Vísir - 28.05.1964, Qupperneq 6
6
V1SIR . Fimmtudagur 28. maí 1964,
Farfugladeild Reykjavíkur hefur
ráðizt f þaö stórvirki að kaupa
húseign í Reykjavík, sem er þriggja
hæða hús, auk riss. Þetta er hús-
eignln Laufásvegur 41 og 41 A, og
er hugmyndin að opna þar gisti-
heimili einhvern næstu daga.
Ráðamenn Farfugladeildarinnar
töldu kaup á húsi óumflýjanleg
orðin vegna umfangsmikillar
starfsemi hennar og móttöku er-
lendra Farfugla, sem nú leita f æ
ríkari mæli til íslands .
Farfuglar hafa undanfarið unnið
og látið vinna að nauðsynlegum
breytingum og lagfæringum á hús-
eign þessari og er í ráði að sjálft
gistiheimilið geti tekið þar til
starfa 1 næstu viku. Til annarrar
) félagsstarfsemi mun húsnæðið síð-
an verða tekið eftir þvf sem efni
og ástæður leyfa, m.a. verður
skrifstofa deildarinnar flutt þang-
að seinna í stunar, en til að byrja
með verður hún til húsa að Frí-
klrkjuvegi 11.
Farfugladeild Reykjavíkur er
orðin aldarfjórðungsgömul og má
segja að hún hafi fært sjálfri sér
allmyndarlega afmælisgjöf með
framangreindum húsakaupum.
Deildin á tvö önnur farfuglaheimili
(hreiður) bæði f nágrenni Reykja-
víkur, Heiðarból og Valaból, og
hafa þau mikið verið sótt á und-
anförnum sumrum.
Félagið rekur vfðtæka ferðastarf-
semi ár hvert og leggur mikla á-
hérzlu á áð géra ferðimar sem ó-
dýrastar, svo að einnig hinir efna-
litlu eigi þess kost að ferðast. Á
VIÐ SELJUM:
Opel Cadett ’63 NSU
prins ’63 Volkswagen ’62—
'60 Sodiac ’60 Taunus
Station ’59 Chevrolet
Impala ’50 Commer ’63
með 12 m húsi. Chevro
let ’57—’56 Ford ’58, góður
Látið bílinn standa hjá
okkur, og hann selst.
_____________
Vgamia bílasalanV
fcjQj 15 812 (QCjÍ
dnnnr rauoara hiimitii
SKÚLAGATA 55 — StMI Ilgll
AÐ RAFKERFINU
s.l. sumri var þáttaka mjög góð
í ferðum, sem jafnaði sig upp með
30 manns í hverri ferð sem farin
var. Verður það að teljast næstum
einstæð þátttaka hjá tiltölulega
fámennu félagi.
1 vor og sumar verður efnt til
ferðalaga nær og fjær um hverja
helgi og um mitt sumarið verður
efnt til þriggja sumarleyfis-
ferða, sú fyrsta er í Þórsmörk og
dvalið þar frá 11. —19. júlf. Þá er
9 daga ferð í Amarfell hið mikla
og nágrenni dagana 18.—26. júlf.
Verður fyrst farið til Veiðivatna
og Þórisvatns, en sfðan haldið f
nágrenni Amarfells og gerðir út
ýmsir leiðangrar þaðan. Þriðja og
síðasta ferðin er 12 daga ferð um
Vestfirði dagana 5.—16. ágúst.
Ekið verður um Dali, Barðastrand-
arsýslu og Vestfirði til ísafjarðar.
Þaðan verður farið á skipi um
Legkrobbaleit —-
Framh. af bls. 1
pantað tíma fyrir skoðun, svo
að sem allra stytztur tími færi
í þetta. Er konum þannig gert
eins auðvelt og unnt er að not-
færa sér þessa heilsugæzlu.
