Vísir


Vísir - 26.06.1964, Qupperneq 8

Vísir - 26.06.1964, Qupperneq 8
8 V í SIR . Föstudagur 26. júní 1964. VÍSIR Utgeíandi: BlaOaútgáfan VISIR Ritstjöri: Gunnar G. Schram. AOstoOarritstjóri: Axel Thorsteinson Fréttastjórar: Þorsteinn Ó. Thorarensen Björgvin GuOmundsson Ritstjórnarskrifstofur Laugavegi 178 Auglýsingar og afgreiOsla Ingólfsstræti 3 Askriftargjald er 80 krónur á mánuOL f lausasölu 5 kr. eint — Sími 11660 (5 linur) PrentsmiOja Vísis. — Edda h.f. Húsin þjófa upp Ntt í vikunni var úthlutað lóðum undir 602 íbúðir í hinu nýja Árbæjarhverfi. í næstu viku mun borgin /æntanlega ganga frá úthlutun lóða undir 144 ein- iýlishús í sama hverfi. Mun þá hafa verið úthlutað óðum undir rúmlega eitt þúsund íbúðir það sem af er iessu ári, þegar meðtaldar eru aðrar fyrri lóðaúthlut- mir. Þessar fregnir gefa til kynna að Reykjavíkur- Dorg heldur vel á spöðunum í því efni að undirbúa lyggingarlóðir og úthluta þeim. Hefir þó vissulega /erið við ramman reip að draga í þessu efnum vegna )ess að eftirspurnin eftir lóðum í Reykjavík hefir lengi /erið óeðlilega mikil vegna hinnar öru fólksfjölgunar. iins vegar er talið að mun lægri tala en 1000 íbúðir íullnægi eftirspum á ári, svo hér hefir nú verið vel innið að verki. Þegar farið er um Reykjavík má hvar- /etna sjá ný hús rísa og ný hverfi þjóta upp með göt- im og- görðum. Er ekki ofmælt þótt sagt sé að aldrei íafi verið meira byggt í borginni en nú. Stafar það /itanlega fyrst og fremst af óvenjugóðum efnahag al- nennings og þeim skattalækkunum og ívilnunum, sem /eittar hafa verið. Borgarbúar munu kunna vel að neta dugnað borgaryfirvaldanna við undirbúning íýrra lóða, ekki síður en fegrun borgarinnar með garð- ækt og blómaskrúði sem nú er unnið ötullega að. Breytt menntaskólanám QÓÐAR fregnir berast af þingi rektora og mennta- skólakennara, sem haldið var fyrir helgina. Þar virtist ríkja almennur skilningur á því að gera þurfi veru- 'egar breytingar á íslenzku menntaskólanámi. Setti /óhann Hannesson skólameistari fram mjög athyglis- /erðar tillögur í því efni. Vissulega er tímabært að end- urskoða menntaskólanámið og laga það að breyttum þjóðfélagsháttum. Þar er aðallega nauðsyn tvenns. Menntaskólanámið er of langt. Tuttugu ára stúdent er of gamall stúdent. Hann á að útskrifast 18 ára, því ella verða menn nær þrítugu þegar þeir loks ljúka háskólaprófi og námsleiði í menntaskólum er þegar of áberandi. Þess vegna þarf að gera nemendum kleift að ljúka náminu fyrr með breyttri námsskrá og betri til- högun, m. a. með því að eyða minni tíma í próf og prófundirbúning og fella niður endurtekningar náms- efnis sem nú eiga sér stað. í öðru lagi þarf að koma á nýrri deild, miðdeild, sem miðist við raunvísindi og gera jafnframt namið valfrjálsara, eins og þegar er 'ætt um. Slíkt mundi horfa mjög til bóta. Þess vegna ^ru miklar vonir bundnar við það starf sem nú er ínnið til breytinga á menntaskólanáminu. Bylting í íslenzkri síldveiðitækni Sagt frá fyrirlestri Jakobs Jakobssonar á norrænu fiskimála ráðstefnunni i gær Hér birtist útdráttur úr fróðlegu erindi er Jakob Jakobsson, fiskifræðingur hélt á norrænu fiskimálaráðstefnunni í gær. Ræddl hann þar ástæöur fyrir ört vaxandi veiðimagni hjá íslenzka sfldveiðifiotanum. Meginástæðumar, eins og fram kemur f útdrættinum, sem hér fer á eftlr, eru þessar: Aukin þekklng á sfldargöngum, vax- andi og skipulegri sfldarleit, notkun asdlctækja og kraft- blakkar og loks lengri veiði- tfmi. Fyrstu fjörutfu árin sem ls- lendingar stunduðu sfldveiðar með snurpinót, 1904 — 1944, var eingöngu um að ræða strand- sfld. Þýðingarmestu miðin lágu' skammt undan fjörðum og fló- um Norður-íslands. Það var ekki fyrr en dr. Ámi Friðriks- son birti kenningar sínar um Norðurlandssíldina að þekking flskifræðinga á sfldarstofninum tók að vaxa verulega. Rannsókn ir leiddu f ljós stórfelldar sfld- argöngur og síðar að „Norður- landssfldin" er ekki af einum stofni heldur tveimur íslenzk- um og einum norskum stofni, sem er yfirleitt þeirra stærstur. Upp úr 1944 breyttust göng- ur sfldarinnar. Hún hætti