Vísir - 23.12.1964, Síða 13
VlSIR . Miðvikudagur 23. desember 1964.
13
Á sjúkrahúsi -
Framhald af bls. 5.
um af nýjum sjúklingum. Nú
liðu dagarnir hver öðrum lík’ir,
þar til sjötta janúar eða á
þrettánda, að Ólafur Magnús-
son, húsvörður, kom með tvær
litfilmur um kvöldið. Vakti það
mikla ánægju. Næstu daga fóru
að sjást sjúklingar á göngunum,
sem ekki höfðu haft fótavist
vikum saman, og er það alltaf
gleð'iefni.
Að lokum vil ég færa lækn-
um, hjúkrunarkonum og starfs-
fólki öllu mínar innilegustu
þakkir fyrir veitta hjálp og alúð
alla. Ég vil einnig færa þakk’ir
þeim mönnum, sem voru braut-
ryðjendur þeirra menningar-
framfara, sem er Sjúkrasamlag
ið og Tryggingarstofnun rík'is-
ins. Okkur er tamt að tauta og
nöldra sí og æ, vegna þeirra
skatta, sem á okkur eru lagðir,
en gleymum hins vegar oftar að
virða það að verðleikum, sem
vel er gert og meta það sem
v'ið fáum fyrir skattpeninginn.
Greiðum því gjöld okkar til
Sjúkrasamlagsins og Trygging-
arstofnunarinnar með glöðu
geði, því þau gjöld fáum við
margendurgoldin.
Sigrún Gísiadóttir.
Borði —
Framh. af bls. 16
sigldi á Barða í svartaþoku og nátt
myrkri. Gekk stefni þess inn i bak
borðshlið Barða 2-3 m. fyrir fram
an brúarhornin og kom þar
þriggja metra löng rifa. Þá er
frammastrið laskað og nokkrar
skemmdir urðu á siglingatækjum
og brú. Lestarnar fylltust af sjó
á svipstundu en dráttarbátar komu
á vettvang og komu honum í þurr
kví til viðgerðar.
Fjárlögin —
Framhald af bls. 1
Af A-lista Sigurður Bjamason,
Magnús Jónsson og Sigurður
Ingimundarson, af B-lista Ólaf
ur Jóhannesson og Ásgeir
Bjarnason Varafulltrúar voru
kjömir þeir Matthías Á Mat-
hiesen, Ölafur Björnsson, Birg
ir Finnsson, Helgi Bergs og Jón
Skaftason.
Á þessum sama fundi var kos
, in 7 manna nefnd til að úthluta
listamannalaunum og vom þess
ir kjömir: Af A-lista Sigurður
Bjarnason, Bjartmar Guðmunds
son, Þórir Kr. Þórðarson og
Helgi Sæmundsson. Af B-lista
Halldór Kristjánsson og Andrés
Kristjánsson og af C-lista Ein
ar Laxness.
í fundarlok kvaddi þingfor
seti, Birgir Finnsson, þingmenn
óskaði þeim gleðilegra jóla og
bað þess, að þeir mættu heilir
hittast á nýju ári.
Eysteinn Jónsson þakkaði for
seta, óskaði honum og fjöl-
skyldu hans gleðilegra jóla og
farsæls nýs árs og tóku þing
menn undir það, með þvl að rísa
úr sætum.
Ifmferð —
Framhald af bls. 16.
gætni I umferðinni og gang
andi vegfarendur tefji sem
minnst fyrir umferðinni með því
að fara yfir götur aðeins þar
sem merktar gangbrautir em.
Á morgun má búast við mik
illi umferð um Miklatorg og
em það tilmæli lögreglunnnar,
að ökumenn athugi að raða öku
tækjum sínum á báðar akreinar
þannig að „nýting“ þeirra verði
meiri t.d geta þeir ökumenn
sem koma Hringbraut að vest
an og ætla inn Mikiubraut far
ið hvora akrein sem er. —
Vegna hinnar miklu umferðar I
Gleðileg jóll
r
Kambskjör
Kambsvegi 18
dag ætti það að vera aðalregl
an hjá fólki, sem fer i verzlunar
ferð I miðbæinn á bíl, að finna
gott bílastæði ganga þar vel
frá bílnum og ganga síðan
milli verzlana.
Miðunarstöð —
Framh. at b!s. 16
notuð I sambandi við loftnetið,
heldur er það útbúið með sér-
stöku lagi, sem gerir þetta kleift.
Það byggist á sameiginlegum
áhrifum rafsviðs og segulsviðs,
en það er flókið mál að skýra
út.