Alma Þórarinsson kvaðst gera
ráð fyrir að nýja leitarstöðin
yrði opnuð 10, til 15. næsta
mánaðar og myndu verða skoð-
aðar allt upp f 50 konur á dag
þegar fram í sækti. Tvær hjúkr-
unarkonur hafa verið ráðnar til
starfa við stöðina, Hertha Jóns-
dóttir og Guðrún Broddadóttir,
og verða þvf eingöngu konur f
starfsliðinu. Tvær stúlkur hafa
kynnt sér frumurannsóknir er-
lendis og starfa við stöðina.
LEGKRABBINN
ER Á UNDANHALDI.
Alma Þórarinsson lét f ljós
þá von, með tilliti til reynsl-
unnar f öðmm löndum, að góð-
ur árangur yrði af þessari leit
að legkrabbameini. Hún sagði,
að sýnilegt væri, að þessi teg-
und krabbameins væri á und-
anhaidi í löndum þar sem mest
hefði verið gert að þessum rann
sóknum. Væri legkrabbi senni-
lega eina alvarlega krabbamein
ið, sem menn gætu horfzt f
augu við og ráðið niðurlögum
þess, ef konur fengjust til sam-
vinnu við læknana og unnt væri
að gera nauðsynlegar rannsókn
ir. Hét Alma að iokum á konur
að vanrækja ekki að nota það
tækifæri, sem hér væri nú að
skapast, svo lítið sem þær
þyrftu á sig að leggja annars
vegar og svo mikið væri f húfi
hins vegar.
HINN NÝI
YFIRLÆKNIR.
Alma Þórarinsson, sem er gift
Hjalta Þórarinssyni lækni, er
stúdent frá Menntaskólanum á i
Akureyri, lauk embættisprófi í \
iæknisfræði frá Háskóla Islands
1951 og var síðan 2 y2 ár við
framhaldsnám f Amerfku. Hún
var læknir við Landakotsspftal |
ann f 5 ár, við svæfingar og eft-
irmeðferð sjúklinga, og hefir j
siglt árlega til að fylgjast með
nýjungum á sviði læknisfræð-
innar. f fyrrasumar var hún t.d.
við frumurannsóknir í Glasgow,
og einnig dvaldist hún í Noregi
og kynnti sér séretaklega fjölda-
rannsóknir legkrabbameins með
tilliti til þess starfs, sem hún
tekur við.
Djúpið með viðkomu í Æðey og
Vigur, síðan haldið í Kaldalón og
ekið suður um Þorskafjarðarheiði.
Þess má geta að Farfuglar hafa
annazt gróðursetningu f svoköll-
uðu Sleppugili f Þórsmörk um
margra ára skeið og nú hefur
komið til mála að semja framtíð-
aráætlun um gróðursetninguna þar
til að auðvelda starfstilhögun alla.
1 sumar verður mót norrænna
Farfugialeiðtoga haldið f fyrsta
skipti á fslandi og búizt við þátt-
töku frá öllum Norðurlöndunum.
fslenzku, Farfuglarnir hafa veg
og vanda af móttöku þeirra og
skipulagningu mótsins. Það verð-
ur háð dagana 21.—28. júnf.
Ragnar Guðmundsson er formað
ur Farfugladeildar Reykjavfkur.
Aðrir f stjórn hennar eru Þor-
steinn Magnússon, Sigurður Blön-
dai, Þórður Eirfksson, Þórhallur
Aðalsteinsson, Kristinn Zóphonías-
son og Eyjólfur Sigurðsson.
Félagsskapur Farfugla er hollur
og góður, og þar hefur aldrei þrif-
izt óregla né skrílmennska f neinni
mynd, en jafnan krafizt ósér-
plægnis, drenglyndis og heiðar-
leika af hverjum sem þar gerist
félagi.
Kraftblakkir —
Framh. af bls. 16
hefðu verið meðal hinna fyrstu
til þess að hefja notkun kraft-
blakkar á sfldveiðum. Fyrst var
blökkin notuð við vesturströnd
Kanada, en íslendingar urðu
næstir til að hefja notkun henn
ar á síidveiðum. Norðmenn urðu
mun seinni til og enn eru þar
aðeins um 60 — 70 blakkir í
notkun.
