Vísir - 05.10.1964, Side 7
V1 S IR . Mánudagur 5. október 1964.
7
Uppgröhur tveggja
merkra bæjarústa
Aðalstarfsemi Þjóðminjasafns-
ins beindist í sumar að rann-
sóknum tveggja gamalla bæja,
annars frá landnáms. eða sögu-
öld, hins frá því um 1500, auk
þess að rannsóknum óvenju
margra kumla, sem fundizt hafa
á þessu ári.
— Sumrin eru mesti anna-
tími ársins í Þjóðminjasafninu,
sagði dr. Kristján Eldjárn í við-
tal'i við Vísi nýlegá. Þá koma
miklu fleiri gestir til að skoða
safnið, heldur en nokkurn ann-
an tíma ársins,' bæði innlendir
en þó einkum útlendir gestir.
í sumar var aðsókn með lang-
mesta móti, eða rösklega 11 þús-
und yfir mánuðina júní, júlí og
ágúst, en þá mánuði er aðsókn -
mest. Þetta er að því leyti ó-
keppilegt, að þetta eru sömu
mánuðirnir, sem krefjast starfs-
!i'3s safnsins til útistarfa við
fornleifarannsóknir. Sumrin eru
sfutt hjá okkur og yfirleitt ekki
um annan tíma til rannsókna
úti á landsbyggðinni að ræða.
Stórmerkur kumlfundur
í Patreksfirði.
— Hvaða verkefni hafa helzt
kallað að í sumar?
— Þau hafa verið með meira
og margháttaðra mót’i. Það hafa
t.d. fundizt óvenju mörg kuml
í sumar og sum þeirra með þeim
merkustu sem fundizt hafa.
Flest árin að undanförnu hafa
fundizt hér kuml, en sjaldan eða
ekki jafn mörg og fundust í
sumar. Meðal þeirra var einn
merkast'i og stærsti legstaður
frá Söguöld, sem fpndizt hefur
hérlendis til þessa. Það var-svo
kallað bátskuml, sem fannst í
Vatnsdal í Patreksfirði. Sá látni,
sem í þessu tilfelli virtist hafa
verið ung stúlka, var látinn I
bát og haugur orpinn yfir. Þar
fannst og nokkurt haugfé, sem
tilheyrt hefur hinum látna.
Kumlateigur
I sama haug fundust héilleg
og vel varðveitt mannabein úr
sjö manns. Bendir allt til að
þarna hafi verið kumlateigur til
forna, en seinna blás'ið upp og
Dr. Kristján Eldjám.
þá hafi beinunum verið safnað
saman og þau grafin í báts-
kumlið.
Umbúnaður fornra kumla er
yfirleitt fábreytilegur, en kuml-
ið I Vatnsdal var eitt hið glæsi-
legasta, sem hér hefur fundizt.
Fór gaumgæfileg rannsókn fram
á því í sumar.
Fleiri beinafundir.
— Hvar fundust fleiri kuml?
— Annar merkasti fundurinn
var á Austara Hóli 1 Fljótum
norður. Þar hafði maður verið
heygður hjá hestí svo sem al-
títt var. Og enda þótt hér hafi
verið um venjulegra kuml en
það frá Vatnsdal ræða, var
þetta þó góður og merkur fund-
ur.
Mannabein fundust auk þess
í Lönguhlíð í Hörgárdal og á
Gauksstöðum á Jökuldal, en á
. hvorugum staðnum fundust nein
ir fomgripir og þess vegna erf-
itt að greina aldur þeirra.
Nýlega barst mér tilkynning
um beinafund í landi Sigluness
á Barðaströnd. Maður í smala-
mennsku fann blásin mannabein
á mel. Um þetta vitum við ekki
nánar og hefur ekki gefizt tími
til að rannsaka þennan fund
enn sem komið er. Þess vegna
ekki heldur hægt að segja hve
merkur hann er.
Gamalt aðrennsli að
Snorralaug finnst
— Fleira merkra funda í sum
ar?
— Þetta er það helzta, sem
rekið hefur á fjörur okkar af
tilviljun og við vissum ekki af
áður. Einn allmerkur fundur
fannst í Reýkholti í Borgarfirði
fyrir fáum dögum. Það er göm-
ul renna frá hvernum Skriflu og
Iiggur sennilega að Snorralaug.
