Vísir - 04.05.1965, Side 11
VlSIR . Þríðjudagur 4. máí 1965.
Keflvíkingar skora eitt af mörkum sfnum.
„Litla bikarkeppnin/# hófst á laugardaginn:
FRAMKVÆMD KEPPN-
INNAR Bt STÓRGÖLLUÐ
Islandsmeistararnir unnu
Breiðabiik með 7:1
,4-itla bikarkeppnin“
hófst á laugardaginn 5neð
íiírt • • •
leik Keflavíkur og Breiða-
bliks í Kópavogi, en Kópa-
vogsliðið tekur nú í fyrsta
sinn þátt í þessari keppni,
sem verið hefur á milli
Akraness, Hafnarfjarðar
og Keflavíkur.
Þessi fyrsti leikur keppninnar
fór fram á malarvelli Keflvíkinga,
sem er frekar laus og ^rýttur enn
sem komið er. Honum lauk með
sigri heimamanna, sem skoruðu 7
mörk gegn 1. Mörk Keflvíkinga
skoruðu Jón Jóhannsson (6) og
Grétar Magnússon (1). Mark Breiða
bliks skoraði Jón Ingi Ragnarsson.
Lið Keflvíkinga var betra liðið
og vel að sigri komið, enda þótt
tölurnar spegli miklu fremur
framkvæmd leiksins en yfirburði
þeirra. Béztir voru Jón Jóhanns-
son, Karl Hermannssbn- 'og I Sigur-
vin Einarsson. — I-diðið ’ vantkði
Högna Gunnlaugsson, sem mun
vafalaust styrkja það.
Af Breiðabliksmönnum voru
beztir Guðmundur Þórðarson, Jón
Ingi Ragnarsson og Sveinn Skúla-
son markvörður, sem varði oft með
prýði, þó við ofurefli væri að
FRÁ HAFNARFIRÐI:
etja. Liðið er sem heild nokkuð
götótt en hefur þó batnað frá því
í fyrra.
Það sem áberandi skildi liðin var
jafnbetra, ákveðnara og úthalds-
meira lið Keflvíkinga.
FRAMKVÆMD
KEPPNINNAR.
Þessi fyrsti leikur „Litlu bikar-
keppninnar“ gefur verulegt tilefni
til athugasemda varðandi fram-
kvæmd hennar, sem aðstandendur
hennar þurfa svo sannarlega að
koma í annað og betra horf.
Keppnin mun vera ætluð sem
verkefni fyrir viðkomandi lið fyrir
Islandsmótið og á meðan Reykja-
víkurmótið stendur yfir. Er hún
þannig vel hugsuð og á að geta
orðið liðunum að góðu gagni.
Framkvæmd hennar mun hins
vegar vera yfirleitt á svipaða leið
og raun bar vitni í Keflavík s.l.
laugardag. I fyrsta lagi var engin
gæzla við knattspyrnuvöllinn og á-
horfendur, einkum börn, fengu á-
tölulítið að vappa I kringum mörk-
in og við hliðarlínur jafnvel með
hunda í eftirdragi á meðan leik-
urinn fór fram. I öðru lagi var
dómarinn í leiknum, Sigurður Sig-
tryggsson alls ekki starfi sínu
vaxinn og að auki réttindalaus,
sem hlýtur þó að vera lágmarks-
krafa að dómarinn hafi réttindi og
þar með þekkingu á starfinu þó
um nokkurs konar einkabæja-
keppni sé að ræða. Þá er það
einnig fjarri venjum á kappmótum,
sem þessum, að dómarinn sé nán-
ast úr öðru liðinu, eins og raui
er á í þessu tilfelli.
Dómar I leiknum voru á þani
veg, að tvö af mörkum KefMk
inga voru skoruð eftir greinileg
rangstöðu, sem línuverðir höfð
ítrekað gefið merki um, en dómai
ekki sinnt. Enn eitt markið va
skorað upp úr innkasti, sem Kefl
víkingar framkvæmdu en Kópa-
vogsmenn áttu að framkvæma og
höfðu búið sig undir með alls
vömina framar en ella. Innkösl
voru I fjölmörgum tilfellum fram-
kvæmd af þeim, sem fyrstir náðu
boltanum án tillits til hver hafði
sett knöttinn út af.
Dómar sem hér hefur verið lýst
og aðrir álíka eyðilögðu alla á-
nægju bæði leikmánna og áhorf-
enda af leiknum og Kópavogs-
menn, sem taka nú I fyrsta sinn
þátt f þessari keppni, hreinlega
gáfust upp af þessum sökum.
Sá sem þetta skrifar heyrði þá
skýringu á þessu fyrirbæri í
Keflavfk, að Kópavogsmenn skyldu
bara bíða þangað til þeir kæmu
til Akraness, þar sem þjálfari Ak-
urnesinga dæmdi. Þeir gætu nefni-
lega huggað sig við það, að venju-
lega ynnu heimamenn í hverjum
leik!!!
