Vísir - 25.09.1965, Side 16
Laugardagur 25. sept. 1965.
Þrír drengir
slosast
Á Ajntmannsstíg lenti htjólríð-
andi drengur utan í bifreíð, kast-
að'ist af hjóönu og skall í götuna
en meiddist furðu lítið að taiið var
en mun þó hafa hlotið einhverjar
skrámur
Annar drengur, 3 ára snáði labb
aði af gangstétt og út á gö-tu á
Laugalæk eftir hádegið í gær, en
varð þá fyrir bíl sem kom aðvíf-
andi og skrámaðist nokkuð á höfði
Er Vís'ir átti tal við rannsóknar-
lögregluna i gærkveldi taldi hún
að meiðsli drengsins hefðu ekki
verið alvarleg.
1 gærkvöldi skömmu eftir kl. sjö
varð þriðja slysið, er drengur féll
ofan af vörubílspalli í Álftamýri
og skali niður á malbikaða götuna.
Hann hlaut höfuðáverka og auk
þess snert af heilahristingi.
Aliir drengirnir voru fluttir í
Slysavarðstofuna til aðgerðar.
Fyrsti fundur
Myndin hér að ofan er tekin síðdegis í gær á fyrsta fundi sáttanefndarinnar í kjaradeilu Bandalags starfsmanna ríkis .og bæja við ríkisvaldið.
Vinstra megin sitja fulltrúar BSRB en hægra megin fulltrúar hins opinbera. Við enda borðsins eru oddamennimir Logi Einarsson, Torfi Hjart-
arsson og Jónatan Hallvarðsson. Nái nefndin ekki samkomulagi fyrir 1 október fer kjaradeilan fyrir Kjaradóm.
Komið á fót Hafraimsóknastofnun og
Rannsóknastofnun fískk
Stofnanir þessar taka vib st'órfum fiskideildar Atvinnudeildar Háskólans
og Rannsóknarstofu Fiskifél. Islands og verða báðar til húsa / Skúlagótu 4
Blaðinu hafa borizt tvær
fréttatilkynningar frá sjávarút-
vegsmálaráðuneytinu, þar sem
sagt er frá skipan tveggja nýrra
rannsóknastofnana, Hafrann-
sóknastofnunarinnar og Rann-
sóknastofnunar fiskiðnaðarins.
Við þessar stofnanir hafa verið
skipaðar ráðgjafanefndir og
stjómir og ráðnir forstjórar
beggja stofnananna og eru þeir
hinir sömu og voru í eldri hlið-
stæðum stofnunum.
Samkvæmt III. kafla Iaga nr. 64
21. maí 1965, um rannsóknir í
þágu atvinnuveganna, skal starf-
reekt sjálfstæð stofnun, Hafrann-
sóknastofnunin, er heyri imdir \
sjávarútvegsmálaráðuneytið. Stofn
un þessi tekur við þeim verkefn-
um, sem fiskideild Atvinnudeildar
Háskólans hefur áður sinnt.
Við Hafrannsóknastofnunina er
starfandi ráðgjafamefnd. 1 ráðgjaf
amefnd Hafrannsóknastofnunarinn
ar hafa verið tilnefndir eftirtaldir
menn: Ágúst Flygenring, fram-
kvæmdastjór'i, Jón Sigurðsson, for
maður Sjómannasambands íslands
Loftur Bjamason, framkvæmda-
stjóri, Már Elísson, skrifstofustjóri
Sverrir Guðvarðarson, stýrimaður,
Sverrir Júlíusson, alþingismaður,
Tryggvi Helgason, sjómaður. Nefnd
in hefur kosið Má Elísson, skrif-
stofustióra formann.
i í stjórn Hafrannsóknastofnunar-
innar hafa verið sk'ipaðir eftir-
taldir menn: Davíð Ólafsson, fiski
málastjóri, formaður, Loftur Bjarna
son, framkvæmdastjóri, og Mar-
teinn Jónasson skipstjóri.
Að fengnum tillög«m stjómar
stofnunarinnar hefur sjávarútvegs-
málaráðherra hinn 23. september
sl. skipað Jón Jónsson til að gegna
stöðu forstjóra Hafrannsóknastofn
unarinnar frá 1. þ.m. að telja.
Samkvæmt IV. kafla laga nr. 64
21. maí 1965, um rannsóknir í þágu j
atvinnuveganna, skal starfrækt j
sjáifstæð stofnun, Rannsóknastofn j
un fiskiðnaðarins, er heyri undir |
siávarútvegsmálaráðuneytið Stofn- j
un iæssi tekur við þeim verkefnum ;
sem Rannsóknastofa Fiskifélags ís j
iands hefur áður sinnt.
