Vísir - 05.09.1964, Blaðsíða 5

Vísir - 05.09.1964, Blaðsíða 5
 i VÍSIR . Laugci.— óUr Utlönd morgun útlönd í morgxm útlönd í morgun útlönd í morgun TSJOMBE á fundi OAU í Addis Abeba Moise Tsjombe forsætisrúð- herra sambandsstjórnar í Kongo fór f gærkvöldi loftieiðis frá Leopoldville til Addis Abeba, til þess að sitja fund Samtak- anna Afrísk eining (OAU eða Organization of African Unity) Er það aukafundur, sem boð- að var til, til þess að ræða Kongó-vandamálið. í fyrstu var talið, að Tsjombe myndi ekki fara. Hann reyndi að fá fundinum frestað, senni- lega vegna þess, að hersveit:r hans hafa unnið á, og ef fund- inum yrði frestað þó ekki væri nema 3—4 vikur, yrði aðstaða hans sterkari. En frestun hafð- ist ekki fram. Tsjombe hefir átt og á senni- lega enn sterkri mótspyrnu að mæta, þar sem hinir róttæku forsprakkar fólks í mörgum hinna nýju Afríkuríkja telja hann „verkfæri vestrænna ný- lenduvelda og heimsveldis- sinna“, og ekki munu vinsældir hans hafa aukizt við það, með al þeirra, að hann hefir ráðið hvíta málaliða í sambandsher- inn. Hann mun halda því fram á fundinum í Addis Abeba, að þetta hafi verið nauðsynlegt til þess að halda uppi lögum og reglu. Það er búizt við, að hann ákæri Kínverska alþýðulýðveid ið fyrir að styðja uppreistar- menn með fé og vopnum og nágrannar. Burundi og Kongó lýðveldið (fyrr Franska Kongó) fyrir að leyfa uppreistarmönn um að hafa bækistöðvar í lönd- um sínum til þess að grafa und- an sambandsstjórninni og koma á byltingarstjórn. Sendiráð Kína í Burundi er sagt hafa geysifjölmennt starfslið. Bretar og Bandaríkjamenn gera nú allt sem í þeirra valdi stendur til þess að flytja burt brezka og bandaríska borgara frá Kongó. Þótt sambands- stjórnarhernum hafi orðið tals vert ágengt er stór landshluti enn á valdi uppreistarmanna. Stjórnarhernum fagnað eftir töku Bukavu. Mulaniba hershöfðingi. Það er sagt, að siðferði hafi verið á svo lágu stigi f sam- bandshernum, er Tsjombe tók við stjórnartaumunum, að her- mennirnir hafi lítt dugað, og oft flúið undan uppreistar- mönnum sem' hræddir hérar. Nú er siðferðið mun styrkara og er það ekki sízt að þakka Mulamba, sem þjálfaður er af Belgíumönnum, og heldur uppi sterkum aga. Hann fyrirskipaði eftir töku Bukavu, að ekki mætti veita hermönnum hans áfengi. Á meðan enn var barizt í úthverfunum ók hann f opnum bíl um götur borgarinnar til þess að trú manna ykist á því að stjórnarherinn myndi ekki hörfa aftur úr borginni. NATALIE WOOD Þessi mynd af Natalie var tekin núna í vikunni, er hún var í London á leið til Vínarborgar. þar sem hún leikur í kvikmyndinni „The Great Race“. — Nat alie er 26 ára og heimskunn fyrir leik sinn í West Side Story og Splendour in the Grass. nssíu — Dugskipm frá Sukarno — Tunku setur herlög í MALAISÍU ‘-úkarnn. Súkarno Indonesiuforseti hefir fyrirskipað öllum herafla Indonesiu að vera við öllu búinn, ef til styrjaldar skyldi koma. Birti hann um þetta dagskipan að lokn- um fundi með helztu ráðherrum sínum. Sagði forsetinn við frétta- menn, að til fundarins hefði verið boðað vegna þess, að erlend her skip hefðu sézt úti fyrir ströndum Indonesiu. í Jakarta er neitað, að rétt sé, að fallhlífalið, frá Indonesiu hafi verið látið svífa til jarðar úr flug- vélum niður á Malakkaskaga en flugvél hafi villzt yfir skagann — og hafi hún verið að flytja he’m til Cambodja dansmeyjar, sem verið hafa í Indonesiu. Brezkar fréttastofur birta frétt- | ir um, að almenningur í Indonesiu ! hafi litla hugmynd um aðgerðir | stjórnarinnar gagnvart Malajsiu. I Tunku forsætisráðherra Malajsiu hefir með stuðningi Bretlands, Ástralíu og Nýja-Sjálands krafizt fundar í öryggisráði vegna auk- innar styrjaldarhættu, þar sem fallhlífalið hafi nú verið sent til Malakkaskaga. Tunku fyrirskipaði í fyrradag, að hernaðarástand skyldi ganga í gildi um land alit. Öryggisráðið mun koma saman t'il fundar á þriðjudag. Brezkar hersveitir og samveldis- hersveitir á Malakkaskaga haft verið sendar fram til bardaga við skæruliða þá og fallhlífahermenn sem enn leika lausum hala á Mal- akkaskaga, en allmargir hafa verið Tunku. vegnir og margir handteknir. Þessar hersveitir taka við af mal- ajiskum, sem sendar verða til Singapore, þar sem alvarleg upp- þot hafa orðið, en þar mun ve.ra margt indonesiskra flugumanna. í STUTTU MÁLI ► Tuomioja, hinn finnski sátta semjari Sameinuðu þjóðanna í Kýpurdeilunni, sem veiktist í Genf, er nú kominn til Hei- sinki, liggur þar í sjúkrahúsi, en er á batavegi. ► Lögreglan í Bolzano á Norð- ur-ítalíu tilkynnti í gær, að lok- aðar hafi verið umferðarleiðir yfir landamæri Austurríkis og Ítalíu, eftir að austurrískur ög regluhermaður var skotinn ti) bana. ► Ný brú yfir Forth-fjörð (Firth of Forth) fyrir norðan Edinborg var vígð I vikulok siðustu af Elisabetu drottningu. Brúin er 500 metra löng og lengsta hengibrú utan Banda- rikjanna. Kostnaður við brúar- smíðina varð 20 millj. punda.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.