Ef það reynist rétt, að fram-
kvæmd þessarar annars heppflegu
keppni sé yfirleitt eins og hún var
f Keflavík s.l. laugardag, þá þurfa
forráðamenn hennar að gera þar
á gagngerða breytingu, því eins og
þessi leikur fór fram, er hún fþrótt
inni til lftils sóma.
iniij öertjsin uóggs-l .ernq
jl go rns
GOTT ÍÞRÓTTAFÓLK -
EN ENGIN ADSTAÐA
20. ársþing I.B.H. var háð dagana
30. marz og 9. apríl 1965. Þingið
samþykkti einróma eftirfarandi til-
lögur:
20. ársþing l.B.H. telur byggingu
íþróttahússins brýnasta verkefnið
í íþróttamálum bæjarins og beinir
þeirri eindregnu áskorun til bæjar-
stjórnar Hafnarfjarðar, að hún leggi
höfuðáherzlu á að hraða fram-
kvæmdum við byggingu hússins.
Þingið minnir á ályktun bæjar-
stjómar frá 5. apríl 1964 varðandi
byggingu fþróttahússins og harm-
ar, að ekki skuli hafa verið staðið
við þá áætlun, sem þá var sam-
þykkt.
Það er lágmarkskrafa Í.B.H., að
lokið verði við 1. og 2. áfanga
samkvæmt áætluninni eigi síðar en
svo, að íþróttasalurinn verði til-
búinn til notkunar fyrir haustið
1966.
Þingið vekur athygli á því, að
ekki er unnt að halda uppi lög-
bundinni íþróttakepnslu I skólum
Hafnarfjarðar vegna húsnæðis-
skorts og telur óverjandi að brjóta
þannig fræðslulög á kostnað skóla-
æsku bæjarins.
20. ársþing Í.B.H. mælist til þess
við háttvirta bæjarstjóm, að fjölg-
að verði svæðum í bænum þar sem
börn og unglingar geti komið sam
an til knattleika. Þingið telur einn-
ig nauðsynlegt að gert sé ráð fyrir
slikum svæðum þegar ný hverfi eru
skipuiögð.Einnig vill þingið mælast
til að þau svæði á gildandi skipu-
lagi kaupstaðarins, sem ætluð eru
undir íþróttamannvirki séu eigi
skert eða felld niður og tekin und-
ir annað, nema annað jafngott
komi I staðinn.
20. ársþing I.B.H. beinir þeim til
mælum til bæjarstjórnar, að nauð
synlegt sé, fyrir vöxt og viðgang
íþróttahreyfingarinnar í bænum,
að bæjarsjóður leggi fram sérstak-
an styrk til íþróttafélaganna I sam
bandi við byggingarframkvæmdir
þeirra á svipaðan hátt og tíðkast f
Reykjavík,, þó én þess að fjárfram-
lög til íþróttahússins séu skert.
Um leið og 20. ársþing I.B.H.
þakkar háttvirtri bæjarstjórn fyrir
veitt fjárframlög, mælist þingið til
þess.að reynt verði að hraða meir
en gert hefur verið greiðslum á
þeim framlögum, sem hún veitir
íþróttahreyfingunni hverju sinni.
20. ársþing I.B.H. telur, a8 ekki
sé hægt að skipta þeirri aðstöðu
sem nú er til íþróttaiðkana f
Hafnarfirði milli fleiri aðila en
þegar er, og að ný félög innan
I.B.H. geti ekki vænzt aðstöðu til
æfinga að óbreyttum aðstæðum.
20. ársþing Í.B.H. þakkar
Í.S.Í. fyrir framkvæmd sína á
Iandshappdrættinu. Þingið skorar á
I’.S.f. að Iáta eigi staðar numið með
hina ákjósanlegu fjáröflunarleið.
Jafnframt beinir þingið þvf til
framkvæmdastjórnar happdrættis-
ins, hvort eigi sé annar árstími
heppilegri til framkvæmda, t.d. 15.
nóv. til þess að miðar geti orðið
til sölu í ágúst.
20. ársþing I.B.H. skorar á að-
ildarfélög sfn, að ná betri árangri
í sölu á happdrættismiðum l.S.I.
Stjórn Í.B.H. 1965—1966 er
þannig skipuð:
Yngvi Rafn Baldvinsson, for-
maður, Jón Egilsson, ritari, Ög-
mundur Haukur Guðmundsson,
gjaldkeri, ' Guðm. Geir Jónsson,
varaformaður, Anna Kristfn Þórð-
ardóttir, meðstjórnandi.
er ætíð hressandi
ferskt og ilmandi gott