Vísir - 10.06.1965, Side 9
9
VIS .yt . Fimmtu '■n?»nr ’O. jfn: JC-65.
Snæbjörn Jónasson verkfræðingur
Vegaframkvæmdir á landinu
eru í þann veginn að hefjast og
ætlunin er að vinna í ár fyrir
hærri fjárhæð en nokkru sinni
áður.
Langstærstu og dýrustu fram
kvæmdimar í vegagerð á iand-
inu á þessu ári verða Keflavík-
urvegurinn og Siglufjarðarveg-
urinn nýi um Stráka, sagði Snæ-
björn Jónasson fulltrúi vega-
málastjóra í viðtali sem Vísir
átti við hann fyrir skemmstu.
Af öðrum stórframkvæmdum
í ár má nefna Múlaveg um Ól-
afsfjarðarmúla, nýlagning og
endurbygging vega á Vestfjarða-
kjálkanum, vegagerð á Möðru-
dalsöræfunum, endurbygging
vegar í Eldhrauninu í Skafta-
fellssýslu og loks má geta um
áframhald Þrengslavegar hér í
nágrenni Reykjavíkur. Um einn
þessara vega — Keflavíkurveg-
inn — var getið hér í blaðinu
á öðrum stað.
Strákavegurinn til Siglufjarð-
ar markar að því leyti tímamót
í sögu íslenzkrar vegagerðar að
þar verður í fyrsta skipti lagður
vegur neðanjarðar, um nær 800
metra löng jarðgöng.
Vegagerð ríkisins bauð jarð-
gangnagerðina og vegalagning-
una gegnum göngin út á s,l.
vetri og bárust tilboð frá nokkr-
um aðilum. Lægsta tilboð var
frá Efrafalli og hefur áður ver-
ið skýrt frá því i blöðum. Hefur
Efrafalli nú verið falin fram-
kvæmd verksins og á að skila
veginum tilbúnum gegnum
göngin fyrir 1. október 1966.
Ekki er gert ráð fyrir í tilboð-
inu að styrkja þurfúgangnaþak-
ið vegna grjóthruns, enda fer
það eftir berglögunum hvort
þess er þörf eða ekki. Aftur á
móti er gert ráð fyrir að gangna
munnarnir verði steyptir beggja
vegna við göngin.
Gert er ráð fyrir að jarð
göngin verði 782 metra löng,
en þó er hugsanlegt að sú
vegalengd breytist eitthvað
Ekkí er heldur enn ákveðif
hvort akreinar verði tvær eða
aðeins ein með útskotum fyrir
bíla til að mætast. Ákvörðun
Múlavegur fullgerður í ár og
Strákaéöngin á næsta ári
um það verður ekki tekin fyrr
en borunin leiðir í ljós hvort
unnt verður án gífurlegs kostn-
aðarauka að hafa akreinarnar
tvær. Búist er við að fram-
kvæmdir við Strákagöngin hefj-
ist um n.k. mánaðamót.
Þá er Múlavegurinn ein af
stórframkvæmdum sumarsins
hvað vegagerð snertir. Það
verður einn hrikalegasti vegur
iandsins og minnir mjög á
vegarlagningu í Ölpunum og
sums staðar á Ítalíu. Sá vegur
liggur utan í snarbrattri fjalls-
hlíðinni og hengiflug í sjó nið-
ur. Þessi vegarlagning hefur
staðið yfir í nokkur undanfarin
ár, en nú er meiningin að ljúka
henni í sumar og taka veginn f
notkun fyrir haustið. Enn er
eftir að sprengja og leggja veg
um erfiðasta kaflanri á allri
leiðinni. Hann er 700 metra
langur og liggur milli svokall-
aðs Flags og Ófærugjár hátt
Ólafsfjarðarmúli frá sjó. Utan í snarbröttum hlíðum hans er verið að leggja hrikalegasta veg á
íslandi.
, , 1 |
í fjallshlíðinni. Fram-
X.
uppi
kvæmdir eru í þann veginn að
hefjast þar sem stendur.
Að Múlaveginum er geypi-
mikil samgöngumót því hann
styttir akleiðina milli Ólafsfjarð
ar og Akureyrar um hvorki
meira né minna en 150 km,
eða úr 212 km niður í 62. Jafn-
framt styttist akleiðin milli
Sigjufjarðar og Akureyrar stór-
lega.
Að þessum vegaframkvæmd-
um slepptum verður mest unnið
að meiri háttar vegagerðum á
Vestfjarðakjálkanum, m. a. í
sambandi við hinar nýju áætl-
anir um að skapa þar sérstakar
I
bci öss tiíivií liuisgnifi
sarngörigúfniðstöðyar, ísafjarð-
arkaupstað fyrir norðanverðan
kjáikann og Patreksfjörð fyrir
sunnanverða Vestfirði.
Langstærsti liðurinn í þessum
framkvæmdum er nýr vegur
með ströndum fram í Barða-
strandarsýslu, sem á að koma
í staðinn fyrir veginn yfir
Þingmannaheiði. Verður að
þessu mikil samgöngubót því
Þingmannaheiði lokast oftast
snemma á haustin og opnast
ekki fyrr en seint á vorin. Nýi
vegurinn .verður í flestum árum
fær allan ársins hring, en hann
verður eitthvað lengri heldur
en vegurinn yfir heiðina. Á-
ætlað er að þessi vegarlagning
taki 4 ár.
Af öðrum vegaframkvæmdum
á Vestfjarðakjálkanum má
nefna endurbyggingu vegarins
yfir Breiðadalsheiði með jarð-
göngum efst úr dalnum. Enn-
fremur á að endurbyggja veg-
inn af Botnsheiði niður í Súg-
andafjörð til að koma byggð-
inni þar í betra vegasamband
en verið hefur til þessa. Gerðar
verða miklar endurbætur á Ós-
hlíðarvegi milli Bolungavíkur
og Hnífsdals, svo og á veginum
milli ísafjarðarkaupstaðar og
Súðavíkur í Álftafirði. Þessar
síðasttöldu vegabætur standa
ekki hvað sízt í sambandi við
Isafjarðarflugvöll og til að
greiða úr samgöngum við hann.
Á sama hátt verður reynt að
bæta úr samgöngum við Pat-
reksfjarðarflugvöll, sem er
staðsettur á Sandodda við
sunnanverðan Patreksfjörð.
Verða gerar miklar endurbætur
á veginum þangað frá kauptún-
inu á Vatnseyri.
Auk þessa á að ljúka vegar-
lagningu f Tálknafjörð og end-
urbyggja veginn yfir Hálfdán
til Bíidudals. Að öllum þessum
vegaframkvæmdum verður unn-
ið meira eða minna í sumar.
m m
Vegarlagning um Möðrudals-
öræfin — milli Norður- og
Austurlands — hefur staðið yf-
ir nokkur undanfarin ár og
verður þeirri vegargerð haldið
áfram i sumar.
Á Suðurlandi verða helztu
vegaframkvæmdir annars vegar
endurbygging vegarins um
Eldhraunið og hins vegar fram-
haki vegargerðar á Þrengsla-
/egi. Vega- eða gatnagerð yfir
bveran Kópavog er i höndum
sérstakrar nefndar, og á þessu
stigi ekki unnt að segja til um
hvað þar verður gert.
(