að koma inn á firði og flóa og góð- ar torfur fundust fáar nærri landi. Snurpinótarveiðin féll frá 150—200 þúsund tonnum, fyrir 1945, niður f 10—40 þúsund tonn á næstu árum. Eftir það varð skipuleg sfid- arleit mjög aðkaliandi. Sfldar- leit úr lofti hafði byrjað 1928 en hún var ekki talin fullnægj- andi. Sfldin óð sjaldnar en áð- ur. Bergmálsdýptarmælirinn skipti ekki verulegu máli í sfld- arleit, gagnstætt þvf sem gerist f leit að öðrum fisktegundum. En asdic-tækin ollu byltingu f sfldarleit. Með hjálp þeirra gerði Norðmaðurinn Finn De- vold margar velheppnaðar til- raunir til sfldarleitar 1950 og 1951. Tveimur árum sfðar fékk varðskipið Ægir asdictæki og á næstu árum voru þau aðailega notuð við kortlagningu hugsan- legra veiðisvæða. Asdictæki komu fyrst f fs- lenzka sfldveiðibáta 1954 og náði notkun þeirra verulegri útbreiðslu eftir 1958. Vegna þeirra er nú hægt að veiða síld. sem liggur djúpt í sjónum, og fyrrum var ómögulegt að finna. Á sumarsíldveiðunum 1962 og 1963 var stunduð skipuleg sfldarleit af varðskipir.j Ægi og þremur fslenzkum bátum á veiðisvæðunum, með mjög góð- um árangri. Talið er að þakka megi síldarleitinni um 50% af allri veiðinni, þessi sumur. Hefðu þessi skip hins vegar aðeins tekið þátt f sjálfri veið- inni, hefði veiðiaukning flotans, miðað við meðalveiði á bát, að- eins aukizt um 1—2% í stað ca. 50%. Síðan Ægir fékk asdictæki, hafa farið fram verulegar rann- sóknir með sérstökum leiðöngr- um á miðin. Árangur þeirra hefur verið almennt talað góð- ur, enda þótt ekki hafi alltaf verið um fastar niðurstöður að ræða. En á grundvelli þessara rannsókna hefur þó verið hægt að veita síldarbátunum marg- víslegar upplýsingar yfir veiði- tfmann, sem að gagni hafa komið við veiðina. Þá hefur ýmislegt annað skipt verulegu máli við sfldar- leitina um veiðitímann, t.d. radarinn, hálf-sjálfvirkir áttavit- ar og stöðugt radiosamband ^milli skipanna á veiðisvæðun- um. Radiosambandið er afar þýð ingarmikið. Upplýsingar um síldartorfur komast til alls síld- veiðiflotans fyrir milligöngu leitar. eða rannsóknarskip- anna, ásafnt viðkomandi sér- fræðilegum up^Iýsingum þeirra. Stundum hc.'úr síldarleit á miðunum verið skipulögð með þeim hætti ’ að bátamir raða sér niður á svæðið með stuttu millibili þannig að geislar asdictækjanna spanna bilið á milli þeirra. Hefur reynzt unnt að kanna stór veiðisvæði á stuttum tíma. Þetta hefur einkum komið sér vel á vetrar- síldveiðum þegar bátarnir hafa ekki getað fylgt síldartorfunum eftir vegna veðurs. Upp úr 1944 voru gerðar tals- verðar breytingar á notkun snurpinótarinnar. Þær leiddu til fækkunar á síldveiðibátun- um og notkunar nótabáta. Jafn- framt tókst nú f fyrsta sinn að nota asdictæki við sfldarkast. Margir síldveiðiskipstjórar gerðu sjálfstæðar tilraunir á þessu sviði, en enginn náði betri árangri en skipstjórinn á Víði II, Eggert Gíslason. Eitt af athyglisverðustu afrekum hans var að leiðbeina öðrum skipstjóra við velheppnað kast á torfu, sem hann hafði sjálfur kastað á augnabliki áður. All- ur flotinn hafði getað fylgzt með atburðinum þar sem leið- beiningarnar fóru fram um sendistöð og varð þetta áreið- anlega til að hvetja aðra skip- stjóra í tilraunum þeirra til að ná valdi á þessari veiðiaðferð. Margir skipstjórar hafa síðan náð þvílíkum árangri í meðferð asdictækja við kast á síldar- torfu, sem liggur djúpt í sjón- um, að þeim finnst sú aðferð auðveldari en að kasta á torfu sem veður. Þótt íslendingar framleiði sjálfir ekki asdic-tæki er óhætt að fullyrða að engir noti þau meira en þeir. Og þeir hafa verið reiðubúnir til að miðla öllum, sem þess hafa óskað, af reynslu sinni í meðferð þeirra, kynnt þeim einstæða tækni sína og leikni við veiðarnar. Annað tæki hefur og rutt sér til rúms á síðari árum, kraft- blökkin. íslendipgar fengu fljótlega áhuga á notkun henn- ar, þegar fréttist að banda- rískir fiskibátar hefðu reynt 'hana með góðum árangri. Ingv- ar Pálmason, skipstjóri, fór ti) Framhaid ð bls. 6. Jakob Jakobsson fiskifræðingur

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.