Vísir - 28.07.1964, Blaðsíða 5

Vísir - 28.07.1964, Blaðsíða 5
V í S I R . Þriðjudagur 28. júlí 1964 * í nórgim - útlönd í Hermdarverk gegn 4 ferðaskrifstofum í Kaupmannahöfn morgun útlönd í morgun ’utlönd í morgun Skemmdarverk hafa verið unnin á "krifstofum fjögurra ferðaskrif- stofa í Kaupmannahöfn, — þannig voru rúður brotnar í þremur þeirra á stuttum tíma seint á sunnudags- kvöld. Ferðaskrifstofurnar, sem fyrir þessu urðu, eru „Mallorca", ferða skrifstofa Spanska flugfélagsins og Lili’s Rejsebureau. Lögreglan, sem hafði haft til rannsóknar fyrri rúðu brot, greip nú til mjög róttækra ráðstafana, til þess að reyna að hafa uppi á þeim, sem hér eru að verki, en líklega verður erfitt að hafa hendur í hári þeirra, þar sem enginn virðist hafa séð til hermd- arverkamanna. Hermdarverkin voru öll unnin kl. um 22. — Nokkrir ferðaskrif- stofumenn voru sjálfir farnir á stjá í bílum, sárgramir yfir hermd- arverkunum, í von um að verða einhvers vísari. Alls hafa verið framin 8 rúðu- brot og á einum staðnum var hent inn múrsteini, sem hálsklút vætt- um í benzíni hafði verið vafið um og kveik't í. Kviknaði í tréverki gluggans, en fljótlega tókst að slökkva eldinn. Hermdarverkin bitna á ferða- skrifstofum sem selja framiða til Spánar. I Bandaríkjunum hafa sig æ meira í frammi hatursflokkar, sem hafa að einkunarorðum, að „tilgangurinn helgi meðalið“. Þessir öfgamenn (extremistar) eru kallaðir „minute-men“ og fara um vopnað'r, títt að næturlagi, leynilegra erinda, en rneðal kunnustu haturs-boðbera landsins eru Robert Welch, maðurinn á bak við John Birch félagið og dr. Fred Sch;artz, fæddur í Austurríki. Það eru öfl slík sem þessi sem þegar eftir sigur Barry Goldwaters var efas um, að hann gæti haldið í skefium, ef hann yrði kiör'nn forseti. Butier boðar skil/rði sfa ÆS fallast a -'*;L ucduöðJa öia rnultö . Richard Bujlþr utanríkisráð- herra Bretlands gerði 'við’ kom- una til Moskvu í gær grein fyr- ir skilyrðum þeim, sem hann yrði að setja til samkomulags um nýja 14 þjóða fráðstefnu um Laos. Kvað hann höfuðskilyrðin vera: 1. Að gert yrði vopnahlé. 2. Að Pathet Lao hörfaði úr stöðvum þeim, sem það hefir hertekið að undanförnu. i ..milij j y lKv' i. 03/9 s uh Jauil Fyrsti fundur Butlers og feGr88ftko lirl'r* útanríkisréðhérrá' Sovétríkjanna var haldinn í morgun. Butler kom til Moskvu f persónulegu boði hans. Hann hefir ekki verið í Moskvu fyrr. Afvopnunarmálin. Auk Laos-málsins munu af- vopnunarmálin verða ofarlega á dagskrá á viðræðufundunum.að Sovétstjórnin telur áformin um kjarnorkuvopnaflota NATO til hindrunar samkomulagi um víð- tækára bann gegn tllraunum með kjarnorkuvopn, þar sem með þessum áformum sé verið að koma því til leiðar, að Vest- ur-Þýzkaland fái kjarnorku- vopn. Butler mun reyna að draga úr grunsemdum sovétstjórnar- innar í þessum efnum. Butler sagði við burtför sína hann vonaðist eftir, að gagn- kvæm kynni og viðræður myndu leiða til góðs, en menn mættu ekki búast við stórkost- legum árangri. U Thant á leið til Moskvu. U Thant er lagður af stað frá Rangoon, en hann hefir verið í heimsókn í heimalandi sfnu, Burma, í fyrsta skipti síðan hann varð framkvstj. Samein- uðu þjóðanna. Ekkert hefir verið sagt um hvort þeir muni hittast og eiga viðræður saman hann og Butler, en báðir ræða við Krúsév. Helander ófrýjar ekki Fréttir frá