— Þessi aðferð hefur mest
gildi fyrir færanlegar hlustunar-
stöðvar, einkum þær sem gang-
andi menn bera. Það byggist á
því, hversu fljótvirk hún er og
hvað hún nær veikum sending-
um. Hins vegar er hún ekki eins
nákvæm og gamla aðferðin, og
getur það oft verið galli. Svo
virkar hún ekki á Iangbylgjum
og neðri hluta miðbylgja. Hún
er mjög viðkvæm og erfitt að
nota hana um borð I skipum,
þar sem mikið er af málmi og
tækjum, en hún virkaði aftur á
móti I tréskipum. Hún ætti að
geta náð betur en aðrar aðferðir
úr landi neyðarsendingum litilla
og veikra talstöðva I gúmbát-
um.
— Ég veit ekki til þess að
þessi aðferð sé notuð neins stað
ar. Þegar ég fann hana, fór ég
að rifja upp fagbækurnar og
leita I ýmsum nýjum bókum, en
hvergi var minnzt á hana. Ég
settist þá niður við að semja
þessa greinargerð, en þar eru
mjög ýtarlegar skýringar á raf-
magnsfræðilögmálunum, sem
þessi aðferð byggist á. Ég reikna
með, að þær komi fyrst fram
I úrdrætti, sem ég geri úr grein
argerðinni fyrir fund I Raf-
magnsverkfræðingafélaginu. Svo
má búast við því, að ég sæki
um einkaleyfi á þessari aðferð.
— Útbúnaður við þessa að-
ferð er mun einfaldari en við>
gömlu aðferðina og það er eig-i
inlega skrítið, að engumr-ákuli;
hafa dottið þetta I hug áður,
sagði Carl að lokum.
Gjafabók AB
Gjafabók Almenna bókafélagsins
í ár, sem verður Kvæðakver Egils
Skallagrímssonar, verður ekki til-
búin fyrir jól vegna ófyrirsjáan-
Iegra tafa I bókbandi. Hins vegar
verður hún tilbúin milli jóla og
nýárs.
Heildarútgáfa
Ijóða Einars
Benediktssonar
Út er nýlega komið kvæða-
safn Einars Benediktssonar I til-
efni af aldarafmæl'i skáldsins.
Er það útgáfufélagið Bragi, sem
stendur að baki þessu nýja vand
aða heildarsafni kvæða Einars.
Eru hér endurprentuð kvæða-
söfn Einars Benediktssonar, en
auk þess eru I bókinni þýðing
hans á Pétri Gaut og ljóðaþýð-
ingar úr erlendum málum.
Er mikill fengur að því að fá
ljóð Einars Benediktssonar öll
prentuð I einni bók. Prófessor
Sigurður Nordal ritar ítarlegan
formála um Einar og skáldskap
hans. Pétur Sigurðsson háskóla-
ritari bjó bók'ina til prentunar.
Ritar hann einnig eftirmála að
safninu. .
Þetta er önnur heildarútgáfan
af ljóðum E'inars Benediktsson-
ar, en sú fyrri kom út 1945.
Þessi nýja útgáfa er um 800
Einar Benediktsson
blaðsíður að stærð og er bókin
öll hin vandaðasta að ytri gerð.
Sprenging / Coca
Cola verksmiBju
^'^‘'Sþrengtng varð í gær i verk-
' smíj5junni Vlfilfelli, bar sem hið
' kunna Cóca-Cola er framleitt.
Ekki varð slys á mönnum og
framleiðslan tefst lítið af þess-
um sökum. Hins vegar urðu
nokkrar skemmdir innanhúss og
rúður brotnuðu i húsinu.
Það var skömmu eftir hádegi
I gær, sem sprengingin varð í
katli. Upptökin eru talin vera
þau, að einhver bilun muni hafa
orðið í rafmagnskerfinu, þannig
að gas náði að myndast, þannig
að úr varð allmikil sprenging.
Sem betur fór var enginn nálægt
katlinum. Fjórar rúður.á neðri
hæðinni brotnuðu og nokkrar á
efri hæðinni sprungu. Þá munu
einnig hafa orðið lítilsháttar
skemmdir á bíl, sem stóð fyrir
utan.
Þessa dagana er geysilega
mikið að gera við framleiðslu
á Coca-Cola og er því hver
klukkustund fyrirtækinu dýr-
mæt. Skömmu eftir að spreng-
ingin varð, var farið að vinna
við að lagfæra skemmdirnar og
koma verksmiðjunni I gang aft
ur, og var búizt við að því verki
lyki nú I morgun.
þ i n g s j á V í s i
i s
þingsjá V i s í s
þingsjá Vísis
Fjárlög 1965 — Kosið í bankaráð o.fl.
1 gær var seinasti fundur sam-
einaðs þings fyrir jólaleyfi. For-
sætisráðherra, Bjami Benedikts-
son, mælti fyrir þáltill. um frest-
un á fundum Alþingis, allt til 1.
febrúar, en þó sé þingið kallað
saman fyrr ef þurfa þykir. •
Þá voru fjáraukalög fyrir 1963
afgreidd sem lög frá Alþingi. Síð-
an fór fram atkvæðagreiðsla um
fjárlög fyrir næsta ár og þá var
kosið í bankaráð o. fl. Að lokum
óskaði þingforseti, Birgir Finns-
son, þingmönnum gleðilegra jóla
og að þeir mættu heilir hittast á
nýju ári og Eysteinn Jónsson
þakkaði forseta af hálfu þing-
manna.
