Vísir


Vísir - 30.01.1965, Qupperneq 16

Vísir - 30.01.1965, Qupperneq 16
Laugardagur 30. janúar 1965. Nína Sæmundsson láfin (.istakonan Nina Sæmundsson andaðist á sjúkrahúsi hér í Reykja vfk í fyrrinótt. Hún var 72 ára að aldri, fædd í Nikulásarhúsum í Fljötshlíð. Hún stundaði nám í Danmörku i Listaakademiunni í Kaupmannahöfn og öðlaðist mikla viðurkenningu fyrir iist sína heima og erlendis. Hennar verður minnzt slðar hér í blaðinu. íslandsmót i körfuknattleik hefst / kvöld 1 kvöld verður íslandsmótið í körfuknattleik sett í 14. sinn. Bogi Þorsteinsson setur mótið með ræðu, en að ræðu hans lokinni hefst fyrsti leikurinn, sem er milli ÍR og stúdenta í 1. flokki. Seinni Ieikur kvöldsins er milli Ármanns og KR. Lögreglan stöðvar bfla með óhreinar rúður á Suðurlandsbraut. Lögreglan stöðvar óhreina bila Ökumenn fd fyrirmæli um uð geru þú hreinu ú stundinni Umferðardeild lögreglunnar i Reykjavik sendi sveit lögreglu- þjóna inn á Suðurlandsbraut i gær m. a. til að fylgjast með ásig- komulagi bíla, hversu hreinlæti á rúðum, ljósaútbúnaði og skrásetn- ingarmerkjum væri háttað og þar fram eftir götunum. I rauninni átti að kanna ýmsan annan búnað bílanna og ásigkomu- lag, en þegar til átt'i að taka voru bílarnir yfirleitt svo illa farnir af for og aurslettum að ökumenn sáu ekki nema rétt fram fyrir sig, skrásetningarmerki bílanna sáust ekki og i stefnu- og hemlaljós sást heldur naumast fyrir óhreinindum, þannig að allt eftirlit lögreglu- mannanna snerist um þetta eitt. Fimm lögregluþjónar unnu sleitu laust að því að stöðva bíla, sem áttu leið fram hjá Shellstöðinni neðst við Suðurlandsbraut og kanna ásigkomulag þeirra. Sögðu Starfsemi Stofnlánadeildar sjáv- arátvegsins endurskipulögð Mun veita 40-50 milljún krúnur ú úri til uð uuku frumleidslu og frumleiðni í fiskiðnuði Seðlabanki íslands tilkynnti í gær, að bankamálaráðherra hefði undirritað reglugerð um nýja iánaflokka Stofnlánadeild- ar sjávarútvegsins. Er þar gert ráð fyrir þvf að fjármagn það frá Seðlabankanum, Landsbank anum og Útvegsbankanum, sem nú er bundið í útlánum Stofn- lánadeildarinnar verði að veru- legu leyti látið ganga til nýrra lána í þessum Iánaflokkum. Munu bankar þessir þannig leggja fram 100 milljón krónur sem framlagsfé en 235 milljón krónur sem lán til 25 ára. Með þessum hætti verður unnt að lána úr þessum nýju lánaflokkum um 40 milljónir á ári og mun sú upphæð eftir nokkur ár hækka í 50 milljónir árlega. Auk þessa fasta fjár- magns mun verða athugað um frekari lánsfjáröflun, Tilgangur þessara nýju lána- flokka Stofnlánadeildarinnar er að stuðla að aukinni framleiðslu og framleiðni í fiskiðnaði og skyldri starfsemi. Er þar með reynt að bæta úr brýnni þörf fyrir aukin lán. Einnig er ætlun- in að vinna að betri undirbún- ingi og samræmingu útlána til fiskiðnaðarins í heild. þeir að hjá meginþorra farartækja, sem leið áttu um götuna hefði hreinlæti verið ábótavant. Þótt ökumennirnir sæju rétt fram fyrir sig voru aðrar rúður svo mattar af móðu og óhreinindum að ekkert skyggni var út um þær. Stefnu- og hemlaljós voru í mörgum til fellum svo mökuð í for að lítið sem ekkert gagn var af þeim í mörgum tilfellum. Alla þessa bíla stöðvaði um- ferðarlögreglan og lét viðkomandi ökumenn hreinsa allt sem hreinsa þurfti á staðnum. Þá fyrst var þeim leyft að halda áfram. Flestir brugðust vel við fyrir- mælum lögreglunnar og hlýðnuð- ust án tafar. Einstöku brugðust þó Framhald á bls. 10 síld til vinnslu Sveppir ogkræklingar verða soðnir niður í Borgurnesi Niðursuðuverksmiðja - Borgar fjarðar hóf starfsemi sína á þriðju daginn fyrir rúmri viku. Vöruein- kenni félagsins er Borgames, en þar er verksmiðjan. Þessj nýja verksmiðja mun fitja upp á ýmsum nýjungum i