Vísir - 05.10.1964, Page 16
m. f MS m ' Jgs
Mánudagur 5. október 1964.
Eina konan í heiminum sem kann að
lagfæra handrit
— segja Danir
I Árna Magnússonar stofnun-
inni, í einu herbergi 1 svoköll-
uðum Proviantgaard vinnur
kona ein að nafni Birgitte Dall.
Hún starfar að því að bæta
handrit, lagfæra skemmdir á
þeím. Danir halda þvl fram,
að hún sá eina konan í heim-
inum sem kunni þetta nákvæma
fag til hlítar. Þess vegna segja
andstæðingar handritaafhend-
ingar: — Það er ekki hægt að
afhenda fslendingum handritin,
þeir eiga enga Birgittu Dall. ■
Hún fær til meðferðar á
hverju ári ríkisframlag að upp-
hæð 25 þúsund danskar krón-
ur, — 150 þús. ísl. krónur. Fyr-
ir það verður hún að ráða bók-
bindarasvein, bókbindaralær-
ling og aðstoðarstúlku og vinna
að þeim verkefnum, sem fyrir
liggja, en það er að bæta
skemmdir sem finnast á þeim
2600 handritum, sem finnast i
Árna Magnússonar safni og
gera það svo, að handritin bíði
Framh. á bls. 6.
Birgitte Dall að viðgerðarstörfum í vinnustofu sinni.
Jón Helgnson um hnndritins
íslendmgar fái h andritin
strax ogljósmyndun erlokið
— ef afhendingunni verður nú frestuð
Kaupmannahafnarblaðið Informa
tion birti á Iaugardaginn viðtal
við prófessor Jón Helgason, yfir-
mann Árnasafns. Biaðið spyr pró-
fessor Jón að því hver framtíð
Árnasafns myndi verða ef afhend-
ing handritanna yrði á ný sam-
þykkt i danska þinginu.
Jón gefur þau svör að eftir sem
áður yrði unnt að vinna þar
að vísindalegum rannsóknum á
handritunum, m. a. vegna þeirra
ljósprentana sem þegar eru til þar.
En verði afhendingunni frestað,
segir Jón, munum við gera þá
kröfu, að öll handritin verði ljós-
mynduð áður en þau fara úr landi.
Hægt væri að framkvæma þetta,
segir prófessor Jón, með þvi að
afhenda handritin smátt og smátt,
eða jafnóðum og þau hafa verið
ljósprentuð. Ég er þeirrar skoðun-
ar, segir hann, að íslendingar muni
ganga að þeim kjörum. Afhending-
in hefir hvort sem er beðið svo
lengi að það munar ekki um nokk-
ur ár i viðbót.
1 viðtalinu kemur fram að vinna
við ljósmyndun handritanna til
^wwv/wwwwwwvw\
Dr. Bjami Benediktsson.
Forsætisrúðherru tulur
ú Fuiltrúurúðsfundi
Næstkomandi þríðjudagskvöld 6. okt. verður J
fundur í Fulltrúaráði Sjálfstæðisfélaganna í Reykja \
vík og hefst hann kl. 8,30. Frummælandi verður dr. |
Bjami Benediktsson, forsætisráðherra. Þetta er!
fyrsti fundur Fulltrúaráðsins á þessu hausti og em!
fulltrúaráðsmeðlimir hvattir til þess að fjölmenna á!
fundinn. Sýna þarf skírteini við innganginn.
ljósprentunargerðar hófst fyrir
rúmum tveimur árum, en þá var
fastráðinn ljósmyndari til starfa
við safnið. Information spyr hvort
unnt sé að flýta þeirri vinnu, ef
afhendingin verði samþykkt. Því
svarar Jón Helgason, að sé unnt
en þá verði safnið að fá meiri
fjárráð og það sem ailra fyrst.
Annars megi reikna með að ljós-
myndunin taki 10—15 ár í viðbót.
Boruð uð
Luugulundi
Unnið að því að setja Norð-
urlandsborinn upp að Lauga-
landi í Hörgárdai og verður
lega þessa dagana og verður þá i
lega eftir helgina og verður þá \
Framh. á bls. 6. j
-------------------«>
930 stúdentar í há-
skólanum í vetur
Mest aukning í læknadeild
Við háskólann eru skráðir alls
930 stúdentar í vetur, er það
nokkuð hærri tala en áður. í fyrra
voru skráðir 300 nýstúdentar en
325 núna.
Nýstúdentar skiptast sem hér
segir f deildir: guðfræði 3, læknis-
fræði 53, lyfjafræði 8, lögfræði 33,
viðskiptafræði 35, íslenzk fræði
15, B.A. 90, forspjallsvísindi 48,
íslenzka fyrir útlendinga 13, verk-
fræði 20, tannlækningar 8.
Hlutfallsleg aukning innan deild-
anna er svipuð og áður, nema í
Iæknisfræði, þar hefur orðið veru-
leg hlutfallsleg aukning frá því
í fyrra. Er tala stúdenta þar sú
hæsta, sem hefur orðið sfðan 1958,
er reglugerðinni var breytt.
Sennilega er bíllinn stórskemmdur eftir veltuna.
Brivelta25-30m. íKoria-
fírði og þrír menn slasast
Klukkan langt gengin 4 e.h. í
gær var lögreglunni í Reykjavík
tilkynnt um umferðarslys, sem
orðið hefði í Kleifunum i KoIIafirði
og myndu sennilega hafa orðið
mikil meiðsli á mönnum.
Lögregla úr Reykjavík og Hafn-
arfirðj ásamt sjúkraliði fór á stað
inn. En þarna hafði bíll oltið út
af veginum og 25-30 metra niður
bratta brekku. Bifreiðin, sem um
var að ræða var með skrásetningar
merkið R-11726 $g var á leið til
Reykjavíkur. í Kleifabrekkunni
á að gizka 200 metra fyrir vestan
brúna á Mógilsá missti ökumaður
stjórn á farartækinu, þannig að
bifreiðin lenti fram af, á að gizka
þriggja metra hárri vegbrún, enda-
stakkst fram af henni og fór
margar veltur niður brekkuna, unz
hún staðnæmdist 25-30 metra fyr-
ir neðan veg, stórskemmd orðin,
enda óökuhæf með öllu og varð
að fá bíl frá Vöku til að sækja
hana og flytja til Reykjavíkur.
f bifreiðinni voru þrir menn,
sem allir slösuðust meira eða
minna og einn þeirra var fluttur
á sjúkrahús að athugun lokinni
í Slysavarðstofunni. Hann heitir
Þorsteinn Gíslason Hagamel 22.
Hann hafði handleggsbrotnað, auk
annarra meiðsla. Annar úr hópi
þeirra þremenninga, Sigurður Jóns
Framh. á bls. 6.
u