Vísir - 10.06.1965, Qupperneq 3
Ví,r/TR . Fimmtudagur 10. júní 1965.
' (4 s s t
Sjóstangaveiðin nýtur sívax-
andi hylli hér, enda ekki að ó-
líkindum með annari eins fiski-
veiðaþjóð, sem á eins auðug mið
rétt uppi f landsteinum. Auk
þess sem allmargir iðka þessa
heilbrigðu og skemmtilegu veiði
mennsku sér til hressingar um
helgar, efnir Sjóstangaveiðifélag
Reykjavíkur árlega til alþjóð-
legra móta, og var mótið f ár
háð nú um hvítasunnuna og róið
frá Keflavfk. Þátttakendur voru
margir — 77 af fimm þjóðemum
— og róið á 12 bátum; þetta
var sveitakeppni og fjórir kepp-
endur f hverri.
Svo fóra leikar eftir þriggja
daga keppni, að hlutskörpust
varð sveit Bandaríkjamanna af
Keflavíkurflugvelli — enda lék
granur á áð geminigeimfaramir
segðu þeim til miða, þar eð þeir
vora á lofti þann tíma, sem mót-
ið stóð. Drógu þeir alls 1 smá-
lest og 79 kg. Hæstur ein-
staklinga varð Láras Ámason Ffá löndun í Keflavíkurhöfn.
SJÓSTANGAVEIÐIMÓTIÐ
úr Keflavík og dró 371,3 kg,
en flesta fiskana dró Eiríkur
Eyfjörð, 254 alls. Brezkur mað-
ur, H. Pullton, dró hins vegar
flestar tegundir fiska. Af kvenna
sveitum varð aflahæst sveit úr
Reykjavík og aflahæst í þeirri
sveit frú Steinunn Roff; dró
291,5 kg, og má það kallast vel
að verið. Alls aflaðist 14 smál.
86 kg. á alla bátana, sem þátt
tóku í mótinu. zi .-.i - : s.
Þetta er hinn hagfræðilegur
áifáhgílr'ihötsins, og er þá ó-
talinn sá árangur, sem mest er
um vert og hvorki verður veg-
inn í smálestum né talinn í fisk-
um — hin óblandna ánægja af
að sitja á miðum í glaðasólskini
og blæjalogni og njóta veiði-
gleðinnar, sem er hverjum
manni í blóð borin. Að ekki sé
á minnzt hvíldina frá umferðar-
skarkalanum og kapphlaupinu
um þann afla, sem eftirsóknar-
verðastur þykir á landi. Mynd-
imar, sem þessu fylgja, era
teknar af einum harðdrægasta
veiðigarpi í þessum hópi, Birgi
Jóhannssyni, tannlækni.
Aftari röð frá vinstri: Ásgeir Óskarsson, Rvík, Konráð Árnason_ Akureyri, Halldór Snorrason, Rvík,
Mr. Ward, Keflavikurflugvelli, Óskar Jóhannsson, Rvik, Þórhallur Helgason, Reykjavík. Fremri röð:
Skipsmenn af veiðibátnum.
Birgir Jóhannsson, tannlæknir, með dagsafla sinn.