Vísir - 29.12.1964, Side 13

Vísir - 29.12.1964, Side 13
VlSIR . Þriðjudagur 29. desember 1964. 13 Horfnar kynslóðir IV. Elinborg Lárusdóttir: Valt er veraidargengið. Horfn- ar kynslóðir IV. Skuggsjá. Hafnarfirði. Alþýðuprent- smiðjan 1964. Með þessu bindi Horfinna kynslóða, því fjórða í röðinni, er lokið hinu langa og viða- mikla skáldverki Elinborgar Lárusdóttur um Dalsættina. Ég þóttist sjá, að þessi skáld- sagnabálkur styddist við sagnir, sem lifað hefðu á munni almenn ings í sveitum Skagafjarðar kyn slóð eftir kynslóð, og ég þekkti þegar sumar af þeim persónum, sem þar getur, svo sem Skúla fógeta Jón Espólín og hið vin- sæla rímnaskáld, séra Hannes Bjarnason á Ríp, en ég vissi það ekki fyrr en ég las ritdóm Jóns Eyþórssonar í Morgunblað inu, að kunnug'ir menn kunna skil á fjölmörgum persónum, sem koma við sögu, enda marg- ar sagnir við þær bundnar. Það eru forfeður og formæður skáld- konunnar sjálfrar, sem hún lýs- ir, og Dalur í sögunni er Djúpa- dalur í Skagafirði. En hvað sem þessu líður hef- ur skáldkonunni tekizt að blása slíku lífi i sögufólkið, að milli þess sem bindin hafa komið út, hef ég heyrt góða og gegna les- endur ræða framtíð þess — eins og karla og kvenna, sem það þekkir, en býr langt í burtu og hittir ekki — eða fær fregnir af — nema með löngu millibili. En mér hefur virzt, að hér á íslandi sé það órækt merki þess, að sagnaskáldi hafi vel tekizt um persónusköpun, þegar greint alþýðufólk, bókhneigt og glöggt á skapgerðareinkenni manna og áhrif þeirra á lífsferil og örlög, talar um skáldsagnapersónur eins og þær lifi eða hafi Iifað. Þannig var talað um sögufólkið í Pilti og stúlku og Manni og konu, í Kærleiksheimilinu, Til- hugalífi og Vordraumi Gests Pálssonar, um Geirmund, Gróu og Þuríði í Uppi við fossa Þor- gils gjallanda, um fólkið í Litla-Hvammi og Stóra-Hvammi, Vistaskiptum og Ofurefli og Gulli Einars Kvarans — og þá ekki sízt persónurnar í Höllu og Heiðarbýlinu, Borgum og Leys- ingu Jóns Trausta — svo að ekki sé nær gengið nútíðinni. Hvað sem er um lýsingarnar á aldarfari og lífsháttum í þess- um langa sagnabálki, en þar er þeirra einna um að dæma, sem hafa kynnt sér þau efni ærið rækilega, er yfir sögunum sam- felldur heildarsvipur — og sam- eiginlegt er það í öllum bindun- um, að söguþráðurinn rekur sig eðlilega — og að örlög fólksins ráðast í samræmi við eðli og lífskjör, þrátt fyrir ótvirætt já- kvæða afstöðu skáldkonunnar. Þá leynir sér ekki frásagnagleð- in, sem þó er studd rólegri i- hugun. Skáldkonan virðist enn eiga I fórum sínum ærið fleygt ímyndunarafl, samfara ríkum hæfileika til innlifunar í hugs- ana- og tilfinningalíf persón- anna. Það er ekki svo að sjá, að lífsfjörið sé tekið að fjara út. Þetta er mesta og heilsteypt- asta skáldverk Elinborgar, og þó að þar sé ekki um að ræða ne’ina nýbreytni i formi eða frá- sagnarhætti, mundu þessar bæk- ur verða lesnar enn um sinn og verða mörgum ánægju- og íhug- unarefni. Guðmundur Gislason Hagalín. STAÐA StaÖa forstjóra Kirkjugarða Reykjavikur er laus til umsóknar. Umsóknarfrestur er til 15. janúar 1965. Uppl. um starfið veitir skrifstofa Kirkjugarða Reykjavíkur. Reykjavík, 28. des. 1964. Stjóm Kirkjugarða Reykjavíkur. Samkvæmisfléttur í fjölbreyttu úrvali. G.M.-búðin, Þingholtsstræti 3. HITARAR Til leigu hitablásarar. Uppl. á kvöldin í síma 41839. FILMUR OG VÉLAR S.F. Skólavörðústíg 41. Sími 20235. UilJÚli ov*. ■ Scl?* f itíúP, tisnife * s.,» '9o3°- i*"- f i W '3682'. ,335S 'ert8,hS<»8^ , Strand9° , • 358*0- i 40,8o ma RUMAH 60 MILLJONIR RRONA GREIDDAR í VINNINGA 2 MILUONIR í EINUM DRÆTTI, 60 000 NUMER 30,000 VINNINGAR.... mmm

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.