Vísir - 18.06.1964, Blaðsíða 1
ijfggWBBfsaterfHisas
3 - '*l**m
r: : :::: ■■■■
STIKKER VÆNTANLEG-
UR UM HELGINA
Dirk Stikker, framkvæmdd-
stjóri Atlantshafsbandalagsins
kemur í heimsókn til íslands á
sunnudagskvöld til þess að
kveðja ríkisstjórn fslands og
aðra, er hann hefur átt sam-
skipti við hér en hann lætur
af embætti sem framkvæmda-
stjóri Atlantshafsbandalagsins
1. ágúst n.k.
Mun Stikker aðeins hafa
stutta viðdvöl hér en hann fer
utan aftur á þriðjudagsmorgun.
Framh ð bls 6
Mannfjöldinn mikli á Arnarhóli þjóðhátíðardaginn 17. júní 1964.
'»i» / ••• . '■ ■ ■' : 1
sem
„Leggið braut, greiðið veginn,
ryðjið hverjum ásteytingarste ni
til hliðar.
Þjóðhátíðin í Reykjavík í gær á 20 ára afmæli Iýðveldisins
er vafalaust fjölmennasta samkoma, sem nokkru sinni hefur
verið haldin hér og sennilega gæti það hvergi skeð nema hér
á íslandi, að tíundi hluti allrar þjóðarinnar væri saman kom-
inn á einn stað. Vestur-íslendingar og útlendir menn, sem
hér dvöldust, létu í ljós undrun sína yfir þeim geysilega mann
fjölda, sem þarna var saman kominn og aðdáun sína á því
hátíðarskapi, sem var á hópnum.
Þama hjálpaðist allt að, heppilegt þjóðhátíðarveður og
margbreytileg og nær því samfelld skemmtiatriði. Þó að lítt
væri vikið út frá hinni venjubundnu röð ræðuhalda og
skemmtiatriða, var meiri fylling yfir þeim en venjulega, svo
að sérstakur hátíðasvipur var yfir deginum.
Mannhafið náði þegar mest var, bæði um miðjan daginn
og á kvöldskemmtuninni, yfir Arnarhól, Kalkofnsveg, allt
Lækjartorg, Stjórnarráðsblettinn, neðsta hluta Bankastrætis
og langt suður eftir Lækjargötunni.
Rigning
um morguninn.
Veðurútlit fyrir þjóðhátiðar-
daginn virtist ekki álitlegt um
morguninn, þá var skýjaður him
inn og gerði hellirigningu og
vottaði jafnvel lítilsháttar fyrir
hagli, en upp úr hádegi, þegar
skrúðgöngur voru að hefjast frá
þremur stöðum í bænum birti
til.
Þjóðhátíðina setti Ólafur Jóns
son, form, þjóðhátíðarnefndar
skömmu fyrir kl,. 2 með stuttri
raeðu á Austurvelli, þar sem
hann minntist 20 ára afmælis
lýðveldisins, bað menn að minn-
ast þeirra sem trúðu á landið,
jafnvel þegar fátækt og skortur
hafði lagt nærri allt í auðn.
BLAÐID I DAG
i Bls. 3 Myndsjá frá 17. júní
4 Síldarvinnsla
á Raufarhöfn
7 Fyrsta íslenzka
óperan. Eftir Leif
Þórarinsson.
8 Viðtal við Gísla
Sigurbjörnsson.
9 Ræða dr. Bjarna
Benediktssonar, for-
sætisráðh. 17. júní
Sækjum þrótt í sigrana og lát-
um mistök verða okkur til varn-
aðar.
„Þetta er dagurinn“.
Þá hófst hátíðaguðsþjónusta
í Dómkirkjunni, sr. Bjarni Jr'ns-
son vígslubiskup prédikaði og
Iagði út af þessum orðum í 108
sálmi: „Þetta er dagurinn sem
drottinn hefur gert, fögnum og
gleðjumst á honum“, Ræða hans
fól í sér þakklæti fyrir þá gæfu
sem guð hefur leitt yfir þjóðina,
en nú um langt skeið hefur sól
verið yfir íslandi. Við skulum
gera þá játningu sagði sr. Bjarni
að mikla hluti hefur guð fyiir
oss gert og þá bæn að hann
styrki verk handa vorra. Til
þeirra, sem stjórna landinu
beindi hann þessum orðum:
Ræða forsætisráðherra.
Að lokinni guðsþjónustu
kom Bjarni Benediktsson, for-
sætisráðherra út á svalir Alþing
ishússins og ávarpaði þjóðina. I
ræðu sinni lagði hann áherzlu á
það, að Jón Sigurðsson hafi
aldrei ánetjazt neinu kenninga-
kerfi. Lærdómur hans var mik-
ill en kenning hans var einföid,
að frelsi og þekking væri drif-
Framh. á bls. 6
MESTA SÍLD VEIDIÁ
EINUM SÓLARHRING
1 gær og í nótt fengu 86
skip samtals 54500 mál í Seyð-
isfjarðardjúpi. Er það mesta
veiði á einum og sama sólar-
hringnum það sem af er þessu
sumri og um leið fyrsta síldin
að marki sem veiðist út af Aust-
fjörðum. Lát hefur þó orðið á
veiðinni þar eð bræla er nú á
þessum slóðum. Löndunarbið cr
á öllum Austfjarðarhöfnum, m.
a. biðu 10 skip á Vopnafiröi í
morgun.
Eftirtalin skip fengu 500 mál
og meira:
Svanur ÍS 600, Höfrungur
650, Rifsnes 500, Hoffell 600,
Engey 550, Höfrungur III 800,
Sunnutindur 1300, Loftur Bald-
vinsson 650, Árni Magnússon
750, Huginn II 550, Snæfell
1000, Sigurvon 700, Jörunduf
II 1100, Sólfari 700, Halldór
Jónsson 500, Dofri 500, Harald-
ur 800, Vigri 1100, Oddgeir
1000, Bjarmi II 800, Arnfirðing-
ur 850, Ásþór 550, Hilmir II 550,
Reykjanes 700, Hafþór 800,
Sigurður Jónasson 700, Hamra-
vík 600, Faxi 550, Steingrímur
trölli 800, Jón Finnsson 700,
Sólrún 700, Sigurður AK 750, s
Mánatindur 1000, Þórður Jóns- |
son 1300, Áskell 650, Þorbjörn 1
II 1100, Dalaröst 700, Kamba- 1
röst 650, Gnýfari 650, Skarðsvík 1
800, Seley 1000, Jón á Stapa j
1000, Sigfús Bergmann 1050, í
Guðbjörg 1050, Pétur Jónsson í
550, Stefán Árnason 650. 1 •