Vísir - 23.12.1964, Qupperneq 16
MESTIUMFERDARDAGUR ÁRSINS
I REYKJA VlK í DAG
Nær ollt lögreglulið borgurinnur við löggæzlustörf
VVSTR
Miðvikudagur 23. des. 1964.
Viðgerð á Burðu
verður lungvinn
Ljóst er orðið, að viðgerð á
Barða NK 120, sem laskaðist í á
rekstri á Saxelfi á sunnudaginn
mun taka langan tima. Mun skips
höfnin koma heim flugleiðis, en
hún var komin til Hamborgar og
átti að sigla skipinu heim í gær.
Skipstjórinn, Sigurjón Valdimars-
son, verður áfram úti og fylgist
með vi'ðgerðinni,
Þýzka flutningaskipið Alphard
Framh, á 13. síðu.
í dag, Þorláksmessu, er mesti
umferðardagur ársins hér f höf
uðborginni. Eins og kunnugt er
hefur lögreglan gert sérstakar
ráðstafanir vegna jólaumferðar-
innar, m.a. verður öll bflaum
ferð um Austurstræti, Aðal-
stræti og Hafnarstræti bönnuð
eftir kl. 8 í kvöld og þar til
verzlanir loka kl. 12 á miðnætti
Ennfremur verður öil bíla-
umferð takmörkuð á Laugavegi
frá Snorrabraut og í Bankastræti
ef ástæður ero til þess. Það eru
eindregin tilmæli til ökumanna
frá lögreglunni, að þeir, sem
eiga erindl niður i bæ, velji
aðra leið heldur en Laugaveginn
enda er t.d. mun fljótlegra að
aka niður Skúlagötu eða Hring-
braut og Frikirkjuveg.
Það er ekki hægt að segja
annað en að jólaumferðin hafi
hingað til gengið mjög vel og al
menningur hefur tekið vel þe’im
leiðbeiningum og reghrm, er við
höfum auglýst, sagði Sverrir
Guðmundsson, yfirmaður Um-
ferðardeildar lögreglunnar, þeg
ar Vísir átti stutt samtal við
hann í morgun.
„Við teljum þó sérstaka á-
stæðu til þess að biðja aila veg-
farendur að sýna ýtrustu varúð
einkum þó ef hálka verður á göt
um borgarinnar," sagði Sverrir
Þegar líða tekur á daginn má
búast við miklum fjölda fólks
á götum borgarinnar einkum þó
í miðbænum, jafnvel meiri
fjölda, en sumar gangstéttirnar
rúma. Rfður því á miklu að
menn sýni tillitssemi og nær-
Framh. ð bls. 13
MIKIL SALA (
HANGIKJÖTI
í dag er „stóri dagurinn" í
kjötverzlunum borgarinnar. —
Strax í morgun höfðu biðraðir
myndazt í verzlununum og bú-
ast má við mikilli ös í allan dag.
Magnús S. Magnússon, verzl-
unarstjóri í Kjöt & Grænmeti,
sagði f stuttu viðtali í morgun,
að salan fyrir þessi jól væri
með meira móti og í dag mundi
verða selt mjög m’ikið af hinum
gómsæta veizlumat, sem kjöt-
búðimar geta nú boðið upp á
í miklu úrvali.
„Jólahangikjötið er alltaf núm
er eitt“, sagði Magnús, „og það
verður það áréiðanlega um ó-
komin ár“.
— Og annað, sem fólk kaupir
mikið?
„Svínakjöt ýmiss konar, rjúp-
ur vilja margir alltaf á jólaborð-
ið og gæsir og hænsnakjöt eru
m’ikið að vinna á“.
Magnús sagði okkur að jóla-
hangikjötið hefði verið rifið út
jafnóðum og það hefði komið í
búðina, reykofnamir f reykhús-
inu væra orðnir of litlir, en það
stæði til bóta á næstunni. Hann
sagði einnig, að innkaupamáti
viðskiptavinanna væri mjög mis
jafn, sumir keyptu í nóvember-
lok og desemberbyrjun til jól-
anna, en aðrir geymdu ’innkaup
þar til á sfðustu stundu, en þar
kæmi líka til misjöfn að-
staða til að geyma matvæli
heima.
