Vísir - 15.07.1965, Side 8

Vísir - 15.07.1965, Side 8
a V ! S IR . Fimmtudagur 15. júlí 1965. VISIR Utgefandi: Blaðaútgáfan VISIH Ritstjóri: Gunnar G. Schram Aðstoðarritstjóri: Axe) Thorsteinson Fréttastjórar: Jónas Kristjánsson Þorsteinn 0. Thorarensen Ritstjórnarskrifstofur Laugavegi 178 Auglýsingar og afgreiðsia Ingólfsstræt'. 3 Askriftargjald er 80 kr ð mánuði 1 lausasölu 7 kr eint. - Sími 11660 (5 linur) Prentsmiðja Visis - Edda h.f Framsókn og launamálin það kom greinilega fram meðan samningaviðræð- urnar um kaup- og kjaramálin stóðu yfir, að í báðum flokkum stjórnarandstöðunnar voru menn, sem ekki vildu að samið yrði. Þetta var augljóst bæði af skrif- um Tímans og Þjóðviljans, þar sem þrásinnis var reynt að æsa til ófriðar og spilla fyrir samkomulagi. Og eftir að samið hafði verið, leyndi það sér ekki, að ráðamenn beggja blaðanna voru bálreiðir yfir því, að takast skyldi að tryggja vinnufrið í landinu í eitt ár. Tíminn hafði áður haldið því fram, þegar hann var að reyna að spilla fyrir samningum, að ríkis- stjórnin vildi sérstaklega „níðast á láglaunaíólki“. Það er annars furðulegt að Tíminn skuli ekki sjá sóma sinn í því að tala sem rninnst um þessi mál. Enginn flokkur hefur sýnt minni áhuga á að rétta hlut þeirra sem minnst bera úr býtum, en Fram- sókn, þegar hún fór með völd. Og opinberir starfs- menn ættu líka að muna, að þeir fengu daufar updir- tektir við óskir sínar um bætt"kj>of,'''þegar',húyéfándi formaður Framsóknarflokksins var fjármálaráðherra. Hafi nokkru sinni með réttu mátt tala um „furðu- lega tregðu“ var það þá. Trúir því nokkur, sem man þá tíma, að Framsóknarflokkurinn mundi styðja kröfur um kauphækkanir, ef hann væri við völd? Var það ekki fyrsta verk vinstri stjórnarinnar að lækka allt kaupgjald í landinu? Reyndist hún lág- launafólki sérstaklega vel? Ekki fannst því svo þá. Og m.a. voru það kaupgjaldsmálin sem urðu henni að falli. Tíminn var í forystugrein þeirri, sem hér er vitn- að í, að leika sér með einhverjar tölur frá Noregi, sem blaðið hagræddi eftir þörfum. Allur slíkur sam- anburður er vitanlega tóm markleysa, þegar farið er með tölurnar eins og stjórnarandstæðingar gera í svona tilvikum. Þær eru beinlínis notaðar í blekk- ingarskyni og dæmin sett upp í samræmi við það. Ótrúlegt er, að almenningur taki mikið mark á skrifum Tímans um kaupgjaldsmálin. Sennilega hugsa margir sem svo, eftir fyrri reynslu, að blað- ið mundi fljótt breyta um tón, ef flokkur þess kæm- ist í ríkisstjórn. En hitt vita allir, sem Tímann lesa, að hann hefur eftir megni reynt að egna til ófriðar og sundrungar út af kaupgjaldinu, og liðsoddar Fram sóknarflokksins hafa fyrirskipað flokksmönnum sín- um innan verkalýðsfélaganna, að fylgja kommúnist- um möglunarlaust og styðja þá eftir megni í skemmd arstarfinu. Það má mikið vera, ef forustumenn Framsókn- arflokksins eiga ekki eftir að iðrast hegðunar sinn- ar í núverandi stjórnarandstöðu, ef svo illa tækist til, að þeir kæmust aftur til valda í landinu. Mioícs?, stórbrotinn veiðistaður, bar sem mikil ævintýri geta gerzt, t. d. þegar Iax hleypur niður undir brúna og alla Ieið út í Kistuhyl, sem er þer langt fyrir neðan. Myndirnar eru báðar úr bókinni. LAXÁ í AÐALDAL Bók eftir Jakob V. Hafstein ötg. Bókaútgófa Menningarsjóðs Mér þótti það góð tíðindi þegar Jakob V. Hafstein sagði mér að hann hefði í smíðum bók um Laxá í Aðaldal. Ég er einn þeirra, sem hafa tekið ást- fóstri við þessa á og umhverfi hennar, og ég beld að ég hafi gert það stra:: fyrsta daginn sem ég renndi þar, fyrir tæp- um 20 árum, þegar hún heilsaði mér um morguninn með 16 punda fiugulaxi ;í Höfðabreiðu óg síðar simá ;3ág með ' öðr- um 23 punda ’á Tiarnarhólma- flúð. En hvað sem einkaviðskipt- um mínum við Laxá iíður og óskum, hvert sinn er ég kveð hana, um að fá að líta hana augum einu sinni enn, geta skoð anir þeirra, sem þar eru kunn- ugir, varla verið skiptar um það, að hún verðskuldaði þann heiður að skrifuð væri um hana sérstök bók, fyrsta af íslenzk- um veiðiám. Mér þótti þetta líka góð tíðindi vegna þess, að ég vissi að leitun er á manni sem hefði verið betur til þess fær að leysa þetta verk