Vísir - 01.09.1965, Page 2
z
n» »>m , ,
V1 S I R . Miðvikudagur 1. september 1965.
Nístandi kuldi eyðilagði mettilnsun
Valbjörn náði 7004 stigum þrátt fyrir
það — oðe/ns 20 stigum lakara en metið
Nístandi kuldi og rok varð þess valdandi að ekki var sett nýtt met í tug-
þraut í gærkvöldi. Þrátt fyrir léleg skilyrði til keppni náðu okkar beztu tug-
þrautarmenn mjög góðum árangri.
Valbjörn náði 102 stigum betri árangri nú en á Norðurlandamótinu fyrir
skömmu í Helsingfors, þar sem hann vann með 6902 stigum, fékk nú 7004
stig, sem er 20 stigum lakara en íslandsmet hans. Kjartan Guðjónsson náði
6524 stigum, sem hefði fært hann upp í 5. sæti á Norðurlandamótinu, og
Ólafur Guðmundsson hefði komizt í 7. sæti með 6434 stigum, sem hann
fékk í þessari tugþraut M.í.
Valbjörn sannaði enn einu
sinni að hann er einn sterkasti
tugþrautarmaður Evrópu. Val-
björn gæti án efa náð mun
lengra, ef honum gæfust oftar
tækifæri til að keppa í tugþraut-
inni og við betri skilyrði. Sama i
dr um Kjartan Guðjónsson og
Ólaf að segja. Báðir eiga örugg
lega eftir að ná mun lengra.
Kjartan hefur verið óheppinn í
sumar og er nýbúinn að jafna
sig eftir meiðsli.
Valbjörn hafði öll tök í hendi
sér í þrautinni í gær og vann
með yfirburðum. Hins vegar var
keppni þeirra Kjartans og Ólafs
skemmtileg.
Eftir 110 metra grindahlaup-
ið hafði Valbjöm 4388 stig fyr-
ir 15.1 sek (837 stig), Kjartan
hafði 4163 stig fyrir 15.8 sek.
(sem gefur 767 stig) og Ólafur
hafði dregizt aftur úr
nokkuð og hafði 4032 stig enda
fékk hann aðeins 18.8 sek í því
hlaupi og Erlendur Valdimarss.
var alllangt á eftir með 3389
stig.
I kringlukastinu var Erlendur
fremstur þeirra félaga og kast-
aði 42.70, sem gefur 738 stig,
en Valbjöm kastaði 39.04 (666
stig), Kjartan 39.68 (679 stig)
og Ólafur 32.62 (532 stig).
Valbjöm vann stangarstökk-
ið með 4.15 og þarna kom rok-
ið og kuldinn í veg fyrir að
hann færi yfir 4,30, en það hefði
gefið Valbimi 39 stigum meira
og íslandsmetið því verið sleg-
ið. Ólafur og Kjartan stukku
3.40 metra en Erlendur 3.10
í spjótkasti náði Valbjöm
beztum árangri, kastaði 58.05 í
síðasta kasti sínu og fékk 737
stig fyrir það og hafði þá 6636
stig, Kjartan kastaði 50.08, sem
er lakara en hann á að geta
kastað, Ólafur náði 49.74 og Er-
lendur 43.31.
í 1500 metra hlaupinu þurfti
Valbjöm að hlaupa á mjög góð
um tíma til að geta sett met.
Hann bvrjaði vel, en brátt sótti
í sama horf og oftast og hlaup
hans við hin erfiðu skilyrði
nægðu ekki til að hnekkja meti
í þetta sinn. Ólafur Guðmunds
son hljóp mjög vel og fékk
4.28.9 mín, Kjartan 5.00.8, sem
er hans langbezti tími í þessari
þolraun tugþrautarmanna, Val-
bjöm var á 5.07.6 og Erlendur
á 5.22.9.
Lokastigatalan varð þessi:
Valbjöm Þorláksson, KR,
7004 stig.
Kjartan Guðjónsson, ÍR,
6524 stig
ólafur Guðmundsson, KR,
6434 stig.
Erlendur Valdimarsson, ÍR,
5518 stig.
Vonandi gefst tugþrautar-
mönnum okkar tækifæri til að
reyna sig enn einu sinni áður
en „vertíð“ þeirra lýkur, því
eflaust geta þeir bætt sig að
mun, ekki sízt ef þeir eru heppn
ir með veður. Tugþrautin hér er
betri en nokkur þjóð á Norður-
löndum a.m.k. getur stært sig
af, en það vantar bara verkefn
in. í Danmörku var keppt á
sunnudaginn í tugþraut Dan-
merkurmeistaramótsins og vann
ungur maður Preben Olsen
greinina, setti nýtt danskt met
Preben Olsen varð Danmerkur-
meistari í tugþraut á sunnudag-
inn með 6720 stigum.
með 6720 stigum, sem þykir á-
gætur árangur.
Með þessu hnekkti hann 23 ára
gömlu meti Svend Aage Thom-
sens sem var 6707 stig. Annar
maður hafði 6185 stig og þrír
næstu voru mjög jafnir eða með
rúm 6100 stig. I þessari grein
eigum við því betri menn en
Danir, sem við berum okkur
oft saman við. — jbp.—
KEINO FÆR
HÖFÐINGLEGAR
MÓTTÖKUR
Stórhlauparinn KEINO frá Kenya
fær höfðinglegar móttökur í Mom-
basa á morgun, þegar hann snýr aft
ur heim eftir vel heppnaða keppnis
ferð um Evrópu að sögn fréttastofu
Kenya í gærkvöldi.
Keino mun fljúga í sérstakri flug-
vél, sem er send eftir honum gagn
gert. Á flugvellinum verður sérstök
móttaka, og Jomo Kenyatta mun
bjóða hlauparann velkominn.
Það er ekki á hverjum degi, sem
svo vel er tekið á móti íþrótta
manni, en í þetta sinn er það afr-
ískt smáríki sem fagnar sínum
fyrsta heimsmethafa, en Keino
setti nýlega heimsmet í 3000 metra
hlaupi á 7.38.5 í Stokkhólmi. Á
White Citv í London hljóp hann
enska mílu á þriðja bezta tíma f
heiminum 3.54.2 mín og varð fyrsti
Afríkumaðurinn til að hlaupa und-
ir 4 mínútum.
Kápavogur
Höfum til sölu 5 herb. einbýlishús í Kópavogi
ásamt uppsteyptum bílskúr. Húsið er málað
að utan og bílskúrinn pússaður og málaður.
Lóðin er sléttuð og tyrfð. íbúðin er 130 ferm.
TRYGGINGAR OG FASTEIGNIR
Austurstræti 10. 5. hæð. Sími 24850. KvöUlsími 37272.
.31
rHE KINK
Hinir heimsfrægu THE KINKS koipa fram á hljóm-
leikum í Austurbæjarbíói dagana 14.—13. sept. n*k. |
MIÐASALÁ ER HAFIN í HUÓÐFÆRA-
HÚSI REYKJAVÍKUR, HAFNARSTRAETi 1
X
. ■ . ' k