Magnús S. Magnússon (t.h.)
verzlunarstjóri og Sig. Bjama-
son f Kjöt & Grænmeti með
hluta af jólamatnum á boðstól-
um.
NÝ FLJÓTVIRK MIÐUMARAÐFERD
NÆR MJÖG VEIKUM SENDINGUM
— Merkileg uppgötvun íslenzks rufmugnsverkfræðings
Carl Jóh. Eiríksson
Ungur íslenzkur rafmagns-
verkfræðingur, Carl Joh. Eiriks
son, hefur fundið upp nýja mið-
unaraðferð f sambandi við fær-
anlegar hlustunarstöðvar á
landi, sem bæði gerir miðanir
fljótlegri og nær veikari hljóð-
um. Þessi aðferð er einfaldari
en venjulega aðferðin og bygg-
ist á öðrum rafmagnsfræðilög-
STÁLU VERÐMÆTUM AÐ
FJÁRHÆÐ UM 40 ÞÚS.KR.
Rannsóknarlögreglan hefur
handtekið tvo unga menn, sem
játuðu að hafa brotizt inn í
verzlun s.I. föstudag og auk þess
stolið allhárri peningaupphæð
úr húsi hér i borg daginn áður.
Innbrotið höfðu piltarnir fram
ið í verzlun að Búðargerði 9 og
stálu þaðan tóbaksvörum fyrir
rúmlega 4 þúsund krónur.
Daginn áður höfðu þeir stolið
18 þús. krónum i peningum úr
húsi einu hér í borg og þar að
auki bankabók með 17 þús. kr.
innistæðu Ekki höfðu þeir gert
neina tilraun til þess að ná pen
ingum út úr bókinni, en pening-
unum vora þeir að langmestu
leyti búnir að eyða þegar þeir
voru handteknir. Áttu þeir að-
eins 1600 krónur eftir.
Þjófamir eru báðir ilm tvítugt
og hafa áður komið við sögu
hjá lögréglunni.
málum en hún. Carl er að ljúka
við mjög ýtarlega greinargerð,
þar sem aðferðin og lögmálin á
bak við eru skýrð. Mun hann
flytja úrdrátt úr greinargerðinni
á fundi í Rafmagnsverkfræðinga
féiaginu, og jafnframt mun
hann líklega sækja um einka-
Ieyfi á þessari aðferð. Vísir náði
tali af Carl og spurði hann um
þessa nýju miðunaraðferð.
— Það var eiginlega tilviljun,
að ég datt niður á hana. Ég var
að undirbúa þátttöku í ,,refa-
veiðum" félags radíóamatöra en
það er keppni í að miða út sendi
stöð. Ég ætlaði upphaflega að
nota venjulegu aðferðina. Þá
datt mér i hug, að prófa eitt-
hvað nýtt, sem ég gerði, og datt
að lokum niður á þessa aðferð.
Þetta var í seinni hluta október.
— Ég reyndi aðferðina við
ýmis skilyrði og byggði jafn-
framt upp teorxuna á bak við
hana. Svo fór ég í keppnina
með japanskt útvarpstæki af
næstminnstu gerð, sem ég hafði
útbúið fyrir þessa aðferð. Ég
náði þegar í upphafi fyrsta
merki sendistöðvarinnar, sem
aðrar hlustunarstöðvar í keppn-
inni náðu ekki, og ég held að
ég hafi unnið keppnina á þeirri
miðun.
— Venjuleg hlustunartæki
nota spólu eða afbrigði af spólu
með kjarna í við loftnetið til
þess að taka við merkjum, sem
stafa frá segulsviðinu. Þegar
þessi aðferð er notuð, þarf að
auki að nota svonefnda „sense“-
aðferð til þess að velja á milli
tveggja átta, sem fundnar eru
með venjulegu aðferðinni. Nýja
aðferðin sameinar þessar tvær,
þannig að rétta áttin finnst á
augabragði. Þá er engin spóla
Framh. 13. síðu.
1
DAGUR
TIL JÓLA