Við Rannsóknastofnun fiskiðn- j
aðarins er starfandi ráðgjafamefnd
í ráðgiafamefnd Rannsóknastofn-
unarinnar hafa verið tilnefndir eft
irtaíd'ir menn: Björgvin J. Ólafs-
son, tæknifræðingur, Bragi Eiríks-
son, framkvæmdastjóri, Einar G.
Kvaran, framkvæmdastjóri, Gísli
Hermannsson, verkfræðing'"-, Guð
mundur Jensson, skrifsto istjóri,
Gunnar Flóvenz, framkvæmda-
stjóri, Jóhann J.E. Kúld, fiskmats-
maður, Loftur Loftsson, verkfræð-
Fr=\mh. á bls. 6.
Hvalvertíð
lokið
Hvalveiðivertíð sumarins er nú
lokið, og veiddu bátar Hvals h. f.
f Hvalfirði alls 432 hvali.
Mest var veitt af langreyði 288,
74 sandreyður og 70 búrhv. Mest
er selt af hvalafurðum til Evrópu-
landa, Bretlands, Þýzkalands og
Benelux-landa, en ekkert austur fyr
ir tjald. Verð á hvalmjöii hefur
hækkað nokkuð'frá fyrra ári, svip
að og á öðru mjöli, en verð á hval
lýsi hefur haldizt svo til óbreyrtt.
Hagstæður vöruskipta-
jöfnuður í ágústmánuði
Hagstofa íslands hefur reikn-
að út vöruskiptajöfnuðinn f á-
gústmánuði og reyndist hann
vera hagstæður um 74.202.000
kr. í sama mánuði í fyrra var
hann óhagstæður um 11.560.000
krónur.
Vöruskiptajöfnuðurinn það
sem af er þ^ssu ári, janúar-á-
gúst, er óhagstæður um 407.560
000 kr. en það er mun hagstæð
ari útkoma en f fyrra, þegar
hann var óhagstæður um 659.
505.000 kr. á sama tíma.
í ágúst voru fluttar út vörur
fyrir 470.198.000 kr. en 'inn fyr
ir 395.996.000 kr. Á árinu hafa
verið fluttar út vörur fyrir 3.
300.777.000 kr., en inn fyrir 3.
708.337.000 kr. Innflutningur
skipa og flugvéla á árinu nem
ur 467.966.000 krónum, sem er
um 60 millj. kr. hærri upphæð
en hinn óhagstæði vörusk'ipta
jöfnuður nemur
Tgrimn
TVISVAR SIGRAÐ í AL-
ÞJÓÐLEGRI FRÍMERKJAKEPPNI
Viðtal við Hörð Karlsson, forstöðumann teiknistofu albjóða gjaldeyrissjóðsins i Washington
í dag opnar Hörður Karlsson
forstöðumaður teiknistofu al-
þjóða gjaldeyrissjóðsins i Wash
ington, máiverkasýningu í Ás-
mundarsal, sem opin verður alla
næstu viku. en á mánudaginn
27. þ.m. koma á markaðinn Evr
ópufrímerkin, sem Hörður teikn
iði og hlaut fyrstu verðlaun fy)
r í alþjóðlegri keppni.
Vísir átti stutt viðtal vic
lörð Karlsson í gærkveldi, ei
nann var þá staddur á heimih
foreldra sinna að Kársnesbram
46 í Kópavogi.
— Þér eruð búnir að dveljas;
lengi ytra?
— ja, í 11 ár. lengst af .
vVashington líka nokkra mát.
uði í Mexico. Fyrstu árin var
nð teikni- og málaranám en síi.
astu 8 árin hef ég verið starfs
maour teiknistofu alþjóða gjalu
eynssjóðsins, og nú veiti eg,
henni forstoöu.
— Höfðuð þér ekkert lært í
myndlist áður en þér fóruð til
Bandaríkjanna?
— Jú, ég var um tíma ,
Myndlistarskólanum og lærði þar
teiKningu hjá Kjartani Guðjóns
syni.
— Þér málið abstrakt?
—Ja, við skulum kalla það |
hálf abstrakt.
— Hafið þér haldið sýningar áð
ur?
— Þetta er fyrsta sýningin |f
mín á íslandi. En ég hef haldið |
tvær sýningar í Washington, þa
fyrri 1959 og þá se'inni 1962. En 1
aðeins með fáum myndum. Á
þeirri seinni voru aðeins 11
myndir.
Framh. á 6. síðu.
Annað frímerkið, sem kemur
á mánudaginn
út