Vísir - 19.12.1964, Page 15

Vísir - 19.12.1964, Page 15
V1SIR . Laugardagur 19. desember 1964 75 Phyllis Hamblodon: — Jólasaga — ~KHKHKKHHKKKHKHj27ÍHÍ! Engan skugga lagði á jólin Hún varð gripin fáti og hringdi á landssímann og reyndi að ná sambandi við gistihúsið í Liver- pool, en þegar hún loks fékk sam- band, var Lance farinn. Nú fannst henni jólasöngurinn í útvarpinu vera að æra sig. Hún skrúfaði fyrir. Það varð kyrrt — kyrrt og hljótt. Það var enn verra. Hún settist niður í sjálfsfyrirlitn- ingu of vansæl til þess að geta grátið. Hún hlaut að hafa sofnað, því að þegar hún leit á klukkuna, var hún orðin tólf. Og á morgun var jóladagur. Gleðileg jól! Hún fór að hugleiða hvort hún ætti ekki að liggja í rúminu allan daginn — taka inn tvær svefntöfl- ur og bara sofa. En fyrst yrði hún að bera það fram, sem hún var búin að leggja á borðið, setja smurða brauðið inn í ísskápinn, og þar fram eftir götunum. Og þarna voru tvær tómar mjólkurflöskur. Hún þvoði þær. Og svo var sitthvað fleira, sem hún sá að hún gat gert, og hún fór sér hægt, eins og hún þyrfti að gera allt af mestu ná- kvæmni. Hún hafði alltaf verið hreykin af sjálfri sér sem hrein- legri og nákvæmri húsmóður. Hún minntist ömmu sinnar, sem sagði frá hvítskúruðum gólfum, sem voru svo hrein, að maður gat etið af þeim. En hvern mundi langa til þess? Hún brosti ósjálfrátt og svo datt það í hana að fyrst hún gæti brosað, myndi hún vera að ná hug- arjafnvægi aftur. En Lance — Lan- ce einn í gistihúsherbergi? Hugur- inn fló til hans — og til annarra, sem voru til neyddir að vera fjarri sínum á jólunum. Hve erfitt það var fyrir þá. Hún var ekki sú eina, sem varð að vera ein um jólin. Hún ákvað að setja mjólkurflösk urnar við neðsta þrep stigans, svo að mjólkursendillinn gæti tekið þær þar á morgun, nei í dag. Kann ske yrði hún sofandi, þegar hann kæmi. Hún opnaði dyrnar á íbúðinni. Það var engin lyfta í húsinu. Stig- inn var krappur og fremur dimmt honum. Hún læddist niður til bess að vekja ekki litlu gömlu frökenina, hana fröken Minkins, en um leið og hún lagði frá sér flösk- urnar, opnuðust útidyrnar, og það gustaði inn. Inn með gustinum kom Tékki, sem átti heima í húsinu, og það lagði af honum bjórlykt- ina Þetta var dökkleitur, gamall karl. Húsvörðurinn sagði, að hann hefði einhvern tíma verið „doktor", að minnsta kosti setti hann dr. fyrir framan nafnið sitt. Hann hafði líka gefið í skyn, að forðum daga hefði hann ekið um í eigin bíl og verið í miklu áliti. En það var enginn völlur á hon- um í ellinni. Og hann var ekki snyrtilegur, öðru nær. Það vantaði hnapp á frakkann hans og slifsið hans var farið að trosna upp. Hann horfði á Jóhönnu sauðar- legur á svip. — En — er það ekki konan hans Lance — gott kvöld, frú — og gleðileg jól. — Gleðileg jól, herra ... Jóhanna tautaði nafnið, hún vissi ekki hvernig hún átti að bera þetta tékkneska nafn fram. — Ég þakka, sagði hann. Stille Nacht, heilige Nacht — hve fagurt það hljómar, ekki satt. Hann fann víst meir en lítið á sér, skaut fram brjóstkassanum og fór að syngja. Hann hlaut að hafa hreyft sig eitthvað, hugsaði Jó- han'na, þótt hún hefði ekki tekið eftir því, að minnsta kosti hreyft fæturna, því að mjólkurflöskumar ultu allt í einu um koll og runnu eins og keilur. Og hávaðinn hafði þau áhrif, að fröken Minkins kom út úr íbúð sinni á annarri hæð. Hún var orðin allvisin, gulleit í andliti og hárið orðið grátt og þurrt, en nú var hún syfjuleg og enn ellilegri en vanalega, klædd rauðum morgunkjól, sem sennilega var erfðagripur. — Hvað gengur á? — Herra ... velti mjólkurflösk- unum. — Og þér eruð að syngja Stille Nacht, Bratzek, sagði hún svo hvasst, að það vakti furðu J6- hönnu, Komið yður í háttinn, mað- ur sæll. — Gott ráð, náðuga