vel af hendi en Jakob Hafstein, og ber þar margt til. Hann er al- inn upp í nágrenni Laxár, kynnt ist henni ungur og tók ástfóstri við hana sjálfa og umhverfi hennar. Hann er maður list- fengur, glöggur náttúruskoðari og veiðimaður. „Ég kynntist smám saman allri ánni, öllum veiðistöðum hennar, leyndar- dómum, óviðjafnanlegri fegurð í smáu og stóru, fuglunum við ána og á ánni, hinum fjölbreytta fagra gróðri, söng hennar fossa niði, flúðum og strengjum“, seg ir hann sjálfur i upphafi bókar innar. Auk þess var honum til- tæk aðstoð góðra vina og kunn ingja í dalnum og nágrenni, þar sem hans eigin þekking nægði ekki til fulls, þvi eins og hann tekur fram reynist óhjá- kvæmilegt að leita slíkrar að- stoðar um einstök atriði við samningu svona verks, jafnvel eftir 30 ára kynni af umhverfi og staðháttum. Og nú er þessi bók fyrir nokkru komin út. Eftir því sem f ég veit sannast er henni frábær- ij lega vel tekið. Ég minnist þess ekki að fleiri menn hafi spurt mig, hvort ég væri búinn að ■ lesa nokkra nýútkomna bók. Og að kalla undantekningarlaust hafa þeir lokið upp um hana einum munni. Þeir eru stór- hrifnir af henni. Bókinni er skipt í 10 megin- kafla, en auk þess eru stuttar lýsingar á ánni á þremur tungu málum: norsku, ensku og þýzku. Kaflarnir tíu bera þessi heiti: Lagt af stað — Fossinn, sem þagnar — Laxá í Aðaldal — Veiðarfærin og beitan — Kistu veiðarnar — Háfveiðin — Æð- arvarpið — Fuglalíf við Laxá — Selur í ósnum og ánni — Lausavísur. 1 fyrstá kaflanum gerir höf- Höfundur bókarinnar með 36 punda hæng, sem hann veiddi á flugu í Höfðahyl, einum stór- fengiegasta veiðistað árinnar, 10. júlí 1942. undur grein fyrir tildrögum þess, að bókin varð til, tryggð sinni við ána allt frá æsku og þeirri þakkarskuld sem hann vildi gjalda með þessu verki, Einnig getur hann þar með þakklæti þeirra manna, sem létu honum aðstoð í té. bæði f efni og myndum, svo og útgefanda og prófarkalesara. Með þeim kafla er vel „lagt af stað“. Næsti kafli, „Fossinn. sem þagnar,“ er einkar hugnæmur lestur. Þar segir höfundur frá því er tveir synir hans voru í fyrsta sinn' með honum fyrir neðan Æðarfossa. Hann segir þeim þar sögu um laxinn eftir Jóhann Sigurjónsson, sem hann hefur raunar oft sagt þeim áð- ur, en þeir þreytast aldrei á að heyra. Og hann verður að bæta annarri við. Sögumar falla eink ar vel inn í þann ramma, sem þeim er þarna búinn. Æðarfoss ar þagna sem snöggvast til þess að gestirnir geti einnig heyrt niðinn í Brúarfossum frammi í dalnum — svona rétt meðan veð urguðirnir eru að skipta um átt. ■ i&l k lóri ci'Uíli.i. Næsti kafli, „Laxá i Aðal- dal“, er langlengstur og tekur ásamt næsta kafla, „Veiðarfær- in og beitan“, yfir um helming bókarinnar. Þarna er lýst oli- um veiðistöðum, sem kunnug- ustu menn þekkja í Laxá, eða 118 alls, og eru þeir því mur fleiri en margir okkar, sem þykjumst sæmilega kunnugir, höfum vitað. Inn í þessa lýs- ingu eru svc víða felldar skemmtilegar veiðisögur og frá- sagnir þar sem þeir leggja m. a. fram sinn skerf veiðisnilling- arnir: Benedikt bóndi á Hólma vaði, Steingrímur skáld í Nesi, Heimir Sigurðsson á Tjörn og Snorri Jónsson kaupm. á Húsa- vík. Þessi kafli er mjög gagn- legur fyrir þá, sem veiða í Laxá jafnvel þótt þeir hafi gert það lengi, og þeir sem fara þangað ókunnugir ættu að lesa hann vel áður og helzt hafa bókina með sér. Tíu Ioftmyndakort eru þar 6100!" þar sem merktir eru helztu veiðistaðir árinnar, og veita þau að sjálfsögðu mjög mikilsverðar leiðbeiningar. Kafl- inn um veiðarfærin og 'oeituna er einnig mjög góður og sjálf- sagt fyrir þá að Iesa hann vel, sem lítið þekkja ána, en ætla að veiða þar. Kaflarnir um Kistuveiðina, Háfveiðina og Æðarvarpið eru einnig mjög fróðlegir. Þar kem- ur vinur okkar margra, höfðing- inn Jón á Laxamýri. fram á sjónarsviðið, og má þar gjörla þekkja margar setningar hans og tilsvör, en það hlýjar okkur Laxár-mönnum alltaf um hjarta- ræturnar að heyra og sjá eitt- hvað frá honum. Þá er kaflinn um fuglalifið við Laxá. Flestum ber saman um að eitt af því, sem geri dvöl- ina þar hvað unaðslegasta sé Framh. á bls. 6

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.