Vísir - 19.12.1964, Blaðsíða 7
V1S IR . Laugardagur 19. desember 1964
7
Bækurnar eru komnar
Félagsmenn í Reykjavík eru vinsamlega beðnir að vitja bóka sinna í afgreiðsluna, Hverfisgötu 21. Bóka-
menn: Það borgar sig að gerast félagi í Bókaútgáfu Menningarsjóðs og njóta vildarkjara um bókaverð,
Andvari flytur nú ævisögu Önnu Borg leikkonu og Almanak, yfirlit um þróun rafveitumála á Isiandi,
Að þessu sinni gefur Bókaútgáfa Menningarsjóðs út
eftirtaldar bækur:
1. Steingrímur Thorsteinsson, ævisaga, eftir Hannes
Pétursson. Falleg og mjög vel skrifuð bók, prýdd
mörgum myndum. Um 300 bls. í stóru broti. Hefur
verið sérstaklega til útgáfunnar vandað.
2. Rómaveldi, síðara bindi, eftir Will Durant, Jónas
Kristjánsson cand. mag. þýddi. Fyrra bindi þessa
verks kom út á síðasta ári ,og hlaut þá afbragðs dóma.
3. Með huga og hamri, jarðfræðidagbækur Jakobs H.
Líndals, bónda og jarðfræðings á Lækjarmóti. Sig-
urður Þórarinsson sá um útgáfuna. Rúmar 400 blað-
síður, prýdd myndum.
4. Saga Marfumyndar, eftir dr. Selmu Jónsdóttir. —
Prýdd mörgum myndum. Upplag er mjög lítið .
5. Sigtryggur Guðlaugsson á Núpi, ævisaga eftir Halldór
Kristjánsson, Kirkjubóli.
6. I skugga valsins, skáldsaga eftir Þórunni Elfu Magnús
dóttur.
7. Örn Arnarson, (Magnús Stefánsson, skáld), eftir
Kristin Ólafsson.
8. Leiðin tii skáldskapar, um sögu Gunnars Gunn-
arssonar, eftir Sigurjón Björnsson.
9. Syndin og fleiri sögur, eftir Martin A. Hansen Sigurð-
ur Guðmundsson þýddi.
10. Mýs og menn ,eftir John Steinbeck, Ólafur Jóh, Sig-
urðsson þýddi.
11. Raddir morgunsins, ný ljóðabók eftir Gunnar Dal. 120
blaðsíður. Upplag er lítið.
12. Ævintýraleikir, 3. hefti eftir Ragnheiði Jónsdóttur.
Hofstaða-María?
Steingrímur Thorsteinsson,
JÓLIN BJÓÐA
ELDI HEIM
Gerið því allt, sem í yðar valdi stendur, til að verjast þeim vágesti
Látið pappírsumbúðir ekki safnast saman. Komið þeim út, annað
hvort með því að brenna þeim í miðstöðvarkatlinum, eða hendið
þeim í öskutunnuna.
Leyfið ekki reykingar nálægt jólatrénu, pappírsskrauti eða papp-
írsumbúðum. Hafið nóg af góðum og stórum öskubökkum alls
staðar í íbúðinni og notið þá óspart. Geymið eldspýtur þar sem
litlar hendur ná ekki til þeirra.
Gerið áætlun um hvað þér eigið að gera ef eldur brýzt út. Hafið
handslökkvitæki við höndina — og í Iagi — vatnsfötu eða
jafnvel garðslöngu tengda við vatnskrana nálægt jólatrénu.
En munið, ef þér getið ekki samstundis slökkt sjálfur, þá kallið
umsvifalaust á slökkviliðið í síma 11100.
Srenn/ð ekki jólagleðina
aa
HUSEIGENDAFELAG
REYKiAVÍKUR