Vísir - 05.09.1964, Blaðsíða 3

Vísir - 05.09.1964, Blaðsíða 3
3 Vestur-íslendingurinn John P. Sigvaldason, ambassador Kanada á íslandi, hefur verið í heimsókn hér á iandi undanfarnar vikur, en hann kom hingað f apríl s.l. er hann tók við ambassadors- embætti hér með aðsetri í Osió. Ræðismaður Kanada á íslandi, Haligrímur Fr. Haligrímsson for- stjóri hafði móttöku fyrir Sig- vaidason og ýmsa aðra gesti í Sigtúni í fyrrakvöld. Var þar margt manna, ráðherrar, sendi- fulltrúar erlendra rfkja og fleiri. John P. Sigvaldason talar góða ísienzku enda talaði hann ávallt móðurmálið í barnæsku f Argyle í Manitoba, þar sem hann ólst upp. Foreldrar Johns voru Einar Sigvaldason frá Lómatjöm í Höfðahverfi og Kristfn Guðna- dóttir frá Máskoti í Reykjadal. Fluttu foreldrar hans ungir vest- ur. Sigvaldason ambassador og frú, Hallgrfmur Fr. Hallgrímsson og frú. SIGYALDASON í HEIMSÓKN Þess má geta, að þeir Hall- grímur Fr. Hallgrímsson og Sig- valdason gengu saman i skóla f Kanada, í miðskólann í Baldur í Manitoba Þótti Sigvaldason skemmtilegt að hitta hér gamlan skólabróður er hann kom hingað sem ambassador. Kona Johns P. Sigvaldason heitir Olga en húri' er af brezkum og austurriskum ættum, alin upp f Vfnarborg. — Myndsjáin í dag er frá móttökunni f Sigtúní. Gunnar Thoroddsen fjármálaráðherra heilsar John P. Sigvaldason ambassador. Pierre Dupuy, ambassador (t. v.) og Vilhjálmur Þ. Gíslason ræðast við (t. h.) Forsætisráðherrafrú Sigríður Björnsdóttir (t.h.) ræðir við hinn nýja tmbassador Mexico hér á landi Antonio Armendariz (t.v.). Albert Guðmundsson ræðismaður Frakka á íslandi, frú Penfield apibassadorsfrú og Davíð Ólafsson fiski- máiastjóri ræða við mr. Comfort 1. sendiráðsritara f brezka sendiráðinu hér.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.