Vísir - 19.08.1964, Blaðsíða 5

Vísir - 19.08.1964, Blaðsíða 5
VI SIR . Miðvikudagur 19. ágúst 1964. utlönd í morgun , útlönd í . mprgun útlönd/í morgun útlönd í morgun í STUTTU MÁLI ► Af 30—40 skæruliðum, sem Indonesar settu á Iand í Malajsiu í fyrradag, var búið að handsama nær helminginn f gærkvöldi. ► James Hoffa, formaður Satn- bands flutningaverkamanna f Bandarikjunum, hefir verið dæmd- ur í 5 ára fangelsi og 10.000 doll- ara sekt, fyrir að hafa dregið sér 25 milljónir dollara úr lífeyrissjóði sambandsins, en áður hafði hann verið dæmdur fyrir tilraun til i5 múta kviðdómendum, og hefir hann áfrýjað þeim dómi. ► Segni Ítalíuforseti sem veiktist af heilablæðingu fyrir 11 dögum hefir legið meðvitundarlaus síðan á laugardag. ► Mjög alvarlega horfir enn um heilsufar Palmiro Togliatti, sem veiktist skyndilega fyrir skemmstu í Yalta við Svartahaf. ► Tilkynnt var í páfagarði í fyrra- dag, að páfi bæði fyrir Segni Ítalíuforseta og „öðrum manni ti). sem líka væri hættulega veikur“ og átti þar við Togliatti, sem hann vildi ekki nefna með nafni. ► Mikil hitabylgja fer nú yfir Tokio, en nú eru 2y2 mánuður þar til Olympísku leikarnir byrja. Vatnsbirgðir borgarinnar mega nú heita á þrotum. Hitinn hefir verið um 35 stig á Celsius undangengna daga og engin merki þess, að hita- bylgjan sé að fara hjá garði. ► Frumsýning verður í Oslo 29. þ. m. á leikriti Ibsens AFTUR- GÖNGURNAR — og er það i fyrsta skipti sem það er flutt — á nýnorsku. ► Fyrrverandi ambassador Banda ríkjanna í Saigon, Suður-Vietnam, ferðast nú milli höfuðborga banda- manna Bandaríkjanna í Evrópu og sem sérlegur sendimaður Johnsons forseta og gerir grein fyrir afstöðu Bandaríkjanna til Suðaustur-Asíu. I dag (miðvikudag) verður hann í Briissel og ræðir við belgiska ráð- herra, en í gær ræddi hann við Louis Joxe, franskan ráðherra. ^ Heimssýningu á að halda i Montreal, Kanada, 1967, og ákveð- ið að hafa sameiginlegan Norður- landa-sýningarskála. Þátttaka Nor- egs mun kosta 4 milljónir norsk>-a króna, að því er áætlað er, en „trúlegt að kostnaður verði meir “ segir í NTB-frétt. ► TASS-fréttastofan birti tilkynn- ingu um það í gær, að þremur gervihnöttum af Kosmos-gerð hefði verið skotið á loft með einni og sömu eldfiaug, og væri hún af nýrri gerð. Gervihnettirnir fara kringum jörðu á 95 mínútum, eru fjærst jörðu 876 km, og næst 210. Kosmos-hnettirnir eru nr. 38, 33 og 40. NTB-frétt herrnir, að Bruno Kreisky, utanríkisráðherra Austur- ríkis, og Guiseppa Saragat hittist i Genf 7. sept. og ræðist við þann dag og næsta um Suður-Tyroí- vandamálið. ^ NTB-frétt frá Lissabon hermir, að Simoes, stofnandi „Lýðræðis- hreyfingarinnar" í Afríkunýlend- unni Mozambique hafi verið leidd- ur fyrii herrétt í nýlendunni og dæmdur í þriggja ára fangelsi. Hann var sviptur stjórnmálalegum réttindum í 15 ár. Ólafur Norðmannakonungur fer í opinbera heimsókn til HoIIands í næsta mánuði. ^ Nýr ríkisforseti hefir verið kjör- inn í Libanon, Charles Mevvou, 51 árs að aldri. í> Savannah, fyrsta kjarnorku- knúða kaupfar heims, kom til Os’.o í gær. Samkomulagsumleitunum um Kýpur haldið áfram í Cenf Tyrkir á Kýpur fú nú vatn og mot Samkomulagsumleitunum er i haidið áfram í Genf um lausn Kýp | urdeilunnar, þrátt fyrir veikindi Tuomioja, sáttasemjara Sameinuðu þjóðanna í deilunni. Sá, sem stj. framha'dsfundum, er ítalinn signor Spinelli, en tekið er fram, að hann hafi ekki með höndum hlutverk sáttasemjara. Það er tal- ið mjög mikilvægt, að samkomu- lagsumleitanir hafa ekki fallið nið ur vegna veikinda Tuomioja. Einn- ig er talið stór-mikilvægt sam- komu'ag það, sem náðist í gær á fundi Makariosar erkibiskups og Galo Plaza, fyrrverandi ríkisfor- seta Eauador, en hann er í Nicosia sem sérlegur sendimaður U Thants framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna. Samkvæmt því verða aftur opn- aðar vatnsleiðslur til bæjarins Kat imá og annarra bæja, þar sem lok að hafði verið fyrir vatnið, og mat vælaflutningar eru nú leyfðir til 3ja bæja á norðvesturhluta eyjar- innar, gegn því að tyrkneskumæl- andi menn þar leyfi borgurum Galo Plaza og Makarios ræðast við í Nicosja. Menn þeir, sem dæmdir voru til fangelsisvistar