Vísir - 05.10.1964, Side 8
8
V í S IR . Mánudagur 5. október 1964.
LJtgefandi: Blaðaútgáfan VlSlR
Ritstjóri: Gunnar G. Schram
Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinson
Fréttastjórar: Þorsteinn Ó. Thorarensen
Bjðrgvin Guðmundssor
Ritstjórnarskrifstofur Laugavegi 178
Auglýsingar og afgreiðsla Ingólfsstræti 3
Áskriftargjald er 80 kr á mánuði
llausasölu 5 kr. eint. — Slmi 11660 (5 línur)
Prentsmiðja Vísis - Edda h.f
Vísindaleg ósannindi
IJæði Berlingske Aftenavis og áróðursbæklingur
dönsku vísindamannanna halda því fram, að þau 12.000
handrit sem liggi í Landsbókasafninu í Reykjavík og
þau handrit sem skilað var til íslands 1927 liggi undir
skemmdum fyrir sök vanhirðu, — og sum séu reyndar
þegar ónýt. Er sú ályktun síðan af þessum ummælum
dregin, að þetta sýni, hve óskynsamlegt það væri að
afhenda íslendingum handritin. Þessar asakanir eru
bæði fráleitar og ósannar. Stefán Karlsson magister,
sem lengi hefir starfað í Ámasafni, mótmælir þessum
ósannindum um handritin, sem skilað var 1927, í les-
endabréfi til Berlingske Aftenavis. En þessar ásakanir
eru það alvarlegar að full ástæða er til þess að yfirvöld
Landsbókasafnsins og gjaman einnig hin nýja Hand-
ritastofnun láti frá sér heyra opinberlega um málið
og hreki þennan áróður í dönskum blöðum.
fjæklingi hinna dönsku vísindamanna hefur nú verið
dreift í 8000 eintökum og er hlutverk hans að móta
umenningsálitið í Danmörku og hafa áhrif á hið
nýkjörna þing gegn afhendingu handritanna. Hann
morar af firmm, svipuðum þeim, sem hér hefir
verið drepið á. Ein helzta röksemd hans er sú að hvergi
sé unnið sambærilegt starf varðandi íslenzku handrit-
in og í Kaupmannahöfn. Menn undrast að vísindamenn
skuli telja sér sæma að byggja sókn sína á slíkum
málflutningi. Höfn hefir orðið miðstöð handritarann-
óknanna einfaldlega' vegna þess að þar hafa þau verið
geymd um aldir, en ekki í Reykjavík. Ella væri höfuð-
borg íslands miðstöð handritarannsóknanna. Og því
er alveg sleppt að það eru fyrst og fremst íslenzkir
vísindamenn, sem unnið hafa að rannsóknum á hand-
rítunum og útgáfu þeirra í Ámasafni ,en ekki danskir.
Xdlaga prófessors Ross og Berlingske Aftenavis um
að skjóta málinu til Alþjóðadómstólsins í Haag til úr-
uusnar er jafn furðuleg. Sá dómstóll dæmir aðeins í
milliríkjadeilum. Um slíka deilu er ekki hér að ræða.
fsiendingar vefengja ekki lagalegan rétt Dana í málinu,
s'-’o dómstóllinn á hér enga lögsögu. Politiken bendir
réttilega á það í ritstjómargrein fyrir nokkru, að hinir
'lónsku vísindamenn hafi haft þrjú ár til þess að taka
uyndir af handritunum Sá tími ætti að nægja, því
alkunnaer, að við rannsóknir má notast við slíkar mynd
r jafnvel og handritin sjálf. Þess vegna er engin burst
iregin úr nefi dönsku vísindamannanna með afhend-
ngu handritanna. íslendingar treysta því að víðsýni
danska þingsins og dönsku þjóðarinnar verði hér yfir-
«íerkari þröngsýni’ hinna rykföllnu dönsku fræði-
manna.
Sigrún Jónsdóttir með NOVA-tríóinu. Björn Haukdal, Sigurður Guðmundsson og Friðrik Theódórsson
Sigrún heim frá Noregi
Syngur í Þjóðleikhiiskjulluranum
Sigrún Jónsdóttir ar aftur
heima. Hún er að byrja að
syngja aftur fyrir islenzka dans
gesti, f Leikhúskjallaranum, en
undanfarin 4 ár hefur hún ver-
ið í Noregi, sungið þar á
mörgum beztu skemmtistöðun-
um, m. a. á öðrum tveggja næt-
urkiúbba Oslóar, Telle, og á
geysifallegum stað í Frederik-
stad, sem heitir Stabburet, en
um Noreg hefur hún farið mjög
víða.
Fyrir helgina hitti blaðamað-
ur Vísis Sigrúnu að máli í einu
hléinu í Þjóðleikhúskjallar-
anum. „Ég hef ekk; gert neinn
samning um hvað ég verð lengi
hérna,“ sagði hún, „en ég
vona, að ég verði fram á vor
eins og hljómsveitin, en samn-
ingur hljómsvéitarinnar er tH
eins árs. Það hefur verið af-
skaplega ánægjulegt að vinna
með strákunum“.
