Vísir - 28.07.1964, Page 8
8
VISIR
CTtgefandi: Blaðaútgáfan VlSIR
Ritstjðri: Gunnar G. Schram.
Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinsoh
Fréttastjórar: Þorsteinn Ó. Thorarensen
Björgvin Guðmundsson
Ritstjðmarskrifstofur Laugavegi 178
Auglýsingar og afgreiðsla Ingólfsstræti 3
Áskriftargjald er 80 kc. á mánuði.
I láusasölu 5 kr. eint. — Slmi 11660 (5 línur)
Prentsmiðja Vísis. — Edda h.f.
Skattarnir lækka
Á morgun mun skatt- og útsvarsskráin verða lögð
fram hér í Reykjavík. Þá mun skattseðill hvers ein-
staklings bera með sér hinn nýja persónufrádrátt, sem
veittur var í vetur. Það þýðir verulega skattalækkun
á öllum borgurum landsins, miðað við óbreyttar tekj-
ur. Er þetta önnur slík skattalækkun sem ríkisstjómin
hefir veitt á síðustu ámm. Nú hækka skattfrjálsar tekj-
ur einstaklinga úr 50 þús. kr. í 65 þús. kr. Hjá hjónum
hækka skattfrjálsar tekjur úr 70 þús. kr. í 91 þús. kr.
í hlutarins eðli liggur að hér er um verulegar kjara-
bætur að ræða bæði fyrir einstaklinga og hjón, ekki
sízt þegar á það er litið að meðaltekjur manna hafa
hækkað verulega á árinu og því hefðu skattamir líka
hækkað verulega, ef þessi leiðrétting hefði ekki verið
gerð.
þessi hækkun á skattfrjálsum tekjum ber vott um þá
stefnu ríkisstjórnarinnar að lækka skattana í stað þess
að hækka þá. Aðrar ríkisstjórnir, og þá einkum þær
sem Eysteinn Jónssön átti sæti í, hækkuðu skattana.
Skattahækkunarstefna Framsóknarflokksins var orðin
að skattránsstefnu, sem var margan manninn að buga,
ekki sízt þá efnaminnstu. Árið 1960, strax og viðreisn-
arstjórnin kom að völdum, var tekjuskatturinn á nauð-
þurftartekjum með öllu afnuminn, og er svo enn. Við
þessa breytingu urðu tugir þúsunda skattborgara alveg
tekjuskattslausir — einmitt þeir sem minnst efnin
höfðu til skattgreiðslu. Hér var því um mikið sann-
girnis og réttlætismál að ræða — auk þess sem leiðrétt
var ranglæti skattpíningarstefnu Eysteins Jónssonar.
Nema þessar lækkanir tekjuskattsins samtals frá 1960
nær 500 millj. króna. Af þeirri háu tölu sést hve stór-
felld skattalækkun viðreisnarstjórnarinnar hefir verið.
Fágæt lögspeki
Tíminn fann það út af vísdómi sínum nú rétt fyrir
helgina, að ríkisstjórnin hefði „afsalað hinum einhliða
rétti til útfærzlu á fiskveiðilandhelginni, en hann átti
þjóðin óskertan fyrir sex árum“, segir blaðið!
Það er eins og menn sem þannig skrifa hafi ekki
haft neinar fregnir af því sem gerzt hefir í íslenzkum
þjóðmálum síðustu árin. Þeir koma af fjöllum, í öllum
skilningi þess orðs. Engum rétti hefir verið afsalað.
Þvert á móti. Rétturinn hefir einmitt verið notaður til
hins ýtrasta. Fyrst var hann notaður 1952, er Ólafur
Thors var sjávarútvegsmálaráðherra og öllum fjörðum
og flóum var lokað fyrir erlendum skipum með 4 mílna
landhelginni. Síðan var rétturinn notaður til þess að
öðlast 12 mílna landhelgina. Sú landhelgi var tryggð
með samkomulaginu sem núverandi stjórn gerði við
Breta og batt þar með enda á þorskastríðið á íslands-
miðum. Engum rétti hefir því verið afsalað. Kemur
Tíminn hér hastarlega upp um það hve illa hann er að
sér í lögspeki.