Pálmi sagði, að verkfræðing-
urinn frá hinu bandaríska firma
hefði verið mjög hrifinn af því
hve þjónusta við eigendur kraft
blakka væri góð hér á landi,
en tryggð hefur verið viðgerð-
arþjónusta um allt land. í
Reykjavík annast Þrymur við-
gerðir, f Vestmannaeyjum
Magni, á Akureyri Árni Val-
mundsson, og þannig mætti
lengi telja. Yfirleitt má segja,
að síldveiðiskip geti farið til
næstu hafnar, ef k'raftblökkin
bilar, þar eð viðgerðarþjónusta
er veitt svo víða.
Verð á kraftblökkum er frá
176 þús. til 220 þús., tollaf-
greidd.
Listasaga —
Framh at bls. 16.
fagra. Nú væri það hlutverk
alþýðunnar að sýna að hún
kunni að meta þessa gjöf, halda
áfram starfinu og „innleysa
hana“. Hann gat þess einnig, að
stjórn listasafns A. S. í. myndi
nú þegar hefjast handa um
byggingarframkvæmdir.
Bjöm Th. Björnsson lýsti
verkinu lausiega. Fyrra bindið
hefst á aðdraganda fslenzkrar
listasögu, og er farið fljótt yfir
sögu frá siðaskiptunum og fram
að aldamótunum um 1800. Fjall-
ar bókin þá nákvæmar um þá
listamenn, sem komu fram síð-
an og fram að 1930. Síðara bind
ið fjaliar svo aftur um þá menn,
sem frá 1930 hafa komið fram
með nýjar stefnur, allt fram ril
okkar yngstu listamanna í dag.
Þetta fyrra bindi er 260 síð-
ur, í stóru broti, og f því eru
um 400 myndir. Bókin var prent
uð f prentsmiðjunni Víkings-
prent, sem gaj alla vinnu, og
myndamót gerðu Prentmyndir,
sem sömuleiðis tóku ekkert fyr
ir. Titilsfðu og kápu teiknaði
Gísli B. Björnsson.
Morgun-
hugvekjci
Einn af velunnurum blaðsins hef-
ir komið að máli við ritstjórnina
og beðið Vísi að vekja athygli á
morgunbænum þeim sem séra Sig-
urður Haukur Guðjónsson prestur
í Langholtssókn flytur í útvarpið
kl. 8 á hverjum morgni þessa
vikuna. Þær hugvekjur séu svo
snjallar og vel samdar, að full á-
stæða sé til þess að hvetja menn
til að ljá þeim eyra.
30 þús. kr.
stolið
Þrjátíu þúsund króna verðmæt-
um var stolið við innbrot í nótt.
Innbrot þetta var framið í
blómabúðina Rósin, sem er til húsa
f Vesturveri. Þar hirti þjófurinn
peningakassa, með öllu sem í hon-
um var, en það voru um 30 þúsund
krónur í ávísunum og peningum.
Víkingur með
370 lestir
Togarinn Víkingur frá Akranesi
er nú á Ielð til Englands með mik-
inn og góðan afla. 370 lestir, er
hann fékk við Vestur-Grænland.
Er þetta mjög góður afli miðað
við hið mikla aflaleysi er verið
hefur undanfarið. Búizt er við, að
togarinn selji á mánudag.
Borno og ungl-
ingonúmskeið
oð hefjost
Eins og undanfarin ár efna
Æskulýðsráð, Leikvallanefnd,
Iþróttabandalagið og íþrótta-
vellimir til fþrótta- og leikja-
námskeiða fyrir böm og ung-
linga í maí og júnf. Verða þau
á 8 stöðum víðsvegar um bæ-
inn.
Á morgun hefjast þessi nám-
skeið og verða þá á þessum
stöðiim: Vfkingsvöllur, Ár-
mannsvöllur, Valsvöllur og K.R.
völlur. Tekið verður á móti
börnum 5—8 ára fyrir hádegi
kl. 9.30—11.30 en unglingum
9—12 ára kl. 14—16. Á hverjum
stað verða 2 íþróttakennarar,
sem leiðbeina í leikjum og
íþróttum.
Námskeiðin standa yfir f 4
vikur og verður námskeiðsgjald
kr. 25.00.
