Vísir - 10.06.1965, Page 16
Ekki enn
iHidirskrifnð
Fimm verkaiýðsfélög austan-
lands hafa enn ekki skrifað undir
samnmgana sem náðnst með
sammnganefndum fyrir Norður og
Austuriandi á mánudaginn. Tvö
félög austanlands hafa þegar skrif
aö undir.
í gær héldu formenn verka-
lýðsfélaganna á Neskaupstað,
Vopnafirði, Seyð'isfirði, Fáskrúðs-
firði og Breiðdalsvfk fund um mál
ið. Varð samkomulag um félags-
fundi sem halda á í verkalýðsfélög
um þessum næstkomandi laugar
dag.
Verður þar jafnframt rætt um
það hvort heldur skuli auglýsa
sérstaka taxta á svæði þessara
félaga fremur en að ganga að
samkomulag'inu.
JOKLAMENN OTTAST SKEIÐ-
ARÁRHLAUP Á NÆSTUNNI
Votnsborð í Grímsvötnum hnfði hækkað um 8V2m.
Leiðangur Jöklarannsókna
manna sem dvalizt hefur við
Grímsvötn í Vatnajökli með
Sigurð Þórarinsson sem fyrir-
liða er nú kominn ofan af jökl
um. Þeir koma með þær fréttir
að mjög hafi hækkað í Grfms-
vötnum síðan í fyrra, svo að
búast megi við hlaupi í Skeið
arárjökli hvenær sem er. Hefur
hækkað í Grímsvötnum um 8>/2
metra og er vatnsborðið nú i
líkri liæð og 1961, þegar hlaup
kom síðast í Skeiðará.
Leiðangursmenn voru 10 og
dvöldust þeir í skálum við
Grímsvötn á Svíahnúk. Höfðu
Undirritaður viðskipta-
samn. við Júgóslava
Miðvikudaginn 9. júní 1965 var
undirritaður f Reykjavík viðskipta
samnhrgur miDi íslands og Júgó-
starin.
1 samningnum eru beztukjara-
ákvæði að því er varðar tolla,
innflutmugsgjöld og siglingar.
Greiðslur skulu fara fram í sterl
ingspundum eða öðrum frjálsum
gjaídeyri.
Gildistaka samningsins er háð
þeir tvo vélsleða, en með þeim
voru auk þess piltar úr Reykja
vík með sinn eigin vélsleða.
Þegar þessi leiðangur kom
niður fóru tveir aðrir leiðangr
ar Jöklarannsóknafélagsins upp
á jökul og munu þeir vinna að
jökulmælingum á vestanverð-
um Vatnajökli. Fyrir þeim flokk
um voru þeir Sigurjón Rist og
Magnús Hallgrímsson.
fullg'ildingu, en hann gildir síðan
til eins árs og framlengist sjálf-
krafa um eitt ár í einu sé honum
ekki sagt upp með þriggja mán-
aða fyrirvara miðað við 31. des-
ember ár hvert.
Samninginn undirrituðu Guð-
mundur 1. Guðmundsson utanríkis
ráðherra og frú Stana Tomasevic
sendiherra Júgóslavíu.
Við undirritun viðskiptasamningsins. Við borðið sltja Guðmundur I. Guðmundsson, utanrfkisráðherra og
Stana Tomesevic, ambassador Júgósiaviu. Á bak vlð standa talið frá vinstri Páll Ásg. Tryggvason, delld-
arstjóri, Niels P. Sigurðsson deildarstjóri, dr. Oddur Guðjónsson, viðskiptamálaráðunautur rikisstjórnar-
innar, og Milutin Kojic, aðstoðarmaður ambassadorsins.
Steypuvinna á Keflavíkur-
veginum hófst í gær
Beiðni varnarmálanefndar til varnarliðsins:
EKKI FRAMAR ÞOTU-
FLUG YFIR SURTSE^
I gær var hafizt handa um
að steypa Keflavíkurveginn, þ.e.
þann hluta, sem eftir er að steypa
frá Kúagerði á Vatnsleysuströnd
og til Ytri-Njarðvikur, en sfðasti
kaflinn frá Njarðvíkum og að svo-
kölluðum Fitjum hjá Keflavik verð
ur malbikaður, samkvæmt upplýs-
ingum, sem Vfsir fékk hjá Snæbiml
Jónassyni verkfræðingi hjá Vega-
gerð ríkisins.
Steypti kaflinn, sem unnið verður
að i sumar, er 19 km. langur og
er þegar allur undirbyggður. Áð-
ur var búið að steypa 17 km. af
Keflavíkurveginum, þaðan sem
hann liggur út af Hafnarfjarðarveg-
inum hjá Engidal og suður f Kúa-
Christrup birtir
handritastefnuna
Christrup hæstaréttarlögmaur i
Kaupmannahöfn og lögfræðingur
Ámasafns lét f gær birta danska
kennslumálaráðuneytinu stefnu
vegna laganna um handritaafhend
ingu. En i gær hafði konungur
staðfest lögin á ríkisráðsfundi.
Hefur Christrup stefnt málinu fyr-
ir Eystri landsrétt f Kaupmanna-
höfn. Ekki er enn ákveðið hvenær
málið verður þar teklð fyrir.
