Vísir - 05.10.1964, Blaðsíða 15
V í SIR . Mánudagur 5. október 1964.
75
1 1
JANE FRASER: Ferðin til TAN DRA-EYJA \
Caroline Fraser var ung
ikozk stúlka Hún hafði verið
skóla í Svisslandi og var að
roma heim, dálítið máiuð, með
háhælaskó og skrýtinn, lítinn
franskán hatt á kollinum, og
mgan af frönsku ilmvatni barst
crá henni, þegar hún steig af
lestinni í Macriarc, brosandi út
andir eyru, þótt ferðin hefði
/erið löng og þreytandi eins og
'erðalög á jámbrautum vana-
ega eru. Hún hafði skipt um
lest bæði í Glasgow og Port-
jnoch og nú hljóp hún í fangið
í foreldrum sínum sem voru
orðnir dálítið óþolinmóðir, encía
nafði lestinni seinkað, og svo
/ar mikil eftirvænting í huga
oeirra, og lálítill beygur, því að
kannski hafði dóttir þeirra tek-
ið breytingum í margra mánaða
fjarveru í öðru landi. Og breyt-
ingur.i hafði hún líka tekið, en
þaar voru á yfirborðinu. Fram-
koman bar að öðru leyti vitni
um, að hún var jafn einlæg og
hlýleg og ávallt áður. Hún fagn
aði þeim af mikilli gleði — og
eins Chuffy, langhærða hundin-
um sínum, sem þekkti Caro-
line undir eins og stakk litla
f’ata nefinu undir höku hennar,
"g litlu augun hans ljómuðu af
"ögnuði og hann dinglaði skott-
inu14/ sífellu af einskærri endur-
fundagleði.
— En hvað það var fallegt
f ykkur að taka hann með ykk
ir. Ég skammast mín fyrir að
segja frá því, en ég var næst-
urn búin að gleyma honum, þang
að til að,heimferð var komið.
Og þá fór ég að hugsa um, að
kannski væri hann búinn að
gleyma mér, þar sem ég hafði
verið að heiman f tfu mánuði
- en svo sannarlega hefir
hann ekki gleymt mér. ,
Þau tóku sér sæti í bílnum
og var nú ekið heim til Altna-
farg House, sem var fremst á
tanga, en milli hans og megin-
landsins var grandi, svo að það
var næstum eins og að búa á
ey að eiga heima þama yzt á
tanganum. í heiðskíru veðri gat
að líta eyjar og sker frá Altna-
farg, og fagurt yfir eyjamar að
líta — það var eins og að hafa
fagurt japanskt málverk fyrir
augum, en það var öðru máli að
gegna þegar þokuna lagði inn
yfir eyjamar og skerin frá haf-
inu, og allt huldist eins og grárri
móðu. Og svo kom títt rigning
í kjölfar þokunnar.
Á heimili Caroline hafði ekk-
ert tekið breytingum þá tíu mán
uði, sem hún hafð verið að
heiman. Henni fannst hvert her-
bergi þar hafa sína eigin angan
— af viðnum, sem brennt var
í aminum — það var í setustof-
unni, af bókum, rósum, mat —
og melkúlum. Susie, gamla tíkin
hans föður hennar, lá fram á
lappir sínar við dymar, og
nennti ekki að hreyfa sig, en hún
þekkti líka Caroline, og dinglaði
svolítið skottinu og ætlaði að
láfa það duga, en kom þó út
í garðinn til þeirra, þegar pabbi
Caroline kallaði á hana.
Caroline lagði leið sína fram
í eldhús, þar sem Mary, elda-
buskan, var að setja súpupott
á eldavélina. Hún sagði, að „ung
frúin“ yrði að fara upp og sjá
hvort henni fyndist vel frá öllu
gengið í herberginu sínu, og það
kom líka í ljós, að þar var allt
tandurhreint, eins og „stórhrein
gerning" hefði farið fram.
Gluggatjöldin voru nýþvegin,
gólfið bónað, spegillinn fægður
og hvergi rykkom.. Caroline leit
sem snöggvast á sjálfa sig í
speglinum, sólbrennda af fjalla-
sólinni í Sviss, jog kastaði hatt-
inum á rúmið sitt, en Chuffy
stökk upp á rúmið og beið í
eftirvæntingu að sjá hvað næst
mundi gerast, en hún settist
bara hjá honum og lagði vanga
sinn að kolli hans. Og inn um
opinn gluggann barst angan af
heyi ..