V í S IR . Þriðjudagur 28. júlí 1964
*
Sovétstjórnin sendi í fyrra-
dag orðsendingu öllum þeim 14
rfkjum, sem þátt tóku í Genf-
arráðstefnunni um Laos 1962,
og leggur til að ný Genfarráð-
stefna verði haldin þegar í
næsta mánuði.
1 orðsendingunni var tekið
fram, að Sovétstjórnin myndi
taka til nýrrar athugunar hvort
hún vildi hafa áfram ásamt
Bretlandi yfirumsjón með sarn-
komulaginu frá 1962, en það
hlutverk hafa Bretar og Rússar
haft með höndum, sem þær
tvær þjóðir sem valdar voru til
að gegna formennsku-hlutverki
1962 — en þrátt fyrir þessa yf
irumsjón hefur ekki tekist að
hindra, að bardagar brytust út
í Laos æ ofan í æ — Pathet Lao
unni gegn kommúnistum dugi
ekkert nema láta hart mæta
hörðu, og Bandaríkjastjórn imf
ir verið andvíg nýrri ráðstefnu
um Laos, vegna þess að reynr.l-
an hafi sýnt að kommúnistar
hafi hvað eftir annað þverbrotið
það samkomulag, sem þar var
gert, og þeim /eröi eKKi netur
treystandi til að halda vteroa
samninga í framtíðinni en tii
þessa.
OG ENN ER BARIZT
Rússar hafa fyrr stungið upp
á nýrri ráðstefnu um Laos og
þegar þeir gera það nú að
minnsta kosti er það um lcð
□g mótspyrnan gegn kommún-
istum fer harðnandi. Það er
einmitt nú sem hersveitir hlut-
lausra og íhaldsmanna nafa
sameinazt gegn Pathet Lao
í Pha Tong og Kiu Kasham
héruðunum í norðvesturhlula
Krúsév setur Laos efst
á blað við kmu Butlers
flokkurinn hefir sem sé hald-
ið áfram ofbeldislegum aðgerð-
um með stuðningi frá Peking
og Norður-Vietnam og bein-
línis miðað að því að treysta á-
hrif sín og völd og færa út kví
amar í skjóli Genfarsáttmálans
frá 1962.
Nú fer það ekki framhjá neir.-
um, að Sovétstjórnin afhendir
umræddar orðsendingar daginn
áður en Richards Butlers utan-
ríkisráðherra Bretlands er von
til Moskvu, til þess að ræða
vandamálin, og þarf því ekki
að draga I efa að LAOS verði
eitt höfuðmála, sem þeir ræða
á fundum sínum, Butler og
Gromyko utanrikisráðherra, og
vera má, að Butler ræði um La-
os við Krúsév sjálfan.
Stjórnmálamenn í London
segja, að Bretar óski eftir að
Rússar láti ekki af fyrrnefndri
formennsku, og vilji áfram
gegna forystuhlutverkinu með
þeim — í von um að samkomu-
lag náist, er verði virt.
Afstaða brezku stjórnarinnar
hefur þó verið að ekki beri að
stofna til nýrrar ráðstefnu um
Laos, nema unnt reynist að
undirbúa hana nægilega og
helzt tryggja nokkurt samkomu
lag fyrirfram, að minnsta kosti
milli hlutlausra íhaldsmanna og
Pathet Lao.
Vafalaust á það nú að hafa
sln áhrif, að Sovétstjórnin hót-
ar að láta af áðurnefndri með-
formennsku, ef menn segja ekki
já og amen við tillögunum um
nýju ráðstefnuna.
Krúsév.
AFSTAÐA DE GAULLE
Afstaða De Gaulle varðandi
Indókina (Laos, Cambodia, N.-
og S.-Vietnam) er sú, að halda
beri Genfarráðstefnu til þess
að stuðla að því, að í þessum
löndum verði hlutleysi og friður
ríkjandi. En sú tillaga nefur
ekki fengið byr, og í Suður-Viet
nam fer fram undirbúningur að
því að herða sóknina gegn
kommúnistum.