Málssóknin er byggð á þvl að
lögin um handritaafhendingu
brjóti í bág við 73. grein dönsku
stjómarskrárinnar um friðhelgi
e'ignarréttarins.
Télur stefnandj að Ámasafn sé
sjálfstæð stofnun, og ríkisvaldið
geti þvf ekki ráðstafað eignum
hennar, rtema með því að fram-
kwajma eignamóm. En eignamám
verður hinsvegar ekki framkvæmt
nema almenriingsheill krefji og
fullar bætur komi fyrir það sem
tekið er eignarnámi.
Stefnandi telur þannig að hér
sé um ólöglegt eignarnám að
ræða, þar sem ekki sé hægt að
sjá, að almenningshe'ill krefji af-
hendingar handritanna og ennfrem
ur sé ekkert tekið fram í lögun-
um, að bætur skúli greiða.
í málsskýringum sem birtar eru
í stefnunni er einriig lögð á það
áherzla, að ef dánargjöf Árna
Magnússonar og stofnun sjóðs
hans sé þannig breytt af ríkis-
valdinu sé réttaröryggi opinberra
sjóða í landinu mjög skert og
kunni slíkt að hafa alvarleg áhrif
i framtíðinni.
gerði. Við þann kafla var lokið
sumarið 1963, hefur hann verið í
notkun síðan og verið mikið far-
inn.
1 fyrra var svo haldið áfram að
undirbyggja veginn það sem þá
ýar eftir milli Kúagerðis og Kefla-
víkur og er því verki nú lokið.
Keflavíkurvegurinn á að vera
fullgerður fyrir haustið og er það
dýrasta vegaframkvæmd sem þá
verður lokið á Islandi og um leið
sú fullkomnasta.
Vísir hringdi i Hörð Helgason,
deildarstjóra Varnarmáladeildar
til þess að grennslast um þotu
ferð’ir varnarliðsmanna yfir Surts
ey. Hann sagði, að samkvæmt
beiðni Steingríms Hermannssonar
formanns Surtseyjarfélagsins,
hefði verið kvartað yfir þessu Við
vamarliðið á varnarmálanefndar-
fundi 27. maí síðastliðinn. „Lofað
var, að séð yrði um, að þessu æf-
'ingaflugi þotuvéla yfir Surtsey
skyldi hætt“, sagði deildarstjóri
Vamarmáladeildar. Þegar Vísir
vitnaði f ummæli dr. Finns Guð-
mundssonar í viðtali við blaðið
fyrir stuttu um endurtekið þotu-
flug yfir eýnni, sem leiðangurs-
menn við Surt hafa hvað eftir ann
að orðið varir við, kvaðst deildar-
stjórinn mundu ítreka beiðnina
Við varnarliðsmenn.
Þegar þotuflug yfir eynni er
úr sögunni, má kannski loks bú-
ast við fuglavarpi þar.
Fjörmikii bókauppboð ígær
Bókauppboð Sigurðar Benedikts-
sonar f gær var eitt hið fjörmesta
sem nokkru sinni hefur verið hald-
ið i uppboðstíð hans fyrr eða síðar.
Bækurnar fóru yfirleitt á geipi háu
verði og engir, sem á uppboðinu
voru, munu hafa orðið fyrir von-
brigðum nema þeir einir sem ætl-
uðu sér að komast að góðum kaup-
um.
Uppboðið hófst fyrr en venju-
lega, eða kl. 4 stundvíslega, enda
helmingi fleiri bækur til sölu en
almennt hefur verið.
Eins og áður hefur verið skýrt
frá eru allar þessar bækur úr eigu
Ditlevs Thomsens konsúls, sem jafn
framt vcr umsvifamikill kaupsýslu
! maður í Reykjavík og einhver sá
1 fyrsti sem setti stórverzlun á stofn
í höfuðborg íslands — Thomsens-
magasfn við Lækjartorg.
Ditlev Thomsen hafði sjálfur mik-
inn áhuga á verzlunarsögu íslands
og skrifaði á þvi sviði nokkra bækl-
inga. En vegna þessa áhuga síns á
verzlun og verzlunarsögu viðaði
hann að sér alls konar heimildarrit
um og bæklingum og átti meira
safn af þeim en yfirleitt var til hjá
einstaklingum hér á landi. Þor-
steinn sýslumaður Þorsteinsson var
sennilega sá eini, sem átt hefur
viðlíka mikið af verzlunarbækling-
um og Ditlev Thomsen átti.
í safnj Ditlevs var auk verzlunar-
pésa fjölmargt góðra og dýrmætra
íslenzkra bóka sem allar voru seld
ar á uppboðinu í gær.
Við andlát Ditlevs Thomsens
komst bókasafn hans í eigu sonar
hans, Hallgríms, sem fæddist og
ólst upp í föðurhúsum í Reykjavík,
en er nú háttsettur og mikilsvirtur
lögfræðingur í Khöfn og auk þess
íslenzkur dómtúlkur þar í borg.
Framh. á bls. 6.
Líkfundur hjcí Kletti
í gær fannst lík i fjöruborðinu
niðurundan fiskimjölsverksmiðj-
unni að Kletti og var lögreglunni
þegar gert aðvart um líkfundinn.
Reyndist líkið vera af öldruðum
manni, talsvert á níræðisaldri, sem
farið hafði heimanað frá sér og
var tekið að sakna hans þegar likið
fannst.