fröken, gott ráð. Hann var búinn að fiska lykilinn upp úr vasa síum og var að bisa við að stinga honum í skráargatið á herbergi sínu, en fórst það svo óhönduglega, að fröken Minkins kom og opnaði fyrir hann og kveikti ljósið. — Gerið þér svo vel, sagði hún. — Ðanke schön, sagði Tékkinn (þakka yður fyrir). Hann kom sér inn og lokaði á eftir sér. Jóhönnu til nokkurrar undrunar brosti fröken Minkins hlýlega. — — Ég átti bræður sjálf, sagði hún næstum í afsökunartón. Og vitanlega verður maður að hafa hugfast, að á jólunum streyma minningarnar fram í hugum gam- alla einstæðinga. Og hann er bara, — svolítið hýr, finnur agnar ögn á sér. Góða nótt, frú Lance. — Góða nótt, fröken Minkins. Leitt, að þér skylduð vakna. — Gerði ekkert til. Hún fór inn til sín og Jóhanna fór upp og inn í íbúð sína, hreina, notalega. Þar var ekkert, sem minnti á þessar tvær gömlu, skrítnu manneskjur. Hún hætti við að taka svefntöflurnar, því að svo furðu- legt sem það var, var svefninn farinn að sækja á hana. Hún hátt- aði. Rúmið varð strax hlýtt og hún sofnaði fljótt og hún var að hugsa um það, að í samanburði við aðra Ibúa hússins, væri nún víst furðu heppin Hún vaknaði við það, að sólin skein inn um gluggann beint í and lit hennar. Hún ákvað að liggja smástund í rúminu áður en hún færi fram og fengi sér kaffisopa. Og svo fór hún að hugsa um, að þokunni hafði létt og sólin skein. Fráleitt nein þoka yfir Merseyós- um nú. Hún spratt á fætur. Mjólkursend- ’illinn hlaut að vera kominn með mjólkina. Hún fór í morgunsloppinn og fór niður eftir mjólkinni. Og þeg- ar hún kom niður í þetta skipti var það fröken Minkins, sem var að koma inn, klædd gömlu, slitnu káp- m _ NÝ BÓK — f. r, , . Eg tlaug fynr ■ * '. * foringjann 8jr*r. Þetta er frásögn Heinz Knoke flugliðsforingja af hinum ógnvekj- WMMSk 1 andi átökum loftherjanna f síðari 7 , f heimsstyrjöld. Frásögnin er Iitrik og spennandi, og hún gefur skýra mynd af and- •JgL v'"' .JV* anum, sem rikti í röðum þýzkra • i "• ‘ ^ ifr | flugmanna, þar eð hún var færð f letur jafnóðum og atburðimir ' 't - Zm 2" " H gerðust Þessa bók leggur enginn frá sér ” *r ^' m ólesna. ’ ' »»*. v W ; ' ▼ Bókaútgáfan FÍFILL. Höfundurinn lengst til vinstri oasssKisftfia;.' Fyrstu sjúklingarnir komnir til menn af Uru-Uru ættflokknum, þess að finna okkur. Fjórir inn- segir Tshulu, faðir minn hjálpaði fæddir og það vantar á þá hægri ættkvísl þeirra mörgum sinnum.' höndina, segir Tarzan. Þetta er Vedkomnir Uru-menn. Tshulu sonur Uli-höfðingja Bula-lands . ins, okkur var sagt að þú værir hérna. Hinir illu, sem sviptu þig hendinni særðu einnig Tarzan vin minn. Hann var að dauða kom- inn. Komið og hittið hann og.við hjálpum hverjir öðrum eins og vinur vini, segir Tshulu. W-Sffilk Hárgreiðslu- og snyrtistofa STEINU og DÓDÓ Laugaveg 18 3. hæð flyfta) StmS 246X6 Hárgreiðslustofan PERMA Garðsenda 21, slmi 33968 Hárgreiðslustofa Ólafar Björns dóttur. HÁTÚNI 6, slmi 15493. Hárgreiðslustofan PIROL Grettisgötu 31 slmi 14787. Hárgreiðslustofa VESTURBÆJAR Grenimel 9, simi 19218, , Hárgreiðslustofa AUSTURBÆJAR ^ (Marla Guðmundsdóttir) ) Laugaveg 13, sími 14656. I Nuddstofa ð sama stað ______ | Dömuhárgreiðsla við allra hæfl' |TJARNARSTOFAN Tjarnargötu 11. Vonarstræös- I megin, slmi 14662____________ l Hárgreiðslustofan Ásgarði 22. Simi 35610. ÁSTHILDUR KÆRNESTEDh GUÐLEIF SVEINSDÓTTIR SIMI 12614 HÁALEITISBRAUT 20 VENUS Grundarstlg 2a Simi 21777. Hárgreiðslustofan Soi vallagötu ?2 Sími 18615 VAV.*. .v.-.v/.v.v. SÆNGUR REST-BEZT-koddar Endurnýjum gömlu sængumar, eigiun dún- og fiðurheld ver. Seljum æðardúns- og gæsadúnssængur — og kodda af ýmsum stærðum. DtJN- OG FIÐURHREIN SUN Vatnsstig 3 Sími 18740. ,v.v. ’.V.V.V

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.