Vísir - 21.01.1964, Page 16
VISIR
Þriöjudagur 21. janúar 1964.
AAAAAAAAAAAAAAAAAAA^
Skattaþjón-
usta Vísis |
Skattablað Vísis mæltist vel ] ►
fyrir hjá lesendum, en þar voru f
veittar upplýsingar og leiðbein-]i
ingar um skattframtöl. Nú hef-i|
ur Vísir ákveðið að halda þess- ]i
ari þjónustu við lesendur sína i'
áfram. Mun blaðið svara fyrir-
spumum frá einstaklingum varð i’
andi ýmis vandamál í sambandi'i
við framtölin. Þeir, sem viljai]
koma fyrirspumum á framfæri, '>
sendi þær til Visis, merkti'
„Skattaþjónusta Vísis“.
Nýr formnður
Siálfstæðisfélugsim
á Akureyri
Aðalfundur Sjálfstæðisfélagsins
á Akureyri var haldinn 14. jan. s.l.
Þar var Sigurður Guðlaugsson kjör
inn formaður félagsins í stað Árna
Jónssonar sem eindregið skoraðist
undan endurkjöri.
Aðrir stjórnarmeðlimir Sjálfstæð
isfélagsins vora allir endurkjörnir,
en þeir era Baldvin Ásgeirsson,
Bjarni Sveinsson, Jón M. Jónsson
og Ragnar Steinbergsson.
Á fundinum var ennfremur kosið
í fulltrúaráð og kjördæmaráð. Þá
flutti og Jónas G. Rafnar alþm. er-
indi um þingmál og afgreiðslu ým-
issa mála á Alþingi.
í sjöttu umferð skákmótsins, sem
fram fór i gær, gerðist fátt óvenju-
legt, skákirnar voru yfirleitt held-
ur rólegar nema helzt skák þeirra
Ingvars Ásmundssonar og Norð-
mannsins Johannessens.
Tal vann Wade auðveldlega. Byrj
unin var Sikileyjarvörn. Virtist
Wade í fyrstu byggja upp nokkuð
örugga varnarstöðu, en þegar líða
tók á skákina kom í ljós, að sókn-
arþungi Tals var þyngri á metun-
um og sigraði hann öragglega.
Gligoric vann Freystein f fremur
gallaðri byrjunartaflmennsku af
Freysteins hálfu. Freysteinn fór út
f það að fórna skiptamun og virt-
ist fá góða stöðu fyrir, en fór svo
ekki rétt í framhaldið og mátti bfða
lægri hlut.
Johannessen vann Ingvar f all-
harðri skák. Ingvar hafði hvftt og
hóf stórsókn strax í byrjun, fórn-
aði manni og hugðist ganga milli
bols og höfuðs á Norðmanninum
strax í miðtaflinu. Johannessen
varðist hins vegar af mikilli seiglu,
sneri vörn upp í sókn og vann síð-
an.
Friðrik vann Inga f fremur hæg-
fara skák, þar sem Ingi virtist lengi
framan af ætla að halda jöfnu. En
að lokum hafði Friðrik tekizt að
byggja upp mun traustari stöðu.
Notaði hann þá tækifærið og hóf
harða sókn og mátti Ingi gefast
upp f 31. leik.
Gaprindasvila og Magnús Sól-
mundarson gerðu jafntefli þó að
svo virtist f fyrstu sem stúlkan
hefði betra tafl. Guðmundur og
Trausti skildu og jafnir eftir frem-
ur rólega skák. Arinbjörn á mun
betri biðskák móti Jóni.
Sigurður A. Magnússon.
Guðm. G. Hagalin
Stúdentafélagsfundur um
Hannes Hafstein og Uppkastið
Á fimmtudagskvöldið kl. 8.30
efnir Stúdentaféiag Reykjavíkur til
Próf. Níeis Dungal.
19 deyja árlega úr lungna-
umræöufundar um efnið: „Hannes
Hafstein og Uppkastið i ljósi sög-
unnar“. Verður fundurinn haldinn
f Sjálfstæðishúsinu (Sigtúni) og er
opinn almenningi. Frummælendur
era rithöfundarnir Sigurður A.