FJÁRLÖG 1965
Fjárlög fyrir næsta ár voru af-
greidd sem lög frá Alþingi á þess-
um fundi. Fjárveitinganefnd bar
fram nokkrar breytingartillögur
Við frv. við þessa umræðu og
voru tillögur stjómarandstæðinga
og einstakra þingmanna flestar
felldar nema till. frá Benedikt
Gröndal o. fl. um að veita 100.000
til undirbúnings bilferju á Hval-
firði, till. frá Gísla Guðmunds-
syni o. fl. um að hækka styrk
rímnafélagsins til útgáfustarfsemi,
svo og till. frá Sigurvin Einars-
syni um fjárframlag til að reisa
minnismerki um Jón Thoroddsen
á Reykhólum.
Niðurstöðutölur fjárlaga eru eft
ir breytingar I meðförum Alþing-
is þessar samkv. rekstraryfirliti:
Tekjur 3523 millj., gjöld 3301
m'illj. og rekstrarafgangur 221,2
millj. Samkv. sjóðsyfirliti eru nið-
urstöðutölur þessar: Tekjur 3529
millj., gjöld 2512 og greiðsluaf-
gangur rúmar 17 millj.
KOSNINGAR I BANKARÁÐ
O. FL.
Þá var I gær kosið I hin ýmsu
ráð og stjórnir, sem Alþingi ber
að kjósa. Var fyrst kosinn einn
maður, Steingrímur Hermannsson
I stjórn Áburðarverksmiðjunnar
og yfirskoðunarmenn ríkisreikn-
inga voru kosnir þeir Sigurður
Ó. Ólafsson, Haraldur Pétursson
og Halldór E, Sigurðsson.
Stjóm Senientsverksmiðjunnar
Kosningu hlutu: Asgeir Péturs-
son, Pétur Ottesen, Guðmundur
Sveinbjörnsson, Helgi Þorsteins-
son og Ingi R. Helgason.
Stjórn síldarverksmiðja rikisins
Sveinn Benediktsson, Sigurður
Ágústsson, Jóhann Möller, Ey-
steinn Jónsson og Þóroddur Guð-
mundsson.
Varamenn: Jónas Rafnar, Ey-
þór Hallsson, Sveinn Þorsteins-
son, Jón Kjartansson og Tryggvi
Helgason.
Bankaráð Framkvæmdabankans
Jóhann Hafstein, Davíð Ólafs-
son, Gylfi Þ. Gíslason, Eysteinn
Jónsson og Karl Guðjónsson.
Varamenn: Gunnlaugur Péturs-
son, Jón Sólnes, Eggert Þorsteins
son, Eirikur Þorsteinsson og
Kristján Andrésson.
Bankaráð Búnaðarbankans
Jón Pálmason, Friðjón Þórðar-
son, Baldur Eyþórsson, Hermann
Jónasson og Ásgeir Bjarnason.
Varamenn: Ólafur Bjarnason,
sr. Gunnar Gíslason, Jón Þor-
steinsson, Ágúst Þorvaldsson og
Jónas Jónsson.
Endurskoðendur: Einar Gests-
son og Guðmundur Tryggvason.
Sildarútvegsnefnd
Jón L. Þórðarson, Erlendur Þor
steinsson, Jón Skaftason: •
Varamenn: Guðfinnur Einars-
son, B/-gir Finnsson og Eysteinn
Jónsson.
Bankaráð Seðlabankans
Birgir Kjaran, Jónas Rafnar,
Jón Axel Pétursson, Sigurjón Guð
mundsson og Ingi R. Helgason.
Varamenn: Ólafur Björnsson,
Þorvarður J. Júlíusson, Emil Jóns
son, Jón Skaftason og Alfreð
Gíslason.
Bankaráð Landsbankans
Ólafur Thors, Gunnar Thorodd-
sen, Baldvin Jónsson, Stéingrím-
ur Steinþórsson og Einar Olgeirs-
son.
Varamenn: Matthías Á. Mathie-
sen, Sverrir Júlíusson, Guðmund-
ur Oddsson, Skúli Guðmundsson
og Ragnar Ólafsson.
Endurskoðendur: Ragnar Jóns-
son skrifstofustjóri og Guðbrand-
ur Magnússon.
Bankaráð Útvegsbankans
Björn Ólafsson, Guðlaugur
Gíslason, Guðmundur í. Guð-
mundsson, Gísli Guðmundsson og
Lúðvík Jósefsson.
Varamenn: Gísli Gíslason, Valdi
mar Indriðason, Hálfdán Sveins-
son, Björgvin Jónsson og Halldór
Jakobsson.
Endurskoðendur: Björn Síep-
hensen og Karl Kristjánsson.
m