Vísir - 04.05.1965, Page 2
SíÐAN
Bostel - dansinn
Stórkyndugur dans íer sigurför um Evrópu
★
Ef þér farið á dansleik og
sjáið eiginkonuna eða unnust-
una leggjast í gólfið með ó-
kunnum dansherra, þá er samt
engin ástæða til tortryggni
Þá eru þau að öllum iíkindum
aðsiins að dansa „la Bostella",
nýjasta afbrigðið úr heimi dans-
listar'innar.
Franskur blaðamaður Bostel
fann þennan furðulega dans
upp, sem við hann er kenndur.
Ástæðan var sú, að í einkasam-
kvæmi í París féll Bostel skyndi
lega á gólfið í miðjum dansi og
lét sig þá hafa það að liggja þar
og hrista sig í takt við tónlist-
ina. Hinu dansfólkinu fannst
þetta ágætis nýjung og ekki
leið á löngu áður en allir lágu
í einni kös á gólfinu.
Meginregla dansins er: Dans-
pörin hoppa í takt við tónlist-
ina skamma stund afklæðast að
miklu (eða öllu) leyti og láta sig
síðan falla á gólfið. Þar upp-
hefst síðan sá hluti dansins,
sem vinsaélli er, en þar liggur
dansfólkið hvað innan um ann
að, og líkist það allsherjar-
slagsmálum, þar sem tvö og
tvö berjast saman.
Bandaríkjamenn voru ekki
lengi að hagnýta sér dansinn.
Sérhæft dansfólk er leigt til
hátíðahalda og skemmtana og
fengið til að „koma fólkinu af
stað."
Dansinn hefur einnig breiðzt
út um Evrópu, og í Danmörku
nefnist hann „Riehardo", en
ekki höfum við fengið fregnir
af, að hann sé kominn hingað
til lands.
GRAMMYS-verð-
laununum úthlut-
að i Bandarikjunum
LÖG ÁRSINS
☆
í kjölfar Óskarsverðlaunahá-
tíðarinnar í Bandarfkjunum
voru veitt önnur verðlaun::
Grammys verðlaunin svo
nefndu, fyrir tónlistarviðburði
ársins. Verðlaunin voru alls 47,
en meðal þeirra voru:
☆
Bezta sönghóps-lag ársins:
Hard Days Night, flutt af Bítl
unum.
Bezti söngur ársins (karlm.):
Hello, Dolly; sungið af Louis
Armstrong.
Bezti söngur ársins (kona):
People, sungið af Barbra Strei-
sand.
Lag ársins: Hello, Dolly; eftir
Jerry Harman.
Bezta rokklagið: Downtown,
sem Petula Clark söng.
☆
Armstrong: Hello, Dolly!
Kári skrifar:
Hoppað og afklæðst eftir hljóðfalli. (Peter Otoole og Paula
Prentiss f nýrri kvikmynd: What’s New, Pussycat).
Síðan endar dansfólkið í einni hrúgu.
Hafiö jb/ð heyrt þennan?
Félagi Skoiovskij frá Moskvu hafði fengið ieyfi til að
fara í kynnisferð vestur fyrir. Fyrsta póstkortið kom frá
Póllandi.
— Er í Varsjá. Lifi hið frjálsa alþýðulýðveldi Póliand!
Næsta kort hljóðaði svo:
— Er í Búdapest. Lifi hið frjálsa alþýðulýðveldi Ungverja-
land!
Næsta kort:
— Er í Prag. Lifi hið frjálsa alþýðulýðteldi Tékkóslóvakfa!
Næsta kort:
— er í París. Lifi hinn frjálsi Skolovskij!
Mér hafa borizt fleiri en ein
kvörtun um strætisvagna borg-
arinnar. Flestar hljóða þær á þá
le'ið, að vagnarnir séu ekki eft-
ir áætlun, svo og sumar um önn
ur atriði. En nýlega barst mér
bréf frá borgara, sem kemur
fram með nýstárlega tillögu.
Hann skrifar undir dulnefninu
„Stundvís" og er yfir höfuð
óánægður með fyrirkomulag
strætisvagnanna.
Vinnutap
„Ég hef enn ekki lagt í það
mikla verk að reikna út, hve
miklu ég hef tapað, bæði fé og
tíma, vegna óstundvfsi vagn
anna. Nærri lá við að ég tapaði
v'innunni eitt sinn, og oft og iðu
lega hef ég ekki komizt heim
í hádegismat, en þá gerist það
tvent, að konan bíður með mat
inn, og ég verð að kaupa mér
máltíð upp á 40 til 50 krónur
niðri í bæ. Ég h’irði ekki um að
æfna fleiri dæmi, læt þjáningar
bræður mína og systur sjálf um
að rifja upp sfna reynslu.
Einkarekstur
strætisvagna
Nú er málum þannig háttað,
að opinber fytirtæki með einka
leyfi á atvinnurekstri sfnum
loka tíðast eyrum fyrir hvers
konar gagnrýni í skjóli einokun
ar. Þar sem einstaklingsfyrir
komulag er á rekstrinum og
heilbrigð samkeppni ræður
neyðast þau einfaldlega til að
fara eftir óskum viðskiptavin-
anna, ella fara þau á hausinn.
Þessvegna geri ég það að til-
lögu minni, að borgin hætti sín
um afskíptum af rekstri strætis
vagnanna ,en ' einstaklingum
verði falinn reksturinn í hend-
ur. Vel hugsanlegur möguleiki
er að fara eins að og með áætl-
unarleiðir um landið, þar sem
einstaklingum er veitt sérleyfi
á vissum leiðum, en reynast
þeir ekki trausts’ins verðugir,
þá taka aðrir menn við. Varð
andi þetta mál eru ýmis smá
atriðj, sem óþarfi er að ræða
hér nánar, en gaman þætti mér
að heyra undirtektir samborgT
ara minna, ekki sízt þar sem
upphafleg hugmynd mín var sú
að reka strætisvagnana með
sniði almenningshlutafélags.
Ótal leiðir eru til, og flestar
betri en opinber rekstur."
Stundvís
o