Magnússon og Guðmundur G.
Hagalfn.
Eins og kunnugt er kom seinna
krabta vegna reykinga
— sagði professor Dungal í gær
— Ég hef aldrei vitað
til þess að maður, sem
dáið hefir hér á landi inn
an við 45 ára aldur úr
kransæðastíflu hafi ekki
reykt, sagði prófessor
Níels Dungal í útvarps-
þættinum Á blaða-
mannafundi í gærkvöldi.
Prófessorinn lagði áherzlu á
sennileika þess að sígarettureyk
ingar valdi kransæðastfflu og
öðram hjarta og æðasjúkdóm-
um. Þeir unglingar sem nú byrja
að reykja við 12 — 13 ára aldur-
inn (þriðji hver 13 ára drengur
í Reykjavík reykir) væra í mik-
illi hættu að deyja úr krans-
æðastfflu innan við fertugt.
Prófessor Dungal skýrði einn
ig frá því, að hér á landi önd-
uðust árlega um 20 menn af
tungnakrabba. Af þeim mega 19
kenna reykingum um dauðsfall
sitt. Búast má við því að lungna
Framhald á bls. 6.
'H
' J
bindi ævisögu Hannesar Hafstein
eftir Kristján Albertsson út fyrir
jólin. Sú bók hefir valdið mögnuð-
um ritdeilum og skoðanir mjög ver-
ið skiptar á þeim stjórnmálaat-
burðum, sem gerðust 1908, þegar
Uppkastið var fellt. Stúdentafélag-
ið tekur nú til umræðu á fyrsta
umræðufundi sfnum f vetur þenn-
an merka kafla f stjórnmálasögu
þessarar aldar. Má búast við að
margir taki til máls og umræður
verði mjög fjörugar.
Eins og fyrr segir er öllum, stúd-
endum sem öðrum, heimill aðgang-
ur að fundi þessum.
j&S&aEBSB&A
Friðrik vann Inga
Byrjað að grafa fyrir raunvísindastofnun Háskólans. Háskólabíó í baksýn á vinstra helmingi myndarinnar og Háskólabyggingin sést
fjær til hægri. Lengst til vinstri á myndinni eru vísindamennirnir prófessor Leifur Ásgeirsson, dr. Gunnar Böðvarsson og prófessor
Magnús Magnússon, en Iengst til hægri era prófessor Trausti Einarsson og Jóhannes Zoega hitaveitustjóri. Á miðri myndinni sést Ár-
mann Snævarr háskólarektor. Hægra megin við hann eru J. K. Penfield sendiherra Bandaríkjanna á Islandi og Þorbjöm Sigurgeirsson
prófessor, sem er formaður byggingarnefndar, en vinstra megin við rektor má sjá Steingrím Jónsson fyrrum rafmagnsstjóra og Guð-
mund K. Guðmundsson tryggingafræðing.
ByggingRaunvísindastofnunarhafín
1. áfangi tilbúinn 1965
Sl. laugardag var byrjað að
grafa fyrir undirstöðum raun-
vísindastofnunar Háskóla ís-
Iands, sem á að reisa á Mel-
unum bak við Háskólabíó, en
til þeirrar stofnunar gaf Banda
ríkjastjórn 5 milljónir króna á
50 ára afmæli Háskólans fyrir
tveim árum. Formaður bygg-
inganefndar, Þorbjöm Sigur-
geirsson prófessor, sagði blað-
inu, að fyrsti áfangi stofnunar-
innar ætti að vera fuligerður á
árinu 1965, ef fjárskortur haml-
aði eigi framkvæmdum.
Arkitektarnir Sigvaldi Thord-
arson og Skarphéðinn Jóhanns-
son hafa teiknað hús raunvís-
indastofnunarinnar, en í bygg-
ingarnefnd era, auk prófessors
Þorbjörns, Loftur Þorsteinsson
prófessor, Guðmundur Guð-
mundsson tryggingafræðingur,
Steingrímur Jónsson fyrrum raf
magnsstjóri og Jóhannes Zoega
Framh á bls. 6.