Sigrún kvaðst kunna afar
vel við sig I Noregi. Hún er gift
norskum þotuflugmanni, Per
Bakke, og nú eru þau búin að
koma sér fyrir á 11. hæð í
Austurbrún 4, með 5 börn
sín, en kvartar yfir -að ibúð-
kver um
„Æskan og skógurinn" er
heitj á mjög'snotrum og fagur
Iega útgefnum leiðbeiningabækl
ingi i skógrækt, sen) Bókaút-
gáfa Menningarsjóðs hefur gef-
ið fyrir unglinga.
Höfundar að þessum bækl-
ingi eru þeir Jón Jósep Jóhann-
esson og Snorri Sigurðsson og
hafa þeir skipt efninu i eftir-
talda meginflokka! Inngangur,
Nám í skólagarði, Starfað að
skógrækt, Til minnis, 'Girðing-
ar Skógrækt, Óvinir skógarins,
Þetta land átt þú.
Megintilgangurinn með þess-
um fallega bæklingi er að vekja
og glæða áhuga ísl. æsku á
skógrækt og síðan að leið
beina þeim um helztu undir-
in sé of h'til og þurfi þau að
fá sér stærri íbúð.
Sigrún hefur komið fram í
sjónvarpi og útvarpi oftlega í
Noregi og unnið sér ágætt nafn
sem söngkona. „En starfið er
mjög þreytandi", sagði Sigrún,
,jekki sízt eins og það var í
Noregi, eilíf ferðalög og flakk.
Þess vegna líkar mér svo vel
Samvinnuskólinn Bifröst var
settur föstudaginn 2. október.
Skólasetningin fór fram í hátíða
sal skólans og hófst fel. 10 ár-
degis. í skólanum verða í vetur
73 nemendur í tveim bekkjar-
deildum, 34 1 fyrsta bekk og 39
í öðrum befek. Engin inntöku-
próf voru haldin á þessu ári,
þar sem svo margir nemendur
skógrækt
stöðuatriði sem nauðsynleg eru
til að plönturnar dafni vel
og eðlilega. Þetta er ekki aðeins
kennslubók og handbók sem
hver gróðurunnandi hefur gagn
af og ætti ,að grípa oft til. Það
er ekki úr vegi að mælast til
þess að þetta bókarkver kom-
ist inn á hvert sveitaheimili og
meiri hluta kaupstaðaheimila á
landinu. Svo holla hugvekju hef
ur það að flytja.
I’ bæklingnum er fjöldi teikn
inga og ljósmynda og er hann
prentaður á vönduðum mynd-
hæfum papplr. Prentsmiðjan
Hólar hefur prentað kverið og
gert það með sérstökum ágæt-
um.
að vera komin heim til Islands
aftur og setjast að á einum
stað“.
1 Leikhúskjallaranum leikur
nýtt tríó undir dansi. Það
nefnist NOVA-tríó, allir hljóð-
færaleikararnir eru þó vanir
leik í þessum salarkynnum, en
hafa aldrei verið saman í
hljómsveit fyrr. Þeir eru: Sig-
urður Guðmundsson, píanó,
Björrt Haukdal, gítar, og Frið-
rik Theódórsson, bassi.
höfðu þegar tryggt sér skóla-
vist á fyrra ári.
Engin breyting verður á föstu
kennaraliði skólans, en við skól
ann starfa 4 fastráðnir kennar
ar auk skólastjóra. Kennsla 1 hag
nýtum verzlunarstörfum verður
aukin verulega á þessum vetri.
Skólastjóri ræddi í setningar
ræðu sinni um breytingar á
fræðslustarfsemi samvinnu-
hreyfingarinnar. Bifröst —
Fræðsludeild, sem staðsett er að
Bifröst I Borgarfirði, mun hér
eftir einvörðungu ná til skóla-
starfsins. Á vegum deildarinnar
eru nú Samvinnuskólinn og
Bréfaskólinn.
Þá vék skólastjóri að verzlun
ar- og viðskiptamenntun í land
inu. Benti hann á, að sú 'mennt
un væri enn algerlega utan
fræðslukerfisins. Stefna bæri að
meiri festu og sundurgreiningu
í verzlunar- og viðskiptamennt
uninni. Til greina kæmi þrí-
skipting í náminu: Verzlunar-
nám gagnfræðastigs, framhalds
deildir viðskiptamenntunar og
slðast verzlunarháskóli. Loks
benti skólastjóri á nauðsyn
þess, að hefja kennslu á öllum
stigum fræðslukerfisins í undir
stöðuatriðum vísinda og tækni.
Væri þetta mikilvægt, svo ekki
myndaðist meira bil milli forns
menningararfs þjóðarinnar og
hinnar nýju tæknimenntunar,
sem alls staðar sækir á og er
óhjákvæmileg í nútíma þjóð-
félagi.
Hugvekja og fræðslu-
Samvinnuskólinn áð
BIFRÖST settur