niðursuðu, svo sem niðursuðu sveppa og kræklinga. Vísir átti í gær tal við dr. Sigurð Pétursson gerlafræðing, sem e, framkvæmdastjóri verksmiðj- unnar. Sigurður sagði, að verk- smiðjan væri til húsa í gömlu hús- næði Verzlunarfélagsins Borgar og hefðj verið aflað til hennar ný- tfzkulegra niðursuðuvéla. í þessari verksmiðju er meiri sjálfvirkn’i við- höfð en í nokkurri annarri niður- suðuverksmiðju hér á landi. — Við förum ekki hratt af stað, og miðum eingöngu við innan- landsmarkað, að minnsta kosti i fyrstu. Fýrstu vikurnar framleiðum við ekkert nema saltkjöt og baunir í eins punds og tveggja punda dós- um. Saltkjöt og baunir hefur ekki verið soðið niður saman hér á landi áður, en eriendis er mikið gert af því að sjóða niður kjöt og baunir. — Þetta kemur á markaðinn í miðjum febrúar og þá komum við lfka með niðursoðna sveppi frá sveppabúinu á Laugalandi. Síðan byrjum Við Iíka á niðursuðu sláturs og sviða, og upp á framtíðina að gera erum við með krækling og silung í huga. — Við byrjuðum þegar í haust að afla okkur kjöts, blóðs f slátur og sviða, skömmu eftir að fyrir- tækið var stofnað 13. ágúst. Undir- búningur var hafinn nokkru áður, eða í maí í fyrra. Niðursuðan sjálf hófst sfðan 19. janúar s.l. — Aðaleigendur fyrirtækisins eru Ó Johnson & Kaaber, sem sjá um dreifinguna, Verzlunarfélag Borgarfjarðar, sem m. a. lætur í té húsnæð’ið, bændurnir á Lauga- landi, þaðan sem sveppirnir koma dr. Sturla friðriksson - og ég.. - . —„ Verksmiðjustjóri er Eyvindur Ásmundsson og starfar þrennt að auki við verksmiðjuna núna fyrst um sinn, en sjálfvirku tækin spara mikinn vinnukraft, sagði Sigurður að lokum. Vestmannaeyjar. í gær landaði síldarflotinn um 20 þúsund tunn- :Um af bráðfallegri síld í Vest- i mannaeyjum. Verst er að mjög jlítið magn af þessu var tekið til j verkunar, nær allt fór í bræðslu j og stafar það m. a. af því, að ! starfsmenn í frystihúsunum voru önnum kafnir við að skipa frystum afurðum út í Hofsjökul. Mörgum síldarskipstjórum var illa við að koma síldinni ekki í vinnslu fyrir þessar sakir og tóku þeir þá upp á því sumir hverjir að fara framhjá Vest- mannaeyjum og sigla með afl- ann til Þorlákshafnar, en þaðan var hann fluttur með bílum til Reykjavíkur. — Meira að segja gerðist það að einn bátur var kominn í höfn í Vestmannaeyj- um, en sigldi aftur út með afla sinn til Þorlákshafnar, þegar hann kom honum ekki í vinnslu. Þó mun Fiskiðjan hér hafa tekið við nokkurri síld í vinnslu, en hin húsin ekki. Meðal báta sem fóru til Þorlákshafnar má nefna Guðrúnu Jónasdóttur, Bjarma II, Hannes Hafstein og Guðmund Pétursson. TA YL0R NEITAR ÖLLU Akureyri. Réttarhöldin yfir Richard Taylor skipstjóra á Pet er Scott hófust síðdegis í dag fyrir rétti hér. Skipherrann á Óðni lagði fram skriflega skýrslu um brot og töku togar ans. Skipstjórinn neitar öllum sakargiftum. Réttarhöldin hófust um fimm leytið síðdegis í gær. Voru þá komnir norður Iögfræðingar sem með málið fara, Bragi Steinars son fulltrúi saksóknara Gísli Einarsson lögfræðingur land helgisgæzlunnar og Gísli Isleifs son verjandi. Dómsforseti er Sigurður Helgason, meðdómend ur Bjarni Jóhannesson skipstjóri og Þorsteinn Stefánsson hafn sögumaður. Skipstjórinn neitar að hafa verið að veiðum innan land helgi. Þá var hann spurður um, hvers vegna hann hefði stöðvað og hleypt varðskipsmönnum um borð. En það kom fram að þriðji stýrimaður og tveir há setar fóru í gúmmíbát að tog aranum og stýrimaðurinn skaut tveimur skotum ú'r skammbyssu upp í loftið, en Richard Taylor stöðvaði ekkí að heldur. Taylor kveðst ekki hafa stöðvað vegna þess, að botninn sé grýttur þarna og hefði hann óttazt að eyðileggja vörpuna, ef hann stöðvaði.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.