Vísir - 21.01.1964, Blaðsíða 2

Vísir - 21.01.1964, Blaðsíða 2
Hér eru myndir frá innanhússmótinu í knattspyrnu. Það er Högni Gunnlaugsson, sem er að taka á móti verðlaununum fyrir sigurinn af Reyni Karlssyni. — Minni myndin sýnir hina fimm leikmenn Keflavlkur í ljómandi góðu skapi að sigri loknum. Þeir eru: Jón Ólafur Ólafsson, Högni Gunn- laugsson, Sigurður Albertsson, Hólmbert Friðjóns lon og Jón Jóhannsson. (Ljósm. Bjarnl, Bjarnleifss.) Yfirburðir Þróttar og Hauka í leikum þeirra gegn Breiðablik og Kefla- vík voru allt of miklir til að geta skemmt hinum sárafáu áhorfendum, sem voru að Hálogalandi um helgina. Helzt voru það | Nómskeið í | fyrir knott- \ spyrnuþjólf- í ura í Leipzig l Námskeið fyrir knattspymu- í ; þjálfara verður haldið á vegum / 1 Iínattspyrnusambands Evrópu i 1 1 Leipzig frá 21. tii 27. júní n.k. ) { Þelr, sem áhuga hefðu á að i / sækja þetta námskelð, ættu að / ; hafa samband við K.S.Í. sem ; 1 fyrst, þar sem tilkynna þarf þátt 'i 4 töku fyrlr n.k. mánaðamót. 4 l (Frá K.S.Í.). ( frumlegar aðferðir Þrótt- ara til að koma boltanum framhjá hinum þéttvaxna markverði í marki Kópa- vogsmanna, Ármanni J. Lárussyni, sem vöktu gleði og skemmtun. Haukar virtust í sínum leik ekki ætla að ná tökum á Keflvikingum, mjög léttum mótherjum, algjörlega vonlausum í viðureigninni við Hauka. Keflavík komst 3:0 yfir í byrjun, en Haukar jafna ekki fyrr en í 5:5 og var þá talsvert liðið á fyrri hálfleik, en í hálfleik var stað an orðin 13:6. í seinni hálfleik héldu Haukar áfram að auka for- skotið og unnu með 20 marka mun, 32:12. Samt var Haukaliðið mun lak- ara en við mátti búast og leikmenn fengu ekki það út, sem hæfileikar þeirra gefa tilefni tjl. Beztur var Viðar Símonarson, en Ásgeir Magn ússon átti ágætan kafla undir lok- in. Keflavíkurliðið var án einnar einustu skyttu og gat því aldrei orðið hættulegt. Beztur í liði þeirra var Helgi Hólm, kunnur frjáls- íþróttamaður, sem æfir nú hand- knattleik með Keflvíkingum, og virðist eiga framtfð á því sviði. Breiðablik reyndist jafnvel enn auðmeltari biti fyrir Þrótt en Kefla vík fyrir Hauka, því yfirburðirnir voru gífurlegir. — Oft var um hreina uppgjöf Breiðablikspiltanna fyrir ofureflinu að ræða. Þróttur náði mjög fljótt yfirhöndinni í leiknum og eftir þvf sem á leið urðu yfirburðirnir meiri og greini- legri. í hálfleik var staðan 20:6 fyrir Þrótt, en í seinni hálfleik var markaflóðið enn meira og unnu Þróttarar 45:17, en hefðu eflaust getað skorað talsvert fleiri mörk, en áhuginn á slíku virtist ekki fyrir hendi. Þróttarliðið er ágætt um þessar mundir og ekki ólíklegt að því takist að fara upp í 1. deild aftur. Beztu menn voru þeir Haukur Þor- valdsson og Axel Axelsson, en Haukur skoraði alls 17 mörk í leiknum, eða jafnmörg og öll mörk Breiðabliks. Breiðabliksliðið er ekki í góðri þjálfun og auðséð er að piltarnir hafa ekki fyrir hendi þau skilyrði, sem til þarf svo hægt sé að þjálfa handknattleikslið til keppni. Bezti maður liðsins var Grétar Ingólfsson, mjög efnilegur leikmaður, en hann skoraði jafn- framt 8 mörk í leiknum. Mjög harðir teíkk síðira kvöldið Keflvíkingar unnu innanhúss- knattspymumót Fram á föstudags- kvöldið, en keppnin var gífurlega spennandi og skemmtileg fram á sfðustu stundu. Keflavík vann Fram í úrslitaleik með 6:5. Úrslit í leikum þeirra 8 liða, sem léku í úrslitum voru þessi: Fram-a — Víkingur-a 4:3 Fram-c — Valur-a 5:4 KR-b - Keflavík-b 8:3 Keflavík-a - KR-a 6:5 Næst mættust lið Fram, a-liðið og c-lið, sem hefur sýnt hvað beztu leikina í þessu móti. A-lið- inu tókst að sigra með 6:5 eftir framlengingu, en mál manna var að lakara liðið hefði farið með sig- ur af hólmi og hefði það verið Fram til tjóns, því sennilega hefði c-liðið sigrað Keflavík í úrslitum. Keflvíkingar unnu b-lið KR auð- veldlega með 8:5 og léku þá til úr- slita Keflavík og Fram. Var sá leik- ur afarjafn og ekki hægt að segja um úrslit fyrr en yfir lauk. Clay æfir fyrir bardag- ana við Sonny Liston CASSIUS CLAY - hinn ungi ofurhugi, sem hyggst reyna að ná heimsmeistaratitlinum burtu frá Sonny Liston í næsta mán- uði. Hér er Cassius við æfingar. Miðasaia á leikinn er hafin og kosta dýrustu sæti yfir 10.000 krónur ísl., en það eru aðeins 720 sæti við hringinn.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.