Stokkhólmi herma, að Dick Helander biskup hafi ákveðið að áfrýja ekki dómi landsréttarins frá 3. júlí, en læt- ur i Ijós von um, að saksóknari leggi málið fyrir hæstarétt. í landsréttinum fékk Helander sem fyrr hefir verið getið fyrri dóm mildaðan, en var ekki sýknaður, en fyrir því að verða sýnaður hafði hann barist. ERLENDAR FRÉTTIR í STUTTll MÁLI ► Makarios erkibiskup hefir hafn- að tilmælum U Thants um algert umferðafrelsi á eynni í athugunar skyni fyrir gæzlulið Sameinuðu þjóðanna. Makarios segir Kýpur- stjórn vilja hjálpa gæzluliðinu á hverja lund, en það innifeli ekki aðgöngu að höfnum. Hann segir tilmælin mundu hafa verið skilj- anlegri, ef samtímis hefði verið farið fram á eftirlit í tyrkneskum höfnum, þar sem mikill floti bíði reiðubúinn til innrásar á Kýpur. ► Nelson Rockefeller ríkisstjóri í New York hefir farið í heimsókn til Rochester og komið í blökku- mannahverfið. Þar er nú allt með kyrrum kjörum, eftir að þjóð- varnarliðsmenn, sem eru sjálfboða liðar, héldu inn í hverfið, með brugðna byssustingi. Allt er líka kyrrt í Harlem. — Negraleiðtogar Churchill sat síðasta þmg- fuadian f gxr Sir Winston Churchill fyrrver- andi forsætisráðherra Bretlands koni á þingfund í gær í neðri mál- íofunni í skíðasta sinn, en hann :r nú að hætta þingmennsku eftir 52ja ára feril sem þingmaður. Churchill var vanalega sætis. Hann var á fundi í nærri klukkustund. Er hann gekk til dyra var alger kyrrð í þing- salnum. Við dyrnar nam hann staðar og renndi augum yfir þing- salinn og kinkaði svo kolli til leiddur til síns I þingmanna og gekk út. í dag taka til máls fyrir hönd stjórnmálaflokkanna, Sir Alec Douglas-Home fyrir Ihaldsflokk- inn, Harold Wilson fyrir Verka- lýðsflokkinn, og Jo Grimmond fyrir Frjálslynda flokkinn, og mæla með samþykkt tillögu til þingsályktunar, þar sem Sir Win- ston er vottuð aðdáun og virðing fyrir störf hans sem þjóðarleið- toga. hvetja til stillingar og halda fund um helgina um tilhögun framtíðar baráttu. ► Kanada heldur áfram viðskipt- um við Kúbu, þrátt fyrir samþykkt Samtaka Vesturálfulýðvelda fyrir skemmstu um að slíta stjórnmála- sambandi við Kúbu og herða við- skiptabannið, svo að það nái til alls nema matvæla og lyfja, — Kanada selur Kúbu ekki hergögn, en það er óbreytt. ► Tunku Abdul Rachmann for- sætisráðherra Malajsíu er í Ott- awa og hefir Lester B. Pearson forsætisráðherra Kanada heitið honum vingjarnlegri athugun á til- mælum um stuðning vegna of- beldisárása Indonesiu, en meðal þcss sem Tunku fer fram á er að stoð við þjálfun malajiskra hpr- manna. >- Yfir 30 manns hafa fallið I bardögum lögreglu og trúaflokks nokkurs í Norður-Rhodesiu. Upp tökin voru að hvítur lögreglumað ur var myrtur af trúflokki þessum í bardögunum hafa mörg þorp trú flokksins verið brennd til ösku Herlið hefir verið sent á vettvang >■ Fjórtán menn eru króaðir inni ■ námu í Austur-Frakklandi og tai ið, að taka muni tvo sólarhrings að ná til þeirra. Hnefaleikskapparnir Cassius Clay og Sonny Liston hafa undir ritað samninga um nýja kepprn um heimsmeistaratit.il inn o~ fer hún að líkindum fram í sept. MÓTATIMBUR Motatimbur ca 1000 fet til sölu, ódýrt ef samið er strax. Sími 32782 eftir kl. 4 í dag. Handfæramenn Tvo háseta vantar á handfærabát. Símar 21760 og 40469. ».au*SEií3

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.