Vísir - 19.12.1964, Blaðsíða 9

Vísir - 19.12.1964, Blaðsíða 9
| VÍSIR . Laugardagur 19. desember 1964 9 X'XfXgXýZ* ' , ' A ♦ ' % jfi A ; FIMMBURARNIR DAFNA VEL Þeir héldu fyrir skömmu upp á eins úrs ufmæli jpimmburarnir frægu, sem fæddust f fyrra í bænum Aberdeen í Norður-Dakota í Bandaríkjunum eru nú orðnir eins árs gamlir. Afmæli þeirra var 14. september. Þá var efnt til mikillar afmælishátíðar, og meðal annars sendu nokkrir aðdáendur þeirra í bænum þeim heljarstóra afmælistertu. Þá var þeim stillt upp til ljós- myndatöku við tertuna og var náttúrlega ætlazt til að þeir sætu v'irðulegir á svip fyrir myndasmiðnum. En þá gekk heldur illa að kenna þeim virðu leika og mannasiði rétt á því augnabliki, til þess var tertan of mikil freisting. Þe'ir teygðu sig stöðugt í tertuna, hvað stranglega sem þeim var sagt að láta hana óhreyfða og grófu litlu finguma í rjómann og kremið og sle'iktu svo puttana. Og Margie litla sem sést lengst til hægri á myndinni Iét ekki þar við s'itja heldur grúfði sig yfir þennan stóra Iostæta bita og vildi helzt geta étið tertuna upp með „húð og hári“. En n okkrum dögum síðar gerðist annar gleð'ilegur atburð- ur í fjölskyldunni. Þó aðeins væri liðið rúmt ár frá fæðingu fimmburanna, gerði mamma þeirra þó betur. Þann 24. sept- ember eignaðist hún eitt barn til viðbótar. Fjórir af fimmbur- unum em telpur og nýja bamið í fjölskyldunni var líka telpa og hefur verið skírð Cynthia. Þar með vom börnin í fjölskyld unni orðin ellefu og má geta nærri að móðirin er önnum kaf in við að sjá um heimilið og ekki er víst að það sé alltaf friðsælt fyrir pabbann, þegar hann kemur þreyttur heim úr vinn- jpaðir þeirra James Fischer tekur þessu þó öllu með frábæru jafnaðargeð'i. Hvað sem allri vinnuþreytu líður er enginn eins óþreytandi við að annast fimmburana. Hann hafði t.d mik'ið að gera í haust. Þá voru þeir komnir á það stig, að þeir vildu óðfúsir fara að ganga eins og fullorðna fólkið. Auðvitað hjálpuðu eldri syst- kinin þeim til, en bezt var það á kvöldin og um helgar, þegar pabbi kom og studdi þá fyrstu sporiri. Það var öruggasti stuðriingurinn. Og fimmburarn- ir kunnu sér ekki læti, hlógu og klöppuðu saman lófunum, þeg- ar þeir fundu að þeir gátu gengið óstuddir. Tj’immburarriir hafa þroskazt mjög fljótt og vel þegar tekið er till'it til þess, að þeir fæddust sjö eða átta vikum fyrir tímann. Þeir voru litlir og viðkvæmir þegar þéir fæddust, menn efuðust um að þeir myndu allir halda Iífi. En læknar og hjúkrunarlið lögðu á sig mikla fyrirhöfn t'il að tryggja það að ekkert gæti komið fyrir. Svo blessaðist þetta alit og nú eru fimmbur- arnir orðriir friskir og kröftug- ir krakkar, og andlegum þroska þeirra fer nú líka óðum fram. Stúlkurnar fjórar heita Mary Madeleine, Mary Catherine, Mary Margarethe og Mary Ann og herrann í hópnum heit- ir James Andrew, en dags dag- lega eru þau kölluð Magg'ie, Cathy, Margie, Mary Ann og Jimmy. Þau eru nú fyrir all- löngu farin að kannast hvert um sig við sitt nafn og þegar þau sitja við matarborðið þekk- ir hver sitt sæti og upphefjast mótmæli og org ef eitthvað ruglast hvar hver á að s'itja. Jafnvel móðirin hefur stundum átt í erfiðleikum með að þekkja þau öll í sundur, því að þau eru svo mörg. Og tvær systurnar eru sérstaklega líkar hvor ann- arri í útliti, þær Maggie og