Vísir


Vísir - 25.09.1965, Qupperneq 1

Vísir - 25.09.1965, Qupperneq 1
m VISIR SSí4*®. - Laugardagur 25. september,1965. - 218. ,tbl. PrSmabalBenma Mademoiselle Liana Daydé, — ein af „prima-ballerinum“ Grand Ballet Classique de France. sem sýnir í Þjóðleikhúsinu þessa dag ana. Hún var áður primaballer- ina við Parísaróperuna. Á mynd sjársíð.u í Vísí í dag, 3. síðu, er sagt frá heimsókn á æfingu ball- ettsins í Þjóðleikhúsinu í gær. Metveioií sumum ám þrátt fyrir fádæmu vatnsleysi Viðtal við Þór Guðjóoissoai veiðimólastjóra Ennþá hafa ekki borizt heildartöl ur um laxveiðina í öllum ám lands- ins, sagði Þór Guðjónsson veiði- málastjóri í viðtali við Vísl í gær. Um netaveiðina í Borg- arfirði . og Árnessýslu mætti þó fullyrða það, að hún hafi gengið með ágæt- um í sumar. Aftur á móti hafi stangaveiðin í heild verið lélegri, þótt góðar glefsur hafi komið endrum og eins, og einstöku ár skil að allt að því metveiði. Heildartölur liggja orðið fyrir um stangaveiði úr ýmsum ám, en annars staðar frá hafa þær ekki borizt enn sem komið er, sagði veiðimálastjóri. í þeirri ánni, sem liggur við bæj ardyr höfuðborgarinnar, Elliðaán um, veiddust í sumar 830 laxar. Það er rúmlega 200 löxum færra heldur en veiddist þar í fyrrasumar. Þá nam heildartala veiddra laxa í Ell- iðaánum 1077. Teljarinn í Elliðaán um taldi 2566 laxa sem hafa geng ið upp fyrir teljarann, sem er rétt hjá gamla stöðvarhúsinu. Þá sagði veiðimálastjóri að Ing ólfur Ágústsson stöðvarstjóri hjá Rafmagnsveitu ríkisins hefði skýrt sér frá því f gær, að nú þegar væri búið að taka um 700 laxa úr mó- hyljunum í Elliðaánum til klaks, en þar myndu vera sem næst 1000 laxar eftir. Móhvljimir eru sem kunnugt er, fyrir neðan laxateljar ann og gefur þetta nokkuð til Framh. á 6. síðu. ■.V.V.W.V-' Ww..*v.,V.V. 2 menn hrapa nið- ur stiga og slasast I 1 gærdag varð alvarlegt slys | í Hótel Sögu, en þar hröpuðu tveir | menn milli hæða, annar meira að | segja milli tveggja hæða. Hann ! mun hafa stórslazast en hinn mað urinn eitthvað mlnna. Að því er lögreglan tjáði Vísi í Borholan tengd við vatnskerfi Hafnfirðinga. Bal dur Maríusson er lengst til vinstri á myndinni, en Þorsteinn Ingólfsson er þriðjl frá vinstri. Sig. R. Guðmundsson, sem sá um tenginguna, snýr baki að ljósmyndaranum ®----------- VATNI HLEYPT Á ÚR 980 m. DJUPRI H0LU í KALDÁRSELI JBLAÐiÐ i DAG Vatnsmál Hafnfirðinga lagast nokkuð, en stærra átak þcirf til í gærkvöldi klukkan 18 fengu Hafnfirðingar nokkra úrbót á hinum lélegu vatnsmálum sín- um. Hleypt var á vatns- kerfi kaupstaðarins vatni úr 980 m. djúpri holu, sem er í Kaldárseli skammt frá vatnsbóli Hafnfirðinga. Blaðamaður og ljósmyndari frá Vísi voru staddir þarna þeg ar vatninu var hleypt á, en áður hafði verið látið renna mikið magn vegna þess hve óhreint það var til að byrja með. Þegar heilbrigðisfulltrúi Hafn arfjarðar, Baldur Maríusson, gaf sitt samþykki, tengdi pípulagn- ingamaður frá Keflavík, Sigurð ur R. Guðmundsson, leiðsluna við æð, sem liggur 50 metra að aðalæðinni, sem liggur sfðan til Hafnarfjarðar, en æð þessi hef ur undanfarið verið vatnslítil enda er vatnið í vatnsbólinu lít ið sem ekkert. Hola sú sem notuð er nú var boruð af jarðborunum ríkisins f. nokkrum árum og var þetta til- raunahola í leit að heitu vatni, sem fannst ekki á þessum stað. Renna úr þessari holu um 12 sekúndulítrar af vatni. Þorsteinn Ingólfsson, iðnfræð ingur, sem stjórnar bæjarvinnu Hafnarfjarðar, sagði blaðamanni Vísis að því miður mundi þessi hola ekki leysa allan vanda, stærra átak þyrfti til að um ör ugga lausn væri að ræða. gærkvöldj hafði drukkinn maður hrapað niður stiga á Hótel Sögu á 3. tímanum e.h. í gær. Þegar að var komið lá maðurinn f öngviti og var búizt Við að hann myndi vera I meira eða minna slasaður. Var hótelstjóranum, Konráð Guð- mundssyni gert aðvart um slysið og jafnframt var kallað á sjúkrabíl til að flytja hinn slasaða til lækn 'isaðgerðar f Slysavarðstofuna. En um það leyti sem sjökraliðs mennirnir komu á vettvang raknar sá drukkni úr rotinu og neitar með öllu að fylgja þeim í Siysa- varðstofuna. Býst hann að þvi búnu að ganga að nýju niður stig ann, en er valtur á fótunum og steypist yfir handriðið. Konráð hótelstjóri var þama rétt hjá, grípur til mannsins og nær á honum taki, en missir sjálfur við það jafnvægið og steypist á eftir manninum yfir handriðið. Hann náði þó að grípa annarri hendi í handriðið og hélt sér þar andar-'' tak án þess að sleppa taki á drukkna manninum. En hann missti skjótt taksins og áður en nokk- ur hefði tíma til að koma til hjálp ar. Sjálfur hrapaði Konráð nið- ur á næstu hæð fyrir neðan og mun hafa v’iðbeinsbrotnað-og e.t.v. hlotið fleiri meiðsl. Hinn maður inn féll tvær hæðir niður og stór- slasaðist. Var hann fluttur í sjúkra hús, en um meiðslj hans eða líðan var blaðinu ekki kunnugt f gær- kvöldi. Konráð var þá enn í rann- sókn og aðgerð í Slysavarðstof- unni.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.