Vísir - 26.06.1964, Page 2
/
'■r 'N
Norðurlandamót í handknattleik í Laugardal í kvöld:
FLUSVÍIINNI SIINKADI
UM HÁLFAN SÓLARHRINC
- og norrænu keppendurnir á hand-
knatfSeiksmétinu komu þreyttir og
slæptir fil Reykjavíkur
í nótt kom flugvélin með
norrænu handknattleiks-
stúlkurnar loks, en þá
hafði móttökunefndin beð-
ið eftir henni í hálfan sól-
arhring. Orsökin til þessar-
ar tafar var sú, að flugvél-
in, sem flytja átti stúlkurn-
ar, bilaði áður en hún lagði
af stað frá Kaupmanna-
höfn. Stúlkurnar hafa því
fengið sérlega erfitt ferða-
lag, því þær urðu í gær-
kvöldi að bíða tímum sam-
an á flugvöllum í Káup-
mannahöfn, Osló og Gauta
borg.
Á meðan hefur íslenzka lands-
liðið undirbúið sig af kostgæfni og
e. t. v. eykur þetta líkurnar fyrir
því að íslenzku stúlkurnar spjari
sig f keþpninni í kvöld, en liðið
mætir í kvöld Svíþjóð í fyrsta leik
mótsins.
Landsliðsnefnd kvenna var al-
gjörlega ófáanleg til að birta lands
liðið f dagblöðum, enda fengu stúlk
urnar sjálfar ekki að vita um end-
anlegt val í liðið í kvöld fyrr en
um hádegi í dag.
Framkvæmdanefnd Norðurlanda-
mótsins hefur unnið mjög gott
starf, og má ætla, að keppnin fari
öll vel fram. Gísli Halldórsson, for
seti ISÍ, setur keppnina í kvöld
kl. 20, en að þvf búnu hefjast leik
irnir.
Leikjaskrá fyrir Norðurlandamót
ið er þannig:
Föstudagur 26. júní 1964.
ísland—Svfþjóð. Dómari: Orjo
Páttiniemi (Finnland)
Noregur —Finnland. Dómari: Hans
Carlsson (Svfþjóð).
Danmörk—Svíþjóð. Dómari: Karl
Jóhannsson (ísl.)
Laugardagur 27. júní 1964.
Island —Finnland. Dómari: Björn
Borgersen (Noregur).
Noregur —Svíþjóð. Dómari: Knud
Knudsen (Danmörk).
Danmörk —Island. Dómari: Hans
Carlsson (Svíþjóð).
Sunnudagur 28. júnf 1964.
Finnland—Danmörk. Dómari: Karl
Jóhannsson (ísl.)
Noregur —Island. Dómari Knud
Knudsen (Danmörk).
Svíþjóð—Finnland. Dómari: Björn
Borgersen (Noregur).
Danmörk — Noregur. Dómari: Orjo
Páttiniemi (Finnland).
Tímaverðin
Bjarni Björnsson — Frímann Gunn
laugsson.
Markdómarar og lfnuverðir:
Magnús Pétursson, Valur Bene-
diktsson, Gylfi Hjálmarsson, Ey
steinn Guðmundsson, Jón Frið-
steinsson, Sveinn Kristjánsson,
Danfel Benjamínsson, Birgir
Björnsson, Hannes Þ. Sigurðs-
son.
Leiktími er 2x20 mín., hlé 10 mín-
útur.
íslenzku stúlkurnar „slöppuðu af“ í gufubaði meðan gestirnir áttu í
erfiðleikum með að komast til íslands. Hér eru þær Helga Emilsdóttir,
Sigrún Guðmundsdóttir, Sylvía Hallsteinsdóttir, Jónína Jónsdóttir, Dí-
ana Óskarsdóttir og Hrefna Pétursdóttir í baðinu.
Hér er ein af dönsku stúlkunum í leik. Hún heitir Karen Rasmussen
og er frá Helsingör.
Vitaspymuleikur
Dl STEFANO SETTUR ÚT
ÚR LIÐI REAL MADRID
Hafnarfjarðarliðin Haukar og FH
gerðu jafntefli í leik sínum í 2.
deild á þriðjudagskvöldið með 3:3,
— helmingur markanna kom úr
vítaspyrnum.
Haukar byrjuðu með því að
skora úr vítaspyrnu rétt eftir að
leikur hófst, og áður en FH-menn
gátu áttað sig, var staðan orðin
3:0 Haukum í vil og aðeins 15 mín-
útur liðnar frá upphafi leiks.
FH, sem fyrirfram var talið ör-
uggt um sigur, tókst nú brátt að
ná betri tökum á leiknum og í
hálfleik var staðan orðin 3:1, en
Ásgeir Magnússon skoraði það
mark. í síðari hálfleik skoraði Borg
þór Jónsson tvívegis fyrir FH, —
í bæði skiptin úr vítaspyrnu!
Di Stefano.
N.k. þriðjudag rennur
út samningur bezta mið-
herja, sem nokkru sinni
hefur verið uppi í heim-
inum, samningur Al-
fredo Di Stefano við hið
heimsfræga knattspyrnu
lið Real Madrid, sem di
Stefano hefur ekki átt
svo lítinn þáít í að gera
frægt.
tíi Stefano, sem er oft kallað-
ur „ein af hinum öldruðu stjörn-
um“ hjá Real, hefur nú verið
settur úr liðinu að eigin sögn,
og hann bætir við: „Mér er sagt,
að ég geti feng'ð stöðu innan fC-
lngsins, en ég tel að það sé ég
og enginn annar, sem segir tíl
um það hvenær ég eigi að hætta
í knattspyrnu. Þessi afstaða Re-
als til mín særir mig djúou
sári“.
Sennilegt er, að Di Stefano
hverfi nú til félagsins Espangol
I Barcelona, og fær hann 2
mllljónir króna fyrir undirskrift
samningsins. Mörg félög hafa
gert tilboð, m. a. Bestis í Sevilla,
itölsku félögin Torino, Mantova
og Varese.
ÞVOTTAHÚS
Vesturbæjar
Ægisgötu 10 • Sími 15122
m'.I IHOini'IHIL-Í.K! ii
r