Cathy. En nú er svo komið, að ekk'i þarf annað en að kalla í þær með nafni þá gefur hver sig til kynna. Fimmburarnir eru að byrja að babla og eitt orð hafa þeir lært að þekkja. Það er orðið „Nei“. Foreldrarriir eru stað- ráðnir í að gera þá ekki að nein um eftirlætisbörnum. Annars hafa þeir verið sérstaklega þæg og stillt börn. TXagurinn hjá fimmburunum byrjar um klukkan níu með því að skipta á þeim, baða þá og klæða. Þetta er eins og venjuleg byrjun á degi hvers barns, sem tekur ekki langan tíma. En hér er munurinn sá, að hér eru börnin fimm og raunar orðin sex, svo að þetta er mikið verk fyrir móðurina, heimilið líkist einna helzt með- . alstóru barnaheimili. Má geta nærri að buslugangurinn : er • mikill við morgunbaðið. Svo er það morgunmaturinn. Fá börriin hinn bezta og heilsu- samlegasta mat, lítið eitt af kjöti, og nóg af grænmeti, á- vöxtum og mjólk. Þegar borð- haldinu er lokið, þá er að leggja börnin I vöggu og er þá kominn tími til að útbúa há- degismatinn fyrir eldri börnin og fullorðna fólkið í fjölskyld- unni. Pabbi styður þá fyrstu sporin. Tjegar fimmburarnir fæddust var James Fischer af- greiðslumaðurj J>j verzlun. i. .úri hverfi Abai^e^m Hapnj j^fðjj^g, lauri, ‘ en '3rýgð! þáu' með "bú- skáp. Átti hann svölítlá jörð þarna og meðan han>’ -"r í verzluninni gætti kona _ og barna. Það var þó einn ' ii á þessu, að íbúð fjölskyldunnar var lítill og óviðunandi. l?n þegar fimmburarnir báru frægð litla bæjarins Aber- deen út um heiminn, sáu at- vinnurekendur Fischers sóma sinn í að hækka Iaun hans og Afmælistertan var gómsæt og litlu kútamir hafa ekki neina skeið til að biarga sér. sveitaryfirvöldin gripu til sér- stakra ráðstafana til að útvega þeim betra húsnæði og hjálpa honum til að afla sér lána svo að hann gæti keypt sér betra jarðnæði og byggt sér stórt íbúðarhús, því að ekki veitir ellefu barna fjölskyldu af rúm- góðu húsnæði. Það vildi svo til, að húsameistarinn, sem teiknaði húsið var lika ellefu barna faðir, svo að hann ætti að vita hverjar þarfirnar eru. Þetta hús er miklu stærra og dýrara en Fischer og Iaun hans leyfa, en þar munar mjög mik- ið um drjúgar gjafir sem þeim hjónum og fimmburunum hafa borizt hvaðanæva að. En ofan á önnur störf heimilisföðurins bætist það nú að fylgjast með byggingu nýja íbúðarhússins. Það er um þrjá kílómetra fyrir utan Aberdeen og mun þar gef- ast tækifæri til smábúskapar og garðræktar til að drýgja tekj- urnar. Nógur verður vinnu- krafturinn á þessum bæ, þegar fimmburarnir vaxa upp. Þótt nokkuð sé tekið að lám af gjöfum til fimmburanna tii að lyfta því grettistaki að kom;; upp íbúðarhúsinu, er megninu af gjöfunum komið fyrir í spari sjóði eða fjárfest í öruggum verðbréfum til þess að tryggja það að hægt verði að kosta há- skólamenntun þeirra. P'oreldrarnir vilja forðast að frægðin verði börnunum að fótakefli. Þeir hafna tilboð- um ýmissa fyrirtækja um að mega nota myndir af fimmbur- unum I auglýsingaskyni og það bótti á sínum tíma mjög ó- heppilegt fyrir uppeldi hinna frægu kanadísku Dionne- fimmbura. Það eina sem þau hafa leyft í þessu efni er að fallegar myndir séu teknar af börnunum og góðar greinar krifaðar , > þau til birtingar í tímaritum, en í engu má binda það hreinu auglýsingaskrumi. Framh S bls 13

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.