Vísir - 05.09.1964, Blaðsíða 7
^□nE3E3£>E3t3E3E3E3BCj□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□&□□ □□□^□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□DDaDDDaDDDDDDDPaDODDQQDCIQCIDDDQDQaOQDDQDDaDDDD □□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□
7
V1SIR . Laiy;ardagur 5. september 19(j4.
KartöfluævintýríB getur brugðizt
Ólafur bóndi Jónsson á Odd-
hóli, myndarbýli á bökkum
Rangár, er um þessar mundir að
taka upp kartöflur sínar. Hann
býst við uppskeru eitthvað yfir
3000 pokum sem er talsvert
minna en hann hafði raunar gert
sér vonir um. „Frostin í ágúst
urðu til þess að kartöflugrösin
gjörféllu og aðalþroskatíminn
sem var eftir var ónýtur, — eg
átti sannarlega andvökunætur
þá, sagði Ólafur bóndi þegar
Vísismenn heimsóttu hann í
fyrradag á hinum víðáttumiklu
kartöfluekrum hans, en á 8
hekturum lands hefur hann kart
öflur og einn hektari hefur farið
í gulrófnarækt.
*
Ný upptökuvél, mikil ham-
hleypa, ígildi fjölda verka-
manna, lullaði jöfnum og síg-
andi hraða eftir kartöflurásun-
um. Stórir hringlaga ,,hnífar“
ristu undir grösin, moldin síað-
ist úr, en þær kartöflur sem náð
fundu komust í gegn og fóru
jafnóðum í kartöflupokana,
smælkið lá eftir.
Ólafur bóndi kvað kartöflu-
rækt á Isiandi sem annars stað-
ar mikið áhættufyrirtæki. Hér
er ekki hægt að tryggja sig fyrir
tjóni. Hér gengur mjög illa að
fá lán út á kartöflurækt. Hér
ætti þó að geta verið mjög mikil
kartöflurækt, og út frá henni iðn
aður ýmis, t. d. spíritusiðnaður,
framleiðsla á ýmsum efnum eins
og talkúmi og fleiru, sem unnið
er úr kartöflum. Þetta ætti raun
ar að verða verkefni fyrir okkur
kartöflubændurna að koma
slíkri verksmiðju á laggirnar.
Við spurðum Ólaf hversu mik
ið kostaði að setja niður 380
poka af kartöflum, eins og hann
gerði í vor. „Líklega ekki mik-
ið undir 380 þús. krónur“, segir
hann. „Ég setti niður 15. apríl
í annan garðinn, þann sem er
lengra frá bænum, en hann er
4 hekarar að stærð, en í hinn
sem er 5 hektarar setti ég síðar
niður og útkoman þar er betri,
einungis vegna þess að jarðveg
Undir skýli í upptökuvélinni voru 4 vinnumenn að starfi við að stjórna vélinni og fleygja frá
því sem kom upp af kartöflugrasi og gróðri.
urinn þar er betri. Næsta sumar
set ég ekki í garðinn sem er
Ólafur Jónsson sýnir okkur
þarna fallegar Eigenheimer-
kartöflur, en hann ræktar auk
þeirra rauðar ísienzkar kartöfl-
ur og Ryakartöflur.
Staldrað við á Oddhóli í Itangárvalla
sýslu, þar sem kartöfluræktin er
stunduð í stórum stíl# og rætt við
/
bándann þar, Ólaf Jónsson
fjær, en færi garðana saman og
geri einn stóran garð úr öllu
saman.
Talið er rrijög sennilegt að
Ólafur á Oddhóli skeri mest upp
af öllum kartöflubændum þessa
lands í ár, þrátt fyrir frostin,
sem hafa skaðað þjóðina um
milljónir og aftur milljónir
króna. Enginn setti a. m. k. eins
mikið niður og hann gerði í ár.
Á Oddhóli er ekki aðeins rekin
jarðávaxtarækt, heidur er þar
mjög myndarlegt kúabú með 28
kúm og tún Ólafs eru 40 hekt-
arar að stærð og verða stækkuð
næsta sumar. Hann hefur ernnig
yfir 200 kindur, nokkur svfn,
hænsn og talsvert marga hesta.
„Ég get ekki snúið við á
þessari braut“, sagði Ólafur
bóndi við okkur, — Þetta er
dýrt fyrirtæki og ekki gott að
losna úr því þegar maður er
einu sinni kominn af stað, næsta
sumar verð ég að halda áfram
að setja niður og treysta á ham-
ingjuna ‘að ekki frjósi um mitt
sumar eins og nú gerði.
-jbp-
C3 □□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□DDDDDDOD
□
□
□
Þarna er kartöfluupptökuvélin að starfi á
ÚTBOÐ
Tilboð óskast í smíði og uppsetningu loft-
ræstilagnir fyrir Kvennaheimilið Hallveigar-
staði hér í borg. Útboðsskilmála má vitja á
teiknistofu Skarphéðins Jóhannssonar
Laugarásvegi 71 frá og með mánud. 7. sepL
Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðju-
daginn 29. sept. kl. 11.00 að viðstöddum
bjóðendum.
Framkvæmdastjórn
Kvennaheimilisins Hallveigarstaðir.
;
ISaCGúDbQQIjDaDDatlODtlQQDDQQDDDQDQDDDDODDODDDDOQDDOQODODQDODDDDDDDaDDDQQDDDDDDDDDDaOODODDDODD □□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□