Vísir - 03.07.1964, Blaðsíða 3

Vísir - 03.07.1964, Blaðsíða 3
V í SIR . Föstudagur 3. júlí 1964, 3 til að snæða á. Heimilisfaðirinn og eiginkonan bera matarkörfur. Litlu stýrin eru uppnumin af öllu, sem fyrir augu ber. Neðri myndin er af móður og syni. Konan réttir snáðanum sín- um litið blóm, og sjá má á hand- arhreyfingu sonarins viðbrögðin. Ljósm. Vísis: I. M. Reykvíkingar Ieita mikið út úr borginni um helgar. Þeir þrá að komast á gras — ennþá lifir nátt- úrubarnið í þeim þrátt fyrir ýms- ar óeðlilegar venjur nútímans. Heiðmörk, þessi sælunnar reit- ur, er á næsta leiti. Þangað flykkjast stundum heilar fjölskyld ur og taka með sér nesti, sem þær neyta úti í guðs grænni náttúr- unni. Litlu börnin leika sér eins og dýrin í haganum, foreldramir verða ungir i annað sinn og varpa af sér brauðsorgum og njóta þess að vera til. Á slfkum stundum kemur það fram f fólki, sem það er undarlega nfzkt á f samskipt- um við aðra. Efri myndin er af fjölskyldu, sem er að leita að góðum bletti SKROPPIÐ í HEIÐMÖRK Laurence Harvey og Geraldine Page. Úrvalsmyndir í Laugarásbíói — „Parrish“, — Summer and smoke eftir Tennessee Williams O. fl. J jjfj hans, á því skeiði, sem hann er að mannast. Aðalhlut- verk: Troy Donahue, sem leikur Parrish, stúlkurnar, sem verða ástfangnar í honum: Sharon Hugenoy, Diana McBaine og Connie Stevens. Warren Beatty Meðal margra úrvalsmynda, sem Laugarásbíó hefir fengið til sýningar f sumar og á hausti komanda er kvikmyndin „Parr- ish“, svo kölluð eftir aðal sögu hetjunni, en kvikmynd þessi hef ir verið sýnd við miklar vin- sældir. Hún er frá Warnerfélag- inu Kvikmyndin gerist í .tóbaks ræktarhéraði f Connecticut, sem er eitt af austurfylkjum Banda- ríkjanna, og segir frá ungum manni, baráttu hans og konu um þeim, sem koma við sögu Þá á Laugarásbíó von á kvik mynd sem nefnist ,,Ég á von á barni“, en það er þýzk mynd um það, „sem menn tala ekki um“. Hét kvikmyndin á þýzku „Vorúber man nicht spricht“. Hún hefir verið kölluð kvik- myndin, sem er leikin af ung- mennum fyrir ungmenni, og skylda foreldranna er að sjá. Inn í myndina er fléttað senum um þjáningarlausa fæð- ingu úr frægri kvikmynd um lækningar, þar sem Dick-Read skýrir hugmynd sína um eðli legar barnsfæðingar. — Bent Mohn ritstjóri við „Politiken" sagði um þessa mynd, að af henni geti ungmennin lært virð- ingu fyrir lífinu og ef til vill einnig að nálgast hið dásamleg- asta í lífinu af varfærni og gætni. Þá fær kvikmyndahúsið kvik- myndina „Allt með afborgun". Hún ér gerð eftir sögu Jacks Trevors „Live now—pay Iater“. Aðalhetjan er söiumaður. Með aðalhlutverk fara Ian Hendry og June Ritchie. Kvikmynd af létt ara taginu. Þá er að nefna kvikmyndina „Summer and smoke“ eftir sögu Tennessee Williams með Laurenc Harvey Garaldine Page Og Ritu Moreno og fleiri f aðalhlutverkum. Þá er „Splendour in the Grass“, mynd um ungar ástir, með Natalie Wood og Warren Beatty í aðalhlutverkum, en þau ber hæst að flestra dómi meðal ungra leikara í Holly- wood nú. Kvikmyndin er gerð eftir samnefndri sögu Elia Kaz- Þá fær kvikmyndahúsið fram- haldsmynd af „The World by kvik mynair Natalie Wood night“, (Næturklúbbar heims- borganna), en hún verður vart sýnd fyrr en á annan í jólum. pur Geraldine Page

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.