Næsta morgun vaknaði Caro-
line snemma og átti það vafa-
laust sinn þátt í því að það
var glaða sólskin, logn og hiti,
og um nóttina hafði Chuffy stol
izt upp úr körfunni sinni, og
húnvaknaðivið það að hann var
að ýta við henni. Hann hafði
nefnilega hreiðrað um sig í
öðrum handarkrika hennar og
var farinn að ýta. við henni með
kollinum — vilcrl komast út.
Caroline langaði mest til að
lúra dálítið lengur, en sólskinið
sigraði - og Chuffy.
Caroline var fljót að klæða
sig, fór í rautt pils og hvíta ny
lonblússu, sem hún hafði keypt
í Lausanne, og smeygði sér í
létta, lághæla skó, og svo hljóp
hún niður. Dymar stóðu opnar
og við blasti haf og strönd og
hún bæði heyrði og fann á lykt-
inni, að Mary var búin að setja
flesksneiðar á pönnuna. Hún
Iagði leið sína í eldhúsið og
spurði Mary frétta úr sveitinni,
en Chuffy hljóp út í garðinn.
Já. Það var nú svo sem ekki
mikið að frétta, sagði Mary ...
frú Mclntosh átti von á sér enn
einu sinni. Og Mora var komin
til/Glasgow og komin í vinnu.
Mary sagðist nú ekki skilja
hvaða starf það gæti verið,
stelpan væri bara sextán ára.
- Henni er óhætt, sagði Caro
line. Það er dugur í henni. En
hvað er að frétta af Duncan
gamla?
— Hann er nú búinn að taka
nýtt starf í ellinni. Hann fór til
Tandra-eyjar í vor og gætir fjár
ins fjnir herra Hutchinson. Hann
hefir verið að fjölga fénu.
Bryan Hutchinson rekur þá
enn bú þarna á eynni?
— Auðvitað gerir hann þaði.
Ég gæti bezt trúað, að þar verði
hann alla sína daga.
— Og er hann enn — einn?
-Hann réð Arthur til sín sem
eins konar ráðsmann, en Art-
hur gekk I það heilaga fyrir miss
eri með stúlku frá Macriach, og
þau hafa garðyrkjumannsbústað
inn, eins og kofinn var kallaður,
þegar ég var þar. O-jæja, svo að
ekki getur maður sagt, að herra
Hutchinson sé einn, en ég skil
aldrei almennilega I því, að mað
ur á hans aldri skuli geta unað
á Tandra, þar sem ekki er einu
sinni slmi. En hver sinn smekk,
eins og sagt er
— Nú, en hann kemur til bæj
arins endram og eins, sagði Caro
line, og þá hittir hann fólk, nú,
og svo hefir hann Duncan, og
Arthur og konuna hans að
spjalla við.
— O-jú, hann kemur I kaup-
staðinn, ef hann vanhagar um
eitthvað. En ég held nú fyrir
mitt Ieyti, að hann sé manna-
fæla ... ■
— Mig langar I glóðarbakað
brauð, Mary, sagði Caroline,
sem nú þótti ráðlegast að
sveigja umræðuefnið að öðm.
Ég hefi ekki bragðað það síðan
ég fór að heiman fjrrir tíu mán-
uðum 1 Sviss fær maður alltaf
franskbrauð og brauðsnúða með
kaffinu á morgnana, aldrei flesk
og egg.
- Þessu get ég trúað, sagði
Mary I nöldurstón, ég hefi líka
aldrei skilið eftir hverju væri að
slægjast, að vera að flækjast
til útlanda ...
Að morgunverði loknum ók
faðir hennar upp I hálöndin, til
heimsóknar I eitt af fjárbúum
sínum, og móðir hennar ætlaði
I kaupstaðinn I vörubílnum til
innkaupa og sækja nokkur úr-
vals hænsni, sem hún átti von
á I hænsnabúið. Caroline stóð
auðvitað til boða, að fara hvort
heldur hún vildi með föður sín-
um eða móður, en afþakkaði það
og fór I göngu til strandar og
fór með Chuffy á hælum sér
eftir vegi, sem furutré uxu við
beggja vegna. Svo gekk húr eft
ir sendinni fjöru allt að kletta-
belti, sem skagaði I sjó fram.
