Vísir - 28.07.1964, Síða 9

Vísir - 28.07.1964, Síða 9
VÍSIR BIBMW Þriðjudagur 28. júlí 1964 Bíll ferðalanga við skálann i Jökulheimum. Það var aðeins tekið að rökkva þegar við börðum á dyr skála Jöklarannsóknarfélags- ins í Jökulheimum s.l. laugardagskvöld. Ekki leið löng stund þar til ein búinn í Jökulheimum, Pétur Sumarliðason, kennari opnaði og bauð okkur inn fyrir. „Það er alltaf gaman að fá gesti, enda liðnar um 3 vikur frá því að ég hef fengið heimsókn, en nú fer víst að vera lítill friður úr þessu“, bætti kann við, um leið og hann strauk skeggið, sem hann hefur safnað frá því 30. maí. Það var í fyrrasumar sem Jöklarannsóknarfélag íslands réði sérstakan mann til þess að annazt veðurathuganir og senda daglega veðurskeyti frá Jökulheimum. Nú í sumar hef- ur Veðurstofa íslands greitt Iaun veðurathugunarmannsins, en Jöklarannsóknarfélagið lagt skálann til. Veðurathugunar- maður í Jökulheimum nú i sumar er Pétur Sumarliðason kennari, en Pétur dvaldi einnig um hálfsmánaðarskeið við veð- urathuganir í Jökulheimum í fyrrasumar. Stuft rubb við Pétur Sumarliðuson sem dvelur inni ð JökuSbeimum við veður- ufhugunir Dvelur 3 mánuði í Jökulheimum. Þegar Pétur hefur helt upp á könnuna og boðið okkur upp í gærdag sem ég gat unnið úti við að bika húsin. Það fer prýðilega um mig hér í skálan- um og ekkert skortir mig af vistum og öðru því sem Veður- stofan leggur til. — Nei, ekki get ég sagt það, hér kann ég prýðilega við mig. Maðurinn er varla hann s.jálfur I margmenninu, heldur þver- summan af því umhverfi sem hann dvelur í. EINBÚINN í tfníi ^ .BflfítÍBJÍg IjðwjtííSSí] • ® á kaffisopa með 3ja vikna gamalli hyrnumjólk út í, sem var líkust því að hún hefði ver- ið keypt fyrir stuttu í mjólkur- búð, byrjum við á því að spyrja Pétur um dvölina i Jökulheim- um. — Hér hef ég ekki yfir neinu að kvarta, nema þá kannski veðrinu, því það var fyrst nú — Hvað er langt síðan að þú settist að hér í Jökulheimum til sumardvalar? — Hingað kom ég 30. maí og meiningin er að ég dvelji hér 3 mánuði, eða þar til í septem- ber. — Er ekki hálfleiðinlegt að dvelja hér einsamall við rætur Vatnajökuls? Veðurathuganir á 3 tíma fresti. — Og hvernig er svo veður- athugunum háttað? — Veðurathuganir eru gerðar hér á 3ja tíma fresti, frá því klukkan 9 á morgnana fram til : ::: : ■ ■ " : : : 12 á miðnætti. En veðurskeyti sendi ég héðan klukkan 9 á morgana og 6 á kvöldin. Starfs- dagurinn er því þannig, að ég verð að vakna rúmlega 8 á morgnana og get svo lagst i koju eftir miðnætti. — Hver er svo meiningin með þvl að hafa hér sérstakan veð- urathugunarmann? — Ég held að mér sé óhætt að segja, að til þessa hafi okkur skort upplýsingar um veðurfar á hálendinu og veðurathugun- arstöð staðsett hér við rætur Vatnajökuls hlýtur að gefa góð- ar og nýtar upplýsingar. í þessu sambandi má geta þess, að Jöklarannsóknarfélagið er nú með í smíðum skála fyrir vetrarsetumann hér. En skál- inn sem nú er hér er ekki nógu vel einangraður svo að hægt sé að búa í honum yfir vetra- mánuðina. Fær matarbirgðir einu sinni í mánuði. — Hvað færðu oft sendar matarbirgðir? — Veðurstofan sendir mér hingað matarbirgðir einu sinni í mánuði og er allur viðurgern- ingur af hennar hálfu til fyrir- myndar. Svo slæðast ferðamenn hingað öðru hvoru og þá fæ ég stundum smásendingar. Hér skammt frá skálanum er nið- urgrafinn blikkkassi, þar sem ég geymi mjólk og aðrar vistir, sem hætta er á að skemmist, ef þær eru geymdar hér lengi. ,Þetta hefur gefið mjög góða. raun og ég get rétt fundið mun á mjólkinni eftir að hafa geymt hana hér í 3 vikur. — Er mikið um heimsóknir? — Hingað til hefur ekki verið mikið um heimsóknir, en úr þessu má ég búast við að ferða menn fari að koma hingað. Ég vil taka það fram, að ég er ekkert á móti ferðamönnum, en allt er bezt í hófi. Fyrir nokkru kom hingað svissneskur ferða- mannahópur og fékk að gista hér í skálanum eina nótt. Um- gengni þeirra var til sérstakrar fyrirmyndar og ég get varla sagt að þess hafi sést merki að 30 manna hópur hefði sofið hér. Ekki veður til þess að vinna úti? — En hvernig hefur veðrið verið? — Það hefur varla viðrað fyrir útivinnu síðan að ég kom hingað. Það var fyrst í gær sem veður var það gott, að ég gæti byrjað á að bika skálann, það getur því verið hálfleiðinlegt að þurfa að hanga inni dögum saman, í stað þess að svitna svolítið við útivinnu. — Já, og þú kemur þér ve) við draugana hér í Jökulheim- um. — Ef eitthvað er um slíka kumpána hér, þá eru það beztu náungar, en ég held annars að draugar séu ekki til nema þá í manninum sjálfum. — p.sv. ☆ I Tungnaárbotnum. Fljótið kemur kolmórautt undan Vatnajökli op beljar fram. (Ljósm. Valg. Emilss.)

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.