Vísir - 28.07.1964, Side 2
V í SIR . Þriðjudagur 28. júlí 1964
Clark bjargar naumlcga ska'Ia frá Ríkharði.
Markvörðurínn blindaðist af sólinni
Skotnr skoruðu sigurnaurk
Eeiksins þegur hunn missfi boEtunn
— siysuiegt fup ffrir Skbfum í
fyrstu EundsBeik þjóðunnn
Ríkharður og Cole fyrirliðar skiptast á oddveifum.
„Ég sá boltann koma svífandi fyrir markið frá hægri kanti, sólin skein í aug-
un og áður en varði missti ég allt vald á boltanum, sem rúllaði eftir marklínunni
og loksins inn fyrir hana“, sagði Heimir markvörður Guðjónsson um eina mark
Skotlands í leiknum í gærkvöldi, landsleik, sem eins hefði getað endað 1:0 fyrir
fsland, því það voru einmitt íslendingar sem höfðu tækifærin í hendi sér, — þar
af var fyrirliðinn Ríkharður Jónsson með sex „tromp“ á hendi sér, en ekkert
þeirra færði okkur „slag“ í þetta skiptið. Mega Skotar þar þakka hinum unga
vélvirkjanema Clark í markinu. Hann var bezti leikmaður Skotanna í gær og
„matchwinner“ eins og þeir mundu sjálfir segja.
Leikurinn í gærkvöldi dró til
sín rétt yfir 6000 manns, en ef-
laust hefðu fleiri komið, ef ekki
hefði verið almenn óánægja með
val í ýmsar stöður liðsins. Við
fengum að sjá heldur slakan leik
knattspyrnulega séð, en á köflum
allspennandi, ekki sízt síðustu 20
j mínútur leiksins, þegar íslenzka
' liðið virtist eiga alla möguleika
; á að jafna leikinn.
Á minnisblaði yfir leikinn er
. fyrst getið tilraunar Ríkharðs á
; fyrstu mínútu leiksins. Skot úr
sæmilegu færi en framhjá. Skotar
Icomast fyrst á minnisblaðið á 8.
rnín. þegar þeir eiga góðar, skalla
; framhjá.
Ríkharður átti hættulegt tæki-
færi á 27. mfn. Einn upp miðjuna
eftir gróí varnarmistök Skotanna,
en skot Ríkharðar var of laust og
1 auðvelt fyrir Clark að verja. Ellert
var of seinn á 37. mín., þegar Rík-
harður skapaði allgott færi fyrir
j hann en Clark greip inn í.
! Eina mark leiksins kom held-
ur slysalega. Hopper, h. útherji gaf
fyrir markið allvel. Boltinn kom
svífandi út úr sólinni eins og jap-
j önsku innrásarvélarnar forðum.
Heimir markvörður átti í sýnileg-
um erfiðleikum, enda missti hann
j boltann og það var heppni Skota
og okkar óheppni að það var fótur
Ingram vinstri innherja, sem fékk
' stjakað við boltanum og skorað
mark. Bakverðirnir voru nú i eina
skipið í leiknum „frosnir“ og gátu
ekkert aðhafst. Þetta mark kostaði
okkur sigurinn í gærkvöldi, slysa-
! legt mark, en mark engu að síður.
Ríkharður átti ágætt skot á 41.
mín. er Clark bjargaði. Og á 45.
mín. fagnaði áhorfendaskarinn
„jöfnun“ Eyleifs, sem reyndist
skoruð úr rangstöðu, því miður.
1 síðari hálfleik tóku Skotar
! fyrst frumkvæðið í sínar hendur
og léku eins og þeir sem valdið
hafa. Ríkharður fékk þó fyrsta
tækifærið, sem eitthvað kvað að.
Varnarmistök, og Ríkharður var
búinn að fá sinn „prívat“ aðgang
að markinu, en hér bjargaði Clark
stærsta tækifæri íslands á undra-
cs