HART MÓTI HÖRÐU
Bandaríkjastjórn hefur sar>n
færst um það fyrir Iöngu, eins
og þeir sem með völdin fara
í Suður-Vietnam, að í barátt-
landsins. Sækja skriðdrekar
fram og njóta stuðnings flug-
véla. Kong Le stjórnar sókninni.
I sókn I fyrri viku tóku her-
sveitir hlutlausra hluta af Phou
Khout-fjallgarðinum fyrir vest-
an Muong Soui, seinustu varnar
stöð hlutlausra á Krukkusléttu.
Það var eitt atriði yfirlýsing-
ar, sem birt var I gær í Moskvu
um orðsendingarnar fyrrnefndu
að Bandaríkin yrðu að vera á
brott frá Laos með allt sitt lið,
vopn og skotfæri, en það er
ekki sízt sá stuðningur sem
Bandaríkjamenn hafa veitt að
beiðni hlutlausu stjórnarinnar,
að lána henni flugvélar til könn
unarflugferða, sem hefir breytt
horfunum hlutlausum og íhalds-
mönnum í vil, enda er nú hert
á kröfum kommúnista um, að
þeir verði á brott með allt sitt
lið og hafurtask.
TENINGNUM KASTAÐ
En svo virðist sem teningn-
um hafi verið kastað og nú
verði haldið uppi sókn með
stuðningi Bandaríkjamanna
bæði í Laos og Suður-Vietnam,
en reynt að forðast af hálfu
Bandaríkjanna að leikurinn ber
ist til Norður-Vietnam vegna
fyrirhugaðra aðgerða I Suður-
Vietnam, en sumir ætla að það
kunni að reynast erfitt. og styrj
öldin muni breiðast út þangað,
ef ekki fyrir aðgerðir iiers
Nuyen Khans, þá vegna að-
gerða kommúnista frá Norður-
Vietnam.
ERLENDAR FRÉTTIR
í STUTTU MÁLI
► Nelson Rockefeller hefir sent
flokka úr þjóðvarnarliðinu (Nat-
ional Guard) til Rochester lil
stuðnings herliði rikisins og lög-
reglu til þess að koma þar á
lögum og reglu. Þar gerðist það
í fyrradag, að þyrla hrapaði nið
ur í blökkumannahverfið og
kviknaði í henni og kúsi. Blökku
maður bjargaði 2 mönnum, sem
í þyrlunni voru, með því að
draga þá út úr brennandi flak-
inu. Óeirðir hafa nú verið i
hverfinu 3 daga í röð.
^ Makarios erkibiskup fór til
Aþenu í gær til viðræðna við
Pappandreu forsætisráðherra.
Makarios sagði í gær, að Kýpur
væri nú ramgert virki, sem var
ið yrði af 25.000 manna vösku
og vel vopnuðu '3i. Hann boð-
aði ennfremur: Ekkert samkomu
lag, engar tilslakanir.
► Tyrkir hafa fullbúinn nýjan
lista yfir 500 gríska menn, sem
gera á útlæga fyrir undirróð-
ursstarfseni.
^ Castro hefir mótmælt sam-
þykkt Samtaka Vesturálfuríkja
um að slita stjórnmálasambandi
við Kúbu og herða viðskipta-
bannið. Samþykktin var undir-
rituð í i Washington í gær.
^ Shell-félagið tilkynnir, að það
hafi fundið ollu við boranir i
Oman (Suður-Arabfu). Þegar
hafa verið grafnir brunnar.
► Seinasta seglskipið af þeim,
sem tók þátt í keppninni yfir
Atlantshaf, kom um helgina tii
Bandaríkjanna. Það var 28 feta
snekkja, dönsk, og skipstjóri og
einn síns liðs á henni, maður
að nafni Axel Pedersen. Hann
var 61 dag á leiðinni yfir hafið.