Á Iaugardag hefjast nám-
skeiðin á Skipasundstúni, Lauga
lækjarbletti, Golfvellinum gamla
og Álfheimatúni.
Fánamisfök —
Framh. af 5. sfðu.
fánann rétt fyrir komu De Valera.
Fánar írska lýðveldisins og Fíia-
beinsstrandarinnar eru nefnilega
mjög líkir, þrír jafnir reitir þvers-
um og í sömu iitum — hvítum,
grænum og appeisínuiitum — og
sá einn munurinn, að annar litur
er á reitnum næst stöng.
Fyrir fám árum urðu fánamis-
tök, sem vöktu ósmáa athygli og
gremju Dana, en Islendingum
sumum, er um vissu skemmt.
Keppni átti fram að fara í knatt-
spymu milli Dana og íra, en þegar
danska liðið kom inn á völlinn
sá það fslenzka fánann blakta
þar við hún í stað Dannebrog.
Gróðursefiiingar^
ferð Árneslnga-
félagsins
Árnesingafélagið í Reykjavík efn
ir á laugardaginn kemur til gróður
setningarferðar til Þingvalla og
Áshildarmýrar.
Á báðum þessum stöðum á Ár-
nesingafélag'.ð gróðurreiti og hefur
plantað í þá meira og minna ár
hvert. í Áshildarmýri hefur auk
þess verið reist minnismerki, svo
sem löngu er kunnugt orðið og
komið upp girðingu.
Á laugardag kl. 2 e. h. verður
farið í gróðurrsetningarferð á báða
þessa staði, en jafnframt eru ferð-
irnar hugsaðar sem kynningar- og
skemmtiferðir. Þátttakendur eru
beðnir að tilkynna þátttöku sína
fyrir annað kvöld f síma 24737 eða
15354, og þar eru jafnframt veitt-
ar nánari upplýsingar um fyrir-
komulag ferðanna.
Árnesingafélagið telur nú á 5.
hundrað meðlimi og er Ingólfur
Þorsteinsson yfirvarðstjóri formað
ur þess.
Afnúm vega-
bréfsúrítana
Nýlega var gengið frá samkomu-
lagi í Osló milli Islands og Júgó-
slavíu um gagnkvæmt afnám vega-
bréfsáritana fyrir ísienzkt og júgó-
slavneskt ferðafólk, sem ferðast
vill minni landanna og dvelja þar
í allt að 3 mánuði.
Samkomulag þetta gengur í gildi
hinn 1. júlf 1964.
r
Utvarpsskóli —
Framh. af bls. 16
gizka má á, að fjórir til sex
kennarar starfi við skólann.
„Ég hef orðið var við, að fólk,
sem koma á fram í útvarpinu,
biður um tilsögn. í útvarpsskól-
anum verður að öllum líkindum
kennd stúdíó-vinna í sambandi
við undirbúning dagskrár og
ýmis tæknileg atriði. Þá verða
æfingar í flutningi efnis, f með-
ferð íslenzkrar tungu, framburði
og framsögn".
Útvarpsstjóri sagðist vonast
til, að hægt yrði að taka nokk-
uð marga nemendur í skólann
strax næsta vetur, en eðlilega
væri þetta nokkuð laust f reip-
unum, fyrst í stað.
Opera —
Framh. af bls 1
lenzkra manna til að semja óperu?
'— Nei.
— En fyrstur manna til að
semja íslenzka óperu, sem sýnd er
almenningi?
— Það er líklega. Jú, það er
víst rétt.
— Um hvað fjallar þin ópera,
gerist hún nú á tímum?
— Já, og gæti gerzt hvar sem er
í Reykjavík eða Hveragerði, aust
anhafs eða vestanhafs.
— Mikið af furstafrúm og greif-
um, ha?
— Nei, það er bara ósköp
venjulegt fólk.
— Gamansamur tónn eða al-
varlegs> efnis?
— Nema hvort tveggja
sé. Og... nei, annars, við skul-
um láta óperugestina sjálfa, ef
einhverjir verða, um að botna
þetta.