Menn; sem voru að grafa fyrir
frárennsli að kennarabústað
komu niður á þetta mannvirki.
Þessi leiðslustokkur liggur sam
hliða rennu þeirri, sem nú flyt-
ur vatnið frá Skriflu yfir í
Snorralaug. Þorkell Grfmsson
er efra þessa dagana að rann-
saka þetta.
Uppgröftur að bæ
frá 1500
— Þið eruð líka með uppgröft
Frá uppgreftrinum að Reyðarfelli í landi Húsafells. Að þessum uppgreftri hefur þegar verið unnið í
nokkur sumur og þar hefur margir merkilegt komið í Ijós um húsaskipan sveitabæja frá því á 15. öld.
Dr. Kristján Eldjárn segir
frá störfum Þjóöminja-
safnsins á s.l. sumri
Staðarkirkja á Reykjanesi. í sumar bættist hún í röð þeirra bygg-
inga, sem teknar hafa verið á fomleifaskrá. Hún er talin ágætt
sýnishom af timburkirkjum frá 19. öld. Unnið var að viðgerð á
henni í sumar.
á gömlum bæjum í takinu?
— Já, tveimur. Annar er á-
framhaldandi rannsókn á gömlu
bæjarstæði, þar sem áður hét
Reyðarfell, og er í landi Húsa-
fells. Sá bær hefur sennilega
lagzt f eyði um 1500. Við upp-
gröftinn þar hefur margt merki-
legt komíð í ljós, einkum varð-
andi einstök hfbýlaatriði, sem
þljóst var um áður. Má í því
sambandi nefna rauðasmiðju,
járnbrennsluofna og baðstofu-
ofna o. fl. og hvernig þeim var
komið fyrir f húsakynnunum.
Og enda þótt erfitt sé að fá
grunnmynd af heildarskipulag-
inu, einkum vegna þess að
þama hefur verið byggt æ ofan
í æ og ekki gott að greina sund-
ur hvað á saman, þá hafa mörg
einstök atriði komið prýðilega
fram og gefið merkar upplýs'ing-
ar um húsaskipan á þessu tíma-
bili. Aðalumsjón með þessum
rannsóknum hafði Þorkell Gríms
son, og Gfsli Gestsson hefur
verið hans önnur hönd.
Skálabygging frá land-
námsöld grafin upp
— Hvar er hinn bærinn, sem
grafinn var upp?
— 1 landi Hvítárholts í
Hrunamannahreppi. Þar hefur
Þór Magnússon staðið fyrir
uppgreftri og fornleifarannsókn
á bæjarstæði frá landsnáms- eða
söguöld. M. a. hefur fundizt
18 metra löng skálatóft, mynd-
arleg og hrein í sniðum með
langelda í miðju og setbekki
til beggja hliða.
Hjá skálanum hefur fundizt
niðurgrafið baðhús, sem segja
má að komi vel heim við bað-
stofulýsinguna í Eirbyggju þeg-
ar Víga-Styr drap berserkina.
Hér er um stórmerka rannsókn
að ræða sem hvergi er nærri
lokið. Umhverfis þessi hús
sést móta fyrir fleiri rústum
og ekki unnt að spá neinu
hvers eðlis þær eru að svo
komnu máli. En fullvíst má
telja að hér sé um hið merk-
asta rannsóknarefni að ræða.
Vísindasjóður hefur veitt
þjóðminjasafninu styrk til
þessara bæjarannsókna.
Söfnun þjóðlaga hafin
— Hver hafa verið önnur
verkefni Þjóðminjasafnsins í ár?
— Fyrir atbeina og frum-
kvæði Þjóðminjasafnsins var
hafizt handa um söfnun þjóð-
legra rfmnalaga og skylds
efnis og sérstök söfnunarferð
farin þessara erinda.
Um þetta var haft samstarf
við Handritastofnun Islands og
Dansk Folkeminde Samling og
má fullyrða að þetta sé hið
merkasta framtak.
Gerður var út leiðangur,
einkanlega til Austurlands, en
einnig til annarra landshluta og
mikið tekið niður af þjóðlög-
um, rímnalögum, þulum, kvæð-
um og frásögnum. Efnissöfnun
önniiðust þe’ir Hallfreður örn
Framh. á bls. 5