Vísir - 19.08.1965, Side 3

Vísir - 19.08.1965, Side 3
V í S I R . Fimmtudagur 19. ágúst 1965, 5 * FRÁ LJÓS- MÆÐRAMÓTINU Myndsjáin birtir í dag nokkr ar myndir frá norrænu ljós- niæðramóti, sem hér var haldið um sfðustu helgi. Mót þetta var all fjölskipað, sátu það 85 ís- lenzkar ljósmæður og nokkrir fulltrúar frá öllum hinum Norð urlöndunum, svo að fulltrúatal- an Var nokkuð á annað hundr- að. Hin tvö íslenzku félög ljós- mæðra stóðu að mótinu, Ljós- mæðrafélag Reykjavíkur, en for menn þeirra eru Valgerður Guð mundsdóttir og Helga M. Níels- dóttir. í setningarræðu sem Helga M. Níelsdóttir flutti sagði hún m.a. þá frásögn úr Víga-Glúmssögu, þegar Halldóra kona Víga Glúms kvaddi konur með sér á vfgvöllinn og skipaði þeim að binda um sár allra lífvænna manna úr hvorra Iiði sem þeir voru. Hún rakti það hvflík víga- öld var þá á íslandi, en þrátt fyrir það var kona norður í Eyjafirði, >sem gekk til orrust- unnar með manni sínum og batt um allra sár, jafnt vina sem ó- vina. Þannig kvaðst hún vilja hqgsa sér ljósmæðrastéttina um allan heim, fyllta af kærleika til alls þess sem lifir. — Hvert barn er perla, sagði hún, hvort það er hvítt, svart eða gult skipt ir ekki máli. Hver mannleg vera er hlekkur í h'fskeðjunni, sem hvergi má bila, en verður að þroskast til að fegra og bæta lífið og vinna sem órjúfanleg heild til velfarnaðar fyrir mann- kynið. Það var margt sem gerðist á þessu Ijósmæðramóti. Þangað komu ljósmæður víðsvegar að af landinu saman í fyrsta skipti og hinir erlendu fulltrúar fengu tækifæri til að kynnast högum íslenzkra stéttarsystra sinna. Allmikið var og gert af því að gefa þeim tækifæri til að kynn- ast sögu íslenzkrar ljósmæðra- stéttar. M. a. var einn daginn farið vestur í hina gömlu Nesstofu, sem fyrstj landlæknir á Islandi Bjarni Pálsson lét reisa. Þar fengu þátttakendur m. a. að skóða skurðstofu fyrsta land- læknisins. Hún er nú vistleg setustofa í hinu gamla húsi, en undir gólfábreiðu má þó enn sjá lit eftir blóðdropa sem þar hafa fallið við skurðaðgerðir. I kjall ara hússins má og sjá enn skápa þar sem fyrsta apótek íslands var geymt. Bjami Páls son var skipaður landlæknir ár ið 1760 og næsta ár kom fyrsta lærða ljósmóðirin til íslands eft ir nám í Kaupmannahöfn. Hún hét Katrín Magnússon og fékk bækistöð f gömlu Nesstofunni undir handarjaðri landlæknis. Á ráðstefnunni fengu þátttakend- umir einnig tækifæri til að skoða fyrstu bókina um ljós- mæðrafræði. Hún var gefin út árið 1749 og kallaðist Yfirsetu- kvennaskólinn. En af því sem hér hefur verið rakið má sjá, að Nesstofa hefur einnig komið við sögu Ijósmæðrafræðinnar á Islandi. Að lokinni þessari heimsókn var þátttakendum á norræna ljósmæðramótinu boðið í sam- kvæmi á heimili þeirra hjóna frú Sigríðar og Arents Claes- sen og þar dvalizt við góðan fagnað. Margt fíeira hefur gerzt á mótinu, mörg erindi hafa verið haldin, farið hefur verið til Gullfoss og Geysis, til Akureyr ar og til Bessastaða. Hópur ljósmæðra í heimboði hjá frú Sigríði og Arent Claessen, en þar var glatt á hjalla. Nokkrar forystukonur ljósmæðrastéttarinnar. Talið frá vinstri: Helga M. Níelsdóttir formaður Ljós- mæðrafélags Reykjavíkur, Ellen Erup frá Danmörku formaður skandinaviska ljósmæðrasambandsins, Guðrún Magnúsdóttir yfirljósmóðir á Landsspítalanuum og Valgerður Guðmundsdóttir á Bessastöð- um, formaður Ljósmæðrafélags íslands. Nokkrar ungar ljósmæður allar utan af landi, sem útskrifuðust saman ljósmæður. Talið frá vinstri: Dýrfinna Sigurjónsdóttir, Bima Björnsdóttir, Amheiður Guðfinnsdóttlr, Helga Daníelsdóttir, Anna Svelnbjörnsdóttir og Guðrún Sigurjónsdóttir. Mynd tekin í heimsókninni í Nesstofu. Pétur Jakobsson læknir ræðir við eina dönsku ljósmóðurina, Odu Hansen. Hér sjást fjórar ljósmæður. Vinstra megin eru mæðgur, sem gegnt hafa ljósmóðurstörfum á Árskógs- strönd hver fram af annarri, þær Ása Marinósdóttir og Ingibjörg Einarsdóttir, hægra megin eru Þór- dís Ólafsdóttir og Freyja Antonsdóttir.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.