Þaðan lagði hún aftur leið sfnn
!upp á veginn, sem lá meðfram
ströndinni ofar klettabeltum og
sandfjörum. Fyrst I stað voru
aðeins hús á stangli I nánd við
jveginn, en svo varð skemmra
jmilli húsa, er nær dró bænum.
|Er þangað kom, rakst Caroline
! á marga gamla, góða kunningja.
i Það var nú í rauninni varla hægt
að segja, að þetta væri bær,
fískimannaþorp væri réttara
heiti, þótt þama ættu líka
heima nokkrir handverksmenn
og vinnumenn, sem unnu hjá
bændum I grenndinni. Caroline
hafði dvalizt öll sín bemsku
og unglingsár á þessum slóðum
og því engin furða, að hún
þekkti marga.
AVWAV.V.V/.'.V.-.W.'.V.
■: oon- og
FIÐURHREINSUN
Vatnsstfg 3 . Slnú 18740
I
SÆNGUR
REST BEZT-koddar.
Endumýjum gömlu
sængumar, eigum
dún- og fiðurheld vet,
Seljum æðardúns- og
gæsadúnssængur —
og kodda af ýmsum
stærðum.
5
i
w.v.v.v.v
T
A
R
Z
A
N
SO, ,M,Y0U MURPERE7 VOUR.
THIS 6AS COMTAINS WHAT THE OfAkfZ
BROTHEKS SIT/ WITH THBRG0L7... SMOKE-
7RIE7 HUMAM HAN7S. AN7 HERES THE
RA710 C07E B00< THAT LINRS THEM “
TVITH THE TERRORISTS THEY VOfX FOtí
...WHEHIFR07UCE THE EVI7EWCE ICAME
HERE T0 GET! AN7 I’VE A W1TNESS
—r NOW: VOU! —=*.
k PASSENSER.-T05TEAL HIS
COPYOF THIS SAFE'S COMBINATION!
WOAFRICAFfcOURT'S
60INS TO CONVICT
► ME,TARZAN,OF "
MUR7ER 0R1HEFT...
Únitcd Fcatura
Svo að þú mjrtir farþega þhm enginn dómstóll daema mig fyrir Og nú hef ég vitni. Þig. 1 þess- mannshendur. Og hér er dulmáls
U #8 stóa eintaki hans af tootÖ þegftt ég sýni þeim sönn- um pokum er það sem Omar- lykillinn, sem þeir nota sln á milli
„lykll" peningaskápslns. Það nran nndargBgrito Bem ég er að sækja. bræðumir verzla með. Þurrkaðar
Tek hárlitun. Clairol, we’Ja og
klainol litir. Vinn frá kl. 1-5 á
hárgreiðslustofunni.
Perla Vitastig 18A. Slmi 1414S.
Mtnna Breiðfjörð
Hárgreiðslustofan PERMA
Garðsenda 21, stmi 33968
Hárgreiðslustofa ólafar Bjöms
dóttur.
HATÚNI 6, slmi 15493.
Hárgreiðslustofan
PIROL
Grettisgötu 31 slmi 14787.
Hárgreiðslustofa
VESTURBÆJAR
Grenimel 9. sfmi 19218,
Hárgreiðslustofa
AUSTURBÆJAR
(Marla Guðmundsdóttir)
Laugaveg 13, simi 14656.
Nuddstofa á sama stað
Hárgrelðslu- og snyrtistofa
STEINU og DÓDÓ
Laugaveg 18 3. hæð flyfta)
Slml 24616____________________
Dömuhárgreiðsla við allra hæf!
TJARNARSTOFAN
Tjamargötu II. Vonarstrætls-
megin, slmi 14662_____________
Hárgreiðslustofan Ásgarði 22.
Stmi 35610.
Hárgreiðsíustofan
VENUS
Grundarstig 2a
Simi 21777.
¥1
22997 • Grettisgötu 62 ST
BÍLA QG
BÚVÉLA
SALAN
v/Miklatorg
Sími 2 3136