frá 1. janúar til 31. mai 1964, sbr. 7 gr. laga nr. 97/1961, en tekin verður sérstaklega ákvörð un um það, hvort þessi verðákvörð un skuli gilda lengur. Reykjavík, 20. janúar 1964. Hákon Guðmundsson, Með sklrskotum til sératkvæðis: Tryggvi Helgason, Kristján Ragnarsson. Með sklrskotum til sératkvæðis: Helgi G. Þórðarson, Valgarð J. Ólafsson". I sératkvæði fiskkaupeda segir, að það hafi verið niðurstaða kostn- aðaráætlunar meðalfrystihússins, að unnt væri að greiða 2.55 gr. pr. kg., en til viðbótar kæmi sú aura- tala, er upplýst væri að rlkisvaldið muni bæta fiskverkendum til að mæta síðustu 15% kauphækkun og talin er samsvara 0,32 kr. pr. kg. Tillaga fiskkaupenda væri þvl 2.87 pr. kg. 1® deyja Framh. af bls. 16. krabbi fari hér allört vaxandi, þannig að á næstu fjórum árum deyi 100 íslendingar úr þessum sjúkdómi. Væri þvl hin mesta nauðsyn að menn hættu að reykja sfgarettur, en miklir reykingamenn, þ. e. þeir sem reykja meir en einn pakka á dag, eru í þessari sjúkdóms- hættu. Pípan er tiltölulega mein- -laus og einnig vindlar. Ráðlagði prófessorinn konum að hefja pípureykingar en hætta við sígarettuna. Þá benti hann einn ig á að miklar reykingar orsök- úðu krabbamein á fleiri stöðum, t. d. benti hann á það, að fjórða Villandi greinargerð póstmeistara — Þögn um aðalatriðið Vegna athugasemdar póstmeist ara I Vísi 15. þ. m., „Enn um upprifnu bréfin", vil ég taka fram eftirfarandi: í bréfi mfnu 18. des. 1962 var fyrst og fremst kvartað um upp rifið bréf, sem kom á skrifstofii h.f. Júpíters daginn áður, 17. des. 1962, með þessum orðum: „Nú I gær kom hingað bréf frá Peter Hein K.-G. I Cuxhaven, sem hafði verið rifið upp. Þetta bréf var stflað til h.f. Júpíters. Við höfum ekki tekið innihald umslagsins úr þvl, það er hjá okkur með þeim ummerkjum, sem það kom úr pósti, og er til sýnis fyrir yður þannig á skrifstofu okkar“. Þessu hefur póstmeistari engu svarað og hvorki hann né nokk- ur maður frá póstinum talað um efni þessa bréfs við mig. Var þó ekki liðinn nema einn sól- arhringur frá þvl að upprifna bréfið kom og þar til kvartað var um það bréflega. Tryggvi Ófeigsson. hvert heilaæxli, sem upp kæmi I Bandaríkjunum, stafaði af lungnakrabbameini. Þá yllu reyk ingar og magasári. Hættumerki er það, þegar reykingamenn fá harðan, vond- an hósta, ekki aðeins á morgn- ana, heldur einnig á daginn. Þá er kominn tími til þess að hætta að reykja, sagði hann. Bygging — Framh. af bls. 16. hitaveitustjóri. Fyrsti áfanginn, sem reistur verður, er tveggja hæða hús, auk kjallara, að flatarmáli rúm- lega 500 fermetrar. Talað hefur verið um að þar verði til húsa deildir 1 eðlisfræði, stærðfræði, efnafræði og jarðeðlisfræði. Datt út — Framh. af bls. 1. slapp við alvarleg meiðsli. I gær slasaðist maður I Kork- iðjunni, er hlass féll af bll og lenti á honum. Farið var með manninn I slysavarðstofuna, en blaðinu er ekki kunnugt um hve meiðslin voru mikil. Litlp munaði að slys hlytist af, er maður hljóp á bifreið á Borgar- túni um hálf fimm leytið I gær. Maðurinn slapp en bifreiðin skemmdist hins vegar óg má segja að það séu næsta fátíð hlutverka- skipti. I gærkvöldi og nótt hirti lðgregl- an tvo menn, annan sofandi undir stýri bifreiðar sinnar I miðbænum, en hinn liggjandi I blóði slnu I húsasundi. Sá hafði hlotið skurð á höfuð og var hann saumaður sam- an I slysavarðstofunni. Teiknilampar nýkomnir . Ljós og hiti GarSastræti 2 Inngangur frá Vesturgötu. Sími 15184. Mjög vandaðir HEFILBEKKIR Stærð 220 cm. nýkomnir. jHHfk LUDVIG STORR Sími 1-3333

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.