Vísir - 30.09.1965, Blaðsíða 2

Vísir - 30.09.1965, Blaðsíða 2
VIS IR . Fimmtudagur 3q. septpmbPr i?q5* KNA TTSPYRNA í NÓ VEMBERMÁNUÐ Síðustu knattspymuleik- ir sumarsins fara vart fram fyrr *en í nóvember- mánuði. Menn tala um að „dráttur hafi orðið á fram- kvæmd mótanna“. Það er ekki alls kostar rétt. Hér er aðeins um gleðilega þró- un að ræða. Knattspymu- tímabilið er að lengjast fram á veturinn og mætti það gjaman standa fram í miðjan nóvember. Nú vant ar aðeins kastljós á vellina til að hægt sé að hafa leik- ina á kvöldin. Haustkvöld- in hér sunnanlands em oft mjög mild og góð og kvöld in undanfarið em dæmi- gerð fyrir reykvískt haust- veður. Hvers vegna ekki að notfæra sér það? Nú hefur verið ákveðið með leik- ina í bikarkeppninni og úrslitaleik fslandsmótsins. Leikirnir fara fram á þessum dögum: ★ Akranes—KR á Laugardalsvelli í úrslitum f 1. deild á sunnu- daginn klukkan 15. ★ Valur — Akureyri í undanúrslit um bikarkeppninnar laugardag- inn 9. október á Melavelli. ★ Keflavík—KR-b á Njarðvíkur- velli sunnudaginn 10. október í bikarkeppni KSf. ★ Akranes og sigurvegarinn í leik KR og Keflavfkur á Melavelli f undanúrslitum bikarkeppninnar, sunnudaginn 17. október. Jc BIKARÚRSLIT fara fram sunnu daginn 24. október. Það félag, sem lfklega verður Iengst „á knattspymuvertíð" að þessu sinni er Keflavfk. Liðið á enn ólokið 10 leikjum f bikarkeppni KSf, litlu bikarkeppninni og tveim bæjakeppnum. Eru Olympíuleik armr i Þann 8. október næst komandi kemur Alþjóðaolympíunefndin sam an til fundar í Madrid á Spáni. Fulltrúi íslands í nefndinni er Benedikt G. Waage, heiðursforseti ÍSÍ, og heldur hann næstu daga utan til þess að sitja ráðstefnuna. Næstu Olympíuleikar verða sé hér um eina þjóð að ræða, enda þótt henni sé skipt af pólitískum ástæðum f Tokyo hlutu íþrótta- menn Þýzkalands 10 gullpeninga, 22 silfurverðlaun og 18 bronzverð laun. Tal'ið er að Avery Brundage, for- maður IOC sé mótfallinn þvf að :>..................... ............................................................................................................................................................................... ............................................................................................................................ Þessi sundsveit náði góðum árangri á OL í Tokyo. í henni voru bæði V- og A-Þjóðverjar og urðu þeir aðrir f 4x100 metra skriðsundi. Frá vinstri: Hans J.oachim Klein, Uwe Jacobsen (V-Þýzkalandi) og Frank Wiegand og Horst Löffler (A-Þýzkalandi). haldnir í Grenoble í Frakklandi (vetrarleikamir) og f Mexico City (sumarleikarnir). Verða fram- kvæmdir þessara tveggja borga t'il umræðu á fundum nefndarinnar og mörg mál önnur viðvíkjandi Olympfuleikunum og fþróttunum í heiminum. Það mál, sem kemur til með Þjóðverjar sendi sameiginlegt lið og haft er eftir Maurice Herzog, ráðherra í frönsku stjóminni, sem fer með íþróttamál, að ekki komi til greina að leyfa A-Þjóðverjum aðgang að vetrarleikunum i Gren- oble. Það er greinilegt að stjórnmálin eru að kaffæra olympíuhugsjón- FRÆKNIR VALSSTRÁKAR Þessir Valsdrengir unnu fs- landsmótið f 5. flokki, en þeir léku til úrslita gegn Vfking og unnu 2:1. Skoruðu strákarnir alls 27 mörk í mótinu en fengu á sig aðeins 3 og talar þetta skýra máli um yfirburði þeirra. Haustmótinu í 5. flokki lauk um siðustu helgi, og vitanlega unnu Valsstrákamir þar einnig og skoraðu nú 29 mörk en fengu aðeins 2 á sig. Valsmenn eiga því gott lið í vændum þar sem 5. flokks strák arnir era. Nú er bara að halda vel saman og stunda æfingamar vel! Þessir efnilegu 5. flokks menn eru: Fremri röð frá vinstri: Guð- mundur Jóhannesson, Þórhallur Lúxusíbúð til sölu Til sölu 190 fermetra luxusíbúð á góðum stað, miðsvæðis í borginni. íbúðin er ný, 4 svefnherb. stofa eldhús og sér þvottahús. Vönduð bif- reiðageymsla fylgir íbúðinni. Sér hitaveita. Útsýni. Harðviðarinnréttingar, teppi út í horn. Uppl. í skrifstofunni (ekki í síma). HÚS OG SKIP FASTEIGNASTOFA Laugavegi 11. Simi 21515. Kvöldsimi 13637. Björnsson, Sigurður Haraldsson, Helgi Benediktsson, fyrirl., og Guðjón Harðarson. Aftari röð frá vinstri: Stefán Ragnarsson, Jón Gíslason, Reyni'r Vignir, Gústaf Nielsson, Ilörður J. Áma son og Einar Kjartansson. Á myndina vantar Sævar Guðjóns son, Stefán Franklínsson og Pál Benediktsson. -- Aðalþjálfari drengjanna er Lárus Loftsson. Reykvíkíngar — Frh. at bls. 9: inn fjórir skipsfarmar af amm- oníaki og verið komið upp geymi fyrir það, sem rúmar þús und lestir. Hjálmar sagði að þurrkam'ir í sumar hefðu átt drýgstan þátt- inn t að draga úr rafmagnsork- unni, auk þess sem rafmagns- notkunin færi dagvaxandi. Hann sagði að þetti bitnaði að sjálfsögðu mjög tilfinnanlega á Áburðarverksmiðjunni gerði henni á allan hátt óhægt um vik og yki kostnaðinn mjög. Þessar tvær eru frá austri og vestri, en gleymdu öllum „Berlínarmúr- um“ í keppni Olympíuleikjanna. Þær heita Gertrud Schmidt frá A- Þýzkalandi og Margrét Buscher frá V-Þýzkalandi, en þær tóku þátt 1 400 metra hlaupi. vekja mestar deilur og umræður er það hvort leyfa beri Þjóðverjum að senda sameiginlegt lið Austur- og Vestur-Þýzkalands, en það h.ef ur verið gagnrýnt harðlega af full trúum fjölmargra þjóða. Með sam eiginlegu þýzku Iiði hafa Þjóðverj ar náð mjög langt á leikunuip og þykir mörgum sjálfsagt að A.: og V.-Þjóðverjar keppi saman, enda ina og umræður á þingi IOC verðá mjög stjórnmálalegs eðlis. Olym- píuleikarnir eru í stórhættu, segja menn, og það er eflaust rétt. Það er því mikið undir því komið hvernig fulltrúar á næsta þing IOC í Madr'id leysa fram úr málun um, hvernig þessari miklu íþrótta- hátlð reiðir af.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.