fyrir þátt sinn í lestarráninu mikla á Bretiandi, eru nú fluttir milli fangelsa við og við, síðan Charles Wilson, sem tal- inn er einn aðalforsprakki — ef ekki höfuðpaur lestarræningjanna — slapp úr Winson Green fangelsi í Birmingham. Félagar hans börðu fangavörð i rot og opnuðu síðan þrjár dyr með fölskum lyklum og komust burt með Wilson, án þess tilraun væ”i , gerð til þess að stöðva þá. Er hans I ! nú leitað um allt Bretland, sam- ' kvæmt beinum fyrirmælum Brooke : innanríkisráðherra. I Einnig er leitað - að Patriciu, konu Wiison, en hún er horfin eins og jörðin hafi gleypt hana. Fyrir lestarránið var Wilson fví- vegis handtekinn grunaður un þátttöku í fífldirfskulegum ránum, en í hvorugt skiptið var hægt að sanna neitt á hann. um vmpj Lh ip: Charles Wilson. í nýrri NTB-frétt frá Genf segir, að Tuomja líði mun verr en í gær vegna lungnabólg- unnar. Samkvæmt áreiðanlegum heimildum hefir gríska stjórnin reynt að koma í veg fyrir, að Kýpurstjórn þiggi hjálp af Sovétrikjunum, en Kiprianou, utanríkisráðherra Kýpur fer i dag til Moskvu. Hann hefir lof- að að láta stjórnina í Aþenu fylgjast með öllu, sem gerist, á viðræðufundum hans í Moskvu. i> Tíu Skyraider-flugvélar gerðu gær mikla árás á stöðvar Vietcong manna um 115 km. fyrir sunnan Saigon. Þarna höfðu þeir mikia birgðastöð. 4rásin var gerð úr lágri hæð og tóku bandarískir flug- menn þátt í árásinni. sem virðist hafa komið Vietcong-mönnum 6- vænt. ► Kenneth Keating, öldungadeild- arþingmaður fyrir New York ríki, hefir tilkynnt að hann verði í kjöri í kosningunum á hausti komanda. Búizt er við, að Robert Kennedy dómsmálaráðherra keppi við hann um sætið. ^ Haft er eftir Juanitu Castro, systur Fidels og Raouls Castro, en hún fékk fyrir nokkru landvistai- S leyfi sem pólitískur flóttamaður 1 j Mexikó, að vel gæti veriíl að enn séu á Kúbu sovézkar árásar-e!d- flaugar. Er frá þessu sagt í NTB frétt frá Rio de Janeiro, þar sem : Juanita er sem stendur, og er gest- ur de Cunha utanríkisráðherra og 1 konu hans. frjálsa umferð um vegi, en ella annist Alþjóða Rauði krossinn flutningana. Þá innifelur samkomu lagið, að leyfðir verða flutningar á eldsneyti, en á því var orð- inn svo mikill skortur f tyrkneska bæjarhlutanum £ Nicosia, að ekki var hægt að baka brauð £ brauð- gerðarhúsunum. Þessu samkomulagi hefir verið vel tekið af tyrkneskumælandi mönnum, en þó af nokkurri varúð. Fréttaritarar segja, að ekki hafi verið seinna vænna, að þeir Galo i Plaza og Makarios náðu ofan- : greindu samkomulagi, þv£ að sú hætta var yfirvofandi, að vegna skorts og kviða tyrkneskumælandi manna, hefði soðið upp úr með ó- fyrirsjáanlegum afleiðingum. EKKI ÚRSÖGN. f fréttum frá Aþenu segir, að ; það boði ekki að stefni £ áttina til | úrsagnar úr NATO, þótt Grikkir hafi kallað £ sfna þjónustu nokkra herflokka til þess að vera betur viðbúnir, ef ný árásarhætta kæmi ti! sögunnar. KREML KEMUR EKKI í STAÐ AKROPOLIS Þá segir, að það sé stöðugt von Grikkja, að Makarios þiggi ekki að stoð frá Sovétríkjunum. Blaðið Synagernos, sem stendur nærri Grivasi ofursta, segir: ,,Það er ekki hægt að láta Kreml koma í stað Akropolis". ^ Krúsév er nýkominn heim úr tveggja vikna ferðalagi en hann ferðaðist m.a. um nýræktarsvæðin miklu i Kazhakstan. — Áformuð er opinber heimsókn Krúsévs til Tékkóslóvakiu. Hérssðsmót Sjólf- stæðismsznna í V.-Hún. Sunnudaginn 9. þ.m. var hér- , aðsmót sjálfstæðismanna \ Vestur-Húnavatnssýslu haldið í Viðihlfð. Fór mótið fram með mestu prýði, var fjölsótt og sótti það fólk víðs vegar að úr sýslunni. Samkomuna setti og stjórn- aði Sigurður Tryggvason, verzl unarstjóri á Hvammstanga. Dag skráin hófst með einsöng Guð- mundar Jónssonar, óperusöngv ara, en undirleik annaðist Carl ( Billich píanóleikari. Þá flutti sr. Gunnar Gíslason alþingismaður ræðu. Síðan fóru Ieikararnir Ró bert Arnfinnsson og Rúrik Har aldsson með skemmtiþátt. Þessu næst flutti Jóhann Hafstein dómsmálaráðherra ræðu. Að lok inni ræðu ráðherrans söng Guð mundur Jónsson einsöng með undirleik Carls Billich. Lauk samkomunni síðan með dans- leik, er stóð fram eftir nóttu. oaufica iMafjaswHeaajBHim

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.